Vísir - 02.10.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 02.10.1971, Blaðsíða 1
I. árg. — Laugardagur 2. október 1971 — 224. tbl. ,Manneskja ímaskínunni „Höfuðsmaðurinn frá Köpen- ick lýsir uppreisn lítilmagnans gegn ómennsku, afskræmdu stjórnkerfi og markmið leiksins er að lýsa kerfinu sjálfu og þeim hugsunarhætti, sem það rís á fremur en atvikum uppreisnar- innar.“ — Þannig kemst Ólaf- ur Jónsson, Mstagagnrýnandi Vísis m.a. að oröi um leikrit Þjóðleikhússins, sem var orðið frægt mörgum vikum fyrir fmm sýningu. — Ólafur kemst að þeirri niðurstöðu að leikritiö OF MÖRG BARNASL YS Hefur fjölguð um helming fru í fyrru „Það fer núna í hönd erf- íðasti tíminn í umferðinni, þar sem skólarnir eru byrj- aðir og börnunum í umferð inni fjölgar. — Lækkaður skólaaldur veldur okkur enn meiri áhyggjum í þessu efni,“ sagði Óskar Ólason, yfirlögregluþjónn í um- ferðardeild lögreglunnar. Tíu þörn slösuðust í umferð- inni í Reykjavík í september í fyrra, og frétzt hefur af 8 börn um, sem lent hafa f umferöaró- höppum núna í september. „í ágúst slösuöust 7 börn, og þá vitum við meö vissu um 64 börn, sem slasazt hafa núna á þessu ári fram aö byrjun sept- ember. — Það er 20 fleiri böm en í fyrra,“ sagði yfirlögreglu þjónninn. Síðast í fyrradag urðu tveir 9 ára gamlir drengir fyrir bíl- um hvorugur slasaðist alvar- lega, og annar slapp revndar svo til ómeiddur. — Annaö óhappið varð í Flugugróf, um hádegisbil ið, þar sem drengur á reiðhjóli varö fyrir bíl, en hitt varð rétt fyrir kl 7 á móts við aðalinn- ganginn í sundlaugarnar í Laug ardal. Barnaslys á Sundlaugavegi „Þar á Sundlaugaveginum hafa orðið nokkur slys á börn- um á undanfömum árum. Svo rammt kvað að þvV, að í hittið fyrra var gripið til þess ráðs að hafa þar gangbrautarvörð," sagði Óskar Ólason okkur. Auk sundlauganna, sem eru mikiö aðdráttarafl barna í Laug arneshverfinu, þá eru tveir skól ar á þessum slöðum. Annar er Laugalækjarskólinn og hinn Laugarnesskölinn. — íbúar í Kleppsholtj og hverfinu norðan við Sundlaugaveg hafa nokkrar áhyggjur af því fyrirkomulagi, að þeir senda börn sín í bama skólann í Laugamesskólanum og þurfa þau yfir Sundlaugáveg- inn að fara. En úr gamla Laug arneshverfinu koma fá börn í barnaskólann nú orðiö, þar sem börn íbúanna eru flest uppkomin Hins vegar er Laugalækjarskól inn, sem stendur norðan Sund- laugavegarins notaður fyrir gagnfræðaskóla, sem hálfstálpað ir unglingar sækja. Hefur heyrzt á íbúunum, að þeir teldu meira öryggi af því að hafa hlutverka skipti hjá skólunum. „Þrátt fyrir að öllum þyki barnaslys í umferðinni óhugnan leg og þykj sjálfsagt að leggja allt kapp á að draga úr þeim, þá er eins og fólk — bara al- mennir vegfarendur láti sig litlu skipta það, sem þeir sjá til barna í umferðinni. Allir hlaupa upp til handa og fóta, sjái þeir bam með skæri í höndunum, (jafnvel þótt það sé ekki þeirra eigið bam) en sjái þeir bam að leik úti við umferðargötu, leiða þeir það hjá sér. — Á sama tima eru þó þeirra eigin börn kannski í háska stödd út; á götum ann ars staðar, og er ég viss um, að þeir yrðu því fegnir, ef einhverj ir létu það til sín taka. — Ung böm á ferð yfir götur þurfa engu síður aðstoð til að komast yfir en blint fólk eða gamalmenni,“ sagði yfirlög- •regluþjónninn. — GP Líbanonmaðurinn sendur heim „Menn láta sér fátt finnast um annarra börn í umferðinni, en mundu fegnir þiggja, að vegfarendur gæfu gaum þeirra eigin börnum, þegar þeir sjá þau á leið yfir götur eða hætt komin“v segir Óskar Ólason, yfirlögregluþjónn í umferðardeild. Libanonmaðurinn, sá er lagður var inn á Vífilsstaði í síðasta mánuði með smitandi berkla, verður bráðlega sendur heim til Beirut, að því er Sigurður Sig- urðsson, landlæknir tjáði Vísi f gær. // Kæfa mann inni í greni — hundaeigendur hora varla út á götur með hunda sina „Vlð vitum ekki til, að gang- ið hafi verið inn á heimili manna og teknir af þeim hundar með valdi“, sagði Guð mundur Hannesson, ritari hundavinafélagsins, er Vísir ræddi við hann í gær, „lög reglan þyrfti enda til þess sérstakan úrskurð og myndi sjálfsagt ekki fara hljótt, ef af 1 fréttist “ — Þora hundaeigendur \ að ganga útj á götum meö hunda síasj?. ! „Eg ræddi einmitt um þetta i haust við Ásgeir Friðjónsson, fulltrúa lögreglustjóra, ,,og hann viðurkenndi fyrir mér, að ég gæti ekki verið öruggur með dýr ið mitt úti á götu — þetta er eins og að kæfa mann inni f greni. Maöur getur ekki farið út meö dýrið að viðra það — nema kannski laumast fáfarnar slóðir að næturlagi!“ Standið þiö í sambandi við félög hundaeigenda erlendis t. d. í Bretlandi? „Hundavinafélög, dýravernd- unarfélög og önnur slík hafa sett sig í samband við okkur, og við höfum veitt þeim upplýsingar um þetta mál hérna, og við njótum stuðnings þeirra í öllu. Alþjóðlega dýravemdunarsam- bandið hefur málið til meðferðar en ég veit ekki á hvaða grund- velli“. — Hafið þið vísað málinu til Mannréttindadómstólsins f Strassbourg? ,,Það hefur ekkj verið gert enn, en verður gert á næstunni. Slíkt er ekki hægt að gera, nema málið sé rækilega undirbúið". — Ræða hundaeigendur nokk uð um það að flytja burt úr Reykjavík t. d. til Hafnarfjarðar þar sem hundahald er leyfilegt — meðan núlifandi hundar tóra? „Ég hef ekkj frétt af slíkum tilfellum — hins vegar hefur fólk rætt um það að flytja burtu ef lögreglan ætlar að grípa til einhverra róttækra aðgerða gegn okkur“ — GG eigi enn hljómgrunn, hvarvetna þar sem sfcrifstofuveldi við- gengst með tilskilinni trú á rétt sköpuð yfirvöld. Sjá bls. 7 .,Hann er ekki hættulegur lengur — engin hætta á að hann smiti, og maðurinn feröafær," sagði land læknir. Líbanonmaður þessi kom hingað til lands í júlí og leigðj herbergi á Seltjarnarnesi. Þar voru tvö ung börn, sem smituðust af honum, og eru þau enn á sjúkrahúsi. Víðtæk könnun hefur fariö fram á því fólki sem einhver samskipti hafði við manninn, en það var ekki fátt. Hann vann í frystihúsi, og kom í Ijós, að 2 stúlkur, sem með honum unnu, voru komnar með berklasmit. Voru þær lagðar á sjúkrahús og eru þar, en eru hitalausar orönar og við góða líð an, að því er landlæknir sagði. Auk stúlknanna, vinnufélaga mannsins, var 9 ára gömul stúlka er gætti barnanna tveggja, sem voru með Líbanonmanninum í húsinu á Sel- tjarnarnesi, lögð á spítala, og er hún einnig viö góða líðan. Þessi tvö berklaveikitilfelli, sem skaut upp í kjölfar Líbanonsmanns ins, hafa orðið til þess að leiða huga manna aftur að berklavörn- um landsmanna og hversu mönn- um hefur orðið ágengt i þeim. Svo vill til, að hinn árlegi berkla varnadagur SÍBS (fyrsti sunnudag- ur hvers októbers) er einmitt á morgun, en tekjum þess dags ver félagið til berklavarna, —GG Laxaeldi höfuðat- vinnugrein „Laxeldi verður einn af meg- inatvinnuvegum okkar eftir 15 —20 ár“. segir Jón Sveinsson, sem með laxaræktarstöð sinni og félaga sinna i Lárósum hef ur náð eftirtektarverðum árangri í laxarækt. Sjá bls. 9 Herferð gegn „víkinga- klámi •// Eldar hafa nú verið kveifctir um allt England trl „varnar" gegn klám; frá Ðánmörku eins og eldar voru áður kveiktir við strendur Englands þegar vart varö við víkingaferðir. 3ja vikna barátta í þvísa landi á sem sagt að vekja almenning til umhugs- unar, hver hætta geti veriö á ferðum við kláminnflutning frá þv£ landi, sem áður ól víkinga er gerðu þá einnig strandhögg hjá Englum. Sjá bls. 2 Tottenham — Keflavík Myndir með skýringum Halls Símonarsonar á bls. 3. Norskur her til íslands? Sjá bls. 8

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.