Vísir - 28.01.1972, Qupperneq 5
VÍSIR. Föstudagur 28. janúar 1972.
5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
r
Akærður um morð á
17 þúsund
Fyrrverandi
nasistaforingi var i
gær ákærður fyrir að
hafa myrt eða átt
þátt i morðum á 17
þúsund gyðingum i
Sovétrikjunum á
timum annarrar
heimsstyrjaldar-
innar.
Saksóknarinn i Hamborg
sagði, að Gerhard Errn, 68
ára, Jhefði gefið fyrirskipan-
irnar um,að niu þúsund
gyðingar skyldu skotnir i
Hvita Rússlandi i september
1941. Hann hefði einnig átt þátt
i fjöldamorðum á átta
þúsund gyðingum i júni og júlí
1942.
Réttarhöld yfir Errn hefjast
með vorinu. Saksóknari
sagði,að 144vitniyrðu . kvödd
til að vitna gegn þessum fyrr-
verandi herstjórnarrnanni i
her Hitlers.
Þá segir saksóknarinn i
gyöingum
Munchen, Manfred Ludolpth,
að hann hafi nærri öruggar
sannanir fyrir þvi, að fyrr-
verandi Gestapó — foringinn
Klaus Barbie hafi búið i Perú
undir nafninu Klaus Altmann
að undanförnu.
Barbie var dæmdur til dauða
fjarstaddur af frönskum dóm-
stóli. Hann hafði horfið eftir
strið og ekki til hans spurzt.
Altmann sá i Perú hefur
neitað þvi, að hann sé Barbie.
Barbie var yfirmaður
Gestapós i frönsku borginni
Lyon á hernámsárunum. Sak-
sóknarinn i Munchen hefur
sýnt gögn sin fulltrúa alþjóð-
legu samtakanna, sem berjast
gegn gyðingahatri, Beate
Klarsfeld. Beate hefur tekið
ljósrit af skjölunum, og hún
segist innan skamms munu
fara til Perú.
Margir fyrrum háttsettir
nasistar eru taldir fara huldu
höfði i Suður - Ameriku. Rikis-
stjórnir það eru yfirleitt
áhugalitlar á að hafa hendur i
hári þeirra. I mörgum Suður -
Amerikurikjum er mjög
fjölmennur þýzkur minnihluti.
UMSJÓN:
HAUKUR HELGASON
r
A eftir tímanum
Margir japanskir hermenn, sem
voru dreifðir um smáeyjar Kyrra-
hafsins, þegar stríðinu iauk, fréttu
seint af endalokunum.og mörg ár
liöu, áður en þeir komu i leitirnar.
Shoichi Yokoi hefur þó slegið öll met
i þessu, svo að miklu munar.
Yokoi, til vinstri á myndinni, var
handtekinn í frumskógum Gvam nú
i vikunni. Þeir, sem honum náöu eru
með honum á myndinni, Manuel
Degracia og Jesus Duenas. Það
hafði alveg farið fram hjá Yokoi, að
stríöi' var á enda fyrir nærri 27
árum.
„Hœtt við, að EBE kíppi
grundvelli undan byggð
segir norski ráðherrunn, sem sagði uj' sé
„Hætt er við, að eftir 1982 muni
Efnahagsbandalagslöndin kippa
grundvellinum undan byggð i
Norður-Noregi með veiðum upp I
fjörusteina”. Þessi varnarorð mælti
Knut Hoem, sem sagöi af sér em-
bætti sjávarútvegsmálaráðherra
Noregs vegna ósamkomulags við
rikisstjórnina um inngöngu i EBE.
Bandaríska geimvisindastofnunin
ákvað i gærvköldi að skjóta Apollo
16 til tungls hinn 16. apríl eins og til
hafði staöið, þrátt fyrir bilanir, sem
höfðu fundizt i eldsneytisgeymi.
,,Ef norskir fiskimenn spyrja mig
ráða, mun ég biðja þá að greiða at-
kvæði gegn aðild að Efnahags-
bandalaginu,” sagði Hoem i viðtali
við blaðiö Nordlys. Þetta er fyrsta
opinberlega yfirlýsing hans, eftir að
hann sagði skilið við rikisstjórn
Trygve Brattelis.
„Eftir þvi sem mér lýst á efni
Ferð Apollo 16 haföi áöur veriö
frestað um mánuð vegna margs
konar tæknilegra vandamála. Auk
þess hafði geimfarinn Charles Duke
verið sjúkur.
sérstöku ákvæðanna um Noreg, höf-
um við enga tryggingu fyrir þvi, að
Efnahagsbandalagið muni veiða
innan 12 milna landhelgi, þegar 10
ára aðlögunartimabilinu lýkur árið
1982. Ég markaði sérstöðu með til-
liti til þess, að aðild að EBE ætti
ekki að koma niður á ákveðnum
hluta landsmanna. Ef við eigum að
fá kröfur okkar samþykktar, þegar
aðlögunartimabilinu lýkur, verðum
við aö hafa einrómastuðning i ráð-
herranefnd EBE. Takist það ekki,
verðum við varnarlausir.”
Þetta voru efnislega ummæli
Knut Hoems. Hann minnti á, að
Evrópurikin beini kröftum sinum að
þvi að koma sér upp stórum fiski-
skipaflota, sem sækti til að veiða á
fjarlæg mið. Fyrir stóra hluta
Norður-Noregs mundu veiðar upp i
landsteinum tákna fólksflótta og
auðn.
FER SAMT
Ein frægasta söng-
kona heims látin
Mahalia Jackson, sem kvöld i Chicago, 60 ára
telja má, að hafi verið að aldri.
þekktasta óperusöng- Hún var einkum kunn
kona heims, lézt i gær- fyrir negrasálma sina.
Heróín fyrir
einn milljarð
Handtökur í New York og Marseille
Fjórir Bandarikjamenn hafa
verið handteknir I New York fyrir
að liafa smyglað fjörutiu kíló-
grömmum af heróini frá Frakk-
landi. A svarta markaöinum i
New York selst þetta magn fyrir
rúman milljarð islenzkra króna.
Heróininu var smyglað til
Bandarikjanna i kössum, sem
kampavinsflöskur voru i. Tveir af
j mönnunum fjórum voru hand-
teknir i fyrrinótt eftir æsandi
1 eltingaleik lögreglu við þá. 20 kiló
! heróins fundust i bifreið þeirra,
j auk um 13 milljónir isl. króna i
peningum og skammbyssa.
Siðar voru tveir aðrir hand-
teknir, þegar húsleit var gerð i
Palisades Park i New Jerseyfylki
skammt frá New York. Lögregl-
an fann i ibúðinni önnur tuttugu
kiló af heróini i kassa, þar sem
kampavinsflöskur voru geymdar.
Seinustu sex mánuðina hefur
eiturlvfjadeild lögreglunnar i
New York lagt hald á 114 kiló af
heróini. Alika mikið magn hefur
náðst i Evrópu á þessuum tima,
þegar verið var að undirbúa
smygl þess til Bandarikjanna.
Franskir tollverðir hafa fundið
leynilega eiturlyfjaframleiðslu-
stöð. Franska lögreglan sagði i
gær, að þarna muni hafa verið um
að ræða einhvern stærsta heróin-
framleiðenda á Marseillesvæð-
inu, en þar eru aðalstöðvar
heróinframleiðenda i Frakklandi.
Stöðin var falin i ibúð i Mar-
seille. t henni var fullkominn út-
búnaður til fjöldaframleiðslu á
heróini úr morfini. Sextugur karl
og 57 ára kona hans voru hand-
tekin á staðnum
Merki heróins fundust á
veggjum ibúðarinnar, og litils
háttar magn fannst. Greinilega
hafði staðið til að flytja fram-
leiðsluna til annars staðar.
Blekstúlkunni sleppt
Unga stúlkan, sem kastaði á
laugardag poka með bleki I Edward
Heath, forsætisráðherra Breta,
veröur látin laus i dag með þvi
skilvröi, að hún fari brott frá
Belgiu.
Fréttastofan NTB hafði þessa
frétt eftir heimildarmönnum i
Brussel i morgun.
Marie-Louise Kw’iathowski kemur
fyrir rétt i Brussel i dag. Mun þá
samkvæmt heimildarmönnunum,
verða fallið frá ákærunni, ef hún
fari strax úr landinu.