Vísir - 28.01.1972, Blaðsíða 4
4
VÍSIR. Föstudagur 28. janúar 1972.
DAVID FROST
— sá marfrægi sjónvarpsmaður
— hefur loksins gefið sér tima til
að ganga i það heilaga. Þessi
32ja ára gamli Amerikani, sem
hefur tugir milljóna i árslaun,
hefur gengið að eiga Diahann
Carroll, 35 ára gamla sjón-
varpsstjörnu, sem oftlega leikur
i sjónvarpsmyndum meö þeim
Lucy Ball og Doris Day.
Þau Frost og Carroll felldu
fyrst hugi saman fyrir um þrem
árum og þá auðvitað i sjón-
varpssal.
Diahann Carroll hefur áður
haft kynni af hjónabandi. Hún
var lengi gift Mont Kaye, um-
boðsmanni sinum, og með
honum á hún dótturina Súsönnu,
sem nú er 12 ára gömul.
Það er heldur ekki svo langt
siðan það slitnaði upp úr um-
töluðu ástarsambandi hennar
og hins biakka leikara, Sidney
Poitier. Honum hafði Carroll
kynnzt, meðan á töku myndar-
innar Porgy and Bess stóð. Þá
var það, sem Hollywood — blöð-
in völdu þau „sætasta par ver-
aldar”. Ekki slorlegt það, eða
hvað?
Það, sem kom i veg fyrir, að
samband þeirra Carroll og
Poitiers yrði nánari en raun
varð á, var það, að Poitier gat
ekki, er til kom, hugsað séi«að
skilja við konu sina, fyrst og
fremst vegna barna þeirra.
MELINA MERCOURI
griska leikkonan og friðar-
baráttukonan hefur gefið út sina
fyrstu bók, „Fædd grisk”. Er
þar um að ræða sjálfsævisögu,
sem fjallar einna mest um
hjónaband leikkonunnar og
kvikmyndaleik, en þó einkum
og sér i lagi ást hennar á Grikk-
landi og andúö hennar á her-
foringjastjórninni.
CATERINA VALENTE
— sú heimsfræga söngkona —
hefur svarað játandi bónorði
ensks pianóleikara, sem heitir
Roy Budd og er 22ja ára að aldri
og þá um leið 19 árum yngri en
söngkonan. Hann þar bóðorðið
upp við hana , er þau voru
fljúgandi á milli New York og
Lugane.
Við sameimimst ekki
- segir presturinn - og Simon Spies staðinn
að þuí að fara nwð flapur dtt
— Það er hreinasta tjara
hjá Símoni Spies, þegar
hann segir, aö samruni
okkar ferðaskrifstofa sé
hugsanlegur. Það getur
verið, að þetta sé einhver
óskhyggja af hans hálfu, en
okkur hér dreymir ekki um
samvinnu af neinu tagi. Og
því fáránlegra verður
þetta, ef maður veltir fyrir
sér uppbyggingu þessara
fyrirtækja. Við eigum 24
flugvélar — en hann er
bara með fimm.
Svo sagði Tjöruborgarprestur-
inn danski, séra Eilif Krogager,
þegar danskir blaðamenn spuröu
hann út i yfirlýsingu, sem Spies
gaf nýlega um möguleika á sam-
runa ferðaskrifstofu sinnar við
skrifstofu Tjöruborgarklerksins.
Undirbúningur i fullum
gangi
— Það er langt siðan við settum
allt okkar af stað við að undirbúa
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
blaðsins Politiken að hugs-
anlegu merki Spies-
Tjæreborg-samsteypunnar.
mikla innrás á Evrópumarkað,
sem kemur til framkvæmda
þegar Danmörk fer i EBE. Við
höfum komið okkur upp skrif-
stofum i Lúxembourg, i Lichten-
stein, og á Kýpur. Einnig erum
við með á prjónunum nýstárlegar
smáferðir um Evrópu, en þeim
verður stjórnað héðan frá Dan-
mörku. Við höfum ekki áhuga á
að setja upp skrifstofur i Þýzka-
landi — Það tekur þvi ekki, við
erum nefnilega ágætlega i sveit
settir. hér.
— Harðnandi samkeppni hér
heima i ferðabransanum? —
Ferðamál hér norðurfrá eru það
flókin, til þarf sérþekkingu og
vissa aðlögun, þannig að enginn
utanaðkomandi aðili getur farið i
förin okkar. Við óttumst ekki
samkeppni af neinu tagi.
Engin samvinna við SAS
Nákvæmlega engar fyrir-
ætlanir varðandi samvinnu við
Spies?
— Nei.
— Það var eitt sinn rætt um
samvinnu við SAS?
— Það var einu sinni. já, en það
gildir ekki lengur.
Simon Spies — furðufugl í
heimi danskra fjármála. I
fyrstunni virtist honum
flest mögulegt — nú þykir
hann meiri gasprari en
framkvæmdamaður.
séra Eilif Krogager: Þetta
hefur. verið óskhyggja hjá
Símoni.
— Þið hafið sem sé ekkert með
Spies að gera?
— Við höfum ekkert samband —
nema ef kalla mætti það sam-
band, að hann varð sér úti um hér
um bil sama simanúmer og við
höfum i Kaupmannahöfn. Við
höfum simann 11 — 41 — 00, en
hann náði sér þá i 11 — 42 — 00.
JANE FONDA
— ameriska kvikmynda
leikkonan fræga — samdi á
siðasta ári mótmælareviu eina
mikla, par sem hún ræðst all
harkalega á striðsrekstur
ameriskra i Vietnam. Yfirvöld i
bæði Ameriku og S - Vietnam
bönnuðu sýningar á ádeiluverki
þessu þegar i stað. Jane og að-
stoðarmaður hennar við gerð
reviunnar, hann Donald Suther-
land, létu þó ekki hugfallast. Nú
hafa þau klastrað saman kvik-
myndahandriti upp úr reviunni
og hyggjast hefja kvikmynda-
tökuna fljótlega. — Og nú velta
menn þvi fyrir sér, hvort kvik-
myndin verði einnig bönnuð.
JOHNNY CASH
„Gunfight” heitir kvikmynd, sem
söngvarinn frægi Johnny Cash
leikur i um þessar mundir.
„Gunfight” er gerð fyrir
samskotafé, og kemur ekkert
Hollywood-fyrirtækið nálægt
þeirri mynd, eins og reyndin er að
verða með svo margar kvik-
myndir þar vestra.
En það eru engin venjuleg
fjárfestingarfyrirtæki, sem
leggja fram fé i þessa mynd
Johnny Cash. Til dæmis snöruðu
„Jicarilla Apache” Indiánar út
200 milljónum dollara til gerðar
myndarinnar, og segir höfðingi
þessara mexikönsku Indiána,
„Við litum á okkur hér sem hluta-
félag eins og hvert annað hluta-
félag”. Og höfðinginn haföi
sérstakan áhuga á að styðja við
bakið á Johnny Cash, vegna þess
að JOHNNY er Cherokee
Indiáni að einum fjórða.
„Gunfight” er svo vitanlega
vestri og fjallar um einn ungan
byssumann, sem kemur til þorps
eins og hittir þar annan byssu-
mann. Sá er kominn til ára sinna,
og leikur Kirk karlinn Douglas
hann.
Cash og Douglas i „Gunfight”