Vísir - 03.07.1972, Síða 1

Vísir - 03.07.1972, Síða 1
STÓRSKEMMDUR EFTIR AÐEINS 1500 KM. NOTKUN Splunkuný Peugeot-bifreið — aðeins ekin 1500 km. — fannst stórskemmd sunnan vegarins skammt vestan við Lækjarbotna eldsnemma á laugardagsmorg- un. — Þar hafði hún lent út af veg- inum og hafnað á skúr. ökumaðurinn fannst hvergi, þegar að var gáð, en hinsvegar spurðist til bióðugs manns, sem sést hafði á ferli i nágrenninu. Þegar hafðist uppi á eigandan-' um suður á Keflavikurflugvelli, vissi hann ekki betur en billinn væri i höndum sonar hans austur á Hellu á hestamannamótinu. Vaknaði þá grunur um, að bilnum hefði verið stolið. En siðar kom i ljós, að svo hafði ekki verið. Sonurinn, sem ásamt kunningja sinum hafði fengið bll- inn hjá föður sfnum, hafði þurft áð sækja eldri bróður sinn i bæ inn, en sendi i sinn stað kunningj- ann á bilnum. Sá hafði orðið fyrir óhappinu. Hann hafði lent i lausamöl og misst vald á bilnum með ofan- greindum afleiðingum. Sjálfur hafði hann sloppið við önnur meiðsli en blóðnasir. Honum hraus að vonum hugur við að þurfa að tilkynna bfl- eigandanum hvernig komið var fyrir nýja bilnum hans, og greip heldur til þess ráðs, að fara aftur austur að Hellu og segja syninum þessar sinar farir ekki sléttar. —GP. Freysteinh til New York ,,fcg er hingað kominn sem vinur Bobbys og hitti hann sem slikur — það er allt sem ég get sagt”, sagði Freysteinn Þorbergsson, er hann kom til New York, og ameriskir fréttamenn flykktust að honum. Sagði Freysteinn fréttamönnum að hann ætlaði að vera tvo eða þrjá daga i New'York, og að hann ætlaði einnig að reyna að fá Bobby Fischer til að koma til íslands áður en frestur sá er honum hcfur verið gefinn, rennur út. Sjá baksiðu. Freysteinn Grettisfang heldur frá Loftleiðahóteli að einkaflugvél, sem flutti hann til Keflavikur þar sem hann sté um borð i Loftleiðaflug- vél vestur. Fischer stífur ú fjór- og öryggiskröfunum' „Kem aðeins ef verður að kröfunum gengið Bobby Fischer hefur sagt að hann ætli ekki til Reykjavíkur að tefla við Spasski. Sagði Fischer þetta í viðtali/ sem birtist f blaðinu New York Daily News í morgun# mánudag. Hringdi Fischer i blaðið frá dvalarstað þeim er hann leynist nú á i New York, og lýsti þvi yfir, að það væri ekkert annað en pen- ingakröfur hans, sem héldu aftur af honum að fara til tslands. Fischer krefst 30% af allri að- göngumiðasölu til viðbótar við 125.000 dollarana, sem samið hafði verið um áöur. Þá mun Fischer eins og Spasski fá greidd- an hlut af þeim hagnaði er hefði orðið af sölu og dreifingu kvik- mynda og sjónvarpsmynda frá skákeinviginu. Ntb fréttastofan hafði i morgun eftir Fischer, að það væri hvorki þreyta né sjúkdómar sem héldu aftur af skákmeistaranum, held- ur aðeins fjárkröfurnar. Guö- mundur Þórarinsson, forseti Skáksambands Islands hefur að sögn visað öllum viðbótarkröfum Fischers á bug. ,,Ég get þvi miður ekkert sagt um þessa yfirlýsingu Fischers”, sagði Guömundur Þórarinsson, er Visir ræddi við hann i morgun, ,,Ég held að linurnar i málinu skýrist ekkert fyrr en á morgun, þegar frestur sá er Fischer var veittur til að koma hingað, er út- runninn”. Vildi Guðmundur ekki greina neitt nánar frá kröfum Fischers á þessu stigi málsins — hins vegar stóðu yfir viðræður við fulltrúa Fischers hér i allt gærkvöld, og „vissir hlutir eru ekki endanlega útræddir”, sagði blaðafulltrúi Skáksambandsins, Freysteinn Jóhannsson. Guömundur Þórarinsson sagði Visi ennfremur, að hann væri i stöðugu simasambandf við New York, en þar munu vissir áhrifa- aðilar nú vera að reyna að fá Fischer til að skipta um skoðun og koma hingað. Freysteinn grettisfang Þor- bergsson hélt utan til New York i gærkvöldi, sendur af Fischers- mönnum sem hér á landi eru staddir, og mun hann ætla að reyna að hafa einhver áhrif á Fischer. Einnig hélt þá utan Davies, lögfræðingur Fischers, sem hér hefur veriö undanfarið. Skáksamband tslands mun ekki hafa neitt samband við þessa menn meöan þeir eru ytra.— GG Skál fyrir Spasski. — Geir Hallgrímsson, borgarstjóri og Magnús Torfi ólafsson menntamalaráðherra bjóða heimsmeistarann velkominn I setningarathöfninni i gærkvöldi. Ómar snýr frá Framsókn yfir til Sjálfstœðismanna Hvað gera sjónvarpsmenn i sumarleyfum sinum? Við ræddum við Ómar Ragnars- son, þann fræga fréttamann og grfnista. Hann kvaðst hafa ferðalög í huga, — en hann hefur hætt við að ferð- ast meö Framsóknarmönn- um, en snúizt á sveif með Sjálfstæðismönnum. — Sjá bls. 21 Ekki beint í bláskógaklassa Hann Baldvin, íþrótta- kappinn sem við greinum frá á NÚ-siðunni I dag, hefði örugglega ekki náð að kom- ast til verðlauna i Bláskóga- skokkinu og hefði ekki getað lokið þvi hlaupi á 3 timum eins og allir gerðu i gær. Hann komst þó á efsta þrep verðlaunapalls fyrir að skriða 150 sentimetra á 13 min. og 53 sek. — Sjá bls. 17 Nú er öldin önnur gagnvart Kúbu Sú var tiðin, að Banda- rikjastjórn beitti sér bein- linis fyrir tilraun til að steypa Fidel Castro á Kúbu. Það var hin fræga innrás ,,i Sviaflóa” i stjórnartið Kennedys. Nú er öldin önnur, og i gær voru menn hand- teknir i Bandarikjunum, sem ætluöu að standa fyrir upp- reisn á Kúbu. Sjá bls. 5 Nýir leikhússtjórar, nýjar hugmyndir? Að afloknu heldur dauf- gerðu og dapurlegu leikári fara tiðindi i hönd i leikhús- unum í Reykjavík: stjórnar- skipti á báðum stöðum með nýju starfsári i haust. Skyldi ekki einnig mega vænta þess að sliku nýmæli fylgi einhver tilbreytni kannski tilþrif i starfi leikhúsanna? — spyr Ólafur Jónsson á menning- arsiðum i dag. — Sjá bls. 7. „Við erum ein œtthvisl" „Við erum ein ættkvisl” er kjörorð heimsmeistaraein- vigisins. Eftir síðustu daga gæti manni dottið ýmis kjör- orð i hug, sem betur ætti við þetta einvígi. — Sjá frásögn af setningu einvigisins á bls. 10 Pörupiltarnir, gamla konan og fuglarnir hennar Gömul kona og fuglarnir, sem hún hefur svo mikla ánægju af að gefa brauð- moia, verða sifellt fyrir ónæði pörupilta. Og gamla konan gat sýnt blaðamanni dúfu sem búið var að reyra sanian fæturna á. — Sjá bls. 15 „Engin ikflk" — segir dr. Euwe. DR. Euwe, forseti FIDE, segir, að „per- sónulega búizt hann ekki við, að neitt ein- vígi fari fram." Þó kveðst hann hafa von. —HH. Allir i nsark með bros á vör - frásögn og myndir frá Bláskógaskokkinu. — Sjá bls. 21

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.