Vísir - 03.05.1972, Blaðsíða 5
VÍSIR. Miðvikudagur 3. mai 1972.
5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Umsjón: Haukur Helgason
Humphrey ofan á
— en Wallace og McGovern geta einnig verið
ánœgðir með úrslitin í Indíana og Ohio
Hubert Humphrey virtist
i morgun vinna nauma
sigra í prófkosningum í
Ohio og Indíana, en hlut-
fallstölur bentu til þess, að
bæði George .Wallace og
McGovern gætu líka talið
sig sigurvegara.
Endanlegar tölur voru taldar
mundu sýna, að enn er baráttan
hnifjöfn milli frambjóðendanna
og Iiumphrey og McGovern verði
að leggja sig alla fram i næstu
lotu prófkosninganna.
Kosningasvindl?
Iðnaðar- og landbúnaðarfylkið
Ohio sendir 153 fulltrúa á flokks-
þing demókrata og þetta er
fimmti stærsti fulltrúahópurinn.
Þar skapaðist mikill glundroði
vegna ásakana um kosninga-
svindl i bæjunum Cleveland og
Youngstown. Talsmenn
McGoverns hafa talað um svik,
en hann hefur sjálfur gert minna
úr þessu. Þó sagði McGovern að
sér veittist erfitt að samþykkja að
endanlegur tölur fra Ohio væru
réttar.
Humphrey var einnig gramur
yfir þvi, sem hann kallaði
„heimsku manna og véla”. Hann
sagðist vera öskureiður yfir þvi,
að sums staðar hefði fólk ekki
fengið að greiða atkvæði.
1 Cleveland voru kjörstaðir ekki
opnaðir i tæka tið, og einnig voru
kosningavélar bilaðar. I Youngs-
town vantaði atkvæðaseðla, og
talsmenn McGoverns benda á, að
þar sé mikill fjöldi ungra
kjósenda, en ungir kjósendur
hafa fremur hallazt á sveif með
McGovern.
Var reynt að bæta úr skák með
þvi að hafa kjörstaði opna lengur
en til hafði staðið og tafði þetta
talninguna mikið. Milli 20 og 25
prósent af atkvæðunum i Ohio
koma fra þeim kjördæmum, sem
þarna eiga i hlut.
Muskie með 12% þótt hann
kæmi ekki.
1 Indiana áttust Humphrey og
Wallace við, og þar hafði
Humphrey milli 46 og 48% atkv.>
og Wallace milli 41 og 43%
þegar töluvert yfir helming at-
kvæða hafði verið talið.
Humphrey er talinn munu sigra
þarna, en ekki vist, hversu for-
skot hans verður mikið.
Nafn Edmund Muskie var á
listanum, þótt hann hafi dregið
sig úr prófkosningunum. Hann
fékk um 12%, sem er talið nokkuð
gott, þegar tekið er tillit til þess
að hann kom ekki i fylkið og hann
fék aðeins 10% i Wisconsinfylki
fyrir skömmu, þar sem hann
barðist af öllu afli.
Jackson úr leik.
Þessi lota var einnig hin siðasta
fyrir Henry Jackson þingmann.
Hann hafði orðið i þriðja sæti i
Florida, en illa gekk i Wisconsin
og enn verr nú i Ohio. Jackson
lýsti þvi nú ýfir, að hann mundi
ekki taka þátt i fleiri próf-
kosningum. Hann tók þó fram
eins og Muskie hafði gert, að
þetta þýddi ekki að hann gæfi ekki
kost á sér i framboð i forseta-
kosningunum yrði þess óskað.
Úrslitin i Ohio vera ekki alveg
ljós fyrr en siðdegis, en flest
bendir til, að Humphrey sigri
McGovern þar með litlum mun.
Aðeins 38 af fulltrúum falla i hlut
þess, sem fær flest atkvæði i heild
i fylkinu, en hinir eru kjörnir i
kjördæmum, svo að skipting
fylgisins ræður miklu og fengi
McGovern svipaðan fulltrúa-
fjölda og Humphrey i fylkinu,
gæti hann verið hæstánægður.
Nú er Heath talinn
viss í EBE-málinu
Humphrey manna kátastur.
Óttast að
S-Víetnamar
Heath er talinn eiga visan sigur
á þingi i þeim atkvæðagreiðslum,
sem eftir eru um lög vegna aðild-
ar að Efnahagsbandalaginu, eftir
að stjórnin sigraði i gærkvöldi i
atkvæðagreiðslu um mikilvægt
mál.
Þrátt fyrir mjög áhrifamikla
ræðu Michael Foot úr Verka-
mannaflokknum greiddu 304 at-
kvæði með frumvarpi stjórnar-
innar, þar sem umræður eru tak-
markaðar við 12 daga um EBE-
málið. 293 voru á móti.
Fimm af sex þingmönnum
Frjálslynda flokksins studdu
Heath.
Skoðanakannanir sýna nú, að
meirihluti fólks, sem á annað
borð tekur afstöðu, styður aðild.
Að minnsta kosti kemur þetta
fram i könnun blaðsins Daily Ex-
press. 40% voru fylgjandi, 38%
andvigir, og 22% óákveðnir.
Ekki er langt siðan fylgi aðildar
var mjög litið i skoðanakönnun-
um, og hafa orðið alger straum-
hvörf i þeim efnum siðustu
mánuði.
Verkamanna-
flokkurinn
sigrar ó
Skotlandi
séu að
2500 Suður-Vietnamar voru i
nótt teknir um borð i lendingar-
pramma undan strönd Binh Dinli-
hcraðs, eftir að Norður-Viet-
namar höfðu hernumið stóran
fiugvöll þar. Um það leyti létu
embættismenn i hermálaráðu-
ncytinu i Washinglon i Ijós
„alvarlcgar efasemdir” um, að
Suður-Vietnamar gætu haldi velli
öllu lengur gegn 100 þúsund
manna liði N-Vietnama, sem
Vonir Verkamanna-
flokksmanna um sigur í
bæja- og sveitarstjórnar-
kosningunum í Englandi og
Wales á morgun hafa vax-
iö, með þvi aö flokkurinn
vann marga stóra sigra í
Skotlandi í gær.
Verkamannaflokkurinn fékk
meirihluta i Greenock og Dun-
fermline, sem frjálslyndir og
„framsóknarmenn” stjórnuðu
áður. Eftir þetta ræður Verka-
mannaflokkurinn öllum stórum
sveitarfélögum i Skotlandi, nema
fimm.
Flokkurinn var stærsti flokkur i
Edinborg, fékk 33 borgarfulltrúa,
og bandalag thaldsflokksins og
„framsóknarmanna” fékk 30.
Verkamannaflokkurinn vann 13
nýja fulltrúa i Glasgow.
Á morgun verður kosið i 342
bæjar- og sveitafélögum i Eng-
landi og Wales, og aukakosningar
til þings fara fram i tveimur kjör-
dæmum i Engiandi.
Suður-Vietnamar flyja I Binh uinn
bugast
vinnur sigur eftir sigur.
Flugvöllurinn var yfirgefinn i
gær. Norðanmenn höfðu skotið á
hann i tvo sólarhringa án afláts.
Stöðin er 480 kilómetra norðan
Saigon.
Sjóliðar Suður-Vietnama ætla
að reyna að verjast milli gömlu
keisaraborgarinnar Hué og
Quang Tri, sem N-Vietnamar
hafa tekið.