Vísir - 29.04.1972, Qupperneq 16
VÍSIR
Laugardagur 29. april 1972.
Magnús og
Stefión hafa
róðið fram
úr vandanum
— án afskipta
ASÍ eða MFA
„Aft sjálfsögAu sctti þaft mér
stólinn talsvert fyrir dyrnar,
aft ASÍ og Mcnningar- og
fræftslusamband alþýftu skyldi
ncita aft vcra meft, cn cngu aft
siftur er ég aft komast á lciðar-
enda meft I. mai-dagskrá
sjónvarpsins,” sagfti Magnús
Bjarnfreftsson i vifttali vift Visi
i gærmorgun.
Magnús kvcftst hafa rætt vift
fólk á vinnustöftum og eins
gamla vcrkalýftslcifttoga, sem
nú cru hættir opinberum af-
skiptum af vcrkalýftsmálum.
Stefán Jónsson hjá útvarp-
inu rakti efni dagskrár út-
varpsins, sem flutt verður að
kvöldi 1. mai. ,,Við rekjum
upphaf 1. mai og Ólafur R.
Einarsson sagnfræðingur mun
fara orðum um unna sigra i
verkalýðsbaráttunni. Við
litum i Sölku Völku, lesum úr
Bréfi til Láru og ljóðum ör-
eigaskáldanna. Lúðrasveit
verkalýðsins leikur og karla-
kór vélsmiðjunnar fféðins
syngur nokkur lög. Þannig
högum við okkur i tilefni há-
tiðisdags verkalýðsins,” sagði
Ste/án.
Hann lét þess getið, að
útvarpsráð hefði, að sinu áliti,
gert samþykkt sina i góðri
trú. Þó væri þvi ekki að neita,
að það hefði verið nokkur
klaufaskapur, að ekki skyldi
vera hægt að komast hjá leið-
indum þeim er urðu i sam-
skiptum útvarps og ASt. „Hjá
sliku hefði átt að vera hægt að
komast með lagi,” sagði Stef-
án. „Það hefði verið lang
æskilegast, að dagskráin hefði
verið unnin i samvinnu eða
samráði viö Alþýðusambandið
og Menningar og fræöslusam-
band alþýðu.”
—ÞJM
Stefna í
dreifibréfa-
mólinu þingfest
Stefna Jóns K. Jóhannssonar á
hcndur Arnbirni ólafssyni var
þingfest á bæjarþingi Keflavikur i
dag. Stcfna Jóns Péturs Guft-
mundssonar á hcndur sama
manni vcrftur þingfest á næsta
bæjarþingi. Gangur málsins
verftur siftan sá, aö liinn stefndi
fær frest til aft skila greinargerft i
málinu, og dómari tekur sér siftan
frcst til að kanna málsskjöl.
i Keflavík hafa vcrift uppi
raddir um, aft dreifbréfin hafi
vcrift skrifuð á fjórar mis-
munandi ritvélar, en þaft hefur
ekki fengizt staðfest.
—SG
Hver stal
sœtinu mínu?
Fyrir skömmu var brotizt inn i
skúr i Upplöndum stutt fyrir ofan
Itlaðaprcnt i Siftumúla. Þjófurinn
greip þar grátt aftursæti úr
Bronko og haffti á brott meft sér.
Þar sem óþægilegt er aft sitja á
gólfinu i bifreiðum biður sætiseig-
andi Visi að skila til allra, er geta
gefift upplýsingar um málift, aö
þeir láti lögregluna vita. Einnig
má hafa samband viö blaðið.
STÖÐVAST HÓTELIN?
Starfsfólkið með
lausa samninga
Vrnis félög starfsfólks i veit-
ingahúsum hafa sagt upp samn-
ingum sinum frá og meft 15. mai.
Kélögin, sem hafa lausa samn-
inga frá þeim tima, eru f'élag
malreiftslumanna, Félag fram-
reiftslumanna, Félag starfsfólks i
veitingahúsum og Félag hljóft-
færaleikara.
Visir talaði við Sverri Garðars-
son formann Félags hljóðfæra-
leikara, sem sagði, að fyrsti við-
ræðufundur með Sambandi veit-
inga- og gistihúsaeigenda hefði
verið haldinn 3. janúar. Siðan hafi
verið komið saman af og til, þar
til slitnað hefði upp úr viðræðum i
byrjun marz.
— Helzta krafa okkar er, að við
fáum að búa við meira atvinnuör-
yggi. Við viljum fá viðurkennda
vissa vikulega vinnu. Ef atvinnu-
rekendur tryggja það, þá munum
við gangast inn á að hafa tima-
kaupiö aðeins lægra. Við gerum
kröfu til 10% hækkunar vegna
vinnutimastyttingar, en þessi
hækkun kom á alla lausavinnu-
taxta, þegar lög um vinnutima-
styttinguna gengu i gildi. Veit-
ingamenn eru einu viðsemjendur
okkar, sem greiða ekki kaup fyrir
æfingar, meðan það er ekki, eru
æfingatimarnir teknir með i deili-
töluna.
Við förum fram á, að flutnings-
kostnaður á hljóðfærum á vinnu-
stað verði greiddur, og förum
fram á hærri verkfærapeninga,
Tveir veitingaþjónar ganga frá köldu boröi á Loftleiftum i gær, — veröur verkfall þeirra til aö lama
hótelin i upphafi ferðamannatfmabilsins?
en við erum liklega eina stéttin i
þjóðfélaginu, sem leggur til verk-
færin sjálf. Þetta hefur verið
viðurkennt, en greiðslan er alltof
litil. Varðandi beina kauphækkun
má orða kröfuna þannig, að við
viljum sitja við sama borð og
fólk, sem vinnur á sama tima, á
afbrigðilegum vinnutima. Þá för-
um við fram á, að óheimilt sé að
nota tónlist af hljómplötum eða
segulbandi fyrir dansi, eða svo-
kallað diskótek. Við förum fram
á, að veitingamenn sem þurfi á
hljómlistarmönnum að halda,
leiti til stéttarfélagsins. Til eru
lagaákvæði, sem segja, að óheim-
ilt sé að reka vinnumiðlun i
ábataskyni. Ég veit um þrjá stóra
i veitingahúsarekstrinum, sem
verzla i gegnum svokallaða um-
boðsmenn. Þaðer krafa okkar, að
þessir umboðsmenn falli alveg út
úr dæminu. Þegar hljómlistar-
maður ræður sig i gegnum þessa
umboðsmenn, fær hann kaup sitt i
hendurnar frá þeim, en það er
lægra en samningsbundið kaup.
Við veitum hins vegar ókeypis að-
stoð við að ráða hljómlistarmenn.
Við litum svo á, að veitingamenn
renni stoðunum undir atvinnu-
veg, sem er bannaður i islenzkum
lögum, með þvi að ráða hljóm-
listarmenn frá umboðsmanni.
_______ —SB-r-
VINNUR AKUREYRI REYKJAVIK
í KEPPNI UM SPÁNARTOGARA?
Viö treystum á það, aö viö
fáum fjóröa Spánartogarann,
sem er i smiftum, en vift höfum
ckki fengift ncin loforö fyrir hon-
um ennþá. En það cr nauösyn-
legt fyrir okkur aft fá þetta skip,
eftir aft hætt var vift smiöi stóru
togaranna hjá Slippstööinni”,
sagfti Gisli Konráösson fram-
kvæmdastjóri Útgeröarfélags
Akureyringa í samtali viö Visi.
Fjórða og siðasta stóra togar-
anum, sem er i smiðum á Spáni,
hefur enn ekki verið ráðstafað, en
bæði Reykjavik og Akureyri hafa
sótt um að fá hann. Verður hann
afhentur fyrrihluta næsta árs.
Akureyringar fengu fyrir
skömmu notaðan skuttogara frá
Frakklandi, Sólbak, og sagði
Gisli, að hann hefði reynzt vel, en
aflabrögð mjög stopul. Hann
sagði það nauðsynlegt að fá tvö
ný skip til viðbótar. Eldri togarar
félagsins eru nú mjög að ganga úr
sér, og auk þess verður erfitt að
manna þá eftir að nýir togarar
koma i gagnið. —SG
BÍLL BJARGAR MANNSLÍFUM
Hjartasjúkdómar eru að
verða uggvænlegustu sjúk-
dómar þeirrar tölvualdar,
sem núlifandi kynslóð lifir
á. Sem betur fer geta
læknavísindin oft á tíðum
bjargað, — ef hjálpin berst
í tæka tíð. Minúta getur
skipt máli, þegar koma
þarf sjúklingi með hjarta-
tilfelli á gjörgæzludeildina.
Eitt þeirra tækja, sem
hvað mest ríður á að hafa
tiltækt, þegar koma þarf
slíkum sjúklingi undir
læknishendur, er hjarta-
bíllinn, en slíkir bilar hafa
Útfœrslan
og 1. maí
Að þessu sinni mun hátiðahöldin
1. mai snúast um baráttu þjóðar-
innar fyrir útfærslu landhelg-
innar i 50 milur. Var þetla sam-
þykkt á aðalfundi Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna i Reykjavik
24. april. „Með þessari ákvörðun
vill verkalýðshreyfingin i höfuð-
borginni undirstrika einhug sinn
og þjóðarinnar allrar i mesta lifs-
hagsmunamáli islenzku þjóðar-
innar”, sagði Jón Snorri Þorleifs-
son.
bjargað ófáum mannslíf-
um erlendis, þar sem slík
tæki eru þegar í notkun.
Balaðamannafélag Islands
stofnaði til söfnunar sjóðs, sem
verja á til kaupa á hjartabilnum,
og er það gert i minningu látins
félaga, Hauks Haukssonar,
blaðamanns á Morgunblaðinu.
Söfnunin hefur farið hægt og
sigandi af stað. En krónurnar
skila sér ein af annarri, og i gær-
dag kunngerðu Kiwanismenn,
sem þá voru að undirbúa lands-
þing sitt, sem stendur um helg-
ina, að Hekla og Katla i Reykja-
vik hefðu gefið sinar 100 þúsund
krónurnar hvor klúbbur.
Er þá komið fé sem nemur
fimmtungi innkaupsverðs bilsins,
sem er eitthvað rúmlega 2,5
milljónir króna.
Formaður fjáröflunarnefndar
er Arni Gunnarsson, fréttamaður
hjá útvarpinu, en dagblöðin i
Reykjavik veita framlögum mót-
töku.
—JBP—
„Langt frá Reykjavík
en nálœgt guði"
- segja Þórshafnarbúar
„Vift sækjum sjóinn af kappi,
ekki vantar þaö. En gallinn er
bara sá, aft þaft fæst varla bein
úr sjó”, sagði Pálmi Ólason odd-
viti á Þórshöfn i samtali við Visi
i gær.
Grásleppuveiðin byrjaði vel,
en siðan hefur alveg tekið fyrir
þá veiði, og togskipið Harpa
hefur litið aflað. Hefur skipið
orðið að sækja vestur fyrir land,
þvi fisklaust hefur verið fyrir
Norðurlandi.
— Það er verið að auglýsa
nauðungaruppboð á læknis-
bústaðnum, Pálmi?
„Já, og eg vil nú ekki fullyrða
að það sé vegna þess, að við get-
um ekki borgað. Kannski erum
við bara að minna á læknis-
leysið hér. Mér þætti gaman að
sjá, hverjir kæmu á uppboðið til
að kaupa þetta ágæta hús.
— Hvernig gengur svo mann-
lifið?
„Það gengur ágætlega. Við
erum ánægðir með allt, nema
aflaleysið og rikisstjórnina. En
allavega held ég, að það muni
rætast úr með fiskinn. Við
höfum ekki nein áform uppi um
kaup á skuttogara. Hins vegar
erum við reiðubúnir að kaupa
fisk af skuttogurum þeirra á
Raufarhöfn og Vopnafirði,
þegar þeir eru komnir i gagnið.
Já, já. Þetta fer allt vel. Þótt
við séum langt frá Reykjavik
held ég að við séumnálægt guði”
sagði Pálmi að lokum.
-SG
—SG