Vísir - 08.01.1972, Qupperneq 1
Enginn ísl. leikmannanna
þorði að skjóta í lokin!
62. árg. — Laugardagur 8. janúar 1972. — 6. tbl.
og jafntefli varö i landsleiknum vib Tékka 12-12
Dómsvaldiö litils metið:
Lofaði fundi — en
fór svo úr landi
Viröing fyrir dómstólum
landsins viröist ekki rista
djúpt hjá mörgum „fjármála-
mönnum“. — Karl Jóhanns-
son, stjórnarformaöur sam-
nefnds hlutafélags, hefur ver
ið úrskurðaður gjaldþrota
ásamt með hlutafélaginu. —
Vegna hlutafjáreignar hans í
ööru hlutafél., Norðurbakka
hf. gerði skiptaráðandi þá
kröfu til stjómarformanns
þess fyrirtækis, Edward Löw
dahl, að hann héldi stjómar-
fund hjá Norðurbakka hf. fyr
ir 4. janúar sl. og mundi
skiptaráðandi sitja þann fund
í stað Karls Jóhannssonar, til
að kanna fjárhagsástæður
félagsins og að hve miklu
leyti væri unnt að koma
hlutafjáreign Karls Jóhanns-
sonar í verðmæti, sem unnt
væri að nota til að greiða
kröfuhöfum á þrotabú hans.
Ofangreindur Edward Löw-
dahl skrifaði undir bókun þess
efnis hjá borgarfógetembættinu,
að hann mundi afhenda skipta-
ráðanda bókhald Norðurbakka
hf. 23. desember og halda stjóm
arfund ekkd seinna en 4. janúar
síðastliðinn. — Hvorugt hefur
hann efnt og mun nú dveljast er
lendis.
Hlutaféð, sem Karl Jóhanns-
son er skrifaöur fyrir í Norður-
bakka nemur 730 þús. krónum,
og skiptir verulegu máli í þessu
gjaldþrotamáli að reyna að
koma þessu hlutafé í verðmæti
til að mæta krðfum í þrotabú
hans og hlu-tafélag, en þessar
kröfur muitu fyrirsjáanle-ga
nema milljónum. Aðrar eignir
Karls nema aðeins 40—50 þús.
krónum.
Eitthvað mu-n vera óijós-t, h-ve
mi-kið er að baki þessum hluta-
bréfum Karls. — H-ann bar það
fyrst fyrir skiptarétti, að hann
hefði ekki greitt inn hlu-taféð.
Þegar nánar var að gáð kom þó
í ljós, að þegar hlutafélagiö var
sfcráð hjá sýslumanninu-m í Ár
nessýslu, var skráð, að a-Mt hl-uta
féð væri þegar innborgað. Karl
breytti þá framburði sínum og
sagði, að Karl Jóhannsson hf.
hefði greitt hluta-féð, en Karl
hafði notað naf-n fél-agsins til að
gefa út innistæðulaus-ar ávísan-
i-r að upphæð 1,2 mil-ljónir króna
til að greiða ýmsar skuldbinding
ar Noröurbakka hf. — VJ
EG LEIK GARÐAR HOLM
— segir Jón Laxdal, Islendingur, sem kemur heim oð utan
„Jú — nú ætla ég að stanza að-
eins hér heima — ég verð hér
fram á næsta haust. Leik tvö hlut,
verk hér í Þjóðleikhúsinu, og I j
sum^r verðum við hér að gera
kvikmynd udd úr Brekkukotsannál
Laxness,“ sagði Jón Laxdai, leik
ari, er Vísir ræddi við hann í gær.
„Ég hef ekki leikið á ísdenzku
sviði í 15 ár — ekkj síðan áður
en ég fór til Þýzkalands. Og þá
lék ég aðeins smáhlutverk, enda
var ég þá 5 Þjóðleikhússkólanum."
— Séð eitthvað ísíenzkt á sviði?
Hefur leiklist hér hrakað eða vax
ið fiskur um hrygg síðan þú fórst?
„Ég< veit það ek-ki. Ég hef nefhi
lega ekkert séð hér í 15 ár. I kvöld
fer ég að sjá Kristnihaldið í Iðnó.
Það verður það fyrsta.“
Jón Laxdal mun ieika i vetur
Othelló í samnefndu verki Shake-
spears, og einnig mun hann leika
i Sjálfstæðu fólki, sem seinna i
vetur verður fært upp í leikrits-
formi
Og svo Brekkukotsannáli í sum
ar. Hver gerir þá mynd?
„Norður-þýzka sjónvarpið. Það
er stærsta sjónvarpsstöðin í Þýzka
landi. Raunar verður þessi sjón
varpsmynd gerð í samvinnu nokk-
urra stöðva. Nordvision — sam-
vinnunefnd Norðurlandasjónvarps-
stöðvanna er með í þessu og líka
sjónvarp I Sviss — og einhver
fleiri held ég.“
— Hver verður lei-kstjóri?
,,Ro!f Headrich — hann skrifar
lika handritið. Leikarar verða all
ir ísilenZkir, og Rolf kemur hingað
fljótlega, sér frumsýningu Othelló
hér, og þá verður ráðgazt við leik
ara og höfunó um handritið og
fleira."
— Kannski höfð samvinna i
tæ-kniefnum við íslenzka sjónvarp
ið?
„Já — það kemur mjög til mála
— sem mest samvinna við þá.“
— Ákveðið um hlutverk?
„Nei — og þó! Eitt er ákveðið
Ég á að leika Garðar Hólm Og
það á vel við. fslendingurinn sem
kemur heim utan úr löndum!"
Jón Laxdal hefur undanfarið
■ Nei, — þessi föngulegi hópur er því miður ekki innan
seilingar. Mynd þessi var tekin í Bangkok um síðustu helgi og
sýnir fjðrar af stúlkunum, sem þar kepptu um titilinn Miss
Charming 1972. Fyrir miðju er eiginkona forseta keppninnar,
en stúlkurnar eru talið frá vinstri: fulltrúi Filippseyja, sein varð
númer 4 í keppninni, Kalifornía númer 5, Alaska númer 3. Yzt
til hægri er svo Matthildur Guðmundsdóttir, sem var fulltrúi
íslands í kenpninni. — Siá viðtal við hana á bls. 16 i dag.
leikið sem fastráðinn leikari við
Ziirioher Schauspiel-haus“, en einn
ig hefur hann leikið mikið fyrir
sjönvarp og í stöku kvikmynd t.
d. mynd sem sýnd var hér í haust,
Hannibal - Brooks, sem Tónabló
sýndi.
„Ég lók skæruliða í þeirrl mynd,
John að nafni, annars sá ég aldrei
þessa mynd. Mér er sagt að
hafi verið breytt mjög síðarmeir
— það er svo langt síðan þetta
var — ég held þeir hafi lengt hana
eft-ir að ég lék í henni.“ — GG
50 sent
á hvern
íslending
Hið glæsilega tilboð Skáksam-
bands íslands hefur vakið athygli
í heimspressunni. Hið kunna blað
Intemational Herald Tribune get-
ur þess til dæmis á forsíðu, að ís-
lendingar haf; boðið sem svarar 50
sentum (44 kr.) fyrir hvert manns
barn, karla, konur og böm í land-
inu.
Biaðið segir, aö a’drei hafi verið
boðið neitt þvílíkt fyrir keppnis-
stað í skákkeppni og nú er gert. -
Það nefnir fyrst tilboð Júgóslava,
152 þús. dollara, og telur, að á
síðustu þrjátíu árum hafi áður mest
verið boðið 12 þús. dollarar, sem
hafi verið í einvígi Fischers og
Petrosjans í Argentínu i haust.
Það getur upphæðar tilboðann-a
og segir, að í tilboði Frakka hafi
verið boðin fimm prósent af sjón
varps- og kvikmyndaágóða, sem
gæti orðið feikimikill, og ferðastyrk !
ir fyrir skákáhugatnenn um þveran Jón I.axdal — Hefur ekki leikið
heiminn til P-arísar, eins og blaðið | hér í 15 ár, leikur í vetur Othelló
kemst að orði. — HH og í Sjálfstæðu fólki.
íslenzka landsliðið í handknattleik
hafði mikla möguleika á sigri gegn
Tékkum í gærkvöldi — vár með
knöttinn síðustu 3 mín. leiksins og
staðan var 12—12. En ásamt brot
um Tékka og kjarkleysi ísl. leik-
mannanna við skotin — enginn
þorði að eiga á hættu að glata knett
inum og missa ef til vill jafntefl-
ið — mnnu lokmínútumar áfram,
þar til flauta dómarans hljómaði,
og markskot var ekki reynt.
Skiljanlegt, þvi íslenzka liðið
hafði vissulega komið mjög á ðvart
— farið fram úr ölium vonum, sem
við það vom bundnar. Nær allir
bjuggust við miklu tapi — en lands
liðsmennimir létu það ekki á sig
fá, sýndu stórgóðan vamarleik all
an leikinn og það ásamt mjög góðri
markvörzlu Hjalta Einarssonar
allan tímann, og stjömu-
leik Sigurbergs Sigsteinssonar færði
ísl. liðinu þennan góða árangur —
árangur, sem vissulega yljaði áhorf-
endum mjög.
Viöar Símonarson skoraði fyrsta
mark leiksins, og leikurinn var allt
af mjög jafn. þar til Tékkar náðu
tveggja marka forskoti 6—4, en
ja-fnað var í 6 — 6 fyrir hlé.
I s.h. höfðu Tékkar aöein-s tvíveg
is yfir, en fsl. ldöið yifirleitt með fór
ustu 8—7, 10-9, 11—10 og 12-11,
en Tékkum tókst að jafna þegar
sjö mín. voru ef-tir. Lokamínútum
a-r verða minnisstæðar — öl-lum,
sem voru í Laugardalshöllinni og
spenna gífurleg. Mörk íslands skor
uðu Sigurbergur 3 Axel 2, Viðar 2,
Gísli 2 (1 víti), Stefán G. 1, Björgvin
1 og Gunnsteinn 1.
ísl liðiö var óheppið að vinna
ekki' leikinn — átti 7 staegarskot
og annar dönsku dómaranna lokaði
augunum fyrir tveimur augljósum
vítum, sem það á-t-ti að fá.
í dag kl. fjögur verður s-íðari
Iandsleikurinn við Tékka, og verð-
ur sú breyting gerð á ísl. liðinu, að
Birgir Finnbogason kemur í stað
Hjalta. Fjórir falla út úr liðinu sem
voru í því í gærkvöldi.þeir Björgvin
Björgvinsson, Páll Björgvinsson,
Sigfús Guðmundsson og Stefán
Gunnarsson.
í staðinn koma inn þeir Ágúst
Ögmundsson Geir Hallsteinsson,
Ólafur Jónsson og Georg Gunnars
son. H. Sím.
Eru oð fylla
sláturhúsið
af kisilgúr
„Við erum búnir að troðfylla
vöruskemmu okkar og að verða
búnir aö fylla sláturhúsið,“ sagði
Höskuldur Sigurgeirsson á Húsa-
víkurskrifstofu Kísiliðjunnar í sam
tali við Vísi. Að jafnaði er skipað
út kísilgúr frá Húsavík einu sinni
viku, en nú hefur ekki farið farm
ur síðan 2. desember.
Höskuldur sagði að það væri
mjög misjafnt hvað farmarnir
væru stórir Stundum færu 200
tonn eina vikuna og svo kannski
1000 tonn þá næstu Ekki hefur
þetta útskipunars-topp nein áhrif á
verksmiðjuna sjálfa, og er þar unn
ið af fullum krafti. Þá bjóst Hösk-
ultíur ekki við að þetta hefði telj-
andj áhrif á markaðinn erlendis.
Við spurðum hann hvað ætti að
gera þegar sláturhúsiö vær-i orð
ið fullt, en birgðir eru nú um 3000
tonn.
„Næst setjum við um borð í
skip." —SG