Vísir - 28.03.1972, Síða 3
Vísir. Þriðjudagur 28. marz 1972
3
Svona á það aövera á páskamorguninn, — aövaka með stórt og fallegt páskaegg sér við hlið. Og ekki til að
að tala um aðfara á fætur fyrr en búiö er að narta ofboðlftið i eggið. Sumum finnst nú þessi egg ómerkileg,
„þynnast með hverju árinu sem liöur”, segja þeir gömlu, — ,,og ruslið innan i þessu verður ómerkilegra ár
frá ári”, bæta þeir við. Hvað um það. Þessi unga stúlka kann augsýnilega vel við innihaldið, — og um-
búðirnar. —Astþór.
LAXVEIÐIARNAR HJA
SKATTALÖGREGLU
Rannsóknardeild rikisskatt-
stjóra vinnur um þessar mundir
að rannsókn á framtöium og
rekstri félaga, scm seija veiöi-
réttindi i laxveiðiám. Rannsókn i
þessum málum hófst um ára-
mótin og tekur til allflestra aðila i
landinu, en þessi rekstur er orð-
inn allumfangsmikill eins og lax-
veiðimenn, scm borga allt að 10
þúsund krónum fyrir stangveiði-
dag, ættu að geta gert sér grein
fyrir.
Ólafur Nilsson, forstöðumaður
rannsóknardeildarinnar sagöi i
viðtali við Visi I gær, að ekki væri
timabært að ræða um árangur
þessarar könnunar, sem nær til
alls reksturs veiðifélaganna og
leigutaxta laxveiðiáa. Eins og
Visir hefur áöur skýrt frá, hefur
leikið grunur á þvi, að gjaldeyris-
skil vegna leigu á laxveiöiréttind-
um til erlendra aðila væru ekki
fullnægjandi, og sagöi Ólafur að
rannsóknin næði aö sjálfsögðu
einnig yfir slfkt. -VJ
Flytur burtu vegna
breyttror umferðar
„Þvi er ekki aö leyna, aö þaö
hefur dregið áberandi mikið úr
sölunni hjá okkur eftir umferöar-
brcytingarnar. Ég hefi þvi á-
kveðiö að flytja verzlunina héðan
frá Kópavogi til Reykjavikur”
sagöi óskar Halldórsson, foT-
stjóri húsgagnaverksmiðjunnar
Dúnu i samtali við Visi i gær.
Talsverð óánægja hefur verið
rikjandi hjá verzlunarmönnum
við Auðbrekku eftir þær
breytingar, sem gerðar voru á
i
umferðinni i Kópavogi. Hafa
margir kvartað yfir samdrætti i
verzlun og kenna þessum
breytingum um, þar sem þær hafi
gert fólki erfiðara fyrir að komast
að Auðbrekku og fleiri götum þar
i grennd. Umferðarnefnd Kópa-
vogs var sent bréf um málið og
fariðfram á lagfæringar. Nefndin
svaraði þvi á þann veg, að þessar
breytingar væru nauðsynlegar til
að vernda lif og limi borgaranna,
og þvi væri ekki hægt aö taka tillit
til sérhagsmuna verzlunarinnar.
óskar Halldórsson sagði, að
verksmiðjan sjálf yrði áfram
staðsett i Kópavogi, en verzlunin
myndi opna i Glæsibæ. Hann
kvaðst hafa verið búinn að opna i
Glæsibæ.
Óskar Halldórsson sagði, að
verksmiðjan sjálf yrði áfram
staðsett i Kópavogi, en verzlunin
myndi opna i Glæsibæ. Hann
kvaðst hafa verið búinn að veðja
á Kópavog sem framtiðarstað,
en nú virtist vera mun hagkvæm-
ara að hafa verzlunina staðsetta i
Reykjavik.
-SG
Slógum EFTA-metið
Við seldum meira til Banda-
ríkjanna en minna til EFTA og
EBE á síðasta ári en árið áður.
Hins vegar jukum við innflutning
frá öllum.
Útflutningur tslands til Banda-
rikjanna jókst um nærri fjórðung
árið 1971, og varð hann nú meiri
en til allra EFTA-landanna til
samans, samkvæmt nýbirtum
EFTA-skýrslum.
Útflutningurinn til rfkjanna i
Efnahagsbandalagi Evrópu
minnkaði um 28,5 prósent, og út-
flutningur til EFTA-landa
minnkaði um 6,8 prósent. Til
Austur-Evrópu seldum við 10%
meira en árið áður.
tslendingar slógu öll met i inn-
flutningi og juku hann um 33,2
prósent á árinu. Næst i aukningu
innflutnings kemur Austurriki af
EFTA-löndum.
Útflutningur tslands jókst að-
eins um 2,1% samkvæmt þessum
EFTA-skvrslum.
—HH
15 ÞÚSUND
KRÓNA MÍNÚTA
— taxtar útvarps og
Þeir voru að hækka afnotagjöld
útvárpsins. Nú verða menn að
punga út með 5.270,00 kr. þ.e.a.s.
þeir sem hafa bæði sjónvarp,
hljóðvarp og hljóðvarpsviðtæki I
hifreið.
Afnotagjald fyrir hljóðvarp er
nú 1180 krónur á ári, en fyrir sjón-
varpið 3100 krónur.
Ef menn hafa útvarpstæki i bif-
reið sinni. þá verða þeir að borga
870 krónur fyrir það, og er það
nokkur lækkun frá þvi sem var,
en samið var um þessa lækkun
við FIB og gildir hún aðeins fyrir
viðtæki i einkabilum.
..Þetta er i kringum 10% hækk-
un, aðeins rúmlega það”, sagði
Axel Ólafsson innheimtustjóri
Rikisútvarpsins, „kemur að
nokkru leyti til vegna þessarar
sjónvarps hœkka
lækkunar á biltækjagjöldunum”.
Sagði Axel að jafnan inn-
heimtust kringum 75% af afnota-
fjöldunum fyrir gjalddaga, en
þeirsem greiddu eftir gjalddaga,
kannski mánuði á eftir, yrðu að
greiða viðbótargjald, sekt. Sú
sekt nemur um 10% þannig að
verulegur hluti sjónvarps- og
hljóðvarpsnotenda hefur greitt i
fyrra jafnhátt afnotagjald og allir
eiga að greiða i ár.
Auk afnotagjaldanna, þá
hækkaði Rikisútvarpið auglýs-
ingataxta sinn. Minútan i Sjón-
varpinu kostar nú 15.000 krónur,
þ.e. fyrstu 10 mánuði ársins, en
20.000 siðustu tvo mánuðina.
Þessar tölur voru áður 12.000 og
15.000.
-GG
Að kunna að selja afurðir sínar:
Ljóðskáldið skrifaði hól
um sig í lesendabréfi!
Uiklega verður að telja það
heimsmet i auglýsinga-
mennsku, sem birtist i
lesendadálki eins dagblað-
anna á dögunum. Þar var
skrifaðum ljóðabók eina, sem
lesándinn hafði fundiö i hillum
bókabúðar i miöborginni.
Ilonuni leizt vel á bókina,
keypti kverið og hafði heim
með sér.
Bendir lesandinn á ýmis
kvæði. scin liann lelur sérlega
áhugaverð og merkileg og
hæiir bókinni á hvert reipi.
Undir bréf sitt ritaði lesandinn
svo nafnnúmerið sitt.
En þegar farið er að alhuga
nánar, hver er eigandi nafn-
númersins, má sjá, að það er
höfundur Ijóðabókarinnar
sjálfur. Segi menn svo, að is-
lendingar kunni ekki að selja
afurðir sinar !
TÉKK-KRISTALL
Skólavörðustíg 16 - Sími 13111