Vísir


Vísir - 21.01.1972, Qupperneq 2

Vísir - 21.01.1972, Qupperneq 2
Dirch Passer sem barnfóstra Skaðabætur Hin franska kvikmyndaleik- kona Catherine Deneuve hefur krafizt hátt í fjórðu milljón króna í skaðabætur frá vikurit- inu „Special Derniere" fyrir ítar- lega grein, sem blaðið birti um persónulega hagi léikkonunnar. fíinn vinsæli, danski gaman- leikari og sprellikarl; Dirch Pass- er fer um þessar mundir með aðalhlutverkið í leikriti, sem eitt Kaupmannahafnar-leikhúsanna sýnir. Hann leikur stranga barn- fóstru í leikritinu „Verdens bedste Karlsson" og nafn hans í leiknum er frk. Buk. Börnin á barnaheimili Skt. Matteusar-sóknar 1 ICaupmanna- höfn urðu fyrir þeirri óvæntu ánægju, að fá Direh Passer til starfa á heimilinu i nokkra daga skömmu fyrir frumsýningu á fyrrnefndu leikriti. Leikarinn vildi kynnast lífinu á raunveru- legu barnaheimili áður en hann gengi inn i hlutverk sitt. Hér má sjá hann „raða saman „púslu- spilum" i samvinnu við nokkur barnanna á barnaheimili Skt. Matteusar, og að sjálfsögðu er hann dubbaður upp I barnfóstru- búning sinn úr leikhúsinu . . . -K I 14 ára millj.: ræningi j Fjórtánr ára gamall drengur • gerði sér lítið fyrir í New YorkJ á dögunum og stal möppu, semj hafði inni að halda verðbréf, • sem metin eru á fjórar milljónir • dollara (eða sem nemur 336 J milljónum isl. króna). J • Lögreglan hefur skýrt svo frá« að möppuna hafi drengurinn * hrifsað til sín af afgreiðsluborði J verzlunar í New Yorks WallJ Street. Hann var horfinn í mann- • fjöldann áður en nokkur hafði» náð að hafa hendur í h^ri hans. J * Sá kennslu- konu sína myrta Það gerðist í einum barnaskól- anna í Washington, að einn 11 ára bekkjanna varð vitni að því er kennslukona bekkjarins (54 ára að aldri) var skotin til bana af fyrrum eiginmanni sínum, sem fyrirvaralaust hafði birzt í kennslustofunni og hleypt af byssu sinni. Maðurinn sem er 61 árs að aldri og heitir James Brooks var þegar í stað borinn ofurliði af kennurunum, sem þustu að, og foreldrar nemend- anna í bekknum sóttu hin skelk- uðu börn sín í skólann. Astæðan fyrir verknaði Brooks *ir álitin vera afbrýðisemi. Þorði ekki að segja konu sinni frá uppsögninni og kveikti því í verksmiðjunni „Ég gat ekki hugsað mér, að segja eiginkonu minni frá því, að ég hefði verið rekinn úr vinn- unni. Þess vegna var það, sem ég bar eld að verksmiðjunni. Þegar hún hafði brunnið til grunna var auðvitað ekkert eðli- legra en að ég ynni þar ekki meira.“ Það var 25 ára gamall maður, sem niðurlútur mælti þessi orð er hann stóð fyrir nokkru frammi fyrir réttinum í bænum Slagelse í Danmörku. Með íkveikju sinni hafði hann gert 150 verkamenn atvinnulausa, en það var stærsta kertafram- leiðsla Norðurlanda, sem hann hafði kveikt í. Brunatjónið er talið nema rúmum hundrað milljónum íslenzkra króna. „Atvinnuleysingjanum" sagðist svo frá, að hann hefði valdið íkveikjunni með þvi, að fleygja kerti (framleiddu af verksmiðj- unni) inn i skúr, sem hafði ein- ungis pappír að geyma. Það var ekki að sökum að spyrja, eldur- inn blossaði upp, og skömmu slð- ar var hin risastóra verksmiðju- bygging rjúkandi rústir. „Ég get ekki lýst því, hversu skelkaður ég varð, er ég sá eld- inn gjósa upp,“ segir brennu- vargurinn. Hann viðurkennir, að hann hafi þó ekki getað stillt sig um að aka ekki lengra frá brennandi verksmiðjunni en það, að hann gæti fylgzt vel með slökkvistarfinu er það hófst. Rannsóknarlögregluna 1 Slag- else tók strax að gruna, að um íkveikju hefði verið að ræða, er það upplýstist, að í skúrinn, sem eldurinn kom upp i átti ekki nokkur lifandi sála að hafa stig- ið inn fæti allan daginn fyrir brunann. Grunurinn beindist svo til strax að hinum rétta er upp- sögn hans var dregin fram 1 dags- ljósið. • ALEC GUINNESS hefur verið falið að fara með hlutverk Adolfs Hitlers í kvik- mynd, sem verið er að gera um síðustu ævidaga hans og er þar allítarlega fjallað um stundirn- ar sem hann átti í loftvarnabyrgi sínu í Berlín i aprílmánuði árs- ins 1945. Sonur Max Reinhards, sem sjálfur heitir Wolfgang Rein- hard og býr í Róm, hefur skrifað kvikmyndahandritið. Gömul? — 102ja ára Nei. ung „Þú ert einungis svo gamall og gugginn, sem þú telur þér sjálfur trú um að. þú sért,“ eru orð þessarar hnarreistu konu, sem þarna situr í hárþurrku og leitar 1 tízkuriti að nýrri hár- greiðslu, sem sér mundi fara vel. Hún heitir Melissa Kelly og kær- ir sig kollótta um það, að ald- ursár hennar eru orðin hundr- að og tvö talsins. „Ég er enn 1 blóma lífsins“, fullyrðir hún. „Leitið að hand- leggslausum manni“ Læknum sjúkrahúss í bænum Perth í Ástralíu varð heldur en ekki hverft við á dögunum er verkamaður einn stormaði inn á skurðstofu til þeirra veifandi mannshandlegg, sem blóðið draup úr. Manngarmurinn var sjálfur svo sleginn, að hann gat ekki komið upp einu einasta orði. Er læknarnir höfðu gefizt upp við að toga útskýringar upp úr manninum gripu þeir til þess ráðs að tilkynna í gegnum tal- stöðvar lögreglu og sjúkraliðs, að leitað væri manns, sem vantaði vinstri handlegginn. TIu mínútum síðar var hús- gagnasmiðurinn Peter Ravi flutt- ur inn á sjúkrahúsið, þar sem í skyndi var hafizt handa við að koma á hann handleggnum á ný. Handlegginn hafði hann skorið af sér i bandsög. • ASKENASl, sá heimsfrægi, rússneski píanó- leikari, sem tekið hefur sér ból- festu hérlendis, dregur enga dul á það ástfóstur, sem hann hefur tekið við Norðurlöndin. Danska dagblaðið Politiken skýrði ný- lega frá því, að Askenasi, sem stöðugt berast tilboð hvaðanæva að úr heiminum, og heitið er gulli og grænum skógum fyrir hljómleikaferðir, hefði, áður en hann tók nokkrar ákvarð- anir um aðrar hljómleikaferðir á þessu ári, ákveðið, að heim- sækja Færeyinga og spila fyrir þá lítið lag. Er Askenasí sagður hafa látið -þau orð falla varð- andi þessa ferð sína, að hún væri farin allt eins sem skemmtiferð. Hann hefði trú á, að I Færeyjum væri tilvalið sð láta liða úr sér . . .

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.