Vísir - 28.03.1972, Side 6
é
Visir. Þriöjudagur 28. marz 1972.
vísm
(Jtgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
./ Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 15610 11660
Afgreiðsla: Hverfisgötu 32. Simi 11660
Ritstjórn: Siðumúla 14. Simi 11660 15 línuri
Askriftargjald kr. 225 á mánuði inranlands
i lausasölu kr. 15.00 eintakið.
Blaðaprent hf.
Þar dreifist valdið
í erlendum stórfyrirtækjum hafa menn komizt að
raun um, að hagkvæmari rekstur fæst með þvi að i(
dreifa valdinu i fyrirtækjunum. Mörgum þessum I
fyrirtækjum hefur nú verið skipt niður i meira eða (
minna sjálfstæðar deildir, sem starfa hver fyrir sig /
eins og sérstakt fyrirtæki. )
Með þessu komast menn fram hjá göllum flókins )
miðstjórnarkerfis. Leið upplýsinga og ákvarðana er \
stutt, einföld og fljótvirk. Veigamikil mál týnast (
ekki né stöðvast i flöskuhálsum þeim, sem jafnan )
úir og grúir af i miðstjórnarkerfunum. Tölvutækni )
og aðrar nútima rekstraraðferðir hafa flýtt fyrir \
þróuninni i átt til valddreifingar i stórfyrirtækjum. (
Svipuð þróun en hægari er að gerast hjá þjóðum
Austur-Evrópu, sem hafa búið við eindregna mið-
stjórn i efnahagslifinu og á öðrum sviðum. Þar hafa
menn átakanlega reynslu af göllum miðstjórnar-
kerfisins. Þessir gallar koma m.a. fram i sifelldum
skorti á mörgum vörutegundum, litlum vörugæðum
og dýrri framleiðslu. í flestum þessum löndum eru
ráðamenn farnir að reyna að losa um miðstjórnina y
og dreifa valdinu, til þess að löndin standist sam- /
keppni við lönd markaðsbúskapar. 1
Hér er því safnað
Eiginlega hafa íslendingar ekki nema eitt fyrir- (
tæki, sem er svo stórt, að veruleg þörf sé á vald- (
dreifingu, bæði innan þess og út úr þvi. Þetta fyrir- /
tæki er rikið, sem nú hoppar á einu ári úr þvi að
vera tæpur fjórðungur af þjóðarbúinu upp i að vera
um það bil þriðjungur.
Eftir þvi sem þetta bákn stækkar, verður það
stirðára i vöfum og óhagkvæmara i rekstri. Upp
rjúka nýjar stofnanir með nýjum flöskuhálsum, og
stærsta flöskuhálsinum hefur verið komið fyrir i
Framkvæmdastofnun rikisins, sem á að sjá um
miðstjórn efnahagslifsins. Þessi illspá byggist á
ótal útgáfum af reynslu annarra þjóða i austri og
vestri.
Þjóðin finnur fyrir göllum miðstjórnarkerfisins,
þegar skattar eru innheimtir. Skattbyrðin á al- )
menning og fyrirtæki vex, þegar miðstjórnin færir (
út kviarnar, eins og nú á sér stað hér á landi. Jafn-
framt er miðstjórnarþróunin svo sterk hér á landi )
um þessar mundir, að verkefni og tekjustofnar sog-
ast ákaft frá sveitarfélögunum til rikisvaldsins. (
Nýju skattalögin leiða þessa þróun. /
Við erum á leiðinni frá valddreifingarkerfi Vest- )
ur-Evrópu til miðstjórnarkerfis Austur-Evrópu. )
Engin önnur þjóð Vestur-Evrópu er á þessari braut. \
Og á sama tima eru þjóðir Austur-Evrópu að færa (
sig i gagnstæða átt. /
Vísindin vilja dreifa
Hvort sem menn eru til hægri eða vinstri i stjórn- (
málunum, geta menn ekki verið út og suður i efna- )
hagsmálunum. Ráðamenn verða hér eins og annars )
staðar að taka tillit til nútima efnahagsþekkingar. (
Og þau visindi, hvort sem þau eru stunduð i Banda- (
rikjunum, Sviþjóð eða annars staðar, benda ein- )
dregið i átt til valddreifingar i efnahagslifinu. )
íslendingar hafa ekki efni á að vera að flækjast
einir sér á efnahagslegum villigötum. /
El Salvador:
Sigur
vegna
„atkvœða
um nótt"
olli
uppreisn
„Atkvæði um nótt" færðu
frambjóðanda hægri-
manna sigur í forseta-
kosningunum í El Salva-
dor. i tindátaleiknum í róm
önsku Ameriku beinist at-
hyglin að þessu smáríki.
Stjórnin bældi um helgina
niður byltingartilraun
vinstrimanna, og fram-
bjóðandi þeirra í forseta-
kosningunum var handtek-
inn í gær. Hann er talinn
hafa verið forvígismaður
byltingarsinna, og verður
hann dreginn fyrir herdóm-
stól, sakaður um landráð og
uppreisn.
„Atkvæði um nött”, sagöi
brezka timaritið Economist,
björguðu stjórninni i kosningum
20. febrúar. Jafnvel af Mið-Ame-
riku riki að vera hafa menn i E1
Salvador þótt ihaldssamir. Óþarft
er að hafa um það langt mál, að i
Mið-Ameriku, sem tengir Norður-
og Suður-Ameriku eins og örmjór
þráður, er lýðræði sjaldgæft
fyrirbæri og hefur viða ekki fund-
izt lengi.
Vinstrisinni hafði
nærri unnið „sigur".
E1 Salvador hefur sem önnur
riki þar um slóðir auðuga yfir-
stétt og bláfátæka alþýðu, hinar
miklu andstæður rómanskra
Amerikurikia. Herinn og mið-
stéttin hafa litið á það sem
„kommúnisma”, ef menn mælt-
ust til umbóta, jafnvel af hóg-
værö. Þvi kom það mjög á óvart,
að frambjóðandi vinstrimanna
hafði nærri „unnið sigur” i for-
setakosningunum fyrir mánuði.
Viö höfum sigurinn innan gæsa-
lappa, þvi að hann hefði varla
orðið sætur. E1 Salvador stendur
ekki á þeim grunni lýöræðis, sem
gerði mögulegt, að marxistinn
Allende tæki embætti forseta eftir
sigur i kosningum. Þvert á móti
hefði valdataka vinstrisinna
vafalitið verið hindruð i þetta sinn
og átök orðið milli fylkinga, eins
og þau, sem lyktaði með sigri
stjórnarinnar i E1 Salvador um
siöustu helgi.
Sóttu i sig veðrið,
þegar hætt var að
birta tölur.
baö, sem meira var um
kosningaúrslitin, var sigur
Napóleons Dúartes, frambjóð-
anda kristilegra demókrata, og
bandalags vinstrisinna sem-
kvæmt atkvæðatölum, sem voru
gefnar upp á talningarnóttunni.
Timaritið Economist dregur til
dæmis mjög i efa, að talning hafi
verið heiðarleg og bendir á, að
það hafi verið „einkennileg^ til-
viljun”, að frambjóðandi stjórn-
arinnar for þá fyrst að sækja i sig
veðrið, eftir að hætt var að til-
kynna kosningatölur i útvarpi og
sjónvarpi. Vinstrisinnar töldu sig
um nóttina hafa sigrað i kosning-
unum, en um morguninn vöknuðu
við tilkynningu um, að stjórnar-
frambjóðandinn hefði unnið
nauman sigur. Þá kvaðst Mólina
höfuðsmaður, valinn frambjóð-
andi Fidel Sanchez Hernandez og
stjórnarinnar, hafa unnið með 50
þúsund atkvæða mun.
Enn gerðist það i þessari „ein-
kennilegu” talningu, að kjör-
stjórnin i höfuðborginni San
MmMMtn
.
Andstæðurnar eru miklar I E1 Salvador, annars vegar auður, hins veg-
ar bláfátækt.
Salvador kvað vinstra bandalagið
hafa fengið 27 þúsund atkvæðum
meira en þvi höfðu verið eignuð
um morguninn eftir kosningarn-
ar, og með þvi fór að verða nokk-
uð mjótt á munum milli fram-
bjóðendanna. En fleiri en tveir
voru um hitunina, og samkvæmt
reglum, sem viða gilda þar um
slóðir, skyldi þingið kjósa milli
efstu manna. Þingið fylgir stjórn-
inni og Mólina höfuðsmanni.
Orslitin leiddu tíl
örvæntingaruppreisnar.
Það er vegna þessara
kosningaúrslita og óvænts fylgis
'vinstrimanna, sem þar kom
fram, hvort sem það er i rauninni
meira eða minna en stjórnarinn-
ar, sem blóðbaðið varð i E1 Salva-
dor. Samkvæmt frásögnum hafa
vinstrisinnar gert örvæntingar-
fulla tilraun til að taka völdin, en
hún verið barin niður af hörku.
Sambandslitið hefur verið við E1
Salvador siðan, svo að ástandið er
óljóst. Stjórnin virðist þó hafa öll
völd þar, og má búast við, að kné
verði látið fylgja kviði i viðskipt-
um tH vinstrisinna.
I frásögnum af uppreisninni
segir, að núverandi forseti, Her-
nandez, hafi verið fangi upp-
reisnarmanna i margar klukku-
stundir. Hernandez situr enn i
forsetastóli, þar til þingið hefur
kjörið eftirmann hans, vafalaust
Mólina.
Uppreisnin naut ákafs stuðn-
ings kommúnistaflokksins i
grannrikinu Kosta Rika, þar sem
lýðræði hefur verið i heiðri haft
lengur en annars staðar á þessum
slóðum. Engu siður er kristilegi
demókrataflokkurinn i E1 Salva-
dor enginn kommúnistaflokkur,
fremur vinstrisinnaður lýðræðis-
flokkur, en margir slikir kristi-
legir flokkar fyrirfinnast nú orðið
i rómönsku Ameriku. Þessir
flokkar eiga kannski ekki einn
samnefnara, en tilraun til bylt-
ingar á vegum þessa flokks i E1
mmmm
Umsjón:
Haukur Helgason
Salvador hlýtur að vera orvæni-
ingarverk, sem á rætur i fullyrð-
ingum um kosningasvik, sem i
þetta sinn hafa náð inn á siður
hins virðulega timarits
Economist.
Væntanlega verður ókyrrt um
sinn i E1 Salvador, og hatur
magnast milli fylkinganna. Ólik-
legt er, að vinstrisinnar komist
lengra að sinni, þótt þeir hafi haft
stuðning liðsforingja i byltingar-
tilrauninni. Heldur munu menn
sitja að sinu i þessu rómanska
' riki eins og flestum öðrum og
stunda tindátaleik sem fyrrum,
og ekkert breytist um mannlifið.
Andstæðurnar verða þær, sem
þær hafa verið, þeir sömu ofan á,
og þeir sömu undir.