Vísir - 24.04.1972, Side 9
VÍSIR. Mánudagur 24. april 1972. 9
Þjóðverjum og Tékkum ó ÓL
Dregið i riðla í forkeppni Ólympiuleikanna í Vestur-Þýzkalandi
island lenti í B-riöli hand-
knattleikskeppni ólympíu-
leikanna i Munchen, þegar
dregið var í riöla í Munchen
á laugardag, og mætir þar
Austur-Þýzkalandi,
Tékkóslóvakíu og Túnis,
svo róðurinn verður erfiöur
að komast i úrslitakeppni
átta þjóða á ólympiuleik-
unum — en þó er það alls
ekki útilokað. Keppt er í
fjórum riðlum og komast
tvær efstu þjóðir í hverjum
riðli í úrslitakeppnina, en
allir leikirnir i henni verða
leiknir i Munchen.
Sá háttur var hafður á i sam-
bandi við dráttinn i riðla, að fjór-
ar efstu þjóðirnar frá siðustu
heimsmeistarakeppni voru settar
i sinn hvern riðilinn og voru allir
aðilar á einu máli um réttlæti
þeirrar ráðstöfunar, svo þessar
þjóðir lentu ekki saman i undan-
keppninni.
Riðlaskipunin verður þannig:
A-riðill. Danmörk, Sviþjóð,
Sovétrikin og Pólland.
B-riðill. Austur-Þýzkaland,
Tékkóslovakía, Island og
Túnis.
C-riðill. Rúmenía, Vestur-
Þýzkaland, Noregur og
Spánn.
D-riðill. Júgóslavia, Ung-
verjaland, Japan, Banda-
ríkin.
Mótherjar islenzka landsliðsins
verða þvi Austur-Þjóðverjar, sem
urðu i öðru sæti i siðustu heims-
meistarakeppni, og hafa siöan
náð mjög athyglisverðum
árangri, Tékkar, sem tvivegis
hafa orðið heimsmeistarar og
sigruðu nýlega i fjögurra landa
keppni i Prag, þar sem Júgóslav-
ar, Danir, og Vestur-Þjóðverjar
kepptu, og Túnisbúar, sigurveg-
ararúr Afrikuriðli, sem varla eru
liklegir til afreka i þessari
keppni.
Þetta er þvi erfiður riðill hvað
fyrstu tvö löndin áhrærir, en is-
lenzka landsliðið hefur oft náð
góðum árangri gegn þvi tékk-
neska, svo möguleikar á þvi, að
ísland komist i aðalkeppnina er
vissulega fyrir hendi, þó svo flest-
ir telji slikt tal bjartsýni. Island
vann tékkneska landsliöiö hér
heima i vetur — eftir jafntefli i
fyrri leik liðanna hér — og þó hef-
ur islenzka landsliðið oft leikið
betur en i þessum tveimur leikj-
um.
Fyrstu leikirnir i keppninni
verða 30. ágúst og mæta íslend-
ingar þá Austur-Þjóðverjum i
Augsburg. 1. september verður
leikið við Tékka og siðasti leikur
Islands i riðlinum verður við Tún-
is.
Tvær efstu þjóðir i hverjum
riðli komast i úrslitakeppnina,
sem hefst 5. september og verður
niðurröðum leikja þá þannig, að
lið nr. 1 i A-riðli leikur við lið nr. 2
i B-riðli, en lið nr. 2 i A-riðli við lið
nr. 1 i B-riðli og það sama er að
segja um C og D riðla. 7. septem-
ber verður næst leikið og mætast
þá lið nr. 1 i A og B-riðli og lið nr. 2
i A og B riðli. 9. september veröur
úrslitaleikurinn háður og mætast
þá þau lið, sem i fyrsta lagi verða
Þessi mynd er frá landsleik Vestur-Þjóðverja og Noregsivetur I Hamborg, sem Norömenn unnu með
15-14. Það er risinn Hansi Schmidt, sem sendir knöttinn yfir norsku vörnina, en hann er nú farinn að
þyngjast mjög og við það hefur broddurinn farið úr vestur-þýzka iiðinu.
Prag dansandi borg
þegar Tékkar unnu!
Gífurlegur fögnuður var í
Prag eftir að Tékkar höfðu
sigrað Rússa í heimsmeist-
arakeppninni í ísknattleik
og þar með náð heims-
meistaratitlinum i sínar
hendur — en Rússar hafa
verið heimsmeistarar tíu
sinnum i röð. Allt varalið
lögreglunnar var kallað út
til að hafa hemil á mann-
f jöldanum í Prag, sem tug-
þúsundum saman streymdi
út á götur borgarinnar —
dansandi og syngjandi — til
þess að fagna hinum kær
komna sigri gegn „erki-
fjandanum"— naumur, en
sætur sigur 4-3.
Litlu munaði, að Rússar töpuðu
öðru sinni, þegar þeir mættu Svi-
um i siðasta leik sinum á laugar-
dag að viðstöddum 14.500 áhorf-
endum i iþróttahöllinni i Prag.
Sviar höfðu yfir 3-2, þegar aðeins
tvær minútur voru eftir, en Rúss-
um tókst að jafna — og þegar sið-
asta lotan hófst stóð 3-1 fyrir Svia.
En jafnteflið var þó alla vega
mikil uppreisn fyrir sænska liðið
eftir tap 11-2 gegn Rússum i fyrri
umferð keppninnar.
I siðasta leik mótsins sigruðu
Tékkar svo Finna með 8-2 og urðu
þvi yfirburðasigurvegarar —
höfðu reyndar sigrað áður en að
þessum siöasta leik kom.
Lokastaðan i HM-keppninni
varð þessi:
Tékkar
Rússar
Sviar
Finnar
V-Þjóðv.
Sviss
10 9 1 0 72-16 19
10 7 2 1 78-15 16
10 5 1 4 49-30 11
10 4 0 6 47-48 8
10 2 0 8 21-76 4
10 0 0 9 19-96 2
efst i keppni liða úr A og B riðlum,
og i öðru lagi efst i keppni liða C
og D riðils.
Um riðlana er það að segja, aö
keppni verður áreiðanlega tvi-
sýnust i A-riðlinum og erfitt að
spá fyrinum úrslit þar — fjórar
nokkuö jafnar þjóðir, sem þar
leiða saman hesta sina. Mögu-
leikar Dana og Svia ættu þar að
vera allgóðir, þvi Sovétrikin hafa
aldrei átt verulega sterku hand-
knattleiksliði á að skipa.
I C-riðli verða Rúmenar að telj-
ast öruggir, en keppnin um annað
sætið þar stendur á milli Vestur-
Þjóðverja og Norðmanna. Þaö
verður áreiðanlega mikil keppni
og Vestur-Þjóðverjar nú ekki eins
góðir og oftast áður — töpuðu
meðal annars fyrir Norðmönnum
i vetur og það á heimavelli. Einn-
ig bendir neðsta sæti Vestur--
Þjóðverja i Tékkóslóvakiu á dög-
unum til þess, að lið þeirra sé I
einhverri lægð um þessar mund-
ir. Hins vegar þarf ekki að efa, aö
þeir taka sig á i sumar, og verða
erfiöir þarna á heimavelli. D-
riðillinn er léttastur. Þar ætti
ganga Júgóslava og Ungverja i
úrslitin aö vera auðveld. — hsim.
einkenni þeirrn sem kkeðast
KORÓNAfötum