Vísir - 08.04.1972, Síða 1
NÝTT LÍF OG VOR
Hann var heldur óstvrkur að reyna að fóta sig kiðlingurinn
atarna suður i Sædýrasafni i gærdag. Þar fæddist hann skömmu
áður en myndin var tekin. Vorið er greinilega ekki langt undan,
þvi stöðugt bætist nýtt líf i safnið þeirra suður á Hvaleyrar-
hoitinu. —Sjá baksiðu.
ENGIN RÁÐ TILTÆK HÉR
TIL AÐ EYÐA OLÍUBRÁK
- TILLÖGUM SIGLINGAMÁLASTJÓRA EKKI SVARAÐ
KIRKJURNAR
EKKI FYRIR
KIRKJUTONLIST
i •
Kirkjurnar á islandi eru litt
eða ekki hæfar til fiutnings á
kirkjulegri tónlist. Þetta
kemur fram i viðtali við
Ingólf Guðbrandsson, sem
réðst i það að flytja hina
miklu Mattheusarpassiu um
páskana. Hann reiknar með,
að það hafi kostað tónlistar-
fólkið eitthvað um 40 þúsund
vinnustundir að setja verkið
upp. Við ræddum við Ingólf
um þetta fyrirtæki i gærdag
★ ★ ★
LÉTT Á BRÚN VIÐ
NORÐURBRÚN
Það var létt yfir gamla
fólkinu i Norðurbrún, þegar
við gerðum þvi heimsókn i
nýju ibúðirnar, sem afhentar
voru I fyrradag. Greinilega
er stefnt í rétta átt með
byggingum eins og þessum.
Viðtöl við nokkra ibúanna —
Sjá bls. 3.
★ ★ ★
KROSSFARI
NÚTÍMANS
Blaðamaðurinn Jack
Anderson hefur staðið á bak
við margar stærstu frétt
irnar. Hann „afhjúpar”
valdamenn og leynimakk
þeirra og telur sig krossfara
gcgn spijjingu. Afhjúpanir
Ander-sons hafa valdið
þremur sjálfsmorðum.
SJA BLS. 6
Sólin hækkar á lofti meö hverjum deginum sem líöur og
jafnframt sýna stúlkurnar hærra upp eftir fótleggjunum,
þegar þær varpa af sér dragsíðum vetrarskrúðanum á
sólskinsdögum. Þessi unga stúlka er 15 ára gagnfræða-
skólanemi og heitir Elsa Magnúsdóttir. Hún á að minna
okkur á sumarið, sem nálgast óðfluga, og Veðurstofan
var eiginlega tilbúin til þess í gær að lofa góðu helgar-
veðri.
Að vísu verður varla nógu heitt til að fækka fötum að
ráði, en gert er ráð fyrir hægum kalda í dag og að hann
hangi þurr. Snjórinn, sem þakti borgina í gærmorgun, er
á undanhaldi, og vart verður um mikinn snjó að ræða hér
eftir í vetúr. Það eru heldur ekki nema tæpar tvær vikur,
þar til sumardagurinn fyrsti rennur upp, og honum verður
vafalaust fagnað heilshugar nú sem endranær.
(Ljósmynd Vísir, Ástþór)
,,Það er ár siðan ég
gerði tillögur um að
skipulagðar yrðu ráð-
stafanir til að reyna að
koma i veg fyrir tjón af
völdum oliu i sjó. En
mér hefur ekki einu
sinni borizt svar frá
sjávarútvegsmálaráðu-
neytinu”, sagði Hjálmar
R. Bárðarson siglinga-
málastjóri i samtali við
Visi i gær.
Allan fimmtudaginn var olian,
sem lenti i höfnina i Þorlákshöfn,
á afmörkuðu svæði og náði brákin
ekki nema um 10 metra út frá
fjörunni. 1 gær hafði olian hins
vegar dreifzt út um alla höfn, þar
sem engin tæki eru til hérlendis til
að einangra slika oliuflekki.
Hjálmar sagði, aö sú aðferð, sem
einna bezta raun hefði gefið, væru
flotgirðingar. Þetta væru nokkurs
konar gardinur, sem haldið væri
uppi með flotholtum. Tveir bátar
drægju siðan búnaðinn i V, þar
sem olia hefði runnið i sjóinn. í V
sjálfu er siðan hafður prammi,
sem fleytir oliunni ofan af sjón-
um. Tillögur Hjálmars gerðu ráð
fyrir að komið yrði upp nokkrum
birgðastöðvum, t.d. hjá oliufélög-
unum, þar sem geymdur yrði út-
búnaður gegn oliumengun, en
hægt væri að flytja hann hvert
sem væri. Ennfremur yrði komið
upp móltökuskilyrðum á hinum
ýmsu höfnum svo hægt væri að
taka á móti oliu, sem náð væri
upp.
Siglingamálastjóri sagðist ekki
búast við, að nokkuð yrði hægt að
gera i oliumálinu á Þorlákshöfn,
eftir að olian hefur dreifzt. Hins
vegar sagði hann magnið hafa
verið fremur litið, sem rann i
höfnina, og þvi myndi olian gufa
upp og eyðast tiltölulega fljótt.
Menn frá Oliufélaginu, sem fóru
til Þorlákshafnar, munu hafa
reynt að eyða oliunni með kem
iskum efnum, en það ekki borið
mikinn árangur. Reynt hefur ver-
ið að flæma fugla burt frá höfn-
inni og fáir hafa lent i brákinni.
— SG
Svört messa
á rússnesku
Sjá baksíðu
OFULLNÆGJANDI
VATNSGÆÐI VÍÐA
— Vatnsveitur oft gerðar af vanefnum og
misskildum sparnaði segir Þóroddur Th.
Sigurðsson, vatnsveitustjóri
Unnið er að rannsóknum
á þvi, hvernig bezt verði
háttað virkjun jarðvatns i
Heiðmörkinni ofan
Gvendarbrunna. Standa
vonir til þess, að þeirri
virkjun geti verið lokið inn-
an þriggja til fjögurra ára.
Þetta kom fram í erindi
Þórodds Th. Sigurðssonar
vatnsveitustjóra á ráð-
stefnunni um matvælaiðn-
að, sem hófst í gær.
Nefndist erindi vatnsveitu-
stjóra Neyzluvatnsöflun á Is-
landi. Þar segir hann m.a., að
þrátt fyrir að mengun vatns hér á
iandi sé litil, verði að telja neyzlu-
vatnsöflun margra byggðqrlaga á
Islandi allsendis ófullnægjandi
hvað vatnsgæði snerti og i ýms-
um tilvikum einnig hvað vatns-
magni viðkomi. Margar islenzkar
vatnsveitur beri þess merki, að
þær hafi verið gerðar af vanefn-
um og oft misskildum sparnaði,
sem komi fram i óvönduðum frá-
gangi á vatnsbóli og dreifikerfi.
Frágangur vatnsbóla á all-
mörgum býlum i sveitum sé á
þann veg, að vatnið sé hættulegt
ellegar varhugavert til neyzlu.
Þá kemur fram i erindi vatns-
veitustjóra, að matvælaiðnaður-
inn hafi gert óhóflegar kröfur um
vatn til kælingar á vélum. Hafi
það valdið þvi, að vatnsból með
Íitlu en áfbragðsgóðu vatni hafi
verið lögð niður eða sniðgengin,
en i þess stað virkjuð yfirborðs-
vatnsból með nægu vatnsmagni
en óhæfu drykkjarvatni.
— SB —
BOBBY CHARLTON KEMUR
— Við kynnum manninn nánar á íþróttasíðu