Vísir - 08.04.1972, Side 9

Vísir - 08.04.1972, Side 9
8 I——8—MggMa—aWBSBKg.-MWWH “IjjSg BMMPy £_______________ — — vr',(iív' 4-^ & 4pr J !■— ,. -. apríl 1972. MKWliiíTff'BBmil ■KHHnHBBBI plSíiM ; ý'46»> » áfi , . ,‘ V- i&Stt ■ ' *?♦'•.. Efsta inyndin var tekin, þegar Bobby Charlton lék sinn 100. landsleik fyrir Eng- land. Á mibmyndinni er hann ásamt eiginkonu sinni Normu og dætrum þeirra I Buckingham Palace, þegar Charlton var sæmdur OBE-orðunni af Elisabetu drottningu. Og neðst er hann lengst til hægri i sinum fyrsta iandsleik 1958 — þá 19 ára. BOBBY CHARLTON TIL ÍSLANDS: . ■Ipfsi ; nu Þrumuskot hans skelfa SeanFlynn alla markverði heims! I 1 ifandi? Bobby Charlton, frægasti knatt- spyrnumaöur Englands, er væntanlegur til islands 13. mai næstkomandi og mun þá afhenda verölaun í sérstakri unglinga- keppni KSI á Laugardalsvellin- um — annað hvort þann dag eða 14. mai. Til slikrar unglinga- keppni erstofnað víða um heim á vegum Ford-verksmiðjanna og mun Bobby ferðast til margra landa til að afhenda verðlaun og verður eiginkona hans með i ferð- inni. Eflaust þekkja flestir íslenzkir piltar nafnið Bobby Charlton og hafa séð hann í sjónvarpi — leik- manninn, sem leikið hefur 106 landsleiki fyrir England og skor- að fleiri mörk í landsleikjum en nokkur annar enskur leikmaður — leikmanninn, sem aldrei hefur verið bókaður í leik eða vikið af leikvelli, leikmanninn, sem slapp ómeiddur úr Múnchen-flugslys- inu 1958, þegar átta leikmenn Manch. Utd. létust og margiraðr- ir hlutu alvarleg meiðsli, svo þeir gátu ekki leikið framar. Nýlega birtist eftir undirritað- an grein í Valsblaðinu um fræg mörk Bobby Charlton og í tilefni af væntanlegri komu hans hingað birtum við þá grein hér: Gullin mörk. Næstum 300. Skoruð á ísuðum völlum bakvið járn- tjaldið og sólbökuðum völlum Suður-Ameríku. Skoruð á voldug- um Wembley-leikvanginum eða við glóðina á Hampden. Mörk skoruð alls staðar í knattspyrnu- heiminum, sem bera töframerki Bobby Charltons. Vissulega hafa verið meiri marka- kóngar til í langri sögu knattspyrn- unnar, þó þeir séu ekki margir. En það er ekki til knattspyrnumaður í dag, sem skorað hefur jafn mikið af sérstæðum glæsimörkum og Bobby. Til þess að sanna mál okkar verður hér á eftir minnzt á nokkur þeirra — hin frábæru Charlton-mörk. Það er ekki hægt að birta myndir af mörk- um — þær eru jafn sjaldgæfar og verðlaunapeningar í bikarkeppni. En það er ekki ástæða til að kenna blaða- ljósmyndurum um það. Þrumumörk Charltons eru oftast komin í mark áður en þeir geta lyft ljósmyndavél- inni. Og þó hafa þeir af langri reynslu lyktað marktækifæri löngu áður en sumir varnarmenn. Markverðir frá Argentínu til Ars- enal — frá Moskvu til Manchester City skjálfa eins og ekki er að furða, því hraðinn á knettinum, þegar Bobby spyrnir af sínum mesta krafti, er yfir sjötíu mílur á klst., samkvæmt raf- magnsútreikningi — 112 km. á klst. — ógnarhraði og þar er kannski góð- ur samjöfnuður, að spretthlaupari, sem hleypur 100 m. á 10 sek. er á inn- an við 40 km. meðalhraða á klst. Þetta þýðir, að Charlton-skot af um 30 m færi lendir í markinu á minna en sekúndu. Það er því ekki að furða þótt ítalir byðu eitt sinn 150 þúsund sterlings- pund í krónprinsinn á Old Trafford. Það virðast ekki miklir peningar nú — en það var fyrir meira en tíu ár- um, þegar enska sölumetið var 45 þúsund sterlingspund, sem Manchest- er United greiddi fyrir Albert Quix- all frá Sheffield Wednesday. Og hvert er stórkostlegasta mark hans? Það er útilokað að svara þessari spurningu. Það má minnast á þau tvö, sem voru orsök þess, að England sigraði Portúgal og komst þess vegna í úrslit 1 heimsmeistarakeppninni 1966. Þau, sem hafa sigrað Skotland — þau, sem hann hefur skorað gegn Tottenham Hotspurs — alltaf það lið, þar sem Bobby Charlton virðist njóta sín bezt gegn. Kannski annað þeirra, sem hann skoraði gegn Charlton Athletic í fyrsta deildaleik sínum í október 1956 — nokkrum dögum áður en hann varð nítján ára. Það var svo frábær byrjun, að hún hefði getað sett margan ungan leik- mann úr jafnvægi. En ekki hinn unga Charlton, sem aðeins sagði eftir leik- inn: — Ég missti eitt. En ef ég hefði skorað þrennu hefðu þeir búizt við fernu í næsta leik — ekki satt? Hinir frægu Charlton-fætur hafa alltaf haldið sig við jörðina — Bobby hefur aldrei ofmetnazt af árangri sín- um. Alltaf sami ljúfi pilturinn, _ sem aldrei hefur verið bókaður í leik — aldrei vísað af leikvelli. Þetta hefur hann frá föður sínum, hæglátum manni, sem sagði aðeins, þegar sonurinn sveiflaðist í sviðsljós- ið gegn Athletic í London. — Bobby stóð sig vel — hann mun gera það. Bobby Charlton er einn af þeim leikmönnum, sem vex í stórleikjum. Wembley-leikvangurinn var vettvang- ur annars tveggja marka byrjunár- leiks .. . í drengjaliði Englands gegn Skotlandi. Þar hófst eins manns styrjöld gegn Skotum, sem Charlton hefur unnið á nær öllum vígstöðvum. Hann var aðeins .tvítugur, þegar hann lék landsleik á hinum sögufræga Hampden Park í Glasgow. En reynsluleysi kom ekki í veg fyrir, að hann skoraði stórkostlegt mark, sem Skotar tala enn um. í þessum fyrsta landsleik sínum lék hann við hlið Tom Finney og segir um atvikið: — Ég fékk knöttinn og spyrnti viðstöðu- laust —■ hann næstum brenndi gat á netmöskvana. Það var gott mark þó að ég segi sjálfur frá. Og það, sem var meira um vert — sérstæt.t, svo fólk man eftir því. Ég man vel Finn- ey. Hann „skapaði" það —- einlék upp hægra megin gegnum skozku vörnina og sending hans var hnitmiðuð. Tólf mánuðum síðar — á Wembley — þaggaði Charlton-pilturinn niður í skozku áhorfendunum, þegar hann skoraði eina markið í 100. landsleik Billy Wright. Bobby segir: — Þetta var einn af þessum leikjum, þar sem allt heppnaðist. Johnny Haynes sendi knöttinn mjög vel til Peter Broad- bent, sem skipti yfir til Douglas við hornflaggið. Þegar ég sá sendingu hans snúast inn að markteignum stökk ég upp og fram og skallaði knöttinn bak við Bill Brown. Charlton lék það einstæða afrek að leika í hverjum einasta landsleik Eng- lands—Skotlands frá 1958 til 1968. Eldlogarnir á Hampden lækkuðu 1966, þegar hann spyrnti knettinum á markið af 30 metra færi og mark- vörður Skota, Ferguson, sá varla knöttinn fyrr en hann lá í markinu. Það var þriðja mark Englands í 4— 3 sigri. En það eru ekki Skotar, sem einir hafa þjáðst. Portúgalar hafa einnig hlotið sömu örlög. Og það þykir Bobby heldur leitt, því að Portúgalar eru þeir mótherjar, sem hann virðir mest. Mörkin tvö, sem hann skoraði gagn þeim í undanúrslitum HM 1966 eru sennilega þýðingarmestu mörk, sem hann hefur skorað. Hið síðara, aðeins tíu mínútum fyrir leikslok, hlýtur að hafa sært sérhvert portú- galskt hjarta. En Charlton segir: — Þegar ég gekk til baka að miðlínunni hljóp Augusto til mín til þess að taka í hönd mína vingjarnlega og óskaði mér til hamingju. Af öllum knatt- spyrnuliðum, sem ég hef leikið gegn, eru Portúgalar í sérflokki hvað iþróttamennsku áhrærir. Og þessu augnabliki lýsir Charlton þannig: — Allt í einu byggðum við upp frábært mark. Knötturinn barst frá vallarhelmingi okkar til Ball, til Moore og síðan til Cohen þvert yfir. Cohen spyrnti langt fram hægra meg- in '— Hurst náði knettinum á fullri ferð og lauk spretti sinum fyrir fram- an bakvörðinn. Hann var í góðri að- stöðu til að skjóta á mark — en eig- ingirni var ekki til. Hann leit upp andartak — iagði síðan knöttinn aft- ur í opnu fyrir mig til þess að smella honum í markið. Wembley sprakk. Portúgalar gátu búizt við einhverju slíku frá Charlton. Árið 1958 í ein- um sinum fyrsta landsleik skoraði hann bæði mörkin í sigurleik Eng- lands gegn Portúgal 2:1. Wembley-leikvangurinn hafði einn- ig sprungið fjórum leikjum fyrr í HM, þegar Charlton skoraði fyrsta mark Englands í keppninni. England hafði hafið keppnina með 90 mín- útna leiðindaleik gegn Uruguay — án marka. Þéttsetinn ieikvangurinn af áhorfendum hafði beðið í 38 erf- iðar mínútur gegn Mexikó — lágt skrifuðu liði — en ekki virtist bóla á marki, frekar en gegn Uruguay. En þá — og látum Bobby segja frá: — Ég fékk knöttinn á miðjunni frá Hunt. Einhver leikflétta greip mig. Ég einlék mig frian — fintaði til vinstri og til hægri og spyrnti allt í einu af 25 metrum. Markvörður kjexi- kó, Calderon, hafði enga möguleika til að verja. Ég leit ekki einu sinni upp til að sjá hvar markið var — spyrnti aðeins eins fast og ég gat í áttina að markinu. Þrumuköllin klingja enn í eyrum mínum. Eitthvað greip mig, segir Charl- ton. Það hlýtur að vera, þvi Charlton skorar of mikið af slíkum snilldar- mörkum til þess, að hægt sé að ræða þar um einhverja heppni. Nokkrum vikum fyrr hafði hann skorað eitt slikt þrumumark gegn Júgóslafíu í æfingaleik fyrir HM. Og þegar hinn hægláti Charlton segir sjálfur: — Ég verð að viðurkenna að þetta er mark, sem ég er stoltur af — þá hlýtur það að vera eitt af beztu mörkum hans. Dæmið sjálf. — Ég var um 25 metra frá mark- inu, þegar ég fékk knöttinn og ég leit snöggt í kringum mig til að sjá hvort ég gæti sent til einhvers sam- herja. Það var enginn, en Jetvic, ann- ar bakvörður þeirra, var fyrir fram- an mig. Ég ákvað samstundis að reyna markskot, því ef það heppn- aðist, mundi markvörðurinn ekki sjá knöttinn. Ég spyrnti i átt að mark- inu og knötturinn small undir þver- slána efst í netmöskvana. Það er furðulegt hvað slíkt tækifæri heppn- ast oft. Og það er það. Spyrjið leikmenn Tottenham. Minnið þá á leikinn 1963, þegar Dave McKay fótbrotnaði i fyrra skiptið. Það var í Evrópukeppni bik- arhafa, sem Tottenham hafði sigrað svo glæsilega árið áður. Síðari leikurinn og tíu leikmenn Tottenham börðust hetjulega — Mc- Kay meiddist eftir aðeins átta mín- útur — og höfðu enn yfir samanlagt. Þá skipti Matt Busby, framkvæmda- stjóri Manch. Utd., Charlton frá vinstra kanti inn á miðjuna. Tuttugu mínútur voru eftir. Og Old Trafford nötraði af gleði, þegar Charlton skor- aði tvö mörk — hið síðara aðeins tveimur mínútum fyrir leikslok. Hið fyrra hafði komið, þegar Pat Crerard sendi Charlton knöttinn. Hann var á fullri ferð í átt að mark- inu — og án þess að lita upp spymti hann knettinum meter frá veilinum með vinstri fæti og Bill Brown hafði engin tök á að verja. Brown, sem er mikill aðdáandi Charlton, var ánægður að þurfa ekki að standa í marki, þegar Manch. Utd. vann Tottenham 5:1 1965. Slík mörk, sem hann skoraði þá, hafa fáir leikið eftir.' Knattspyrnuferill Bobby Charlton hefur þó ekki alltaf verið dans á rós- um — en oftast. Stundum hafa meiðsli sett strik í reikninginn og 1964 var Charlton settur úr enska landsliðinu. Mánuði síðar — svona til að fagna endurkomu Manch. Utd. í Evrópukeppni — skoraði hann þrjú þrumumörk gegn Borussia í 6:1 sigri — á útivelli! Bobby Charlton hefur verið kjör- inn „knattspyrnumaður Englands“ — „knattspyrnumaður Evrópu“ og hann á áreiðanlega eftir að skora mörg minnisstæð mörk enn. Hann er nú nýlega 34 ára og hefur sjaldan leikið betur og það hefur komið fram í leik Manchester United á þessu leik- tímabili. Þegar þetta er skrifað hef- ur Manch. Utd. góða forustu í 1. deild og ef til vill leikur því Bobby Charl- ton í Evrópu á ný næsta keppnistíma- bil. Sean Flynn, þritugur sonur leikarans sálaða, Errols Flynn, hvarf i Vietnam fyrir tveimur ár um. Hann var i Vietnam sem ljósmyndari fyrir það þekkta fréttatimarit, ,,Time”, og sást þar siðast nálægt Phom Penh 5. april 1970. Var hann á rauðu vélhjóli, og fyrir aftan hann sat bandarisk fréttakona, Dana Stone frá CBS-sjónvarpsstöð- inni. Hvorugt þeirra hefur sézt siðan. Flestir lita svo á, að parið hafi annaðhvort fallið i loftárás eða vcríð drepið af norðanmönnum þar eystra. ’ Þessi er a.m.k. skoðun fyrrverandi starfs- bræðra Flynns i Vietnam. Samt gera ýmsir sér enn von- ir um, að parið sé enn á lifi og hafi verið handtekið af skæru- liðum. Móðir ljósmyndarans, frú Allan Loomis, trúir þvi statt og stöðugt, að hún eigi eftir að hitta son sinn lifandi. Hún hefur haldið fast i þessa trú sina, siðan henni var til- kynnt, að Flynn hefði ekki kom- ið fram eftir siðustu ferö sina til Víetnam sem fréttaljósmyndari fyrir „Time”. ,'Enginn gerir sér vist vonir um, að Flynn sé á lifi”, segir hún, „nema ég. Ég trúi þvi enn. Fyrst i stað bjóst ég ætiö við þvi, að einhver myndi hringja i mig og segja mér, að Sean væri lif- andi, hann og Dana hefðu komið á einhvern stað akandi á vél- hjólinu. En það hringdi aldrei. Og samt bið ég enn eftir sima- hringingu. Ég eyði dögum min- um við slmann og bið. Ég stekk upp i hvert sinn, sem siminn hringir og býst viö, að nú séu að berast fréttir af Sean. Frú Loomis.semvar gift Errol Flynn þar til skömmu eftir, að Sean sonur þeirra fæddist, en það var árið 1941, hefur ekki lát- ið duga að sitja við simann. Hún hefur nokkrum sinnum sið- an hann og fréttakonan hurfu Frú Allan Loomis, móöir Seans — fyrrverandi kona Errols Flynn. flogið til Parisar frá heimili sinu i New York og reynt þar að spyrjast fyrir um örlög Sean Flynn. ,,Ég hef reynt að fá Hvita hús- ið til aö spyrjast fyrir um hann, og einnig hef ég fengið nokkra þekkta blaðamenn til að spyrj- ast fyrir um hann hjá kommún- istum. Til dæmis hefur Walter Cronkite reynt mikið til að frétta eitthvað að austan um Sean. Ég hef hitt Tes Tu-Ze i Paris, en hann er Kambódiu maður, sem stjórnar alþjóða- deild Rauðakrossins. Hann gaf mér ekki sérlega góða vön.” i Víetnam þar sem Sean Flynn starfaði sem stríðs- fréttaljósmyndari. Þessi mynd var tekin af honum 1966, þar sem hann styður sig við vopn sitt og hef ur at- vinnutækið um hálsinn. UTB0Ð Tilboð óskast i efnisskifti, gröft og fyllingu ca. 50 þúsund rúmmetra, vegna endur- byggingar á austurenda austur-vestur flugbrautar Reykjavikurflugvallar. Út- boðsgagna skal vitja á skrifstofu fiugvall- arstjóra Reykjavikurflugvallar, gegn kr. 1000.- skilatryggingar. Tilboðum sé skilað á sama stað ekki siðar en miðvikudaginn 19. april n.k. kl. 12 á hádegi. Flugmálastjórinn Agnar Kofoed-Hansen MERKJASALA LJÓSMÆÐRAFELAGS reykjavíkur verður á morgun sunnudaginn 9. april. Merkin verða afgreidd á eftirtöldum stöð- um frá kl. 10 f.h.: Álftamýrarskóla, Ár- bæjarskóla, Breiðholtsskóla, Breiða- gerðisskóla, Langholtsskóla, Melaskóla, Vogaskóla og Hallgrimskirkjusafnaðar- heimilinu. Góð sölulaun. Mæður klæðið börnin hlý- lega. F.h. stjórnarinnar, Helga M. Níelsdóttir. FRA BIFRÖST FRÆDSLUDEILD Skólastarfsemi samvinnusamtakanna, svo og sameiginleg skólastarfsemi Sam- bands isl. samvinnufélaga og Alþýðusam- bands Islands, hefur nú skrifstofur og af- greiðslu að Ármúla 3, Reykjavik, eru þær á 2. hæð hússins. Bifröst Fræðsludeild Samvinnuskólinn Bifröst Bréfaskóli S.Í.S. og A.S.Í. FRA BREFASK0LA S.I.S. 0G A.S.Í. Skólinn hefur flutt afgreiðslu sina úr Sam- bandshúsinu við Sölvhólsgötu að Ármúla 3 i Reykjavik, er hún á 2. hæð hússins. Bréfaskóli S.Í.S. og A.S.Í. lls 5« \ ■;• Verkstœði 83255 ☆ Skrifstofa 30435 VÉLALEIGA STEINDORS sf. MÚRBROT - SPRENGIVINNA • • Onnumst hvers konar verktakavinnu. Tíma eða ókvœðisvinna LEIGJUM UT: Loftpressur Vibrasieða Dœlur ATH. BREYTT SÍMANÚMER

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.