Vísir - 19.11.1971, Qupperneq 4
4
V I S ( R . Föstudagur 19. nóvember 1971.
150 SKUTU I
15 MÍNÚTUR
í fimmtán mínútur stóð ungfrú heimur, meðan 150 ljósmynda-
vélum var beint að henni. Stanzlaus skothríð, hróp og köll, segir
Martin Chillmaid fréttaritari okkar í London. Einn í hópnum var
ljósmyndari frá Vísi, Ástþór Magnússon, sem tók meðfylgjandi
myndir. Sýna þær Fanneyju Bjamadóttur úr Vestmannaeyjum í
keppninni ásamt ungfrú Hollandi, en hin myndin sýnir hina ný
kjörnu UNGFRÚ HEIMUR — hina dökku ungfrú Brasilíu.
Allirvilja P1ZZA PlE
NÝJAR GERÐIR DAGLEGA
M-A. Spaghetti PIZZÁ Hamborgara PIZZA
Ananas PIZZA Kabarett PIZZA
með 4 teg.
ALLTAF NÝBAKAÐ OG HEITT
LYSTUGT — LJÚFFENGT og FALLEGT
til framreiðslu
SMÁRAKAFFI
Laugavegi 178, sími 34780
„Ég heiti
Múhammed Alí!
Flugmaöurinn, sem lenti á
þjóðveginum í Borgarfirði fyrra
fimmtudagskvöld komst, sem
betur fer slysataust frá ævintýri
sínu ásamt farþeganum, enda.
þótt skilyrði til lendingar væru
öll hin verstu. Til Borgamess
komust þeir flugmaður og far-
þegi ,,á puttanum“. Þar gáfu
þeir sig fram hjá Herði lögreglu-
manni Jóhannessyni. „Ég heiti
Múhammed Alí“ sagði flugstjór
inn. Óvenjulegt og þó kunnug-
legt nafn það. Maðurinn er arab-
ískrar ættar eins og nafnið bend
ir til.
Þjóðhöfðingjar
og landar vorir
Svo er að sjá á fornum bók-
um að forfeður vorir hafi helzt
ekki mikið viljað eiga saman
við aöra en höfðingja að sælda,
er þeir skruppu út fyrir land-
steinana Eflaust eru kóngar og
keisarar okkur enn kærastir
allra, enda sagt aö óvíða renni
konungsblóð í æðum í eins
miklum mæli og í íslendingum.
En það gerist sjaldgæfara að
við göngum á fund kónga Níels
P. Sigurösson gekk hins vegar
á fund Eftsabetar II. Englands-
drottningar á dögunum og af-
henti trúnaðarbréf sití ' sem
amhassador ; i landinu„._.Pierrg
Trudeau forsætisráðherra Kan-
ada mundj líka eftir Islending-
um á Leifsdaginn í október, —
sendj hann samkomu íslendinga
ámaðaróskir með daginn.
Flýði eftir árekstur
Ökumaður einn sté fast á
bensírigjöfina. þegar hann hafði
lent i smávægilegum árekstri.
Var greinilegt að maðurinn
mundi hafa meira en iítið ó-
hreint mjöl í pokahorninu. Tal-
stöðvarnet lögreglunnar var nú
sett í gang, lýsing á bíinum var
komin um alla Stór-Reykjavik
innan stundar svo og bílnúmer-
ið. Hafnarfjarðarlögreglan náði
líka sökudólgnum innan stund-
ar. Kom i ljós að bílstjórinn
var enginn annar en hinn kunni
ökumaður Stútur við stýrið
Góður árangur af starfi
einstæðra
Leiðrétting hefur þegar fengizt
á ýmsum baráttumála félags
einstæðra foreldra. Til dæmis
má nefna hækkaðan barnalif-
eyri og ekkjumenn sitja nú við
sama borö og ekkjur.hvað snert
ir barnalífeyri. Skóladagheimil-
um hefur verið komið á lagg-
irnar í tveim hverfum borgar-
innar og loks má nefna að fyrir
milligöngu borgarinnar hefur
félagið fengið gott skrifstofuhús
næði í Traðarkotssundi 6, og
veitir félagsráðgjafi þar upp-
lýsingar þeim sem þess óska.
Sumarfríið um
jóíaleytið?
Flugféiagið er að hugsa til
hreifings suður á bóginn eins
og farfugiarnir á haustin. Það
er til Kanaríeyja, sem fljúga á,
en tilraunir með vetrarorlof
sem þetta virðast ætiq að ganga
vel Samtais fóru 750 fslend-
fngar á vegum félaqsins i fyrra
f 9 feröum, en í vetur verða
ferðirnar 10 talsins oa hefur all-
mikið verið bókað Við vísum
öilum nánari upplýsingum til
feröaskrifstofanna eða Flugfé-
lagsins — eða aug'ýsinga um
þessar skemmtilegu ferðir, sem
hefjast um jólaleytið, eða 16.
desember.
Vilja slátur en fá ekki
fyrir „westan“
„Enn kunna margar eldri
konur listina en nú eru engir
orðnir eftir í Winnipeg eða
annars staðar, sem vilja koma
undan fyrir þær blóði til slátur-
gerðar". Þetta segir Caroline
Gunnarsson hinn ötuli ritstjóri
Lögbergs-Heimskringlu i blaöi
sínu, þegar hún flettir í blööun-
um ,,að heiman“ og les um slát-
urgerð íslenzku húsmæðranna.
Talmeinafræðingur kominn heim
Zonta-klúbbarnir vinna gott starf, og hver þeirra um sig sinn
ir sínu sérsviði. í Reykjavík hugar klúbburinn að málefnum
barna, sem hafa skerta heyrn. Nýlega er kominn heim kenn-
arí frá Danmörkú, sem var styrkþegi Zonta-systra og nam tal
- meinafræði. Mun hann taka tií starfa hjá Fræðsluskrifstofu
R-víkur. Annar ungur maður er við nám á styrk frá Zonta,
hann er í Noregi. Báðir starfa að því að kenna í almenum
skólum, en þar er talið rétt að böm starfi innan um heil-
brigða nemendur og í eðlilegu umhverfi.