Vísir - 10.08.1971, Side 3
V1SIR . Þriðjudagur ItJ. agust hu.
í MORGUN UTLÖNDK MORGUN UTLOND I MORGUN UTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Umsjón: Haukur Helgason
Shirley Chisholm.
Svertingja-
kona forseti
Banda-
rikjanna?
Svertingjakonan Shirley
Chisholm, sem er þingmað
ur í fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings fyrir kjördæmi í
New York, lætur að því
liggja að hún kunni að fara
I framboð í forsetakosning
unum næsta ár.
Shirley Chisholm hefur
látið mikið til sín taka og
staðið framarlega í rétt-
indabaráttu svertingja.
Liggur við borgarastríði
Óttazt, að tugir hafi fallið á
r
N-lrlandi — ildar í bæjunum
Við borð liggur, að alger
borgarastyrjöld brjótist út
á Norður-írlandi. Að
minnsta kosti 14 hafa týnt
lífi í hrikalegum óeirðum,
sem urðu í gær í Belfast og
öðrum bæjum landsins.
Lögreglan óttast, að mun
fleiri hafi beðið bana.
Brian Faulkner forsætisráðherra
N-lrlands — Óeirðir mögnuðust
við aðgerðir hans.
Reykský ytir mið-
biki London
Mesti eldsvoöi siðan i striðinu
Slökkviliðið í London réði loks í
tr.„_gim við eldsvoða í vöruskemmu
skammt frá Gower Bridge eftir
sextán stunda baráttu. Þetta er
mesti eldsvoði í borginni eftir heims
styrjöldina.
Eldurinn kom upp í sjö hæða
vöruhúsi seint í gærkvöldi. Hitinn
var svo mikill, að kvöildumferðin
var minni en venjulega á stóru
svæöi í grenndinni.
250 slökkviiiðsmenn börðust við
eldinn og höfðu 80 bíla og 8 slökkvi
liðsmanna hafa hlotið alvarleg
meiðsli og sár við starfiö.
í húsinu var geymd tjara og fatn
aður meðal annars.. Eldsbjarmann
mátti greina í margra kílómetra
fjarlægð, og risareykský var yfir
miðbiki London.
Átökin í gær milli
brezka hersins og lögreglu
og félaga í hinum bannaða
„írska lýðveldisher“, sem
eru samtök kaþólskra öfga
manna, eru einhver þau
hörðustu, sem nokkru
sinna hafa orðið, síðan
Norður-írland fékk heima-
stjórn fyrir 50 árum.
Óeirðir höfðu staðið f nokkra
daga, en um þverbak keyrði, þeg-
ar Brian Faulkner forsætisráðherra
N-frlands tifkynnti síðdegis í gær,
að neyðarráðstafanir hefðu verið
gerðar. Nú mætti handtaka fólk,
sem grunað væri um að vera fé-
lagar í lýðveldishernum, IRA, og
halda þvf í fangelsi um óákveðinn
tíma, án þess að dómur væri felld-
ur í málinu.
f írska lýðveldinu á suðurhluta
eyjarinnar grænu bjuggu menn sig
undir að taka á móti ttóttarnönnum
frá Norður-írlandi. Kaþólsk trú er
ríkjandi í írska lýðveldinu, en eins
og kunnugt er stendur baráttan á
Norður-írlandi milli kaþólskra
manna og mótmælendatrúar.
Snemma í morgun var ekki bar-
izt í kaþólsku hverfunum Falls
Road og Anderson f Belfast, en
mikil „spenna var í loftinu“. í
bæjarhlutanum Ardoyne, þar sem
hverfi kaþólskra manna er eins og
„eyja" innan um hverfi mótmæl-
endatrúarmanna, geisuðu eldar í
morgun. Slökkviliðið revnd: efeki
að siökkva eldana og bar við ótta
við árásir.
Líklega hefur verið kveikt í ein-
um 300 húsum í þessum átökum.
Mótmælendur flýðu úr brennandi
húsum í Beffast, og leyniskyttur
si;utu af þökum.
Bein árás var gerð á stöð her-
manna í kaþólska hverfinu í Bel-
fast. Hundruö kúlna hæfðu bæki-
stöðina, sem var skýlt með sand-
pokum. Sagt var, að tveir hefðu
falliö þar.
Ian Paisley aðalforingi öfgasinnaðra mótmælendatrúarmanna.
Heimili hans brann í óeirðunum í gær.
Jack Lynch forsætisráðherra
Irska lýðveldisins — Býður
flóttamönnum skjól.
Hvernig á að
mjólka ísbjörn?
Hættulegt magn af DDT i hvölum og selum
Þrjár sprengjur sprungu
i Stokkhóhni
Hermdarverkamenn að verki
, Þrjár sprengjur hermd
arverkamanna sprungu í
gærkvöldi í útborg Stokk-
hólms, Nacka, og fólksbif-
reið, sem stóð utan lög-
reglustöðvarinnar, sprakk
í loft upp. Ekki færri en
fimmtíu rúður brotnuðu í
lögreglustöðinni. Fólk sak-
aði ekki
Fyrsta sptengjan, sem sprakk,
hafði verið tengd við umferðarljósa
staura 150 metrum frá lö.greglu-
stöðinni. Önnur sprengjan var
mun öflugri. Hermdarverkamennim
ir höfðu í það sinn fest leiðslur
sprengjunnar við fólksbifreið, sem
lögregluþjónn átti.
„Húsið hristist svo að við dutt-
um úr stólunum," sögðu þeir, sem
voru í lögreglustöðinni þegar
sprengjan sprakk.
Þriðja sprengingin varð síðan í
íbúðarhverfi f um fimm kflóm'etra
fjarlægð frá stöðinni, en þar varð
ekki tjón aðeins mvnduðust holur
í jörðina. ,
Lögreglan hefur lokað svæðinu,
þar sem sprengingarnar urðu, þar
hafa fundizt leiðslur og leifar
sprengjanna. Sjónarvottar segja
frá tveimur fólksbflum, sem þeir
sáu f grennd við lögreglustöðina.
Ekki var upplýst, .hverjir hefðu
staöið að þessum verknaði.
Ef þú ætlar að mjólka ísbjörn
þá ginnir þú hann fyrst í snöru
með kjötagni, sem ekki gerir
bjössa neitt mein. Þegar hann er
fastur í snörunni, skýtur þú ör
með deyfiefni í hann. Á 10—15
mínútum verður björninn mein-
laus og þú getur mjólkað hann.
Dr. Bruce Baker kanadískur
sérfræðingur f efnasamsetningu
mjólkur, hefur veriö að þessu.
Hann hefur mjólkað illvíga birni,
seli, fjallageitur, heimskautaúlfa,
hvali og margs konar önnur dýr
merkurinnar. Dr. Baker byrjaði
þessar athuganir árið 1962, bæði
til að athuga gæði mjólkurinnar,
fitu og efni, auk þess að kom-
ast að þvf, hver væri geisla-
virkni hennar, og hve mikiö
magn væri í mjólkinni af slcor-
dýraeitri og „mengun". Hann
rannsakaði í þessu sambandi
mjólk villtra dýra í norðurhéruð
um Kanada.
Vísindatimaritið Science Dim-
ension, tímarit kanadískra rann-
sóknarráðsins, hefur greint frá
rannsóknunum. Dr. Baker, sem
er prófesor í landbúnaðarfræð-
um við McGill-háskólann í
Montreal, hefur rannsakaö
mjóTk f 35 ár. Hann segir að
athuganir sínar síðustu nfu árin
bendi til þess, að geislavirkni,
magn af strontium-90 og Cesium
137 hafi minnkað að undan-
förnu. Magniö sé töluvert neðan
þess, sem það má vera án hættu.
Þettá mun vera ein afleiðing
færri kjarnorkutilrauna síðustu
ár. Hins vegar er magn skordýra
eiturs, svo sem DDT, sem fannst
í jnjólk hvala og sela meira en
það sem talið er hættulaust. Það
var 1,6 hlutar af milljón en talið
er að það verði hættulegt þegar
það fer umfram 1,0 hluta af
mil'ljpn.
Dr, Baker kvartar yfir því,
að erfitt .sé að mjólka selina.
Að vfsu sé auðvelt að eiga við
þá, því að þeir verði venjulega
máttlausir, strax og þeir eru
gripnir í net. En þyjtkt lag af
fitu verndi mjóTkurkirtlana og
selirnir hafa ekki spena.