Vísir - 02.10.1971, Side 16
Föstudagur 1. október 1971.
,Jsl@nzka sjón-
varpið 5 órum á
efftir dönsku,#
Einn poki dugir
500 börnum n dag
Styðja
danska
útvarpsmenn
Á stijórnarfundi Blaðamannafé-
lags Islands í gær var ákveðið að
beina þeim tilmælum til félaga í
B. 1., að þeir sendu ekki fréttir
;
: ■ ;v/:
•••':;
;
wmmmmmm
— segir Politiken
Danska sjónvarpið hefur flutt i
fyrsta sinn leikrit frá íslenzka sjón
varpinu. Það var Postulin eftir Odd
Bjömsson, sem sýnt var hér s. 1.
vetur og fjallar um bilið milli kyn
slóðanna og hve litið það er í raun
inni.
Danska blaðiö Politiken segir, aö
með þessu sé íslenzka sjónvarpið
orðið þátttakandi í samstarfi sjón
varpsstöðva á Noröulöndunum um
leikrit. Að vísu megi ekk; búast
við möngum sjónvarpsleikritum frá
íslandi, sem geti ekki með S—10
leikritum fylgzt með hinum stöðv-
unum. „Stúdíó“ það, sem íslenzka
sjónvarpið noti, sé eitthvað svipað
þvf og danska sjónvarpsleikhúsið
hafi hætt að nota fyrir fimm ár-
um, og til gamans meg; geta þess,
að íslenzka sjónvarpið hafi enn
einn sjónvarpslausan dag í viku.
- HH
Niu tonn af mjólkurdufti send til Indlands
180 t>ús. dagskammtar til barna flóttamanna
360 sekkir af mjólkur
dufti, eða níu tonn voru
fluttir I gærdag frá
Mjólkurbúi Flóamanna
suður á Keflavíkurflug-
völl. Er hér um að ræða
sendingu frá Rauða
krossi íslands til Ind-
verska Rauða krossins,
sem mun síðan dreifa
því til flóttamanna frá
Austur-Pakistan.
Er verðmæti sendingar þessar
ar um 450 þúsund íslenzkra kr.
og er hún keypt fyrir fé sem
komið hefur inn í söfnun þeirri
sem stáðið hefur yfir til styrkt-
ar flóttafólki frá Austur-Pakist-
an. Alls munu nú hafa safnazt
um 470 þús. krónur.
Munu flugfélögin þrjú, Loft-
leiðir, Flugfélag íslands og BEA,
hafa tekið að sér að koma mjólk
urduftinu til London. Flytja
þau það endurgjaldslaust þegar
rými leyfir í áætlunarfluginu.
Það magn sem hvert barn fær
á dag er 50 grömm þannig að í
hverjum 25 kílóa sekk er dags
skammtur fyrir 500 börn. Má
af því sjá aö þótt magnið sé
ekki mikið þá samsvarar það
180 þús. skömmtum.
Má þvi segja' að sendingin sem
Rauði krossinn sendir í nafni ís-
lenzku þjóðarinnar, samsvari þvi
að sérhver Islendingur gefi tæp
lega einn skammt.
Söfnuninni til flóttamann-
anna veröur haldið áfram eitt
hvað lengur. —JR
eða annað efni til danskra útvarps-
ins og sjónvarpsins meðan á verk-
falli fréttamanna við þessar stofn
antr stendur.
Þetta er merkingin á pokunum sem fara til Indlands.
<fc-----------------------------------------
Læknar loka á laugardögum
Nú verða læknastofur einnig lok-
aðar á laugardögum yfir veturinn
eins og hefnr tíökazt yfir sumarið.
Ein stofa verður þó opin, en það
er læknastofan á Klapparstíg 27 og
verða þar tveir læknar á vakt frá
9—12 á laugardagsmorgnum.
Læknarnir taka ekki við vitjana
beiðnum heldur ber fólki að hringja
í kvöld- og helgidagavaktina, þeg
ar um það ræðir. —SB
v,vvðv.v.v:.v.v.v.w.v.VAV.w.vðm'.WA\v.v
Skálholti
Kambans
sjónvarpað
Fjögur leikrit i undirbáningi hjá sjónvarpinu
Bílstjórar frá Mjólkurbúi Flóamanna, þeir Jóhann Jónsson og Þórarinn Guöjónsson, með einn 25
kílóa poka af mjólkurdufti, en hann nægir 500 börnum á dag. Flutningabílarnir með sendinguna
eru í baksýn.
„Grímseyingar mótmæltu strax44
,Aldrei leitaB oð stóru grjóti" — segir oddviti
„Það er alrangt, að ekki hafi kom-
ið fram ákveðnar óskir um breyt-
ingar á áætluninni um hafnarfram-
kvæmdirnar 1 Grimsey. Ég var
sjálfur staddur á hafnamálaskrif-
stofunni í marz árið 19B9 og þá
voru mér sýndar þessar áætlanir
heirra. Ég mótmælti þeim strax og
-eyndi að benda þeim á, að brim
varnargarður á fyrirhuguðum stað
myndi aldrei standa lengi. Fram-
•<"*>mdip hófust ekki fyrr en í
' ini og því var nógur tími til að
gera breytingar, ef einhver áhugi
hefði verið fyrir hendi,“ sagði Al-
‘reð Jónsson oddviti í Grímsey, er
Vísir hafði samband við hann.
Ha’fnamálastofnunin sendi dag-
blöðunum greinargerð um hafuar-
framkvæmdirnar í Grímsey og birt
ist hún í blöðunum í gær. Segir
þar m. a. að Grímseyingum hafi
verið kynntar áætlanir um fram-
kvæmdir, en engar ákveðnar ósk-
ir komið fram um breytingar. Einn
ig segir að Grímseyingar hafi ekki
sótt um bætur úr hafnabótasióði
vegna garðsins sem skolaði i
burtu. Ástæðan fyrir hvarfi garðs
ins var sú, að ekki fékkst nógu
stórt grjót — 10—12 tonna — í
eynni, segir hafnamálastofnunin
ennfremur.
„Nei, við vildum sko ekki hafa
garðinn þarna,“ sagöi Alfeð. „þegar
ég talaöi um þetta við verkíræðing
inn sem hafði yfirumsjón með hafn
arframkvæmdunum, sagði hann að
það vær; ,,prinsip‘‘ stofnunarinnar
aö breyta aldrei teikningum Hins
vegar bætti hún öll mistök að
fullu. Þess vegna töldum við aö
hafnamálastofnunin myndi ann-
ast bótagreiðslur. En ef það stendur
bara á umsókn frá okkur, þá er
hægur vandi að útbúa hana strax.
Satt er það, að það þurfti mun
stærra grjót í garöinn. En engin
leit var gerð að nógu stóru grjóti
i eynni og auk gátu tæki þau er
hingað voru send ekki tekið meira
en 5 tonn í einu og því var engin
glóra í byggingu brimvarnargarðs-
:ins, sagðj Alffeð að lokum. — SG
Sjónvarpið virðist ætla aö
halda þeirri stefnu að sýna
eitt íslenzkt leikverk í mán-
uði hverjum og eru miklar
annir hjá starfsfólki sjón-
varpsins um þessar mundir
viö undirbúning vetrardag
skrárinnar. Októberleikritið
verður að sögn Jóns Þórarins
sonar forstöðumanns lista-
og skemmtideildar, „Uppi á
fjalli að kyssast“ eftir Jón
Dan, sem tekið var upp í
sumar, mikinn part úti.
Sjónvarpið mun nú vera að
undirbúa upptöku fjögurra
verka. sem filmuð verða í haust
og vetur. Viðamest þessara
verka er „Skálholt" eftir Guð-
mund Kamban, sem sýnt var í
Þjöðleikhúsinu á sinum tíma.
Leikstjóri verður Baldvin Hall-
dórsson. Brynjólf biskup leikur
Valur Gíslason, en hann lék það
hlutverk einnig í Þjóðleikhús-
inu. Ragnheiði Brynjólfsdóttur
leikur ung leikkona sem num
ið hefur í Þjóðleikhúsinu, Sunna
Borg, bróðurdóttir Öinnu Borg en
Daða leikur Guðmundur Magn-
ússon. Jón Þórarinsson vildi
ekki segja neitt um þetta verk-
efni sjónvarpsins að svo stöddu
enda ekki farið að vinna verkið
ennþá.
Þá mun liggja fyrir hjá sjón-
varpinu aö taka upp leikrit sem
nefnist „Deilt með tveim". höf-
undur er Kristinn Reyr Og
sagði hann að verkið væri sér
staklega skrifað fyrir sjónvarp-
ið. Leikstjóri veröur að lfkind-
um Gísli Alfreðsson.
Auk þessa mun ætlunin að
taka upp í vetur sænskt barna
leikrit, sem nefnist „Vala' vekj-
araklukka“ og verður Bríet Héð
insdóttir leikstjóri. Um þessar
mundir er svo unnið að leikriti
eftir ungan höfund, Ásu Sól-
veigu, og nefnist það Svartur
sólargeisli. Leikstjóri er Helgi
Skúlason. Frá þvi h&fur áóur
verið sagt hér í blaðinu,
—JH