Vísir - 27.05.1972, Síða 1

Vísir - 27.05.1972, Síða 1
62. árg. — Laugard 27. maí 1972— 117. tbl. Fundum ekki Anægjuleg breyting hefur oröiö á borginni okkar nú á nokkrum vikum meö komu vorsins. En þaö hcfur einnig orðið ánægjuleg breyting á borginni af öörum orsökum. Borgararnir og borgar- yfirvöldin hafa gert stórt átak til að fegra borgina, sem hefur tekiö sóðaskapinn stakkaskiptum frá þvi sem var fyrir fáum árum. — Viö héldum þó að enn væri töluvert ógert. En það veröur aö segja þá sögu eins og er, aö viö fundum ekki þann sóðaskap, sem viö enn hugöum vera i borginni. SJA BLS.2 Nýju boðorðin Endurskoöun á iifsgæöunum er nú aö verða æ meira áberandi I öllum háþróuöum ríkjum. — Hvað er þaö, sem viö viljum i raun og veru? Hverju erum viö að fórna á altari aukins hagvaxtar? — Fyrir skömmu kom út i New York athyglisverð bók. — t henni eru sett fram ný boð- orö og rædd ábyrgð einstak- lingsins á mótum þess um- hverfis, sem við lifum öll i. SJABLS.8. Hvernig eru forsetamorðingjar Þeir menn sem reynt hafa aö myröa eöa myrt hafa forseta Bandarik j a nna eða áberandi stjórnmálamenn eru á ótrúlega margan hátt keimlikir. Nefnd, sem rann- sakaði ofbeldi i Banda- rikjunum 1969, gaf þeim sameiginlega lýsingu. Sú lýsing á mjög vel við Artie Bremer, sein reyndi aö myrða George Wallace fylkisstjóra. — SJA BLS. 6. Enga lógaritma í leikhús Þeir, sem ef til vill hafa veriö haldnir minnimáttarkennd i leikhúsi, þegar torskilin leik- rit Laxness hafa veriö flutt, geta nú verið heldur upplits- djarfari. — Það er sem sé aö koma á daginn, aö menn eiga ekki endilega að skilja ýmiss konar skringilegheit sem sýmbólik eða tákn einhvers annars og meira en sagt er og sýnt. Sem sagt: Farðu i leikhús en skildu lógaritma- töflurnar eftir heima. Reyndu aðeins að skemmta þér, ef þú getur. — i dag er fjallað um sýningu Leikfélags Akureyrar á Strompleik Laxness á menningarslðu. —SJA BLS.7 Bóðum frambjóðendum annt um œskulýðinn Sjó baksíðu Hann barði mig í magann Sjó viðtal við Albert Guðmundsson ó baksíðu Hvert er ólit yðar ó fegurðar samkeppnum? Sjó Vísir spyr bls. 2 Fannst af tilviljun skaðbrenndur Maður brann í tjaldi ó Snœfellsnesi — Var rœnulítill, þegar hann fannst Slasaður maður, illa brunninn og þungt hald- inn, var sóttur vestur á Snæfellsnes i gærdag af þyrlu frá varnarliðinu. Piltur frá bænum Skógarnesi i Miklaholts- hreppi fann manninn meðvitundarlitinn, þeg- ar hann i gærdag gekk fram á brunnið tjald skammt frá bænum. Lá maðurinn þar hjá sviðn- um tjalddúknum, greinilega mikið brenndur. Fólkiö I Skógarnesi tilkynnti Páli hreppstjóra á Borg, hvaöa slys heföi oröiö þarna, og kom um leið skilaboðum til lækna i Stykkishólmi. Fóru bæði sjúkra- húslæknirinn og héraðslæknirinn i sjúkrabil til Skógarness, en þetta var skömmu eftir kl. 2 i gærdag. Læknarnir töldu, þegar á staö- inn var komið, varhugavert að flytja hinn slasaða I sjúkrabiln- um, eins og komið var fyrir hon- um, og var þá leitað aðstoðar varnarliðsins með þyrluflug. Slasaði maðurinn var einn úr hópi þriggja starfsmanna frá Orkustofnun rlkisins, sem þarna unnu að mælingum. Hinir tveir félagar hans höfðu fariö til Reykjavikur i fyrradag vegna bilunar i einu mælitæki þeirra, sem viðgerðar þurfti við. En hann varð einn eftir Qg ætlaði aö gista i tjaldi þeirra. Maöurinn var of illa haldinn til þess að geta með nokkru móti gertgrein fyrir þvi, hvernig brun- inn hafði orðið. En helzt er getum leitt að þvi, að kviknaö hafi I tjaldinu út frá gastækjum — annaðhvort út frá sprengingu eöa að gasloginn hafi teygt sig i tjald- dúkinn að manninum sofandi. Þyrla varnarliðsins lenti meö hinn slasaða á Reykjavikurflug- velli um kl. hálfsex i gær, og var maðurinn fluttur i hasti á sjúkra- hús og lagður þar til aðgerðar. —GP Þórunn Símonardóttir - Katrín Gísladóttir ÞÆR SIGRUÐU! Fyrir fullu Hóskólabíói var um klukkan þrjú í nótt kjörin Fegurðardrottning íslands 1972, Þórunn Símonardóttir fró Reykjavík. Annað og þriðja sœti hrepptu Kolbrún Sveinsdóttir og Erla Adólfsdóttir. Þó var Katrín Gísladóttir fró Akureyri kjörin Fegurðardrottning ungu kynslóðarinnar 1972. (- ÞJM - BB)

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.