Vísir - 10.08.1971, Blaðsíða 2

Vísir - 10.08.1971, Blaðsíða 2
 Skrifaði Johnson 8.772 sinnum Lyndon B. Johnson, gamall forseti Bandaríkjamanna lét sem sumir vita, reisa sér mikinn minnis- varða og bókasafn í borginni Austin í Texas. Um daginn fór Johnson að heim sækja þetta mikla safnhús, þar sem hann sjálfur á reyndar íbúð á efstu hæö með sérstökum út- gangi á þakið, þar sem er þyrlu völlur hans. Nú — Johnson kom til Austin í safnið sitt og dvaldi þar í þrjár klukkustundir og þrjátíu sekúnd- ur. Á þessm tíma skrifaði hann nafnið sitt 8.772 sinnum. Gaf hann jafnmörgum mönnum eiginhandar áritun sína, en öllu þessu fólki hafði verið boðið að koma að skoða saínið og forsetann fyrr- verandi. Þessj heimsókn John- sons í eigið hús, var hin fyrsta frá því safnið var lýst opnaö, en það var 18. maí. Opnunardaginn heimsóttu safnið 8500 manns, — þannig að gestafjö'.dinn um dag- inn er met. Engir unglingar, síðhærðir, komu til að mótmæla Johnson og hans háttalagi með sjálfan sig, og fannst það mörgum skrýtið og er það hald manna að þjóöin hafi þegar gleymt þeim gamla forseta. sem svo mjög var gagn- rýndur fyrir Vfetnamstefnu sína. □ oaaaaaaaaa Klámútgáfan flytur Maurice Girodias heitir sá er einna frægastur er allra klámút- gefenda. Útgáfufyrirtæki hans heitir Olympia Press og starf- aði lengst af f París, enda er eig- andinn franskur. Hann neyddist samt fyrir fáum árum til að flytja alla starfsemina til New York, þar sem frönsk yfirvöld hertu mjög taumhald sem þau höfðu " ^**Wtörlum. Svo gerðist það f sumar, að franskir slökuðu aftur á eftirlit- inu, og þá feng þeir Olympia Press aftur f hausinn. Girodias er strax farinn að pakka niöur. „Morgunverðurinn skiptir öllu44 segir mathákurinn Yul Brynner Þar sem sú staðreynd er óvéfengj anleg, að Yul Brynner getur ekki misst hárið. þá hefur honum ein- hvem veginn (kannski með hár- leysinu) tekizt betur en flestum öðrum — slagurinn við aldurinn, tímann. HárkoIIu hefur hann aldrei sett á sinn gljáfægða skalla — og bendir á gamalmenni eins og Jón Wayne eða Ray Milland — vilji menn sjá karlmenn með hárkoll- ur — Yul Brynner er nefnilega nokkurs konar Dorian Gray. Fólk, sem þekkt hefur Brynner frá því hann var unglingur, getur ekki séð að hann sé eldri í útliti en fyrir meira en 20 ámm, þegar hann kom siðast inn á rakara- stofu (fyrir mörg þúsund rak- vélablöðum síðan, eins og hann sjálfur segir). Marisa Solinas heitir þessi fagra stúlka. Hún er 28 ára að aldri, ítölsk, og svo sem sjá má, þá fyllir hún vel út f sitt bikini. — ítalskir kvikmyndaframleiðendur komu reyndar auga á þá stað- reynd fyrir löngu að kalla hana Brynner er svo heppinn að hin háu, austurlenzku kinnbein hans, gera það að verkum, að æskublóm inn virðíst endalaust halda sér. — Og svo má ekki gleyma lífsþorst- anum sem virðist ólökkvandi — og næringarséríræðingar myndu eflaust gera mest úr þeirri staö- reynd, að hinn 51 árs gamli ungl- ingur, Brynner, er mikill matmað ur. Matarlyst hans er óviðjafnan- leg. Veitingamenn á frægustu, virtustu veitingahúsum út um all an heim, ræða við gesti sína um hina stórkost'.egu lyst Brynners. Hann borðar f eina máltið fæðu- magn, sem myndi halda Twi'ggy við hestaheilsu í mánuð. Blóðugar steikur Blóðugar steikur 12 pt. xxx Blóðugar, feitar steikur. ósköp in ö!l af salati, heilir kjúklingar og kjötbúðingur á eftir — ekkert minna dugir Brynner í morgun- verð. „Ég nýt þess að borða“, segir hann, „og morgunverðurinn er sá réttur dagsins. sem ég legg hvað mesta áherzlu á“. Fyrir mörgum árum, þegar hann var fátækur, ungur maður í Pafs, þá 'agðist hann aldrei svo lágt að fara heim með konum að sofa, nema því aðeins að þær lof uðu honum fyrst ærlegum morgun verði næsta dag. Og þær gáfu honm ævinlega góðan morgunverð — daginn eftir. Kóngurinn og ég Kóngurinn og ég — 12 pt. Brynner er núna í London og er með áætlanir í sambandi við að setja á svið leikinn „Kóngurinn og ég“. Ætlar Brynner að sýna verk þetta aftur á sviði, en eins og gamljr menn kannski muna, varð Yul Brynner frægur á einni nóttu eftir að hafa dansað aðal- hlutverkið í þessu fræga verki. Þá var hann 30 ára, og segir aö hlutverkið hafi þá verið sér því- lík þrekraun, að stundum hafi hann ekki komizt inn á sviðið aftur eftir erfitt atriði, nema hann hafi fengið súrefnisfjöf að tjaldabaki. Núna er hann 51 árs og ætlár ótrauður að dansa þetta mesta hlutverk lífs síns aftur. — „Vegna þess“, segir hann, „að börnin mín, Roc, sem er 25 ára og Victoria, sem er 8 ára. hafa aldrei séð mig í þessu hlutverki. Ég vil að þau sjái mig leika þetta á sviði, það var svo miklu betra á sviðinu en í kvikmynd. — Ég æfi eins og hnefaleikakappi fyrir sýninguna". Mongólsk — svissneskur Mongólsk — svissneskur — 12 pt Brynner hefur aldrei viljað skýra frá því, hverjir væru for- feður hans. Svo var það um dag- inn, að sovézka blaðið Izvestia, skýrði frá því, að afi hans hefði verið svissneskur kaupmaður, er fyrir 70 árum skipti viö Rússa á 2 hveitisekkjum og silfur- námu. Og Brynner játar nú að þetta sé rétt. „Ég nennti aldrei að s’kýra ná- kvæmlega frá ættemi mínu. Mér kom nefnilega aldrei til hugar, að nokkrum kæmi það við, nema þá sjálfum mér, — annars var þessi afj minn svissneskur kaupmaður, Julius Brynner að nafni, og hann byggði að mestu upp höfnina í Vladivostock og gaf Rússum hana. Hann kvæntist fyrst jap- anska konu og átti með henni mörg börn. Svo kvæntist hann mongólskri konu, og átti með henni fleiri börn. Faðir minn var eitt af börnum mongólsku kon- unnar. Ég er þess vegna furðu- leg blanda, bandarískur leikari, svissneskur ríkisborgari og á bæði japanska og kínverska ætt- ingja. Og ég á heima í Normandí. Þar fyrir utan er svo mikið af sígaunablóði í æðum mínum...“ >•< Eiginlega er þetta ágætisatvinna, en samt verð ég dauðfeginn, þegar ferðamannatíminn verður liðinn ... Hann tók „sjansinn"... Elizabeth Taylor ftalíu. Hún hefur Ieiki ðí meira en 20 kvikm., en síðustu myndir hennar eru „Bocc- acco 70“ og „Höfuð fjölskyld- unnar“. ... og þá kom lestin æðandi og skar afturendann af bílnum. — Þetta er 19 ára stráklingur, Bob Bryant að nafni og hann var að aka f Woodland í Washington rflti, USA. Kom að lestarteinum og ákvað að skella sér yfir tein- ana, þótt rautt Ijós á vita glamp aði skært í augu hans. Lestin þrumaði þá allt í einu aftan viö sætisbakiö og bjúkkinn verður víst ekki til stórræðanna úr þessu. Gagnstætt bjúkkanum. þá er Bob litli ennþá til alls lfklegur, hann skrámaðist ekkert, varö bara sold ið hræddur. /

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.