Vísir


Vísir - 02.06.1972, Qupperneq 20

Vísir - 02.06.1972, Qupperneq 20
„FORKASTANLEG VINNU- BRÖGÐ RÁÐHERRANS,, - segir málgagn Hannibals um bankanefnd Lúðvís vísm Köstudagur 2. júni 1972. Bjart veður um helgina Veðurguftirnir verða okkur lik- lega hliðhollir i dag. Hér i Kcykjayik og nágrenni er vindur farinn að snúast norðaustur, og i dag má gera ráð fyrir björtu veðri og sólskini. Alls staðar á landinu er nú austan átt og rigning nema hér á vesturhorninu, og þess má geta, að á norður- og austurlandi er leiðinlegt dumbungsveður. Hér i höfuðborginni og á svæðinu allt i kring verður veður einnig gott og bjart um helgina, og hið heppilegasta feröaveður segja þeir á Veðurstofunni. Alla vega til þess að skreppa eitthvað rétt út fyrir höfuðborgina. ()g þrátt fyrir það að i morgun hefur verið hálfgert mistur, mun létta lil er liður á daginn. -EA „Einnig er ljóst að þessi ráðherra þykist fylgja nýjum vinnu- brögðum í orði, en er of gamall pólitikus i hett- unni til að geta sýnt það i verki”. Ofangreind tilvitnun er úr grein sem birtist i Nýju landi, málgagni Hannibals, í gær. Þar er ráðizt að Lúðvik Jósepssyni fyrir nefnd þá sem hann skipaði til að endurskoða bankakerfið. Segir i fyrirsögn að hér sé að- eins um sýndarmennsku að ræða og i greininni er talað um forkastanleg vinnubrögð ráð- herrans. 1 nefndinni eiga sæti 4 bankastjórar, einn bankafull- trúi og einn forstjóri. Orðrétt segir Nýtt land: „Þessi nefndarskipan sýnir að kerfið blifur. 1 stað þess að fá glögga menn utan bankakerfis- ins til að taka þessi mál fyrir á hlutlægan hátt, er raðað i nefnd- ina nær eingöngu bankastjór- um, sem hafa komizt i banka- stjórastöður ekki sizt vegna þess að þeir játa ákveðna póli- tiska trú og eru tryggingamenn ákveðinna flokka. Og formaður nefndarinnar er sjálfur seðla- bankastjórinn. Þess má geta að sérlegur fulltrúi ráðherrans i nefndinni er augljóslega Guð- mundur Hjartarson, sem sællar minningar tryggði pabbadreng bankastjórastöðu i Búnaðar- bankanum.” Visi tókst ekki að ná tali af Hannibal Valdimarssyni i morgun til að grennslast fyrir um hvort þessi grein túlki skoðanir hans. Hins vegar mun flestum ljóst að andi Bjarna Guðnasonar svifur þarna yfir vötnum. —SG 12 laxar úr Norðuró í gœr Veiðimemi viðNorðurá vippuðu 12 liixum ú land i gær, fyrsta ilaginn, sem leyft var að veiða i ánni. Kyrri liluta dags fengust K laxar og voru þeir frá X og uppi 12 pund. Niu stengur voru i ánni og liæði notuð fluga og maðkur. Um kviildið fengust siðan 4 laxar og var sá stærsti 14 pund. Veiðimennirnir voru sæmilega ánægðir með þennan fyrsta dag og töldu að útkoman væri álika og þegar veiði hófst i fyrra. I Miðfjarðará hófst einnig veiði i gær og er það um viku fyrr en venjulega. Þar voru 4 stengur i gangi og töldu veiðimenn að lax væri kominn i ána.en hins vegar gekk þeim illa að fá hann til að bita á. Þar fékkst aðeins einn sjö punda lax i gær. -SG Menningar- vitinn risinn Svartur, rauður og gulur, hár og tigulegur, gnæfir Menningar- vitinn svokallaði nú á svæðinu fyrir utan l.augardalshöllina. Ljósmyndarinn okkar kom þar að i gærdag, er verið var aö koma honum fyrir. en Menningarvitinn mun standa óhreyfður yfir alla Listahátiðina, en er henni lýkur verður hann aðeins brenndur á staðnum. Listahátiðin hefst eins og flestir munu nú vita á sunnudaginn og verður opnuð með pomp og pragt i Háskólabiói. Menningarvitann hefur gert Kjartan Guðjónsson. Teikning- una af honum gerði hann fljótt eftir áramót, en ekki var byrjað að reisa hann fyrr en i fyrradag. - -EA 3ja daga þjóðhátíð á Þingvöllum #74 - undirbúningur undir afmœlishátiðina i fullum gangi Undirbúningur undir at- mælishátíðina 1974 er i fullum gangi út um allt land, og hefur verið ákveðið að halda 3ja daga útihátíð á Þingvöllum um manaðamótin |uli-agust at mælissumarið, þar sem skemmtikraftar frá öllu landínu koma saman. Indriði G. Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri hinnar þingskipuðu þjóðhátiðarnefndar sagði blaðinu að um þessar mundir væri verið að skipuleggja i nefndir úti um allt land, en i hverju héraði og kaupstað verður nefnd, sem sér um hátiðarhöldin á hverjum stað. Siðan verður valið úr þvi og beztu skemmtíatriðin flutt á útihátið- inni á Þíngvöllum. ,,Við vonumst til að um 100 þús manns komi til Þingvalla þessa þrjá daga”, sagði Indriði. „Reynt verður að hafa hátiðina bæði úti og inni. Þegar er hafinn gifurl. viðbúnaður til að bæta ýmsar að- stæður á Þingvöllum, t.d. hrein- lætisaðstæður. Við erum nú að reyna að fá tjöld, sem bæði verða notuð sem veitingatjöld, og til að hýsa skemmtiatriðin. Tjöldin fáum við að utan og taka þau yfir 1000 manns hvert. Þá verður geysimikil iþróttahátiö á Þing- völlum i sambandi við afmælis- hátiðina.” sagði Indriði. ÞS mannanna taka upp lykil að skrif- stofudyrum þarna i húsinu, þar sem hann var nýbúinn að brjóta rúðu, tók hann á rás fram gang- inn áleiðis til stigans. En tvimenningarnir brugðu snöggt við og vörnuðu honum undankomu. Þá fór að færast al- vara i spiliö, þvi að þjófurinn tók upp hnif, sem hann hafði hnuplað úr eldhúskompu i húsinu, og mundaði hann hinn vigreifasti. En hinir voru engir veifiskatar heldur, og listamaöurinn, Jón Gunnar Arnason, komst á hlið við hnifamanninn, meöan félagi hans, Þorsteinn Hjálmarson, ógnaði honum. Tókst þeim I sam- einingu að afvopna pilt og halda honum, þrátt fyrir stympingar hans. Þegar maðurinn róaöist voru þeir ekki höndum seinni að kveða tillögregluna, sem kom von bráð- ar og hirti pilt. —GP Siglingaklúbbur Æskulýðsráðs, Siglunes , er nú byrjaöur á sumar- starfinu, þriðja árið i röð. Ætlunin er aö liafa aðstöðu fyrir strákana þrisvar í viku i sumar aö sigla á bátunum.sem þeir hafa sjálfir smiðað, frá bryggjunni við Nauthólsvik. Þarna eru ýmsar gerðir af bátum, en þó eru sjóskátarnir svökölluðu algengastir. Þeir voru ekki almennilega farnir að taka viö sér i gær ungu sæfarendurnir, enda var þetta fyrsti dagurinn i suraar sem klúbburinn starfar. -GF (,istamaöur á kafi i samræðum við félaga sinn á leiðinni heim til þeirra, kom að innbrotsþjófi i stigaganginum i húsi þeirra við Klapparstig i nótt. Að visu vissu þeir ekki, aö þarna var þjófur á ferð, en spurðu hann þó, hverra erinda hann væri að þvælast þarna. Maðurinn sagðist hafa verið þarna i partii i húsinu og vera að fara, enda komið fram yfir mið- nætti. En þegar hann sá annan Innbrotsþjófurmn brá hnífi, þegar að honum var komið

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.