Vísir - 28.03.1972, Síða 7

Vísir - 28.03.1972, Síða 7
cTVlenningarmál Lófaklapp fyrir Vísir. Þriöjudagur 28. marz 1972. ÚRVALS FERMINGARGJAFIR SEKVERZLLTN HAFNARSTRÆTI 'IB SÍMI 25360 frœðslunni Um árabil hefur fáfræöinni tæpiega verið klappað jafninni- lega lof i lófa á islandi og undan- farnar vikur, og er þá mikið sagt. Reyndar kom slikt mér á engan hátt á óvart. Ég geri ráð fyrir, að svo hafi verið um fleiri. Hver kannast ekki við þjóðsöguna um hann Haildór sjómann og Hjört bónda, sem „vita þetta allt mun betur en þú.” Slik er holiusta landans við atvinnuvegina. Viðhorf almennings eru i meginatriðum tvenns konar. Annaðhvort er myndlist auðskýr- anleg hagleikssmið eða táknrænt skemmtiatriði. Fyrir hina, sem komnir eru hænufeti lengra og hafa heyrt hana setta i samband við tilfinningalif manneskjunnar, er listin óútreiknanlegur kráku stigur sem með engu móti verði greint i sundur hvað gildi hafi og hitt, sem er fánýtt. Þessi skoðun er orðin töluvert útbreidd á landi hér og er ankannalegt, hálf- menntað millistig, sem á sér eðli- legar forsendur. Sammannlegar niðurstöður Sizt skyldi ég neita mikilvægi tilfinninga og kennda i listnautn. Vissulega verður innsti kjarni listarinnar á engan hátt út- skýrður eða skilgreindur með orðum á fullnægjandi hátt fremur en hugarbú manneskjunnar, sem listin er ávöxtur af. Hins vegar erum við okkur meðvitandi um það, sem ég vil nefna „hin duldu lögmál listarinnar”, af þvi að þau verða hvorki mæld né vegin eins og áþreifanlegir hlutir. Samt er tilvist þeirra stöðug, bæði i nálægð og fjarlægð. Nærtæk i verkinu, sem skapað er, djúptæk I huga skaparans. Mannkynið hefur meira að segja komið sér saman um vissar grundvallarniðurstöður. Svo er að minnsta kosti um allar þjóðir, þar sem menning er eitthvað annað og meira en della. Mikils- verð er talin persónuleg tjáning sett fram á kunnáttusamlegan hátt. Góður smekkur og fróðleikur þurfa að fara saman til að hægt sé að rekja hugsanaferil listamanna að verulegu gagni, kanna að hve miklu leyti hann er frumlegur og hvernig er notfærð reynsla ann arra. Þetta á við um alla, sem list skoða, bæði listamenn og venjulega áhorfendur. Sama gildir um listræna fram- setningu i málaralist. Hún krefst lærdóms og náinnar umgengni við eigindir málverksins, form, linur, liti og skilnings á eðli þessara þátta til að listamaðurinn nái valdi á þeim og finni hugsun sinni farveg: Listnjótandinn verður einnig að leggja á sig erfiði til að ná árangri. Tilfinningar og geðslag mann eskjunnar ráða sjálfsagt alltaf úrslitum. Án þekkingar er samt hætt við, að fólki verði villu- gjarnt. Til eru þeir listamenn, sem eru svo óllkir mér, að i rauninni geðjast mér ekki að Aðalfundur Verzlunarbanka íslands hf. verður hald- inn i veitingahúsinu Sigtúni, laugardaginn 8. april 1972 og hefst kl. 14.30. Dagskrá skv. 18. gr. samþykktar fyrir bankann. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða afhentir i afgreiðslu bankans Bankastræti 5, miðvikudaginn 5. april, fimmtudaginn 6. april og föstudag- inn 7. april kl. 9.30 — 12.30 og kl. 13.30 — 16.00. í bankaráði Verzlunarbanka íslands hf. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Þ. Guðmundsson Magnús J. Brynjólfsson. Vilhjálmur Bergsson: reynir eldri kynslóðf myndlist að spilla þvl sem unga kynslóðin byggir upp? SkúlavBrevittg 10 • Reykjovík - Sfm/ 10450 hugsunarhætti til landsins, lagði grundvöllinn að þeirri mynd- listarmenningu, sem er á íslandi i dag. Hlutskipti Sigurðar málara hlaut, af eðlilegum ástæðum, að verða dapurlegt. Sjálfsagt hefur honum fundizt fætur sinir dingla i lausu lofti, að hann væri einyrki i ónumdu landi. A niðurlægingar- timabili þjóðarinnar hafði ekkert verið gert á sviði myndlistar, nema fákunnandi alþýðulist, Hann hlaut þvi að leggja áherzlu á að halda til haga þeirri islenzku myndlist, sem ekki var týnd og tröllum gefin, og bar þvi vitni, að hann hafði átt merka fyrirrennara, eins og Valþjófs- staðahurðin er glöggt dæmi um. Þótt Sigurður málari legði grund- völl að byggja á, gerði hann tæp- lega öllu meira, þvi að hann skorti tilfinnanlega sjálfstæði. Framvinda á elliheimilinu Það var ekki fyrr en hálfri öld siðar, að myndlistin islenzka losnaði úr klakaböndunum. Vöxtur islenzkrar myndlistar á þeim rúmlega 100 árum, hefur verið svo gifurlegur, að það hlýtur að teljast ærið verkefni fyrir list- og félagsfræðinga sam- tiðarinnar að gera grein fyrir, hvernig henni hefur vaxið ás- megin frá kynslóð til kynslóðar, og leita að skýringum á þvi. Þessi þróun hlýtur að teljast einsdæmi i menningu þessa hæggenga og að sama skapi brokkgenga þjóð- félags. Mesta gæfa fslenzkrar mynd- listar er tvimælalaust sú, að hún hefur smám saman orðið þáttur i alþjóðlegu framlagi án þess að glata nokkru af sjálfstæði sinu. Einna helzt finnst mér að myndlistin hafi á timabili siðustu 30 ára rifið sig lausa úr viðjum þessa elliheimilis, sem nefnist islenzkt lista-pg, menningarlif, og brunað á undan. Fyrir bragðið hefur hún auðvitað orðið töluvert sérstök, og hefur ekki enn sem komið er eignazt nema harla fámennan hóp menntaðs áhuga- fólks. Abstraktlistin hefur öðlazt þjóðfélagslegan sess án þess að vera skilin að sama skapi. Afstaða manna gagnvart myndlist mótast þvi að mestu leyti af „þegar litið er til baka” viðhorfum og ótta þeirra,sem fákunnandi eru við allar nýjungar. Blómaskeið siðustu ára hefur mikið tii farið fyrir ofan garð og neðan hjá fólki almennt, sem hefur eins og vænta mátti fremur komið auga á það, sem miður fer, en hitt, sem vel er gert hjá unga fólkinu. Það er auðvitað gömul saga og ný, sem er alþjóð- leg. Hitt kann að virðast öllu fráleit- ara, að nú á timum, þegar islenzk myndlist ris hæst, kemur nei- kvæðasta afstaðan gegn fram- vindunni úr hópi listamanna sjálfra. Frá eldri kynslóðinni, sem hnigandi reynir að spilla þvi, sem unga kynslóðin byggir upp. Viðgerðir á flestum gerðum sjónvarpa, útvarpa og segulbandstækja. ódýrir sjón- varpsmyndlampar og mikið úrval vara- hluta fyrirliggjandi. Fljót og góð af- greiðsla. Viðgerðar- þjónusta útvarpsvirkia MSSTARI verkunum, sem þeir skapa, en ég get engu að siður séð, að þau eru mikilvæg vegna þess, að list þeirra er persónuleg og sjálfri sér samkvæm. 1 árþúsundir hafa áðurnefnd gildi verið söm við sig i stöðugri nýjung sömu myndar hjá hópum og þjóðum, einstaklingum og timaskeiðum, alls staðar þar sem sérkenni eru ljós og mannlegu ástandi lýst. Listamaðurinn gengur á undan með fordæmi, sem er mannkyninu nauðsynlegt leiðarljós. Hann kryfur sitt eigið andlega ásigkomulag og sam- tiðarinnar jafnframt. 1 verkum sinum endurskapar hann sig og veröldina. íslenzk viðhorf Islenzkt fólk almennt sýnir list vafalaust ekki minni áhuga en aðrar þjóðir. Það væri blátt áfram til of mikils mælzt, að EFTIR VILHJÁLM BERGSS0N almenningur sökkti sér niður i listsköpun. Til þess að svo geti orðið hlyti hið opinbera, sem svo er nefnt, að sinna listinni i miklu rikara mæli en gert er, ekki einungis með fjárframlögum, heldur einnig og sérstaklega með menningarlegri afstöðu. Niðurstaða min er sú, að alþýða manna hér á landi sé ekki verr á vegi stödd en annars staðar, þar sem ég þekki til. En menningarforustan islenzka er fáliðuð og á jafnan erfitt um vik með að viða aðsér björg i bú, sem er skiljanlegt, þegar haft er i huga fámennið og afskekkt lega landsins. Fyrir bragðið treystir fólkið ekki þessari menningarforystu, sem er ósjálfstæð og klikubundin. Alþýðumennskan verður hið ráðandi afl æ ofan i æ og fær enga tilsögn eða handleiðslu. Islenzka þjóðin er stolt eins og reyndar ýmsar aðrar þjóðir, sem átt hafa forna menningu. Við megum samt ekki gleyma þvi, að við vorum dönsk nýlenda um aldir og á þeim tíma snjóaði æði mikið yfir okkar fornu frægð. Ég, fyrir mitt leyti, tel, að menning sú, sem tslendingar nútimans byggi fyrst og fremst á, eigi rætur að rekja til þeirrar vakningar, sem átti sér stað um miðbik 19 aldar. Grundvöllur að byggja á Á þvi skeiði kom fram hinn eiginlegi frumherji islenzkrar málaralistar, Sigurður Guð- mundsson. Hann var vel mennt aður i list sinni og bar töluverðan skammt af alþjóðlegum

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.