Vísir - 10.08.1971, Síða 13

Vísir - 10.08.1971, Síða 13
VlSIR . Þriðjudagur 10. ágúst 1971. 13 Kvenréttmdi í ýmsum löndum Asíu Tjað eru víst fá mál, sem Sam einuðu þjóðirnar hafa ekki unnið að — og eitthvað munum við 'haft af þeim að segja. Ráð- stefnur og mót eru haldin vWSs vegar um hin ýmsu mál, og ný- lega var haldin ráðstefna í Manila á Filippseyjum á vegum Sameinuðu þjóðanna sem tók til meðferðar kvenréttindi í Asíu. Það kom í ljós að mun- urinn á opinberum tölum og raunverulegum staðreyndum er mjög mikill. Grein um þetta birtist í Politiken fyrir skömmu og er lauslega þýdd. „Giftar konur í Hong Kong geta ekki notað kosningarétt sinn t. d Aðeins skattgreið- endur hafa kosningarétt o.g þar sem tekjur giftrar konu eru skattlagðar ásamt tékjum eigin mannsins eru þessar konur i mun sviptar kosningarétti sín- um. Samkvæmt brezkum lög- um hafa konur einnig eignarétt en, ef kona S Hong Kong veit ekki um þennan lagabókstaf eða giftist Kinverja verður eigna- hluti hennar hluti eigna manns- ins. Og ofan á allt saman bæt- ist, að karlmönnum leyfist að halda hjákonur. Lögfest hefur verið að sömu laun skuli vera fyrir sömu vinnu, en það er ekki hægt að fastráða giftar konur í starf. TVTalasia, Indónesía og Filipps- eyjarnar eru öll gömul menningarsvæði sem ýmis ný- lenduveldj hafa haft áhrif á stjórnmálalega séð og trúarlega. Þó er velþekkt fyrirbrigði. að hjónabönd séu ákveðin meðan fólk er enn á barnsaldri, en helmingur þessara hjónabanda endar með skilnaði, og konan situr eftir með sárt ennið. Skiln aður verður þó sjaldan á Filipps eyjum þar sem 85% íbúanna eru kaþólskir. Hægt er aö fá skilnað að borði og sæng sam- kvæmt lögum en hvorugt hjón- anna getur aftur gengið í lög- legt hjónaband. Indónesíska konan ber eins mikia ábyrgð á vellíðan fjöl- skyldunnar og karlmaðurinn og á síðasta orðið í öliu er við- kemur dætrunum. í öllum þess Höfundur greinarinnar Josefina Svejstrup talar af reynslu um Filippseyjar en hún er fædd þar og uppalin en gift núna í Danmörku þar sem hún vinnur við Austur-Asíudeild Kaup- mannahafnarháskóla. Pakistan er fjölkvæni ekki enn bannað og skilnaður þekkist ekki, en í vissum tilfellum er hægt að fá hjónaband ógilt. Fjölvæni var bannað í Ind- um þrem löndum hafa konur'^landhárið 1955 ogameð stjómar, sama rétt til æðri menntunar skránrfi' árið 1959'gengu lögin og karlmenn, eina" hindrölíin éf* uht, söfm.i jömu vinnú-" og fjárhagsástæður, og réttur þeirra til fagstarfa er þeim tryggðum samkvæmt lögum. Konur í Neapel giftast yngst- ar eða 14 ára gamlar — en fjölkvæni er ekki viðurkennt í í gildi. Það.'er Itffnig jafn að- gangur að æðri menntun — þó takmarkaður af fjárráðum og hinum almenna skorti á . menntastofnunum. 1 Laos leyfa lögin ekki barnahjónabönd eða þvinguð hjónabönd og hjón hafa jafnan rétt á skilnaði. Jafnvel erfða- löggjöfin gerir ekk; mun á kynj um. TJáðstefha Sameinuðu þjóð- •anna bertti á Kambódíu sém það Iand á þessu svæði þar sem minnstur munur er gerður á kynjum f lagabókstafnum. Bæði kyn hafa aðgang að æðri menntun. konur geta tekið þátt í öllum kosningum og hafa jáfnan rétt tij að vera í fram- boði og karlmenn. Félagsleg lög gjöf útilokar ekki eingöngu allt misrétti kvenna heldur tryggir öllum borgurum Kambódi'u at- vnnurétt. Þar er litið á hjónabandið ekki sem trúarlegan samning heldur sem þjóðfélagslegt fyrir- brigði. Skilnaður er viðurkennd- ur sem skynsamlegasta lausnin á misheppnuðu hjónabandi og erfðalögin eru einföld í sniðum. Eftirlifandi maki erfir allt, eftir dauða hans eða hennar skipta sameiginlegt börn arfi sín á milli Þessi ráðstefna á vegum Sam- einuðu þjóðanna fjallaði ekki um takmörkun barneigna þrátt 7 táknmerki um endanlegt frelsi konunnar hafi náð til Asíu með sömu deilunum með og móti. í Indlandi er fæðingatakmörk un hægt og hægt að vinna sig- ur, en í Pakistan er enn unnið gegn henni. Forvígismenn fjöl- skylduáætlanna í Dacca voru eltir uppi og stofnanir þeirra brenndar á síðasta áratug. En það furðulegasta þykir Japan. Þar eru fóstureyðingar leyfðar en fæðingatakmai;kanir, sérstak lega notkun pillunnar ólöglegar. Hún er aðeins leyfð giftum kon um og við sérstakar kringum- stæður.“ —SB Atvinna — Iðnnám Ungir menn geta komist í nám í rafsuðu og logsuðu- Stálsmiðjan hf. Sími 24406. Sjálfstæð og ábyggileg stúlka óskast við léttan iðnað og venjuleg skrifstofu- og afgreiðslustörf. Vinnuráðning strax eða síðar. Tilb. óskast send á augl. Vísis merkt: „Áhugasöm“. Werjum gróður Haustsýning Félags íslenzkra myndlistarmanna verður opnuð í hinu nýja sýningarhúsnæði Norræna hússins 4. september næstkomandi. Að venju er öllum heimiit að senda myndir, olíumálverk, vatnslitamyndir, grafík, vefnað og höggmyndir., Væntanlegir þátttakendur fá afhenta pappíra með skilmálum sýningarinnar á skrifstofu Norræna hússins eftir þ. 15. ágúst. Utan- félagsmenn borgi 300 króna ábyrgðarþóknun. Tekið verður á móti myndunum þ. 25. ágúst nk. á milli kl. 2 og 7 e.h. St|órnin.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.