Vísir - 13.04.1972, Side 2

Vísir - 13.04.1972, Side 2
2 VÍSIR. Fimmtudagur 13. april 1972. vbnsnt: Gætirðu hugsað þér að láta klippa þig alveg stutt? Haukur ólafsson, skrifstofu- maður.Nei takk! bað kemur alls ekki til mála. Og þó þeir úti i Frakklandi séu að boða einhverja tizku, þar sem allir eiga að vera stuttklipptir, ja það skiptir mig engu. Jóhann Frimannsson, verzlunar- skólanemi. Nei, það gæti ég alls ekki hugsað mér. Mér likar bara alveg prýðilega við þetta siða. Og þó aö ég stæði einn hér eftir með sitt hár? bað gerði iitið til.égléti samt örugglega ekki klippa mig. I.arus llaraldsson Biöndal, Myndlista og -handiðask.Nei, alls ekki. Ég hef svo fallegt hár. Ég hef engan áhuga á þvi, og jafnvel þó allir tækju sig til og klipptu sig, þá mundi ég ekki feta i fótspor þeirra heldur halda minu fallega hári. Reynir Sigurðsson, rakari. Klippa mig? Nei það kemur ekki til mála. Mér finnst þetta stutta hár sem er að koma núna ekkert fallegUÆtli maður haldi ekki bara þessari sidd, en ekki vil ég það siðara. Calum Campbell, kennari i Mimi. Nei, ég hef alls ekki hgusað mér það og er ekki ánægður með þetta stutta hár. Svo er lika sá timi út- runninn þegar fólk starði ef það sá einhverjum siöhærðum manni bregða fyrir, við erum hættir að vekja athygli. Og ef fólk er ennþá að hneykslast á siðu hári, ja, þá eru það bara fifl og ljótt fólk. Sturla Einarsson, mennta- skólanemi. Já, ég gæti vel hugsað mér það. Enda ætla ég að stytta hárið i sumar og verð lika að gera það, þvi ég mun vinna þannig vinnu, eða ég verö á sjón- um. En ég er þó alls ekki á þvi að ég fari að klippa mig, af þvi að það er að koma i tizku Deild, sem þjáist af tœkjahungri AUGNDEILDIN á Landa- kotspítala er sú eina sinn- ar tegundar hér á landi. Allt frá haustinu 1902 hafa augnlæknar starfað á Landakoti, en augndeildin sem slík var ekki stofnuð fyrr en síðsumars 1969. Þessi deild býr við þröngan kost, bæði hvað snertir tæk- jabúnað og húsrými. Til marks um frekari þörf má nefna, að starfsmönnum deildarinnar tekst sjaldan að koma þeim fjölda, sem á biðlista er, niður fyrir hundraðið, — en auðvitað eru öll neyðartilfelli tekin strax. Fyrsti yfirlæknir deildarinnar var Bergsveinn Ólafsson, en hann lét af störfum um áramót fyrir aldurs sakir og tók þá við deild- inni dr. Guðmundur Björnsson. Auk hans starfa þar: Hörður bor- leifsson, óli Björn Hannesson og Úlfar bórðarson, Bergsveinn Ólafsson og Kristján Sveinsson eru deildinni ráðgefendur. „begar augndeildin tók til starfa” segir dr. Guðmundur Björnsson, var með hana eins og ung hjón, sem eru að byrja búskap: hún lagði upp með tvær hendur tómar. Jafnvel læknarnir áttu sjálfir þau tæki, sem til voru. bau tæki, sem deildin* eignazt siðan, eru henni ýmist gefin af bau tæki, sem deildin hefur eignazt siðan, eru henni ýmist gefin af Lionsklúbbum, eða þá að systur spitalans hafa lagt andvirði þeirra til hliðar af sinum litlu launum. Vegna mismununar i daggjöldum getur spitalinn ekkert fé lagt til uppbyggingar deildinni, eins og hún þyrfti helzt að vera. bess vegna þjáist þessi deild nú af miklu tækjahungri. Að meðaltali ræður augndeildin yfir tæplega 20 rúmum, en þó getum við þrengsla vegna yfirleitt ekki lagt aðra inn en uppskurðarsjúkl- inga. bessi þrengsli stafa af neyðarvaktinni, sem Landakots- spitali sinnir þriöju hverja viku, en neyðarvaktin fær inni með sjúklinga hjá augndeildinni. begar maður hugsar til þess, að meö neyðarvaktinni sannar Landakotsspitali ágæti sitt til jafns við önnur sjúkrahús, er dag- gjaldamismununin Landakoti i óhag þvi óréttlátari og hörmu- legri”. Og dr. Guðmundur Björnsson rekur starfsemi augn- deildarinnar: Ariö 1968 voru augnsjúklingar á Landakoti 169 talsins og fram- • kvæmdar augnaðgerðir voru 145. Árið eftir er augndeildin form- lega stofnuð og samsvarandi tölur það árið: 245 og 218, — 1970: 522 og 465 og 1971 var fjöldinn svipaður. bað, sem af er þessu ári, hafa tæplega 150 aðgerðir verið framkvæmdar á deildinni. Af þeim 465 aðgerðum, sem gerðar voru 1970, voru 85 vegna skýs á augasteini, 122 vegna gláku og 199 aðgerðir voru gerðar á rangeygðum börnum. Stærsti hluti þeirra aðgerða, sem þá eru ótaldar, var vegna slysa. Rangeygð börn Hinn mikli fjöldi aðgerða á rangeygðum börnum er mjög at- \ - ’ f Z DR. Guðmundur Björnsson við eitt tækja þeirrar sjúkradeildar, sem hvaö mest kallar á aukinn tækjabúnaö. hyglisverður. Arið 1969 voru slikar aögerðir 54 og 8 árið 1968. Ástæðan fyrir þessu stóra stökki var einkum ný svæfingatækni, sem gerir þessa aðgerð mögulega á ungbörnum. Rangeygð börn þarf að taka til meðferðarsem yngst, eða um leið og fullreynt er, að augun vinna ekki saman og nauðsynlegt er að allri meðferð sé lokið, áður en barnið byrjar skólagöngu. Með þvi má gefa börnum sjónina aftur, en að öðrum kosti þróast sjúkdómurinn áfram og þá á kostnað annað hvort samsjónar- innar eða skakka augans. bá er ekki unnt að veita sjónina aftur, þó laga megi útlitið. Hér er hluti af starfsliði augndeildarinnar ásamt yfirlækninum, dr. Guömundi Björnssyni. Hörður borleifsson, læknir er lengst til hægri. Samkvæmt heilbrigðisskýr- slum frá 1968 um kvilla skóla- barna voru um 500 börn rang- eygð. Ef allt væri með felldu i sjónverndarmálum okkar, ætti þessa sjúkdóms ekki að gæta svo seint sem á skólaaldri. Hin lúmska gláka Skráning blindra er i molum hér á landi, en kannanir, sem gerðar voru 1950, benda til þess,að blindutiðni sé hér um helmingi hærri en meðal grann- þjóða okkar: um þrir af þúsundi á móti 0,5 — 1,5 af þúsundi. Blinda er hér langtiðust i elztu aldurs- flokkunum. 1 yngri aldurs- flokkum og fram til 55 ára aldurs er blinda ekki tiðari hér á landi en i grannlöndunum, en úr því fer mjög að siga á ógæfuhliðina hjá okkur. Samkvæmt skráningum héraðslækna 1968 voru 76% blindra Islendinga þá 65 ára og eldri. Langalgengasta blinduorsökin hér á landi er gláka, en árið 1950 voru að minnsta kosti 60% blindra blindir af völdum hægfara gláku og 75% allra blindra 70 ára og eldri. Sjúkdómstiðnin virðist vera svipuð hér á landi og með grann- þjóðum okkar, en blindutiðnin aftur á móti miklum mun meiri. Athuganir sýna, að gláka byrjar yfirleitt að gera vart við sig á fimmtugsaldrinum og eykst svo hröðum skrefum upp frá þvi. bað, sem gerir glákuna svo erfiða viðureignarer, hve lúmskur sjúk- dómur hún er: en gláka er einkennalaus, þar til skemmd er komin i augað. En finnist gláka áður en augljós sjúkleg einkenni koma i ljós, er i flestum tilvikum hægt að stöðva sjúkdóminn og koma i veg fyrir sjónskerðingu. — Gláka er ættgengur sjúkdómur. Aðrar algengustu blinduorsakir eru hér á landi ský á augasteini, slys og afleiðing ýmissa bólgu- sjúkdóma i augum. Blindu af völdum sykursýki er að byrja að gæta hér á landi. mmm nn UJí mm Iþróttafréttir dagblaðanna Kristin Sigurðardóttir, hringdi: ,,Ég vil undirstrika það sem Páll Heiðar segir um iþrótta- fréttirnar i Visi. bað er alltof mikið gert af þvi að útblása svo- kölluð afrek þar sem aðalatriðin eru stig og sekúndur. En ég vil taka það fram, að þetta á við um iþróttaskrif allra dagblaðanna. Mér finnst keppnin ekki vera aðalatriðið þegar um iþróttir er að ræða, þótt hún sé út af fyrir sig ágæt. Sjálf hef ég stundað iþróttir bæði handbolta og sund, en keppnin hefur ekki verið aðal- atriðið hjá mér. bað mætti einnig vekja athygli á þeim sem stunda iþróttir sér til andlegrar og lik- amlegrar heilsubótar án þess að taka þátt i sekundustriðinu.'1 Svari nú sá........... bann 25. febrúar s.l., birtust i dálki þessum nokkrar spurningar frá móður til Barnaverndar- nefndar. Ég hefi verið að leita eftir svari nefndarinnar, en ekki getað fundið það á prenti ennþá. bær ádeildur, kvartanir og spurningar, sem birtar hafa verið i blöðum undanfarið i sambandi við starfsaðferðir nefndarinnar benda eindregið til þess að störf- um hennar sé ekki hagað á þann hátt, sem ætlast er til af þvi opin- bera og margt fleira mætti þó benda á, sem ekki hefir enn verið skrifað um, þótt eigi verði það upptalið i þetta skipti. Barna- verndarnefnd verður að gera sér það ljóst að þetta er opinber stofnun og að starfsfólk hennar fær laun sin greidd af fé almenn- ings og þess vegna er henni skylt að veita opinberlega upplýsingar um starfsemi sina, sé þess krafizt og þó sérstaklega ef vafi leikur á þvi hvort störfin séu unnin af skyldurækni og samviskusemi. Formaöurinn getur ekki i þessu tilfelli skotið sér á bakvið þagnar- skylduna, þvi að i spurningum móðurinnar er ekkert, sem snertir nokkra ákveðna perso'nu. Barnaverndarnefnd verður að svara — hjá þvi verður alls ekki komizt. En þar sem að svarið er enn þá ekki komið, þá langar mig til að nota tækifærið og bæta einni spurningu við og spara nefndinni þannig þaö ómak að þurfa að koma tvisvar fram á ritvöllinn. Spurningin er þessi: Er það satt að Barnaverndarnefnd hafi eða hafi nýlega haft i þjónustu sinni útlenda konu, sem litið gat talað islenzku og sem af skiljanlegum ástæðum hafði engan skilning eða þekkingu á islenzku fjölskyldu- lifi? Og er það satt að þessi kona hafi verið send inn á islenzk heimili til að hafa afskipti af fjölskyldumálum og að aðferðir hennar hafi verið með þeim hætti, sem tiðkast i heimalandi hennar, en sem betur fer er óþekktur á Islandi. Er þetta satt? Svari nú sá, sem ber ábyrgðina. bjóðfélagsþegn. HRINGIÐ í Sl'MA 86611 KL13-15

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.