Vísir - 23.11.1971, Side 8

Vísir - 23.11.1971, Side 8
VÍSIR. Þriðjudagur 23. nóvember 1971. BSffia Utgefanai: KeyKjaprem hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson R*tstjóri : Jonas Rristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir'Pétursson Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannessoa Auglýsingar: Bröttugötu 3b. Símar 15610, 11660 Afgi- -la : Bröttugötu 3b. Sími 11660 ) Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 linur) ( Áskriftargjald kr. 195 á mánuði innanlands i lausasölu kr. 12.00 eintakið. Prentsmiöja Vísis — Edda hf. Stefnt oð 30°]o verðbólgu Jkf frá er talið íbúðarhúsnæði, hefur verðlag hækkað \ óvenju lítið á undanförnu ári verðstöðvunar. Og hvað \ söluverð íbúða snertir, stafar verðbólga síðustu mán- ( aða af því, að stífla hefur brostið eftir nokkurra ára / verðstöðvun á íbúðaverði. Vísitölur verðlags hafa / sáralítið hækkað á árinu. Og til skamms tíma voru ) sæmilegar horfur á, að unnt yrði að halda verðbólg- ) unni niðri enn um sinn. \ Allt hefur þetta breytzt vegna verðbólguhvetjandi aðgerða stjórnvalda. Ballið byrjaði með milljarðinum, )) sem ríkisstjórnin afhenti þjóðinni í sumargjöf í kæti sinni yfir því að vera nú loksins komin til valda. Nokkr \\ ir sjóðir vóru ruplaðir til að kosta hluta sumargjaf- (( arinnar, en eigi að síður er fyrirsjáanlegt, að hún /f mun valda nokkrum halla á ríkisbúskapnum í ár. Og / halli á ríkisbúskap,stuðlar vitanlega eindrégið að ) verðbólgu- ) Næsta skrefið var fjárlagafrumvarpið, sem var \ samið með þeim fádæmum, að þar vantaði að miklu ( eða öllu íeyti ákaflega mikilvæga liði, svo sem fjár- / málaráðherra viðurkenndi í fjárlagaræðu sinni. Með / þessum hætti tókst að koma frumvarpinu saman án ) þess að sýna halla, en raunverulega skiptir hallinn ) hundruðum milljóna vegna úrfellinganna- \ Þótt aðeins sé miðað við frumvarpið eins og það ( lítur út á pappímum, er það mesta verðbólgufrumvarp ( í manna minnum. Hækkunin milli ára er rúmlega / 27%. Raunverulega slagar hún upp undir 30%, þegar ) tekið hefur verið tillit til liðanna, sem sleppt var, og ) til hækkunarinnar á tóbaki og áfengi. \ Sú hækkun var sögð gerð til að draga úr drykkju- ( skap og vegna erlendra verðhækkana. Reynslan sýn- ( ir þó, að verðhækkanir á áfengi draga ekki úr neyzlu ) þess, og hefur sú örðið raunin á einnig núna. Þá \ hefur komið í ljós við athugun, að verðhækkanir ( hafa ekki orðið erlendis á tóbaki og áfengi, nema þá / á einstökum tegundum. í heild er erlenda verðhækk- / unin nánast engin. / Ríkisstjórnin minntist ekki á raunverulegu ástæð- ) una, en hún var sú að hafa dálítið fé upp í væntan- \ • legan rosahalla fjárlaganna. Þessi eini liður hækkar ( vísitöluna um nærri heilt stig. Til að mæta þeirri ( verðbólgu einni þurfa atvinnuvegimir að greiða um / 200—300 milljón krónur í aukin laun á árinu- / Og nú á að fara að bjóða út spariskírteini fyrir ) helmingi hærri upphæð en áður hefur tíðkazt, og það \ þótt vitað sé, að þorri þeirra peninga kemur úr ( spariinnistæðum fólks. Enginn verkefnalisti fylgir í ( þetta sinn, svo að þær 300 milljónir virðast eiga að / fara í ótilgreinda eyðslu ríkissjóðs. / Dæmið lítur því í heild þannig út, að ríkisstjómin ) hefur skorizt úr leik í baráttunni gegn verðbólgunni, \ einmitt á bví ári, er tekizt hafði að halda henni niðri. \ í sínum eigin búskap stefnir rfkisstjómm að 30% ( verðbólgu á næsta ári. / .Andkynpillan' árangursrík í meoferð kynferðisafbrota Nokkrar fréttir hafa birzt í Reykjavíkurblöð- Unum undanfamar vikur um ýmiss konar afbrigði Iegt kynferðislegt hátt- emi. Erlendis vekja kyn ferðisglæpamenn, barna morðingjar og kvenna- morðingjar stundum slíka skelfingu að heilu stórborgirnar skjálfa. Nú er verið að reyna ný Iyf til lækningar þess ara manna, sem stund- um eru kölluð „andkyn- pillur“ (antisex pills). 75% fengu lækningu Eftir langvarandj tilraunir á dýrum var fyrir fimm árum leyft að nota þessi lyf \ sjúkra- húsum. 547 kynferðislega af- brigðilegir menn fengu læknis- meðferð með lyfjum, sem áttu að draga úr kynhvöt. Þetta voru meðal annars karlmenn sem höfðu framið kynferðisafbrot á börnum, og kynvillingar. IBBBIBBHIBa Umsjón: Haukur Helgason Læknar segja að meðferðin hafi borið árangur í 75 af hverj- um 100 tilvikum. Þeim tókst að temja kynhvötina. Margir þessara manna sneru aftur til fjölskyldna sinna og endur- hæfðust. Upp frá því hefur oft verið talað um gervihormóna, sem þessi lækning byggöist á, sem undralyf 1 erlendum blöðum er skýrt frá mörgum dæmum um, að kynferðisglæpamenn krefjist þess að verða læknaðir með þessum hætti til að losna undan farginu, sem ónátturan leggur á þá og aðra. Tvö þúsund fá meðferð Mörg dæm; hafa verið um, að feður biðji heimilislækni aö gefa sonum sínum lyfið, ef þeir eiga í erfiðleikum á gelgjuskeiði. Foreldrar hafa einnig beðiö um þessa meðferð fyrir dætur, sem þeir töldu að hefðu lagt lag sitt við óæskilegan mann. „And- kynpillan" héfur hlotið mikla frægð. Þý2dca blaöiö Frankfurter Allgemeine Zeitung skýrði frá þvl, að um það bil tvö þúsund karlmenn, flestir í Vestur- I>ýzkalandi séu um þessar mund- ir undir læknishendi, þar sem þeir fái lyfið. Eftirspumin vex með hverjum degi. Dómarar f Sviss eru byrjaðir að gefa skilorðsbundna tíórna l ýmsum tilvikum, ef afbrota- mennimir fallast á að fá þessa meðferð. Af nógu er að taka. Til dæmis má geta þess, að í Vest- ur-Þýzkalandi vom árlð 1969 framin 11.395 kynferðisafbrot á börnum og nauðganir voru 5.457 það ár. Tillögur á íslandi um vönun Spumingin er: Getur þetta lyf gert þau undur, sem fangels- isrefsing getur aldrei og læknað afbrotahneigð þessara manna? Því hefur verið hreyft. meðal annars hér á landi. að til greina kæmi f ýmsum erfiðustu tilvik- unum að vana þessa afbrota- menn. Þetta hefur verið gert f nokkrum mæii úti um heim. Þessi aðferð hefur þann augljósa kost umfram vönun, að hún er ekki „óafturkallanleg". Vönun hefur verið leyfð sam- kvæmt lögum í V.-Þýzkalandi síðan í ársbyrjun 1970 í erfið- ustu tilvikunum. Geta ekki ráðið við sjálfan afbrigði- leikann Lyfin, sem við köllum hér „andkynpillur" -til einföldunar á vísindamáli, sem fáir skilja, draga úr kynhvöt, en þau geta ekki i sjálfu sér breytt afbrigði- leikanum sjálfum, að svo miklu leyti, sem hann á djúpar rætur í manninum. Kynvillingar verða t. d. áfram kynvjllingar. Með- ferðin verður að standa I langan tíma. Sé henn; hætt, áður en tekizt hefur með geðlæknisfræðj legum aðferðum að lækna af- brigðileikann svo framarlega sem slfkt er unnt, er hætt við, að kynhvötin eflist á ný t*s tái stórra vandræða. 1 Bandaríkjunum herma skýrsl ur um þetta efni að þaö kunni að vera háskalegt að gefa lyfin ungu fólki, að minnsta kosti veröi tilefnið að vera ærið. Lyfjatakan getur tafið þroska ungmennisins ef ekki stöðvað hann. Sérfræðingar hallast þess vegna að þvl að samfara lyfja- gjöfunum verði að vera geð- lækning „Læknar setji mestan hluta fræðiskrifa í körfuna“ Þá er augljós hættan á, að óvandaðir læknar komist yfir lyfið eða veiti lyfseðla fyrir þvi fyrir greiðslu eða vináttu ýms- um þeim, sem ekki ættu að fá það og má nefna foreldra, sem vildu nota það á börn sfn á vafasömum forsendum. Þess vegna hefur f Vestur- Þýzkalandi verið gripið til þess ráðs að skýra sem ýtarlegast í fjölmiðlum frá lyfjunum, kost- um þeirra og ekki sízt þeim háska, sem þeim geta fylgt. Fyrst og fremst er þessari her- ferð beint að læknum, en reynsla af margs konar lyfjum hefur sýnt, að jafnvel læknar eru mjög lengj að taka við sér. Framleiðendur viðurkenna, aö þetta takj tíma og læknar hafi tilhneigingu til að setja stærstan hluta læknisfræðilegs efnis, sem þeim berst, beint i körfuna. Nú fer fram rannsókn á þvi, hvaða not önnur mætti hafa af þessu lyfi. í Vestur-Þýzkalandi er búizt við, að lyfið VL-rði leyft til al- mennrar notkunar f lyfjabúðum eftir Ar.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.