Vísir - 29.04.1972, Page 3

Vísir - 29.04.1972, Page 3
VÍSIR. Laugardagur 29. apríl 1972. 3 Borgin borgar 80.000 KRÓNA KJAFTSHÖGG! sem borgin verður að greiða sökum þess, að lögreglan týndi þeim harðhenta „Þeir voru að tala um, að það hefði verið synd, að ég skyldi hafa látið smiða þessa brú upp I mig. Með skarðið hefði ég einmitt verið svo víga- legur dyravörður,” segir Jónas. ,,Jú, jú þið megið taka eins margar myndir og þið viljiðaf þessari brú minni. Það er bara verst, að við skulum ekki geta haft hann með á myndinni, strákínn, sem gaf mér það kjaftshögg, sem leiddi til þess, að ég varð að fá mér þessa 87.700 króna brú," sagði Jónas Jónasson og sýndi okkur svo upp í sig. Jónas hefur starfað um alllangt skeið við dyravörzlu i Tónabæ, en i þeim starfa varð hann fyrir þeim óþægindum i september- mánuði siðastliðnum, að slegnar voru úr honum f jórar framtennur i efri gómi. „Það var ólátabelgur, sem við vorum að fleygja út, sem sló tennurnar úr mér,” segir Jónas okkur frá. „Ég kippti mér ekki svo mikið upp við höggið i fyrstu, og strákurinn var kominn i vörzlu lögreglunnar og þvi horfinn sjón- um minum, þegar ég uppgötvaði, aSOblóðstraumurinn upp i mér stafaði af „tannleysinu”. Þá var strákurinn sem sé kominn niður á varðstöð. Við létum lögregluna þegar f stað vita af þessum óskunda, sem hann hafði valdið, og fórum fram á, að hann yrði ekki látinn hverfa i fjöldann. Engu að siður gat hann horfið lögreglunni sporl^ust. Hann sagði Reykjavikurlögreglunni, að hann væri úr Hafnarfirði, svo að hon- um var ekið að Kópavogsbrú, þar sem Hafnarfjarðarlögreglan tók við honum og ók honum að til- teknu húsi i Firðinum, þar sem kauði kvaðst eiga heima. Þegar svo átti að hafa tal af honum heima fyrir daginn eftir kom i ljós, að þar átti enginn heima með þvi nafni, sem strákur hafði gefið upp. Hann hafði sem sé logið til um nafn og heimilisfang og var þvi horfinn sporlaust. Við þessu yppti lögreglan einvörðungu öxlum. Þvi gat ég að sjálfsögðu ekki unað, þegar i ljós hafði komið að viðgerðin kostaði 87.700 krónur, og fór þvi i mál. Það er núna fyrst, sem borgarráð hefur sam- þykkt að greiða af hendi bætur vegna þessarar viðgerðar. En nú spyr ég: Hverjir greiða svo endurnýjun brúarinnar, sem ég þurfti að láta smiða upp i mig? Það er jú vitað mál, að það er happdrætti, hvað svona brýr end- ast lengi. Kannski tvö ár, kannski fjörutiu. Hver veit nema lög- reglan verði búin að hafa upp á stráknum þegar að þvi kemur,” segir Jónas og hlær svo að glamp- ar á nýju tennurnar hans fjór- ar...... —ÞJM Sýningadömur Módelsamtakanna sýna hér hina sérislenzku tlzku. Tízkusýning með motnum t hádeginu i gær gafst frétta- mönnum tækifæri að kynnast fjöl- breytni islenzkrar uliar og skinnavöru, að Hótel Loftleiðum. Kainmagerðin h/f og íslenzkur heimilisiðnaður stóðu þar að tizkusýningu, en sýningarfólkið var frá Módelsamtökunum. Þar gat að lita hinn fjölskrúðugasta fatnað, handunninn úr ísienzkum hráefnum, uli, skinni og lopa, dragtir, skokka, peysur, herða- slár, jakka, úlpur, kápur, pils og kjóla. A borðum var svo ramm- islenzkur og þjóðiegur matur (kalt borð), sem rann ljúflega niður með islenzku brennivini. Þessi kynning færði okkur heim sanninn um, hve miklum mögu- leikum isl. heimilis- og hand- iðnaður býr yfir sérstaklega fyrir utanlandsmarkað. Ekki er að efa, að þessi gæruskinnsfatnaður veki óskipta aðdáun erlendis og meðal túrista, er sækja okkur heim, enda sagði Haukur Gunnarsson hjá Rammagerðinni að framboð okkar á þessum fatnaði væri mun minni en eftir- spurnin.— „Að sjálfsögðu fram- leiðum við einkum fyrir utan- landsmarkað, þar sem útlending- ar eru mjög hrifnir af þessari sérstæðu vöru okkar.” „Framleiðslan hefur aukizt gifurlega siðustu árin”, sagði Haukur ,,en við þurfum að efla hana enn meir, ef við eigum að anna eftirspurninni frá út- löndum.” Framvegis verða svo þessar tizkusýningar haldnar á föstu- dögum, i hádeginu milli kl. 12,30 og 13,00, að Hótel Loftleiðum, þar sem jafnframt verða kynntir sér- stæðir ísl. skartgripir úr silfri af sömu aðilum. —GF— Starfsmenn óskast Eftirtalda starfsmenn vantar okkur nú þegar: 1. Vana logsuðumenn. 2. Menn sem vilja læra logsuðu. 3. Iðnverkamenn til framleiðslustarfa og lagerstarfa, mikil vinna framundan. Mötuneyti á staðnum. Upplýsingar hjá verkstjóra. H.F. Ofnasmiðjan . Simi 21220. Geta ódýrustu hjólbaröarnir veriö beztir? Spyrjiö þá sem ekiö hafa <3 P/\ PII iw * Barum hjólbarðarnir eru sérstoklega gerðir fyrir akstur ó malarvegum, enda reynzt mjög vel ó íslenzkum vegum, — allt að 75 — 80.000 km. Barum hjólbarðarnir byggja á 100 ára reynslu Bata-Barum vorksmiðianna. 4~.ltirtaid.ar Mceröir }yrirliggjandi: 155-14/4 560-15/4 670-15/6 590-15/4 560-13/4 590-13/4 TEKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDI H.F. AUDBREKKU 44-46 KÓPAVOGI SlMI 42606

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.