Vísir - 28.03.1972, Page 4
4
Visir. Þriðjudagur 28. marz 1972.
HÚSM/I y !ÐUR
ORÐSENDING FRA
MATVÖRUMIÐSTÖÐINNI
10 kg. molasykur kr.340,00
3 kg. appelsinur kr. 135,00
3 kg. epli kr. 135,00
3 dósir 1/1 ananas kr. 195,00
3 dósir 1/1 jarðarber kr.240,00
3 dósir 1/1 hindber kr.240,00
31/2 ávextir kr. 110,00
3 dósir aspas kr.135,00
Sveskjusulta 46,00 kr. glasið
Bláberjasulta 47,00 kr. glasið
Hindberjasulta 47,50 kr. glasið
Jarðaberjasulta stór glös 47,50 kr. glasið
Kirsuber — stór glös
Agúrkur — stór glös kr. 84,00
Agúrkur — litil glös kr. 57,00
Plómur—stór glös kr. 71,00
Plómur—litil glös kr. 36,00
Bláber heil i glösum
5 pk. tekex kr. 125,00
5 pk. hollenzkar kruður kr. 100,00
5 pk. Cherios kr.200,00
3 gl. tómatsósa kr. 135,00
tómatar 1/1 kr. 60,00
Blómkál i 1/1
3 dósir portúgalskar sardinur kr. 100,00
Makkarónukökur — Tartalettur — Marens
Tertubotnar — smákökur i 1/2 kg. pk.
Komið og skoðið okkar glæsilegu kjörbúð á
Leirubakka, Breiðholti, Matvörumið-
stöðin, Laugalæk 2,horni Rauðalækjar og
Laugalækjar.
Opið til kl. 10 í kvöld, þriðjudag
VERZLUNIN LAUGALÆK
Frá Borgarbókasafni
Reykjavíkur
Borgarbókasafnið og öll útibú þess verða
að venju lokuð frá skirdegi til annars i
páskum að báðum dögum meðtöldum.
Borgarbókasafn Reykjavikur
Þingholtsstræti 29A,
Hólmgarði 34,
Hofsvallagötu 16,
Sólheimum 27,
Bókabilar.
ÚTLÖND í MORGUN ÚTL.ÖND I MORGUN ÚTLÖND
Finna
tíl
máls-
ins
Með þessu tæki, sem Þjóð-
verjar hafa gert, geta daufdumb
börn fengiö tiifinningu fyrir máli.
Vibratorinn (titringstækið) er
sett á handarbak barnsfns eða
háls, og getur barniö þá fundið til
tóna, sem eru sendir í tækið, sem
barniö hefur á höfðinu.
Læknar leggja áherzlu á, að
bæði við þess konar kennslu og
aðra séu daudumb börn og heil-
brigð saman. Barnalæknirinn
Theodor Hellbrugge frá Munchen
rökstyöur þá skoðun þannig:
„Daufdumbu börnin þarfnast
fyrirmyndar og hvatningar frá
hinum heilbrigðu og hin heil-
brigðu þarfnast þeirra félagslegu
verkefna, sem hin börnin veita
þeim.”
Lœknuðust af sjálfs-
dáðum af krabbameini
Þrir sjúklingar, sem þjáð-
ust af krabbameini og voru
i geislalækningum í Árós-
um og Odense, urðu heil-
brigðir af sjálfdáðun, segja
læknar þar.
Krabbameinsæxlin hurfu af
sjálfu sér, og i einu tilvikanna
virtist svo, sem krabbameinsvef-
irnir eyðilögðust fyrir tilverknað
mótefna likamans sjálfs.
Læknarnir Hans Brincker og
A.P. Andersen skýra frá þessum
tilvikum i vikuriti danskra lækna.
Svo fór, að tveir af sjúklingunum
létust siðar, en læknarnir segja,
að engu siður hafi þeir læknast af
krabbameininu. Jóhannes
Clemmensen yfirlæknir bætir þvi
við þessa frásögn, að á þessari öld
hafi verið i bækur skráö 182 til-
felli, þar sem æxli hafi horfið af
sjálfu sér. Viröast sálræn atriði
koma þar við sögu.
jr
Israels-
menn
reknir
öllum borgurum frá israel,
sem eru í Afríkuríkinu
Úganda, hefur verið skipað
að fara úr landinu. Þarna
er um 700 manns að ræða,
en israel hafði haft tölu-
verðan hóp ráðunauta í
Uganda.
Amin valdhafi i Úganda krefst
þess, að lsraelsmenn kalli heim
alla hernaðarlega ráðunauta og
kennara, sem hafa þjálfað her-
menn Úganda á undanförnum ár-
um. Þetta fólk á að vera farið úr
landi um næstu helgi.
Læknar leggja áherzlu á, að
ekki megi ofmeta þessi tilfelli.
Hins vegar gefa skýrslur um mót-
efni, sem geti bugað krabbamein
,,af sjálfu sér” tilraunum lækna-
visindanna aukinn styrk til að
finna slikt mótefni og beita þeim
gegn krabbameini á svipaðan
hátt og heppnazt hefur um ýmsa
aðra sjúkdóma.