Vísir - 29.04.1972, Síða 9
Frant stofnar
skíðadeild
Miðvikudaginn 26.
april s.l. var haldinn
stofnfundur skíða-
deildar Fram.
Á stofnfundinum var Steinn
Guömundsson kjörinn formaöur
deildarinnar, en meöstjórnendur
Baldur Jónsson, Erlendur
Magnússon, Gunnar V.
Andrésson og Þorleifur Ólafsson.
í varastjórn eiga sæti Júlíus Sig-
urösson, Elmar Geirsson og
Guömundur Guðmundsson.
Það kom fram á fundinum að
skiðadeild Fram hyggst sækja
um inngöngu i Skiðaráð Reykja-
vikur. Talsverðar umræður urðu
um framtiðarathafnasvæði skiða-
deildarinnar, og voru Bláfjöll
einkum nefnd i þvi sambandi.
íslandsmót
í iúdó
Islandsmeistaramótinu i Júdó
lýkur á sunnudaginn (30. þ.m.)
Þá verður keppt i „opnum
flokki”, og munu þá mætast
sigurvegararnir frá þyngdar-
flokkakeppninni, sem háð var
þann 16. þ.m.'
Keppnin hefst kl. 2 e.h. i
iþróttahúsi Háskólans, og verður
jafnframt meistaramótinu háð
sveitakeppni drengja, 12 ára og
yngri.
Viðavangshlaup
Viöavangshlaup Kópavogs fer
fram sunnudaginn 30. april 1972
og hefst kl. 14,30 við Kópavogs-
skóla. Keppt veröur i flokki karla
og kvenna 15 ára og eldri. Einnig
verður keppt i yngri flokkum, 8
ára og yngri, 9—10 ára, 11—12 ára
og 13—14 ára.
Þátttaka er ei-nungis ætluð
ibúum Kópavogs. Keppendur
verða að mæta til skráningar kl.
14,00.
Frjálsiþróttadeild Breiöabliks.
8 BEZTU KNATTSPYRNULOND
EVRÓPU LEIKA
UM HELGINA
— Átta liða úrslit í Evrópukeppni landsliða
Átta beztu knattspyrnu-
þjóðir Evrópu leiða saman
hesta sina i fyrri leikjunum
i átta liða úrslitum Evrópu-
keppni landsliða nú um
helgina. Leikið er heima og
heiman, og dagskrá
helgarinnar litur þannig út:
England-Vestur-Þýzka-
land, Ungverja land-
Rúmenía, ítalía-Belgía, en
landsliðseinvaldurinn Haf-
steinn Guðmundsson er þar
meðal áhorfenda, og Júgó-
slavía-Sovétrfkin. Siðari
leikirnir verða aðra helgi.
Meöal sérfræðinga er helzt tal-
ið, að núverandi Evrópumeistar-
ar, Italia og England, leiki til úr-
slita i þessari miklu keppni.
Það fer ekki milli mála, að
aðalleikur umferðarinnar er i
kvöld á Wembley-leikvanginum,
þar sem England og Vestur-
Þýzkaland leika. 100 þúsund
áhorfendur vona þar, að Eng-
lendingar endurtaki sigurinn i
heimsmeistarkeppninni 1966,
þegar England vann Vestur-
Þýzkaland 4-2 eftir framlengdan
úrslitaleik.
Fram aö þeim tima höfðu lönd-
in mætzt i niu landsleikjum i
knattspyrnu og England alltaf
unnið — en frá úrslitaleiknum
hafa Vestur-Þjóöverjar sigrað i
þeim tveimur iandsleikjum, sem
löndin hafa leikið innbyrðis, 1968 i
Hannover með 1-0 gegn hálfgerðu
varaliði Englands og i heims-
meistarakeppninni i Mexikó 1970,
3-2.
Bæði löndin eru með reynda
leikmenn i kvöld. I enska liðinu
eru fimm leikmenn, sem sigruðu
V-Þýzkaland i úrslitaleiknum
1966, þeir Gordon Banks, Bobby
Moore, Martin Peters, Alan Ball
og Geoff Hurst, en Þjóðverjar eru
með þrjá leikmenn, sem tóku þátt
i úrslitaleiknum, Horst Hottges,
Frank Beckenbauer og Siegfried
Held.
Frábærir leikmenn beggja
landanna geta ekki tekið þátt i
leiknum vegna meiðsla — Terry
Cooper og Roy McFarland hjá
Englandi, og Wolfgang Overath
og Berti Vogts hjá Þýzkalandi.
Hvorugt þessara landa hefur
komizt i úrslit Evrópukeppni
landsliða — bezt er þriðja sæti hjá
Englandi á eftir Italiu og Júgó-
slaviu 1968.
ttalia vonast eftir að ná þriggja
marka forskoti i heimaleiknum i
Róm gegn Belgiu og þar með
tryggja sig i undanúrslit. Mikil
bjartsýni rikir þar, en Luigi Riva
leikur nú i landsliði á ný eftir
slæmt fótbrot, og Pietro Anastasi,
Sando Mazzola, Roberto Boni-
segna og Angelo Domenghini eru
allir heilir. Belgia er með tvo ný-
liða I 16 manna hóp, sem fór til
ttaliu, markvörðinn Luc Sand-
ers og varnarmanninn Gilbert
van Binst. Belgiumenn setja allt
traust sitt á Wilfried van Moer og
Paul van Himst, en hvort það hef-
ur nokkuð að segja gegn hinu
„vélræna” italska liði er önnur
saga.
Ungverjaland hefur unnið niu
og gert eitt jafntefli i 10 siðustu
Bobby Moore, fyrirliði Englands.
leikjum sinum við Rúmeníu, en
hinir leiknu framherjar liðsins fá
þó ýmislegt að glima við i þessum
leik, þvi rúmenska vörnin er
mjög sterk. Ungverjaland tapaði
nýlega 1-3 fyrir Vestur-Þýzka-
landi, og liðið er ekki eins sterkt
og oftast áður. Hins vegar unnu
Rúmenar Frakka 2-0 nýlega og
gætu komið á óvart.
Leikur Júgóslaviu og Sovétrikj-
anna veröur á sunnudag og allir
aðgöngumiðar eru uppseldir i
Belgrad. Bæöi lönd hafa áöur
staöið sig vel i þessari Evrópu-
keppni landsliða. Sovétrikin
sigruðu 1960, urðu i öðru sæti 1964
og i fjórða sæti 1968. Júgóslavia
varð i öðru sæti 1960, tapaði 1-2
fyrir Sovét i úrslitum, og einnig
1968, en tapaði þá 0-2 i úrslitum,
sem háö. voru á Italiu, fyrir
italska landsliöinu, eftir 1-1 i fyrri
leik landanna, leik, sem
Júgóslavar voru miklu betri i, en
tókst ekki að knýja fram sigur.
líf meó nýjum litu
■ m .1
SKOÐAÐU DAS HÚSIÐ, VOGALANDI 11, ÞÁ SKILURÐU HVAÐ VIÐ MEINUM