Vísir - 21.01.1972, Side 3

Vísir - 21.01.1972, Side 3
V I S I R . Föstudagur 21. janUar isr/2. I MORGUN UTLONDI MORGUN UTLOND I MORG w&MssÆk Phmtomvélar fyrír viSræBur við Araba um opnun Súezskurðar fsrael og Bandaríkin hafa að heita má lokið samningagerð um afhend- ingu 18 herflugvéla af gerð inni F-4 Phantom. Banda- ríkjamenn munu hafa sett þau skilyrði fyrir að láta ísraelsmenn f á vélarnar, að þeir fallist á að ræða við Araba um möguleika á að hluti ísarelska liðsins á Sinai-hæðum hverfi þaðan og Súezskurður verði opn- aður. Israelsmenn hefur lengi dreymt um aö fá þessar banda rísku þotur, og telja þeir, aö þær skipti miklu máli til að halda jafnvægi í hernaðarstyrk deiluaðila viö Súezskurð. Að- stoö Sovétríkjanna við Egypta hefur vaxið jafnt og þétt. Bandaríkjamenn munu einnig vera reiðubúnir að selja til ísra els sem næst 36 A-4 Skyhawk flugvélar, að sögn bjaðsins New York Times. Eiga þessar flug Átökin um EBE harðna Eftir að norska stjórnin hefur samið við Efnahagsbandalag Evrópu hefur vettvangur átakanna færzt heim til Noregs. Þar hafði alla tíð verið töluverð andstaða við aðild, og hún hefur harðnað við samningana, þar sem þau kjör, sem Norðmenn fengu, hafa ekki verið öllum að skapi. Þjóðaratkvæðagreiðsla stendur fyrir dyrum, og úrslit alls ó- viss að svo stöddu. Á myndinn er varaformaður verkamanna- sambandsins, Ole Flesvig, að afhenda Trygve Bratteli forsætis ráðherra mótmælaorðsendingu frá samtökum andstæðinga aðildar. ^ vélar að koma að nokkru í stað inn fyrir eldri franskar þotur ísraelsmanna. Talsmaður bandaríska utan ríkisráðuneytisins vildi ekkert segja í morgun um þessa frétt New York Times. Israelsmenn fengu síðast Phantom flugvélar fyrir átta mánuðum. Höfðu þeir þá alls fengið 86. New York Times seg ir, að þeir hafi síðan misst sjö eða átta þeirra í bardögum. Umsjón Haukur Helgason: Myrt 100 m. frá heimilinu 15 ára stúlka, Vigdís Storsul, fannst myrt á þriðjudagskvöld í Rörvik í Noregi. Líkið fannst aðeins 100 metrum frá bústað hennar, sem örin sýnir. Ungur maður hefur verið handtekinn, og hefur hann ját að morðið. Skæruliðar herða í Víetnam Skæruliðar í Suður-Víet nam hafa aukið athafnir sínar um sjötíu prósent síðustu viku, þótt Banda- ríkjamenn hafi hert loft- árásir gegn þeim, að sögn yfirmanna hers S-Víet- nama. I síðustu viku féj’lu alls 390 hermenn af Suður-Víetnömum, og margir særðust. Vikuna áöur var mannfallið 221 fallnir og 497 særðir. Suður-Víetnamar segja, að manntjón Víetkong- skæruliða og Noröur-Víetnama hafi vaxið á þessum tíma úr 231 upp í 1034 fallna. Skæruhernaður hefur aukizt jafnt og þétt seinustu vikur. Herstjómin í Saigon álítur, að hernaðaraðgerðir kommúnista muni ná hámarki um miðjan febrúar, þegar Víetnamar halda hátíðlegt tungl-nýár. B 52 sprengjuflugvélar Banda ríkjamanna hafa dag hvem ráð izt á svæði í grennd við landa mærin, þar sem Suður-Víetnam, Laos og Kambódía mætast. Þar er talið, að kommúnistar hafi dregið saman lið og komið á Jaggimar birgðastöðvum. Mannfall Bandaríkjamanna hefur ekki aukizt þrátt fyrir m'eiri skæmhernað. I síðustu viku féllu fimm Bandaríkja menn, og 47 særðust. Þetta stafar af því að Banda ríkjamenn taka í æ minni mæli þátt í bardögum í Suður-Víet nam, en heimamenn meira. S-Afríka í NATO? Háttsettir embættismenn í Atlantshafsbandalaginu neituðu í gær frétt, sem öktist í blaðinu Die Burg- er í Höfðaborg, þar sem sagt var, að nefnd á vegum hermálanefndar NATO at- hugi nú möguleikana á að fá Suður-Afríku í banda- laffið. Suður-afríska blaðið vitnaði til kanadísks þingmanns, sem á að hafa sagt, að nefndarmenn muni heimsækja Suður-Afriku í marz eða apríl. Kanadamaður inn er formaður nefndarinnar, segir bjaöið. Talsmaður NATO hefur opin berlega vísað þessu á bug. Hann segir að engin undirnefnd sé til í NATO, sem hafi það verkefni að kanna aðild Suður-Afríku. Aðrir háttsettir NATO-menn benda á, að aðild Suður-Afríku, ef til kæmi, mundi valda því, að gera þyrfti algerlega nýjan NATO-sáttmála. Samkvæmt talsmanninum er nefndin, sem Kanadamaðurinn Robinson er formaður fyrir, und irnefnd, sem var stofnuö af þing mannafundi NATO-ríkjanna, en þingmannasamkundan er ekki einu sinni beinn aðili að NATO. Robinson hefur að eigin frum kvæði ákveðið að ferðast til Suður-Afríku til aö kynna sér styrk sovézka flotans á Indlands hafi. BÓKARI Kaupfélag ísfirðinga óskar að ráða bókara. Umsóknir sem tilgreini fyrri störf, sendist Kaupfélagi ísfirðinga fyrir 31. janúar n. k. Upplýsingar veita: Kaupfélagsstjóri í síma 94-3266 og stjórnarformaður Marías Þ. Guð- mundsson í síma 94-3351. KAUPFÉLAG ÍSFIRÐINGA

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.