Vísir - 21.09.1971, Blaðsíða 3
V1SIR Þriðjudagur 21. september 1971.
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN UTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
3
Umsjón: Haukur Helgason
Bæja- og sveitastjórnarkosningarnar i Noregi:
Verkamannaflokkurim, hægri og
vinstri flokkurinn töpuðu nokkru
— Miðflokkurinn og kristilegir unnu á
Trygve Bratteli
Verkamannaflokkurinn
norski, sem stjórnar með
minnihlutastjórn tapaði
fylgi í bæja- og sveita-
stjórnakosningunum, sem
fram fóru í gær og fyrra-
dag. Hægri flokkurinn og
vinstri flokkurinn töpuðu
einnig, en miðflokkurinn
og kristilegi flokkurinn
unnu á.
Þegar úrslit voru í morgun kunn
í 539 af 550 stöðum, þar sem kosið
var hafði verkamannaflokkurinn
fengið 42,2 prósent atkvæða og tap
að 1,8 prósentum. Hægri flokkurinn
hafði 17,8 prósent, tapaði 1,7 pró-
sentum. Vinstr; flokkurinn 8,4 pró-
sent, tap 1,4 prósent.
Miðflokkurinn hafði 11,7 prósent
og hafði unnið 2,3 prósent. Kristi
legi flokkjurinn fékk 8,6 prósent og
bætti við sig 1,6 prósentum.
Vinstri jafnaðarmenn fengu 4,8
prósent og töpuðu 0,4 prósentum og
kommúnistar 1,3 prósent, sem var
0,1 prósent aukning. — Auk þess
voru víða sameiginlegir listar.
Foringjar flokkanna voru yfirleitt
sammála um, að úrslitin mundu
Ástæðulaus skyldubólu-
,Meiri hætta af bólusetningu en sjúkdómnum á Vesturlöndum'
Ríki, þar sem heilbrigðis
mál eru í góðu horfi, gætu
nú án áhættu hætt reglu-
bundinni bólusetningu við
Kenneth Kaunda forseti Sambíu hefur verið kallaður „maðurinn
með andlitin tvö“ af andstæðingum sínum.
Stjórnarandstaða
moluð í Sambíu
kúabólu, að sögn tals-
manns alþjóðlegu heilbrigð
isstofnunarinnar í Genf.
„Málum er nú þannig komið í
löndum eins og til dæmis Bretlandi
og Bandaríkjunum, aö áhættan við
bólusetningu er í rauninni meiri en
hættan á að veikjast af sjúkdómn-
um“, segir hann. I Bandaríkjunum
hefur ekkert kúabólutilfelli komið
upp í 22 ár, en á ári hverju deyja
sex af völdum bölusetningar við
sjúkdómnum. Sjúkdómurinn hefur
að heita má verið útrýmt í stórum
hlutum heims, meöal annars í S-
Ameríku og Vestur-Afríku.
Mest hætta er á sjúkdómnum á
Indlandi, Pakistan og löndum þar í
grennd.
Bretar hættu fyrir ári að hafa
skyldubólusetningu gegn sjúkdómn
um og er búizt við að Bandaríkja
menn fylgi i fótspor þeirra í þaust.
litlu breyta. Trygve Bratteli, for-
sætisráðherra og formaöur Verka-
mannaflokksins, sagði, að kjörsókn
hefðj verið léleg og það valdið
mestu um breytingarnar, sem urðu
frá fyrri kosningum. Þetfca hafi
einkum komið fram í stærstu bæj-
unum. Forystumenn Miðflokksins,
sem er flokkur Per Bortens, fyrr-
verandi forsætisráðherra, töldu gott
skipulag hafa valdið miklu um aukn
ingu á fylgi flokksins. Þeir lýstu
ánægju sinni með styrk Miðflokks-
ins í bæjunum, en Miðflokkurinn
var áður fyrr bændaflokkur.
Formaður Kristilega þjóðarflokks
ins, Korvald, telur, að ungir kjós-
endur hafi stutt flokk sinn í rík-
ara mæli en áöur. Formaður hægri
flokksins, Kaare Willoch, viður-
kenndi, aö hægri flokkurinn væri í
öldudal eftir stjómarkreppuna í
vor. Úrslitin væru ekki hagstæð,
en þó væri flokkurinn aftu.r að ná
sér á strik eftir kreppuna. Formað-
ur Vinstri flokksins, Helge Seip,
viðhafði svipuö ummæli um sinn
flokk.
Hipp®
STRÍÐ?
Egyptar hervæðast af kappi, og menn Cttast stórstyrjöld i Mið-
Austurlöndum. — Ástandið hefur hríðversnað, eftir að sá atburð-
ur varð, er myndin sýnir, þegar Egyptar skutu niður her-
þotu Israelsmanna yfir Sinaí-eyðimörkinni og s;ö af átta í áhöfn
biðu bana. — Myndin sýnir hermann frá ísrael kanna flakið.
Forseti Sambíu, Kenneth Kaunda
gekk í gær milli bols og höfuða á
stjórnarandstæðingum í landinu. —
Lögreglan handtók tíu helztu for-
ingja stjórnarandstæðinga. Þó var
fyrrverandi varaforseta, Simon
Kapepwe hlíft í þessari lotu.
Búizt hafði verið við þessum að
geröum, síjjian Kapapwe gekk úr
stjóm fyrir skömmu. Kaunda held
ur því fram, að flokkur Kapepwes
njóti styrks frá Suður-Afríku.
Meðal þeirra, sem handteknir
vom, er varaformaðurinn I flokki
Kapepwes og flestir aðrir £ stjórn
flokksins. Kaunda segist gera þetta
til að vernda örvggi ríkisins. Hann
segir, að óánægðir stjórnmálamenn
hafi sent menn til erlendra ríkja til
að fá þjálfun f skæmhernaði. Þess
vegna hafi sér verið nauðugur einn
kostur að beita hörðu til að halda
uppi lögum og reglu í Sambíu.
Kápepwe neitar því, að stuðnings
menn hans hafi átt nokkurn þátt f
neðanjaröarstarfsemi.
Dularfullar fréttir um
. i i
kóleru á Mallorca
Tveir sænskir ferðamenn
hafa lagzt á sjúkrahús á
Mallorca með ýmis kóleru
einkenni, segir sænska
blaðið Expressen í gær.
Blaðið vitnaði einnig til fréttar
frá Mallorca, þar sem sagt var að
sænskur ferðamaður, Lars Erik
Pettersen frá Gautaborg hefði lát-
izt úr kóleru í síðustu viku. Þessi
frétt var frá sænskum sjónvarps
fréttamanni komin, en haft er eftir
sænskum lækni að Petterson hafi
látizt af völdum lungnabólgu. Lækn
ir frá Noröurlöndum hefur hins veg
ar sagt, að hann hafi boriö merki
kóleru.
Sænski ræðismaðurinn á Mallorca,
Torsten Svensson, neitar þvf, að
nokkrir Svfar hafi veikzt af kóleru
á Mallorca. „Okkur er jafnóðum til-
kynnt um öll veikindi Svía hér“.
segir ræðismaðurinn, „og við höfum
ekkert heyrt um að sænskir ríkis-
borgarar hafi veikzt af kólem.“
Svensson neitaði því einnig, aö Fett
erson hefði látizt úr kóleru. Hefði
Hk hans verið krr'ið, og því slegið
föstu, að banameinið hefði verið
lungnabólga.