Vísir - 28.03.1972, Síða 20
Þriðjudagur 28. marz 1972.
Stálu frá vel-
gjörðamanninum
Tveir 16 ára drengir úr
Oarðahreppi voru á gangi i fyrra-
kvöld á Ilraunsholti við Hafnar-
fjörð. Reyndu þeir að stöðva þar
bila, til að fá far heim til sin. Loks
stoppaði fyrir þá fullorðinn
maður, sem var að koma úr
Kcflavik. Ók hann drengjunum i
Garðahrepp — en þegar hann
hafði hann hafði skilað þeim úr
bilnum, uppgötvaöi hann að þeir
höfðu launað honum greiðann
með þvi að stela peningaveski
hans, sem hann hafði lagt frá sér i
framsætið við hlið sér.
1 veskinu voru 10.700 krónur.
Kærði hann þjófnaðinn til rann-
sóknarlögregluunnar i Reykjavik
og fyrir samvinnu hennar og
Hafnarfjarðarlögreglunnar
hafðist upp á piltunum.
Höfðu þeir þá engu eytt af
peningunum, nema hvað þeir
brugðu sér til Reykjavikur siðar
um kvöldið og gáfu þar dreng sem
þeir hittu 500 krónur. Honum
fannst þetta nokkuð undarleg
gjöf, og mun hafa gert
lögreglunni viðvart. Var þá
auðveldur eftirleikurinn.
—GG
TUNNAN A
11 ÞÚSUND
— en kaupendur bíða átekta
„Verð á soltuðum grásleppu
hrognum hefúr hækkað litið
citt frá þvi i fyrra, en kaupendur
halda að sér höndum, og það er
sáralitið sem búið er að semja um
sölu á\’ sagði Guðjón B. ólafsson
framkvæmdastjóri sjávaraf
urðadcildar S^S i samtali við Visi.
i fyrra seldum við grásleppu-
hrogn fyrir hátt i 100 milljónir
króna, svo hér er um mikil verð
mæli að ræða.
Verð á hverri tunnu i fyrra var
110 dollarar, en nú hefur það
hækkað i 125 dollara. Samkvæmt
gengisskráningu okkar hefur þvi
tunnan hækkað úr ca. 9.700
krónum upp i ca. 11.000 kr. Aðal-
kaupendur okkar hafa verið
Þýzkaland og Danmörk, en Guð-
jón sagði að gengi dollars gagn-
vart gjaldmiðli þessara þjóða
hefði lækkað það mikið að
hækkunin á verði grásleppu-
hrogna væri raunverulega mjög
litil. Hins vegar virtust kaup-
endur ætla að biða og sjá hvað
setur, áður en nokkrir stórir
samningar verða gerðir. Við-
ræður hafa staðið yfir undanfarið,
en þær hafa litinn árangur borið
ennþá.
Það litur út fyrir að áhugi á
grásleppuveiðum hafi einnig
dofnað. Sagði Guðjón að aðrar
veiðar virtust eftirsóttari núna og
ekki væri mikill kraftur i grá-
sleppuveiðunum. -SG
Kvefsótt hrjáir
borgarbúa og
flensa á stöku
stað
Flensan hefur stungið sér niður
i Reykjavik, en ekki er um neinn
faraldur aö ræða. Aðra vikuna i
marz voru 27 flensutilfelli skráð
hjá borgarlækni.
Flensan hefur komið niður á
eitt og eitt heimili, að sögn Braga
Ólafssonar aðstoðarborgar-
læknis, og hafa þá stundum allir i
fjölskyldunni tekið veikina.
Talið er vist, að hér sé um að
ræða Hong Kong—flensuna, sem
barst hingað frá Sviþjóð um jóla-
leytið. Engin sýni hafa verið tekin
vegna þess, að ekki er um
faraldur að ræða.
Sá sjukdómur, sem mæðir mest
á borgarbúum þessa dagana er
kvefsótt, sem má segja að sé
algengur kvilli á þessum árstima.
—SB—
Söfnuðu 13 þúsund við „ríkið"
Bretarnir rót-
burstuðu okkur
Bretarnir rótburstuðu íslen-
dinga i „Briddsinni” i gærkvöldi
og sigruöu i keppninni með 184
stigum gegn 112.
Burstið var litið minna en fyrra
kvöldið en þá höfðu Bretarnir
yfir, 111:62.
I hálfleik i gær stóðu leikar 44
gegn 23 fyrir Breta.
Kannski tekst landanum að
hefna harma sinna, þegar
„gullaldarlið” fslenga mætir
brezku bridgesveitinni á morgun,
Gullaldarliðið er sú sveit, sem
bar hróður Islands lengst i bridge
og varð i 3. sæti á Evrópumótinu i
Brighton árið 1950, sveit Harðar
Þórðarsonar.
—HH.
//Þessa þrjá klukkutíma
sem skiptinemarnir söfn-
uöu viö dyr áfengisútsöl-
unnar i Laugarási komu
inn um 13 þúsund krónur.
Þaö hefði þvi vafalaust
safnazt mun meira ef við
hefðum farið út í það að
koma til fólks í stað þess að
láta það sjálft senda fram-
lög sin;' sagði Páll Bragi
Kristjónsson fram-
kvæmdastjóri Hjálpar-
stofnunarinnar í samtali
við Visi í morgun.
Fórnarvikunni lauk á sunnu-
daginn, en nokkur timi mun liða
þar til uppgjöri verður lokið. 1
fyrra söfnuðust um 250 þúsund
krónur á fórnarvikunni, en Páll
Bragi kvaðst búast við að talsvert
hærri upphæð kæmi inn núna.
Hann sagði vikuna hafa fengið
greinilegan hljómgrunn meðal al-
mennings og sá kristilegi boð-
skapur sem i henni felst hefði
mætt mikilli velvild.
Hins vegar virðist sem fólk sé
ekki almennt búið að átta sig á
hagkvæmni giróþjónustu banka
og pósthúsa þvi sárafáir lögðu
framlög sin inn á giróreikning
Hiálnarstofnunarinnar. — SG
Rauðmaga-
leysi syðra
- en Norðlendingar afla
vel og senda suður
Norðlendingar lialda áfram að
senda Keykvíkinguin ný
hrognkelsi.
Grásleppukarlar hér i Reykja-
vik og um Suðurnes hafa svo til
ekkert aflað í net sin og ræður þvi
liöarfariö.
Ekki þýðir að leggja rauð-
maganet, nema veðrið sé sæmi-
lega stillt og undanfarið hefur
verið leiðindaveður, net aðeins
fyllzt af þara og rótazt til.
i gærdag var reyndar éinmuna
bliða, en kvika á sjó, og virðast
menn helzt á þvi að biða nú
rólegir i landi méð gráslcppu-
netin fram yfir hátiðar og athuga
siðan hvort veður skánar ekki.
Fyrir norðan befur veður verið
kyrrara og fengizt ága“t
hrognkelsi. Kru það Siglfirðingar
og Húsvikingar og raunar fleiri,
sem selt hafa rauðmagann
suður. -GG
Sendill á hjóli með gamla laginu er þarna lagður af staö til fyrirtækis
sins með nýju simaskrána ásamt hlifðarkápu, sem þarna var afhent
ókeypis.
SÍMASKRÁIN
RENNUR ÚT
„Á laugardaginn voru sóttar
yfir 3000 skrár, og búið er að aka
yfir 8000 eintökum til fyrirtækja
sem þurfa margar skrár”, sagði
llafsteinn Þorsteinsson ritstjóri
simaskrárinnar i samtali við Visi
i gær. Byrjað var að afhenda
skrána i Hafnarfirði i gær <>g i
Kópavogi i morgun. Eftir paska
verður skráin send út á land, og
ler stærsta sendingin til Akur-
eyrar.
Hafsteinn sagðf, að hér eftir
yrði lögð áherzla á, að simaskráin
kæmi út á hverju ári. Sjálfvirkum
stöðvum færi sifellt fjölgandi og
mikið um breytingar og ný númer
á hverju ári. Kápa nýju sima-
skrárinnar er óvenju lifleg, eða i
þremur litum. Virðist fólk ánægt
með svo skrautlega kápu, enda
má segja að þetta sé sú bók sem
liggi frammi á flestum heimilum
landsins. -SG
breytti
Erlent lán
mínusi í plús
Það jókst nokkuð í gjald-
eyris„sjóðum" okkar í
siðasta mánuði/ en þó
einungis vegna þess, að
mikið lán erlendis kom til
sögunnar.
4730 milljónir króna eru nú i
gjaldeyrjs,,sjóði” nettó, það er
aö segja nettógjaldeyrisstaðan
er tæpum fimm milljörðum i
plús. t febrúar jókst plúsinn um
242 milljónir króna, en þar kom
til Eurodollaralán, bætti stöð-
una um 560 milljónir króna, svo
að án þess hefði hún farið niður
á við.
Eurodollaralán þetta var upp
á 15 milljónir bandariskra doll-
ara, eða tæplega 1300 milljónir
króna. Af þeim fór þó obbinn til
að borga eldri lán, svo að mönn-
um telst til, að um 560 milljónir
hafi „orðið eftir” og lagzt viö
nettógjaldeyrisstöðuna.
1 febrúar i fyrra minnkaöi
gjaldeyris,,sjóður” um 75
milljónir króna. Þá var einnig
tekið Eurodollaralán, en það
kom til sögunnar i janúarmán-
uði það árið og hafði þvi ekki
áhrif til breytinga i febrúar. —
HH
Hvergi hvasst,
hvergi kalt,
hvergi úrkoma
—Þetta er ákaflega mein-
hægt veöur og eins og þaö
getur veriö bezt: hvergi
hvasst, hvergi kalt, hvergi
úrkoma aö ráði — ágætis
veöur um allt land, sagði
Knútur Knudsen veður-
fræðingur i inorgun.
Viö höfum þvi áfram hið
bezta skiðaveður, snjóinn
og sólskinið. Og Knútur
Knudsen gerir ráð fyrir
svipuðu veðurlagi eitthvað
fram i timann. —SB—