Vísir - 18.03.1972, Side 2

Vísir - 18.03.1972, Side 2
2 Vísir. Laugardagur 18. marz 1972. risBsm-- Leggiö þér stund á likamsrækt? Páll Finnsson, sjómaftur. Nei, ekki getég nú sagt að ég geri það. En maður fór i sund hérna áður fyrr, og vesenaðist eitthvað. En ég er hættur öllu sporti nú orðið. Sigurður Guöjónsson, iðnnemi. Ja, ég var nú mikiö i sundi hérna áður, en það eru nokkuð mörg ár siðan. En ég get vist varla sagt, að ég leggi stund á heilsu- rækt nú orðiö. Hef jú vissulega áhuga á þvi, og fer enn i sund öðru hverju. ólöf Geirmundsdóttir, afgreiðslu- stúlka. Nei, ég hef aldrei verið nein iþróttamanneskja og hef mjög litinn áhuga á iþróttum og öllu svoleiðis. Svala Pálsdóttir, húsm. og teikn- ari. Nei, ég geri allt of litið að þessu. Ég hafði óskaplega gaman af leikfimi hérna áður fyrr, en er alveg hætt. Ég fer einstaka sinnum i sund, eða það kemur fyrir. Katrin Grimsdóttir, húsmóöir. Nei, ég stunda engar iþróttir eða neitt. Ég er bara húsmóðir. Annars er ég sizt á móti þvi að fólk stundi iþróttir og heilsurækt. Sértaklega finnst mér það æski- legt fyrir ungt fólk, sem vantar eitthvað að gera i fristundum sinum. Bergþóra Jónsdóttir, Vogaskóla. Ja, ég fer einstaka sinnum i sund, svo er auðvitaö leikfimi i skól- anum, og það finnst mér alveg bráðnauðsynlegt, hana má alls ekki vanta. ÞEGAR FÍLSUNGAR ERU MEÐAL FARÞEGANNA... Cargolux vex og vex — Það er allt annað en skemmtilegt að vera flug- stjóri, þegar farþegarnir eru nokkrir fílsungar, sem eru að auki svo illa siðaðir, að þeir gera í bólið sitt. Þetta gerðist á dögunum hjá þeim í Cargolux, fyrir- tækinu, sem Loftleiðir eiga að þriðja hluta ásamt sænskum og lúxem- búrgskum aðilum, þegar ungarnir voru fluttir frá Indlandi til Evrópu. Slikur var vatnselgurinn frá þessum stórvöxnu ungviðum, að vatnið rann niður úr gólfinu niður i stjórnvira ýmsa, sem liggja frá stýrum i flugstjórnarklefa aftur i stél vélarinnar. betta þýddi að rifa þurfti mikið upp og raska i vélinni, þegar hún var búin að skila ungunum á ákvörðunarstað. Siðan þurfti að þurrka allt vendi- lega, áður en vélin var útskrifuð tilbúin til flugs á ný, en hér var þó aldrei nein hætta á ferðinni. En það er rétt eins með Cargo- lúx og filsungana, fyrirtækið tekur vöxtinn út alveg ótrúlega fljótt og er þegar að vera risa- fyrirtæki i loftflutningum vara landa og heimsálfa á milli, enda þótt fyrirtækið sé ekki nema 22 mánaða enn sem komið er. Cargolux Airlines International byrjaði með eina flugvél, en i dag eru flugvélarnar fjórar og að auki er félagið með eina vél á leigu frá 1. mai n.k. Allt eru þetta Canadair CL-44, flugvélarnar, sem Loftleiðir hafa notað til far- þegaflutninga tilskamms tima og kallað Rolls Royce 400. Flugflotinn er i eigu félags, sem heitir Saltoft, eigendur þess eru Loftleiðir og Salén Shipping i Gautaborg, en Luxair er þriðji aðilinn að Cargolux, og frá Lux- embúrg er rekstrinum stýrt. Heildarvelta siðasta árs var 457.6 millj. isl. króna. Og hvað reiknar Robert Arendal, fram- kvæmdastjóri félagsins svo með LESENDUR HAFA ORÐIÐ Ferðaskrifstofir stökur t tilefni af ritdeilu ferða- skrifstofukónganna sendir Sólstingur eftirfarandi stökur: „Mælskuskyttur skrámur fá, skvett er bleki þunnu. Skyggir rnæstum alveg á Útsýn fyrir Sunnu.” „Vissulega vita má, venjulegur bjáni, Sunnu verkar illa á Otsýnið á Spáni.” Lesendur Visis senda nú innlegg I bundnu máli hver á fætur öörum, og er þaö góð tilbreyting. Rufaló sendir eftirfarandi stöku: „Með visu þinni verðugt hjai vitt um land skalt þeysa. Halt þér fast þvi Hannibal hann mun vandann leysa.” Byrjuðu með eina vél fyrir 22 mánuðum, — eru nú með 5 stórar vélar Stoppið við Balbóveg K.J. skrifar: að þetta ár velti? Hann kveðst reikna með, að veltan verði 748 millj. isl. króna, aukning sem er lygilega mikil, en virðist eftir öllu að dæma ekki út i hött, þvi vélar félagsins fljúga daginn út og daginn inn fullhlaðnar milli staða á hnattkúlunni. „1 ár er þaö markmið okkar að útvikka mark- aðina, fullkomna þjónustu okkar þannig aö takast megi að styrkja enn frekar stöðu okkar sem flutn- ingaaðili um viöa veröld ”, segir Arendal viðskiptalegur forstjóri, en aðalforstjóri Cargolux er Islendingur, Einar Ölafsson. bvi eru næstum engin takmörk sett, hvað vöruflutningafélög eins og Cargolux geta flutt með vélum sinum. bað sýnir sýnishorn af flutningi siðasta árs. bungir véla- hlutar og samstæður, viðkvæmar tölvur, vefnaðarvara, efna- iðnaður ýmiss konar visindatæki — og lifandi dýr, eins og áður er á minnzt. bá hafa vélarnar flutt ferðatöskur til Tokyo, kapp- akstursbila til Suður-Ameriku og aftur til baka. bá má ekki gleyma nýmjólkurflutningum til Mið- jarðarhafslanda og sigarettu- flutningum til Mið-Austurlanda, eða þá potta og pönnur til islenzkra kaupenda. bá má og geta þess, að Cargo- lux flaug meira en 40 sinnum til Indlands með hjálpargögn ýmiss konar, sjúkraskýli, farartæki, lyf, ábreiður og matvæli, alls rúm- lega milljón kiló. bað nýjasta i starfseminni eru liklega vikulegar ferðir til Hong Kong, farið á þriðjudagskvöldum og komið við i Singapore, Djakarta, Kuala Lumpur, Manila, allt eftir þvi hvort vörur eru á staðina. Frá Hong Kong, endastöðinni, heldur vélin siðan á hverjum laugardegi áleiðis til Evrópu. bað er þvi gott útlit hjá þessu unga fyrirtæki, sem greinilega er að miklu leyti, liklega að mestu leyti, sprottið upp af islenzkum meiði, en hjá fyrirtækinu vinna fjölmargir islenzkir flugmenn og áhafnarmeðlimir, auk þess sem æðsti yfirmaður fyrirtækisins er frá okkur fenginn. -JBP „Ég vil taka undir með Bergsteini Gizurasyni um að búið sé að stórskemma útsýnið frá Laugarásnum með þessum skemmubyggingu við Klepps- veginn. En mér finnst að það ætti að bjarga þvi sem bjargað verður með þvi að byggja ekki meira i austur við Kleppsveginn en orðið er. Byggingarnar eru komnar að svokölluðum „Balbóvegi” og finnst mér, að þar ætti að láta staðar numið og byggja ekki lengra til austurs. betta er ekki einkamál Klepps- holtsbúa, heldur er þetta mál allra, sem i Laugarásnum búa og yfirleitt þeirra sem vilja koma þangað til að njota fagurs útsýnis. Hér áður fyrr var falleg tjörn inn af Kleppsvikinni, eða þar til Björgun hf. fékk þar aðstöðu. Vri ekki möguleiki á að gera þarna tjörn að nýju?” í trimmið með Hlíðabúa Fossvogsbúi símaði: „Mig langar til að fara nokkrum oröum um þá þjónustu sem Strætisvagnarnir veita okkur Fossvogsbúum. Ferðir eru ekki nema á 20 min. eða hálftima fresti, og er þaö mjög bagalegt fyrir fólk, sem þarf t.d. aö mæta i vinnu kl. 8 á morgnana. Ferðin kl. 7 er óratima á leiðinni frá Lækj- artorgi, og er það kannski ekki nema von eins og akstursleiðin er. Vagninn þarf nefnilega að keyra upp að húsdyrum hjá þeim, sem búa i Hliðunum, áður en hann kemst til okkar i Fossvoginum. barf hann þvi að fara yfir Miklubraut, eins og um- ferðin er nú mikil þar, og yfir á Reykjanesbraut og þetta er til mikils trafala. Ef vagninn væri aðeins látinn fara Reykjanes- braut, væri hægt að stytta keyrslutimann og hafa feröir á 15 min. fresti. Að visu þyrftu Hliðabúar þá að labba aðeins lengra en það þykir nú bara hollt á þessum trimm- timum. Svo vil ég nota tækifærið og þakka SVR fyrir skiptimiða- kerfið, sem var orðin timabær ráðstöfun og ég er mjög ánægður með.” HRINGIÐ í SÍMA1-16-60 KL13-15

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.