Vísir - 28.01.1972, Blaðsíða 2

Vísir - 28.01.1972, Blaðsíða 2
2 VÍSIR. Föstudagur 28. janúar 1972. VÍSIRSm: Hefur sjónvarpiö dregið úr bíóferðum yðar? Magnús Ingólfsson, starfsmaður Flugfél tsl.: —Fyrstu árin eftir að sjónvarpið kom til var ég mest á sjónum og fór alltaf beint strik i biá þegar ég kom i land. Kvikmyndaáhugi minn minnkaði ekkert, þegar ég byrjaði aö vinna i landi. Ég man ekki til þess, að sjónvarpið hafi nokkurn tima aftraö mér frá bió- ferð eitt einasta sinn.... Anna Sigurðardóttir, Hagaskóla- nemi: —Ég fer nú svo litið i bió, en þá sjaldan, að mig gripur löngun til þess, fer ég, hvað svo sem kann að vera i sjónvarpinu. Friðjón Arnason, sjómaður: — Ég er nú bara nýfluttur i borgina (úr Borgarf. eystra), þannig að ég er að minnsta kosti ekki ennþá búinn að venja mig á bióráp. Ég held lika, að ég geti aldrei fengið það mikinn áhuga á að sjá biómynd, að ég sleppi ein- hverju góðu i sjónvarpinu fram hjá mérhennar vegna. Mér finnst svo miklu þægilegra að sitja fyrir framan sjónvarpið. Karl Bóasson, lögreglumaður: — Sjónvarp mundi áreiðanlega ekki aftra mér frá leikhúsferð, en hins vegar er ég ekki svo mikill biómaður, að ég færi að æða i bió, ef eitthvað gott væri i sjónvarp- inu. Magnús Jónsson, MR: — Sem betur fer er ekkert sjón- varp heima, svo að ég get farið eins oft i bió og mér sýnist þess vegna. Jónina Jóhannsdóttir, MT: — Nei, það er vist ábyggilegt, að tilkoma sjónvarpsins hefur ekki fækkað ferðum minum i bió, Ég hef nefnilega ekkert tæki til að horfa á. En ég efa stórlega, að ég færi nokkuð minna i bió, þó ég hefði svo sem eitt heima. Þess vegna völdu þeir sálfræðina: Sálfræði var tekin inn sem valgrein í Menntaskólanum við Tjörnina, og eftir því sem við komumst næst fyrstum mennta- skóla, í haust. Yfir áttatíu nem- Nemendur og kennari viröa fyrir sér afraksturinn á myndsegulbandinu. Hún hjálpar manni í sjálfsþroska - segja nemendur i Menntaskólanum við Tjörnina, sem Visir heimsótti i sálfræðitima, þegar myndsegulbandið var notað — Hvernig finnst þér að vera úti á miðju gólfi? — Maður er hálfþvingaður hérna. — Hvernig er að vera þving- aður? Hvernig líður þér líkam- lega? — Ég veit það nú ekki. — Mér finnst skjálfa svolítið röddin. Nú hófust umræður 1 einni þriðjubekkjardeildinni í Mennta- skólanum við Tjörnina um það, hvort röddin hefði skolfið eða ekki, þegar nemandinn var að tjá sig fyrir framan myndsegul- bandið og sálfræðinginn og kenn- arann, Jón Ásgeir Sigurðsson, sem stýrði kennslustund 1 sál- fræði. endur létu innrita sig I þessa kennslugrein. Síðustu miðviku- daga hefur myndsegulband verið notað við kennsluna, og sem vænta mátti í sálfræðitíma beind- ist upptakan með myndvél og segulbandi að nemendum. Sfðan fengu þeir og hinir nemendurn- ir að sjá og heyra afraksturinn á litlu sjónvarpstæki. Og til hvers? Á fjölrituðu blaði, sem er dreift til nemenda, er útdráttur úr bókinni: — Flutn- ingur sjálfsins í hversdagslífinu — þar sem fjallað er um við- fangsefnið: hegðun okkar við fé- lagslegar kringumstæður og á hvern hátt við birtumst öðrum. Jón Ásgeir Sigurðsson segir myndsegulbandið koma að not- um við kennsluna, en svipað hafa þó komið út úr kennslunni, sem hefur farið fram í tíu manna hópum. — Það er mikið talað um feimni f þessum hópum, og ýmis persónueinkenni eru rædd. Það, sem við viljum fyrst og fremst, er að fá fólk til að tjá sig og fá aðra til þess. Það kalla ég fyrirbyggjandi sálfræði. Þegar sjónvarpið er notað, sjá menn ýmislegt í sínu fari, sem þeir hafa ekki veitt eftirtekt áður. 1 hópunum höfum við talað um okkur sjálf og um sálfræði, menn kynnast sjálfum sér í sambandi við aðra, og það tel ég vera fyr- irbyggjandi — menn, sem hefur lfkað illa við eitthvað f sjálfum sér, hafa getað talað út. Nú fá nemendurnir orðið, og einn þeirra segir um hópkennsl- una: — Við höfum kynnzt hvort öðru á allt öðru sviði en venju- lega og komið nær hvort öðru. Kennsluefnið í sálfræðinni hef- ur einnig verið saga sál'T'æðinn- ar, sálfræðikenningar, og heim- sókn á geðdeild Borgarspítalans hefur einnig verið mnifaV.n. — Við höfum reynt að kynna okkur ýmsar kenningar, og Geir hefur verið með tíma í hag- leiðslu, segir Jón Ásgeir. — Og hvers vegna völduð þið sálfræði? eru nemendurnir spurðir. — Hún hjálpar manni voða mikið f sjálfsþroska, segir stúlka f hópnum. — Það er það, sem ég meina með fyrirbyggjandi sálfræði, segir Jón Ásgeir — hún er nokk- urs konar sjálfsþroski. Geir Vilhjálmsson, sem er ann- ar kennarinn f sálfræði við skól- ann, kemur nú inn og segir, að sálfræði sé einn liðurinn í nýju menntaskólalögunum um nýjar kennslugreinar sem sett voru fyr- ir þó nokkru. Þar að auki sé þar gert ráð fyrir félagsfræði, og þessar greinar og aðrar geti myndað svokallað félagsfræða- kjörsvið, sem sé ekki komið til framkvæmda neins staðar I menntaskóla. — Þegar sálfræði og félags- fræði eru komnar sem kennslu- greinar í menntaskóla, þýðir það, að menn skilja, að þessi fræði tilheyra almennri menntun. Og til að undirstrika, að sál- fræði og félagsfræði í mennta- skólum sé ekki barnagaman eitt, segir Geir, að aldurslega séð séu tveir efstu bekkir menntaskól- anna sama og háskólastig í Bandaríkjunum. — Enda fá þeir, sem fara til Bandaríkjanna eftir mennta- skólanám, oft á tíðum gefið eftir eitt ár 1 háskólum. — SB — Myndsegulbandið beinist að nemendum, þegar þaö er notaö I Menntasköl- anum við Tjörnina — „Bíuö reyndist eignalaust” Stjórnarformaður Norðurbakka var lýstur gjaldþrota 1968. Bú hans reyndist eignalaust eins og annarra 60 i sama Lögbirtingi. - Yfir 20 millj „Skiptameöferð á þrota- búi Edward Löwdahl, sem úrskuröaö var gjaldþrota 12. marz 1968, lauk 26. ágúst 1970. Búiö reyndist eignalaust. Lýstar kröfur á búiö námu 28.279 kr. auk /axta og kostnaðar". Eitthvaö á þessa leið hljóðaði ein af 61 auglýsingu Sigurðar M. Helgasonar, skiptaráðanda i Reykjavik, i Lögbirtingarblaðinu 30. september 1970. —Þessi sami Edward Löwdahl er stjórnarfor- maður Norðurbakka hf. og hefur nú dregizt inn i gjaldþrotamál, sem virðist ætla að verða all miklu hressilegra. Að visu hefur hvorki hann né Norðurbakki verið lýstur gjaldþrota, þó að beðið hafi verið um gjaldþrotaúrskurð á Edward sl. haust. —Gjaldþrota- málið, sem Edward sem stjórn- arformaður Norðurbakka h.f. hefur nú flækzt i, er tilkomið vegna gjaldþrotaskipta á búi Karls Jóhannssonar, sem er ásamt Edward, eigandi að 97% hlutafjár Norðurbakka. Kröfur á þá félaga báða og hlutafélög þeirra nema a.m.k. 8milljónum króna.sem Visi er kunnugt um. Edward skrifaði undir yfirlýs- ingu þess efnis hjá borgarfógeta- embættinu fyrir jól, að hann mundi halda fund i Norðurbakka hf. fyrir 4. janúar siðastliðinn, svo að skiptaráðanda yrði gert kleift að kanna að hvað miklu leyti unnt væri að koma i verðmæti eignum Karls i hlutafélaginu. Þetta efndi hann ekki, en hinsvegar tókst i siðustu viku að halda fund i félag- inu, þar sem skiptaráðandi sat sem fulltrúi þrotabús Karls Jóhannssonar. —Um þennan fund vildi skiptaráðandi litið segja i viðtali við Visi annað en það, að haldið yrði áfram að kanna hag félagsins. Eins og Visir hefur skýrt frá hafa verið lýstar kröfur á Norðurbakka fyrir um eina milljón, en eignir félagsins hafa verið veðsettar yfir um 4 milljón- ir. Hinsvegar er talið hæpið að eignir þess séu fyrir meira en 1-2 milljónir kr. Skiptaráðandi taldi það ekki vera neitt athugunarvert, þó að Edward Löwdahl, sem úrskurð- aður hafði verið gjaldþrota, stofnaði og ræki fyrirtæki. —Það var búið að setja botn i gjald- þrotamál Edwards. Bú hans reyndist eignalaust, sagði Sigurð- ur M. Helgason.. Eins og kom fram hér að ofan, • auglýsti Sigurður M. Helgason, skiptaráðandi, 61 lúkningu á gjaldþrotaskiptimál i þessum sama Lögbirtinei. Allt voru þetta bú, sem úr- skurðuð höfðu verið gjaldþrota ,,og tekin til meðferðar” árið 1968. I öllum auglýsingunum er ónir glötuðust sömu setninguna að finna: „Búið reyndist eignalaust”, þ.e.a.s. öll málin 61 að tölu voru látin niður falla. Samanlagðar kröfur i þessi 61 bú reyndust vera á 12 milljón króna, auk vaxta og annars kostnaðar. Vextir i slikufn kröfu- málum eru 1% á mánuði. Reikna má með þvi„ að kröfurnar séu a.m.k. fjögurra ára gamlar að meðaltali. Aðeins vaxtakostnaður nemur þvi um 5 milljónum kr. og annan kostnað má meta lauslega á aðrar 5 milljónir króna. Fjár- hagslegt tjón kröfuhafa i þessu 61 þrotabúi, sem var lokið með ,,bú- íð reyndist eignalaust” hefur því numið yfir 20 milljónum króna. Samkvæmt landslögum á að visa öllum gjaldþrotamálum til sakadóms eða annars lögreglu- réttar utan Reykjavikur. —Visir mun á næstúnni kanna, hvaða af- greiðslu þessi mál hafa hlotið þar. -VJ.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.