Vísir - 28.01.1972, Blaðsíða 3
VISIR. Föstudagur 28. janúar 1972,
3
Iðnaðarmenn að störfum I Norðurbrún 1, þar sem verið er að ljúka við
teppalagningu á göngum og fleira, áður en Ibúarnir fiytjast inn eftir
mánaðamótin.
Aldraðir flytja
/ I • / /1 /X*
i njonaibuoir
Fyrstu dagana i febrúar geta
væntanlegir ibúar Norðurbrúnari
farið að flytja inn i splunkunýjar
ibúðirnar. Þá.verða 52 ein-
staklingsibúðir og 8 hjónaibúðir
tilbúnar, en félagsmálastofnunin
hefur staðið fyrir byggingu þessa
húss, sem er eingöngu leigt öldr-
uðu fólki.
,,Þetta fólk er svo til allt á
aldrinum 70—80 ára, og mikill
meirihluti þess getur séð um sig
sjálft”, sagði Sveinn Ragnarsson
félagsmálastjóri i viðtali við Visi.
Hann sagði talsverða eftirsókn
hafa verið eftir húsnæðinu, þegar
það var auglýst til leigu, en ekki
meiri en reiknað hefði verið með.
Umsóknirnar voru 160. Þess er að
vænta, að leyst verði úr þörfinni,
sem ekki var hægt að fullnægjaiað
einhverju leyti með nýju húsi
fyrir aldraða, sem byrjað er að
teikna. 1 þvi verður svipaður
fjöldi ibúða og i húsinu að Norður-
brún. Það hús verður við Stóra-
gerði i námunda við hjúkrunar-
heimilið, sem verið er að byggja
við Grensásveg. En húsið við
Norðurbrún er austan við
Hrafnistu.
Félagsmálastjóri sagði. a.ð i
husinu við Norðurbi ún væn aga'l
tomstundaaðstaða. ba'ði lyrir
fólkið i húsinu og eins l'yrir lolk i
nágrenninu. og ætlunin va*ri að
hafa sameiginlega aðstöðu tynr
það. t.d. spilakvöld og ýmislegt
annað.
Nú er verið að ganga frá húsinu
að Norðurbrún, og voru iðnaðar-
menn þar að störfum, þegar Visir
kom þar við i gær, við lagningu
dúka, teppa, rafmagns og fleira.
Einstaklingsibúðirnar sam-
anstanda af geymslu, baði.
eldhúsi, svefnkróki og stofu, en
hjónaibúðirnar eru með sérsvefn-
herbergi. Ibúðunum fylgir is-
skápur auk eldunartækja og
gardinur.
Haukur Bjarnason verkstjóri
sagði, að framkvæmdir við bygg-
inguna hefðu hafizt i nóvember
1969. Upp á siðkastið hefðu 25—30
menn unnið við bygginguna að
jafnaði.
,,Það er búið að vera dálitið
mikið um að vera núna undan-
farið, þegar margir iðnaðarmenn
hafa verið að vinna hér”.
Hann segir húsið vera tæpa 2000
fermetra að stærð. tvær hæðir og
kjallara undir hálfu húsinu. 1
kjallara er tómstundaaðstaða, en
á hæðunum eru setustofur, sjón-
varpsherbergi og bókaher-
bergi. —SB—
Nú eru kjörbúðir og
vöruhús í uppgangi
- en röðin kemur að nýrri tegund smáverzlana, segir i
niðurstöðum norskrar ra.nnsóknar um smásöluverzlunina
Litlu verzlanirnar munu eiga meira fylgi að fagna i framtíðinni en á sjöunda áratugnum, þegar
kjörbúðum og vöruhúsum óx fiskur um hrygg. — Og til aö standast samkeppnina munu litlu verzl
anirnar vera i Ibúðarhverfum nálægt neytandanum og nálægt strætisvagnamiöstöðvum og hafa lengri
opnunartima. Þetta segir I niðurstöðum norskrar rannsóknar á verzlunarháttum, sem tók fimm ár aö
framkvæma og lauk I siðustu viku.
1 nágrannalöndum okkar hefur
gengið á ýmsu i sambandi við
opnunartima verzlana, staðsetn-
ingu þeirra i borgum og hvernig
neytandinn hefur getað notfært
sér þá þjónustu, sem verzlanir
veita. Þar hefur þróunin i
verzlunarháttum yfirleitt verið á
undan þróuninni, sem hér hefur
orðið. Við höfum einnig tekið upp
nútimalegri viðskiptahætti, en ef
til vill aðeins seinna en nágranna-
löndin. Þess vegna ættum við að
geta lært af fenginni reynslu
þeirra og rannsóknum, sem þau
hafa látið gera um þessi mál,
þegar við þurfum að leysa þau
vandamál, sem koma upp hjá
okkur.
Nýjasta vandamálið, sem upp
hefur komið hér, er opnunartimi
verzlana. Sem stendur er málið a*
þvi stigi, að kaupmenn og verzl-
unarfólk verða að semja um það.
En það kemur að neytandanum
fyrr en siðar og hvað gera eigi
fyrir hann.
Og litum nú til reynslu Norð-
manna af nútimaverzlunarhátt-
um. Nýlega lauk umfangsmikilli
rannsókn á norskri smásölu-
verzlun og áætlun um hana fram
til ársins 1980. Þessi rannsókn
hefur staðið yfir i fimm ár, og
voru niðurstöðurnar kunngerðar i
siðustu viku. Norska framleiðslu-
stofnunin framkvæmdi rann-
sóknina, sem kostuð var af
ýmsum landssamböndum, t.d.
norsku kaupmannasamtökunum
og fleiri.
Rannsóknin sýndi það m.a., að i
lok sjöunda áratugarins hefur
vöxtur kjörbúðanna og vöruhúsa
verið mestur i smásöluverzlun-
inni. Þaðertalið að i náinni fram-
tið muni það leiða til þess, að
þörfum margra neytenda verði
ekki fullnægt og þess vegna muni
vaxa upp ný tegund smáverzlana,
sem bjóði meiri þjónustu en stór-
verzlanir geta gert.
Hinar nýju smáverzlanir munu
sennilega, i samkeppnisskini,
leggja áherzluna á það atriði, að
neytandinn eigi greiðan aðgang
að þeim, með þvi að hafa þær ná-
lægt húsnæði neytandanna og ná-
Kjörbúðir hafa átt miklum vinsældum að fagna siðasta áratug.
ÍINN!
I 5ÍÐAN =
lægt strætisvagnaendastöðvum.
Sennilega muni einnig verða lögð
áherzla á lengri opnunartima,
sem sé þjónusta við hinn aukna
fjölda neytenda, sem eigi erfitt
með að gera innkaup sin á venju-
legum opnunartimum.
Þessi rannsókn er sú umfangs-
mesta, sem gerð hefur verið á
verzlunarháttum i Noregi. Norski
viðskiptaráðherrann ræddi um
rannsóknina við ýmsa hags-
munaaðila verzlunarinnar i
Noregi fyrir helgina.
Meðal þess, sem norski viðskipta-
málaráðherrann taldi mikilvægt
við rannsóknina, voru áhrif verzl-
unarinnar, þegar ný hverfi risu
upp. Framtiðarspár sýndu, að
það yrði ekki á kostnað gömlu
miðborganna, þar sem þær væru
fulltrúar fyrir mikil samfélags-
leg, efnahagsleg og menningarleg
verðmæti, sem verzlunin ætti
drjúgan þátt i. -SB-
KOKUOUFT
BARNAFFEÖA
.
■ ••nú telja sérfræðingar, að röðin komi að nýrri tegund smáverzlana, sem muni hafa það fram yfir kjörbúðirnar
að vera nálægt heimilinu og hafa frjálsari opnunartlma.