Vísir


Vísir - 10.08.1971, Qupperneq 16

Vísir - 10.08.1971, Qupperneq 16
Saltvík gaf 135 þús. í aðra hönd Það eru ekki þær svimháu upphæðir, sem almennt hefur verið búizt við, sem renna í kassann hjá Æskulýðsráði eftir hátíðahöldin í Saltvík um hvíta- sunnuhelgina. Og sannleikurinn er sá, að ekki þarf mildð til svo að hagnaðurinn fari niður í núll. Er reikningamir voru gerð- ir upp af endurskoðendum borg- arinnar 20. júli sl. kom nefnilega í Ijós, að allur hagnaðurinn af Saltvíkurhátíðinni eru tæpar 135 þúsund krónur. Oft var haft á orði að Saltvfkur- hátíðinni afstaðinni, að aðgangseyr ir hafi verið of mikill og allar veit- ingar seldar óheyrilega dýrar. — f>eir 7820 gestir, sem borguðu sig inn á hátfðarsvæðið greiddu að frá dregnum söluskatti samtals taspar 2,5 milljónir kr. og fyrir veitingar rétt rúmar 2 milljónir. Mesti kúfurinn fór af þeirri upp hæð er skemmtikröftunum 40, sem skemmtu á hátíðinni voru greidd launin sín. Þá fóru næstum 1,5 millj ónir á einu bretti. Síðan runnu krónumar hver af annarri í alls lags greiðslur og gjö’.d, en þar var stærsti liðurinn vörukaup til veit- ingasölunnar. Lögregla, hjálpar- sveit og auglýsingamiðlar þurftu líka sitt og á skömmum tíma höfðu verið greiddar tæpar 3 milljónir — eða nánar tiltekið kr. 2.952.815 í ýmislegt af því tagi'nu. Þá var það, að reikningarnir voru gerðir upp og hagnaður Æskulýðsráðs reyndist 134.944 krónur. Enn kann að saxast á þá upp- hæð þar eð hætt er viö að enn séu einhverjir reikningar á Saltvíkurhá tíðina ekki komnir fram. Ekki hefði þurft annað til en að Æskulýðsráð hefði sjálft þurft að standa straum aí kostnaðinum við að hreinsa hátíðarsvæðið að hátið- inni afstaðinni þá hefði hagnaður- inn farið niður fyrir núll. Borgin tók að-sér hreinsunina. —ÞJM Ferðamanna- straumurinn til landsins i juli: Bcsndaríkjamenn VfSI íslands 5 fleiri ! m íslendingarnir i setn komu heim | að utan \ Gffurlegur fjöldj bandarískra {,'crðamanna hefur komiö hingað I til lands á þessu sumri og eru j heir langfjölmennastir erlendra \ 'erðamanna hér á landi í júlí t — og ekki einungis það, heldur J komu fleiri Bandaríkjamenn 1 ’úngað til lands með flugvélum l'. he’dur en íslendingar í þessum k mánuði, eða alls 3740, en Islend 1 ingar, sem komu til landsins 1 voru 3735. Bandaríkjamenn virð \ ast með öðrum orðum ferðast i i meira mæli hingað tii lands, ' ' eídur en íslendingar til ann- { jrra landa samanlagt. Alls komu / 11923 útlendingar hingað til ] lanrte msð flugvéium í júlf og Í:07 komu með skipum, Eru þá skemmtiferðaskip 'að vísu ekki meðtalin. — JH 19 stórkaupmenn sameinast um byggingu stórhýsis — V'órugeymslur, skrifstofur og sameiginleg þjónusta fyrir fjölda fyrirtækja við Sundahöfn fyrir 43.9 milljónir króna Framkvæmdir eru hafn- ila, sem allir eru í Félagi ar við stórbyggingu við Klettagarða á Sunda- hafnarsvæðinu. Þar verða vörugeymslur, skrifstofur og sameigin- leg þjónusta fyrir 19 að- íslenzkra stórkaup- manna. Björgvin Schram stórkaupmað ur er stjórnarformaður hluta- félagsins Heildar hf., sem stend- ur að baki þessara framikvæmda, en til félagsins var stofnað fyr- ir skömmu, og er upphæð hluta- fjár skráð 15 milljónir króna. Björgvin Sohram sagði í við- tali við Vísi í morgun, að bygg- ingin yrði 43 þúsund tenings- metrar að stærð og byggð f fimm einingum, fimm hús, sem komi í röð. Einkenni á þessum hús’um sé mikil lofthæð. Ráðgert sé að byggingarframkvæmdum Ijúki fyrri hluta næsta árs. „Það eru nítján aði'lar, sem að þessu standa“ sagði Björg- vin „þarna verða vörugeymslur, skrifstofur og ýmis sameiginleg þjónusta, sem við vonumst til að svona samstarf geti 'leitt til. Húsin eru byggð á mjög hag- kvæman hátt eru einföld í snið- um og notagildi látið sitja f fyrirrúmi. Þeir aðilar, sem að byggingunni standa hafa verið í óheppitegu húsnæði að undan- förnu. Lánastofnanir halfa sýnt þessu máli góðan skilning og að- stoðað við að koma þessu af stað“. Þá sagði Björgvin, að verkið hefði verið boðið út og væri á- ætlaður byggingarkostnaður fyrsta áfanga, sem miðaður vaeri við að byggingin sé fokheld og rfflega það, 43,9 milljónir knðna. . ......... - 'i. . . ................................ .. . Atvinna óskast! Hún heitir Helga Rósa og er 19 ára. Ljósmyndarinn okkar, hann Ástþór veitti henni athygli á þjóð hátíð Eyjaskeggja nú um he’.gina og síöðst ekki mátið að smella af þessari mynd. Helga kvaðst vera nýkomin til íslands eftir 13 ára búsetu í Banda ríkjunum og hér ætla» húr, sér að setjast að til frambúðar. „ís- land er alltaf bezt“, sagði hún og bættj við að nú vantaði hana bara vinnu við eitthvað spennandi í Reykjavík ... Á atvinnuleysisskrá eru aðeins u. þ. b 10 konur þessa stundina, svo Helga Rósa ættj ekki að. ganga atvinnulaus lengi úr þessu —ÞJM Bílstjórar ætla að taka harkarana fyrir „Það er talsvert um þaö, að menn séu að aka nágrönnum sín um eða vinnufélögum tll og frá vinnu, og taka þá gjald fyrir. Slík ur akstur er algjörlega bannaður og við hér hjá Frama erum að athuga málið, hvað hægt er að gera. Vitanlega er það bannað með lögum að aka fólki án þess a5 hafa til þess sérstakt leyfi, enda eru einkabílar ekkj tryggðir til stíkra fólksflutninga," sagði tals- ntaður hifrc iðastjórafél. Frttma er Vísir spjallaði við hann f gæz. „Það er og ævinlega eitthvað um það, að menn fari á stúfana á kvöldin í bílum sínum, og „harka“ í miðbænum. Aka þá úttendmgum og öðrum ferðamönnum svona yf- ir háannatímann." Sagði talsmaður Frama, að her- ferð gegn stíkum ökuþórum vasri 4 bigerð, og væri frekari fnegm aá henní að vænta á næfitannL Mæta öllum ströngustu kröfum — Byggja eitt fullkomnasta frystihús lemdsins i Höfn — Þetta frystihús verður byggt með það fyrir augum að það geti mætt öllum ströngustu kröfum og er að sjálfsögðu byggt þannig að það standist fullkomlega hinar ströngu amerfsku kröfur um frá- gang fisks, sagði Ásgrímur Hall- dórsson kaupfélagsstjóri á Höfn í Hornafirði, þar sem nú er í smíð um líklega fullkomnasta frystihús á landinu. Húsið verður byggt í þremur áföngum og verður fyrsti áfanginn, sem er frystigeymsla tek inn í notkun á vertíð í haust, en áætlað er að húsið verði tilbúið 1973. — Við höfum orðið að kosta miklu upp á gamla húsið í lagfær ingar og samt stenzt það aldrei fylli'ega þær kröfur, sem gerðar eru. sagði Ásgrímur. Það er ein ástæðan fyrir byggingu þessa h\tec Þarna reiknum við með að ná mun meiri hagkvæmni í rekstri. Menn hafa verið sendir utan, bæði frá okkur og eins frá Sjávarafurða deild SÍS og Teiknistofu SÍS til þess að kynna sér ýmislegt í sam bandi við nauðsynlegan búnað sliks húss og auðvitað verður reynt að nýta sem bezt þá tækni, sem til- tæk er. Hins vegar er ekki hægt að telja til neinar nýiungar í þessu frystihúsi enn sem komið er, enda er enn verið að vinna að skipu- lagningu sjálfs vinnusalarins og vélasalar. Það er Teiknistofa SÍS, sem sér um skipulag hússins í samráði við S.iávarafurðadeild SÍS. Áætlað er að afkastageta húss- ins verði helmingi meiri en gamla hússins. sem fyrir er á Homafirð en það afkastar 40—60 lesrtum á sólarhring af slægðum fiski með haus. —JH

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.