Vísir


Vísir - 13.04.1972, Qupperneq 5

Vísir - 13.04.1972, Qupperneq 5
VÍSIR. Fimmtudagur 13. april 1972. 5 í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Í MORGUN ÚTLÖND Umsión: Haukur Helaason Atómfloti Japana og Bandaríkjamanna? Japanskur þingmaður segist hafa „leyniskýrslur" Japanskur þingmaður hélt því fram í morgun, að Japanir og Bandaríkja- menn sætu um þessar mundir á ieynifundum og stefndu að því, að setja á fót sameiginlegar flota- deildir, sem yrðu búnar kjarnorkuvopnum. Yanosuke Narasaki, sem er þingmaður sósialistaflokksins, sagðist hafa upplýsingar sinar frá leynilegri bandariskri stjórnar- skýrslu. Hann sagðist einnig hafa undir höndum leyniskeyti frá banda- risku flotastjórninni til yfirmanns Bandarikjahers á Kyrrahafi, þar sem þetta kæmi fram. Forsætisráðherra Japan, Eisaku Sato, kvaðst ekkert geta um málið sagt, fyrr en hann hefði rannsakað það. Ulrika. Meðan kreppt er aö Suöur - Vietnömum 90 kni. frá Saigon, hafa þeir haldiö sinu á noröur- vigstöðunum viö Quang Tri. SKRIÐDREKAR ÞEIRRA í ÚTHVERFUNUM Bandarískar flugvélar reyna ó elleftu stundu að stöðva óhlaup N-Víetnama ó bœinn An Loc Norður-Vietnamar beita 22 skriðdrekum íárás á bæinn An Loc, og voru þeir komnir inn i bæinn í morgun. Harðir bardagar geisa í bænum og nágrenni. An Loc er 90 kíló- metra norðan Saigon. varnarliðinu þar, stöðvuð, þegar kommúnistar réðust á þjóðveg 13, sem Suður-Vietnamarnir fara um. Ahlaup Norður-Vietnama á bæinn hófst i dögun. Her S-Viet- nama i bænum hefur verið um- setinn i nærri viku. Hann bað i morgun um tafarlausa hjálp flug— og landhers til að verjast áhlaupinu. Norðanmenn eyðileggja flugvélar Kommúnistar réöust i morgun einnig á flugstöðina i Ba Nang og eyðilögðu þar njósnaflugvél og sködduðu fjórar aörar vélar, þar á meðal eina Phantomorrustu- sprengjuflugvél. Utvarpiö i Hanoi segir, að fjórar bandariskar flugvélar, þar af ein af B 52 gerð, hafi verið skot- nar niður yfir héraðinu Than Hoa Suður-Vietnamar höfðu sent varalið til bæiarins i gær með þyrlum. Hins vegar var framsókn skriödrekasveita Suöur-Viet- nama til bæjarins til aðstoðar i Norður-Vietnam snemma i morgun. Hver bylgjan af annarri af bandariskum sprengjuflugvélum flæddi yfir skriðdrekasveitir Norður-Vietnama við An Loc fyrir hádegiö i dag, og var sagt, að sjö skriðdrekar hefðu verið eyðilagöir. Bandariskar þyrlur réðust á fótgönguliða norðan-manna á þessum slóðum. Þyrlurnar hafa vél-fallbyssur, sem geta skotið sex þúsund skotum á minútu. Harðar árásir á hérað í N- Víetnam Bandariskar flugvélar réðust i morgun á skotmörk innan landa- mæra Noröur-Vietnam, að sögn útvarpsins i Hanoi. Bandariska herstjórnin i Saigon staðfesti þessar fréttir skömmu seinna. í Than Hoa héraði i N-Vietnam eru ekki stórar borgir, en mikil- vægar hafnir og verksmiðjur, að sögn bandarisku her- stjórnarinnar. Ulrika Meinhof talin látin „Skelfir Vestur-Þýzkalands" Lögreglan í Frankfurt lýsti því yfir í gærkvöldi, að hún væri ekki tilbúin að staðfesta eða neita orð rómi um, að Ursula Meinhof, foringi vinstri sinnaðra skæruliða í Vestur-Þýzka landi, sé látin. Talsmaður lögregl- unnar birti yfirlýsinguna, eftir að blaðið Frankfurter Allgemeine Zeitung hafði sagt, að Ulrika hefði látizt seint i febrúar-mánuði. Blaðið segir, að heimildum beri ekki saman um, með hvaða hætti hún hafi látið lifið. Samkvæmt einni heimild hafi hún látizt úr krabbameini, en aðrar heimildir segi, að hún hafi framið sjálfs- morð, þegar henni hafi orðið ljóst, að hún gekk með ólæknandi sjúk- dóm. Ulrika Meinhof, fyrrum blaða- kona i Hamborg, mundi vera 37 ára, væri hún á lifi. Hún sagði fyrir nokkrum árum skilið viö samfélag sitt og tók forystu i flokki róttækra „skæruliða”. Hefur hennar og annars foringja skæruliðaflokksins, Anreas Baader, verið leitað lengi. 1 flokknum, sem venjulega er kallaður „Baader-Meinhof- flokkurinn”, munu aðeins veru örfá ungmenni. Flokkurinn er talinn hafa staðið að banka ráunum, og nokkrir lögreglu- þjónar hafa fallið i viðureign við flokksmenn. Nokkrir hafa náðst af flokksmönnum, og sumir fallið i bardögum við lögreglu. Baader-Meinhof flokkurinn hefur valdið skelfingu i Vestur- Þýzkalandi. 1 yfirlýsingum U1 riku Meinhof hefur hún lýst striði á hendur borgaralegu samfélagi og hvatt til, að þvi verði steypt með blóðugri byltingu. Pólitiskar yfirlýsingar hennar og Anreas Baader hafa ekki mætt vinsemd i Moskvu, og hafa sovézkir kom- múnistar varað við þvi, að menn bindu vonir við flokk þennan, sem sé glæpaflokkur og einskis virði frá stjórnmálalegum sjónar- miðum. ENN MYRÐIR IRA Kona beið bana, þegar sprengja sprakk í vöru- bifreið64 kilómetra norðan Belfast í morgun. Bílnum hafði verið stolið, og eru IRA—menn taldir hafa sett sprengju i hann. Svona fór um sjóferð þá FBI menn liafa hér handsamaö flugvélarræningjann Stanley Speck 31 árs frá San Francisco. Hann rændi Boeing 727 farþega- fiugvél og heimtaði hálfa milljón dollara.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.