Vísir - 02.06.1972, Síða 5
VISIR. Föstudagur 2. júni 1972.
5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
HOMINN HEÍMl
— og búinn að ávarpa þingi og þjóð
„Tilgangurinn er fyrst og
fremst sá að fylgjast gaum-
gæfilega með þvi, að jákvæð
þróun verði i samskiptum
stórvelda”, sagði Nixon for-
seti i morgun er hann ávarp-
aði þing og þjóð Bandarikj-
anna, er hann kom heim úr
sinu fræga ferðalagi til Sovét-
rikjanna, irans og Póllands.
Sagði Nixon að samningur-
inn um takmörkun við kjarn-
orkuvopna vigbúnaði, færi
báðum aðiium mikið öryggi,
og væri mjög stórt skref i átt-
ina að þvi að stöðva með öllu
hið hættulega og rándýra vig-
búnaðarkapphlaup.
Nixon fræddi svo þingið á
þvi að samningurinn um tak-
mörkun á eldflaugasmið yrði
fljótt sendur þinginu til
athugunar.
Umsjón: Gunnar Gunnarsson
Þeir þjóðnýttu olíuno
r
— iraksmenn lindirnar en Sýrlendingar leiðslurnar
irak og Sýriand hafa tek-
ið yfir allar olíulindir i eigu
vestrænna fyrirtækja og
eru norðan tií í irak og út
undir Miðjarðarhaf. Hafa
löndin tvö þjóðnýtt allar
eignir og sett undir einn
hatt.
55 oliulindir i nágrenni bæjarins
Kirkuk norðan til i Irak voru
þjóðnýttar, þar eð félag það sem
hagnýtti sér þessar lindir, og
aðalaðsetur hefur i London, hafði
ekki komið þvi i verk að gefa neitt
svar við úrslitakostum sem Iraks-
stjórn hafði sett félaginu.
Úrslitakostir stjórnarinnar
gerðu félaginu að greiða hærri
leigu, ha.rri innflutningstolla af
verkum og vélum félagsins og þar
að auki liðlega 100 milljónir
punda sem sérstakan skatt til
Iraks-rikis.
I dag vatt svo nágrannarikið
Sýrland sér i að þjóðnýta ögn lika.
Útvarpið i Damaskus skýrði frá
þvi að Sýrland hefði þjöðnýtt
dælustöðvar og oliuleiðslur sem
flytja oliuna frá Norður-Irak út til
Miðjarðarhafsins gegnum Sýr-
land og Libanon.
fornaldarsögu og ætiar sér að
stunda framhaldsrannsókn-
ir,” ef ég ekki fell saman eftir
þetta”, sagði hún. Hún tók
gagnfræðapróf árið 1909.
Carolina á heima i Fresno i
Kaliforniu
Caroline Cooper sem er 82
ára að aldri krækti sér um
daginn i doktorsgráðu i latinu,
Þarna liggur Harvey
Glenn McCloud, 23 ára
byssumaður frá Ral-
eigh i Californiu —
hann framdi sjálfs-
morð eftir skotárásina
á fólk á kosningafundi
hjá Everett Jordan,
þingmanni. Lik byssu-
mannsins liggur þarna
á milli bifreiðanna, en i
bakgrunninum eru
fréttal jósmy ndarar.
Allir hrœddir!
Josef Tekoah, ísraelski
ambassadorinn hjá Sam-
einuðu þjóðunum, bað í
gærkveldi Kurt Wald-
heim, aðalritara S.þ., að
reyna að tryggja að
hermdaraðgerðir sem
hroðaverkin í Tel Aviv
fyrir skemmstu, verði
stöðvuð.
Tekoah ambassador
lagði fram þessa tillögu
fyrir hönd lands síns að
loknum 30 mínútna löng-
um viðræðufundi við
Waldheim.
Edward Ghorra, fulltrúi
Líbanons hjá S.þ. hefur
einnig setið einkafundi
með Waldheim aðalrit-
ara, en sem kunnugt er
styðja Líbanir starfsemi
Palestínu-skæruliða með
því að leyfa þeim að leika
lausum hala innan landa-
mæra Líbanon og hafa
þar herbækistöð.
ísraelsmenn hafa hvað
eftir annað krafizt þess að
skæruliðar yrðu burtrekn-
ir frá Líbanon — og hafa
jafnvel hótað loftárás á
Beirut, þar sem skærulið-
ar eru áberandi. Nú eru
Líbanonsmenn logandi
hræddir við loftárás. is-
raelsmenn segjast hins
vegar vera logandi
hræddir við annan atburð,
hliðstæðan slátruninni í
Tel Aviv.
Um allan heim hafa
menn fordæmt framferði
skæruliða og lýst undrun
yfir því að Japanirnir
þrír, sjálfsmorðingjarnir,
skyldu fásttil þessa verks.
Japanskir fjölmiðlar
fárast mjög yfir þeirri
hneisu sem sjálfs-
morðingjarnir þrír hafi
gert landi sínu og þjóð.
Mennimir þrír tilheyrðu
pólitískum öfgasamtök-
um sem höfðu að
einkennisorðum, setningu
úr hugsunum Maós, þar
sem segir eitthvað á þá
leið, að pólitískt vald
komi út um byssuhlaup.
Sjö skotnar niður
— og en er barizt í Kontum
Norður-Vietnamskar skyttur
hafa siðustu daga skotið niður sjö
ameriskar sprengjuflugvélar, að
þvi er útvarpið i Hanoi segir.
Þrjár sprengjuþotanna voru
skotnar niður i miðri sprengjuá-
rás yfir Norður-Vietnam.
I Saigon segja menn að hin-
ar heiftarlegu loftárásir
bandariska flughersins á leiðir og
herdeildir Norður-Vietnama hafi
nokkuð bjargað stöðunni við An
Loc, og ekki eru menn á þvi að
Saigon sé lengur i minnstu hættu.
Suður-Vietnamskir skriðdrekar
sem þátt tóku i skotárás
norð-vestur af Hué, voru i gær illa
leiknir af langdrægum fall-
byssum, sem norðanmenn höfðu
komið upp við Quang Tri.
Fréttastofan UPI sagði i gær-
kvöldi, að i þrem hlutum bæjarins
Kontum væri barizt hús úr húsi og
að varnarsveitir sunnanmanna
hefðu siður en svo hrundið
norðanmönnum af sér.
Rétt fyrir
sprengingarnar
í Theheran
Nixon er kominn heim.l
Þessi mynd sýnir hann aka<
um borgir Teheran meðf
Persakeisara — skömmu slö-i
ar glumdu þrir sprengjuhvell-4
ir i eyrum forsetans.en enginf
sprengja sprakk nálægt hon-£
um.