Vísir - 03.07.1972, Síða 6

Vísir - 03.07.1972, Síða 6
6 vism Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: Fréttastjóri: Ritstjórnarfulltrúi: Auglýsingastjóri: Auglýsingar: Afgreiösla: Ritstjórn: Reykjaprent hf. Sveinn R. Eyjólfsson Jónas Kristjánsson Jón Birgir Pétursson Valdimar H. Jóhannesson Skúli G. Jóhannesson Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 Hverfisgötu 32. Simi 86611 Siöumúla 14. Simi 86611 (5 linur) Áskriftargjald kr. 225 á mánuöi innanlands i lausasölu kr. 15.00 eintakiö. Blaöaprent hf. Hitnar í kalda stríðinu Rikisstjórnin gekk að þvi visu fyrir ári, þegar hún var mynduð, að samkomulagið innan hennar mundi verða stirt. Til dæmis var strax i upphafi tekið fram af hennar hálfu, að ráðherrarnir væru ekki sam- mála um afstöðuna til varnar- og öryggismála Þessi rikisstjórn hafði slæmt fordæmi frá siðustu vinstri stjórn, sem splundraðist á skömmum tima vegna ósamkomulags og úrræðaleysis. Þess vegna ákváðu ráðherrarnir fyrir ári,að leggja deilumál sin i salt og einbeita sér að þvi að halda rikis- stiórninni saman fram yfir 1. sept. á þessu ári. Á þessari ákvörðun byggist sumt af hinu furðu- lega i fari rikisstjórnarinnar, svo sem hinar marg- vislegu túlkanir ráðherranna á óljósu orðalagi málefnasamnings stjórnarinnar um varnar- málin.Hver ráðherra hefur haft sina túlkun, sumir jafnvel fleiri en eina án þess að rikisstjórnin sem heild gerði nokkra tilraun til að samræma og skýra málið fyrir almenningi. En þetta er ósköp svipað og i hinni svonefndu „friðsamiegu sambúð” stórveldanna að ekki hefur reynzt unnt að breiða kápuna yfir öll miskliðar- efnin. Um þessar mundir gætir vaxandi til- hneigingar hjá hinum striðandi öflum innan stjórnarinnar að útkljá deilumál sin á ritvellinum. Nýtt land, blað Hannibalista, hefur harðlega gagnrýnt stefnuna eða stefnuleysið i efnahags- málunum og einkum beint skey tum sinum að Lúðvik Jósepssyni viðskiptaráðherra. Blaðið kvartar yfir hinum sifelldu verðhækkunum og segir rikis- stjórnina hafa misst tökin á verðbólgunni. Blaðið hefur krafizt sinnaskipta hjá rikisstjórninni. Verðbólgan er aðeins eitt af mörgum ágreinings- efnum Alþýðubandalagsins og Hannibalista. Óvildin milli þessara flokka á sér djúpar rætur og það er raunar merkilegt, að Hannibal Valdimars- son og Magnús Kjartansson skuli geta umgengizt i sömu rikisstjórn. Spennan fer vaxandi og hlýtur að leita út um siðir. Annað eins vandamál er innan Framsóknar- flokksins, hins ósamstæða forustuflokks stjórnarinnar. Háværir vinstrisinnar heimta brottför varnarliðsins en aðrir streitast á móti. Að minnsta kosti tveir þingmenn flokksins hafa ákveðið að styðja áframhaldandi dvöl varnar- liðsins, þrátt fyrir orð málefnasamnings rikis- stjórnarinnar. Fleiri deilumál valda sundurlyndi i flokknum. Margir vinstri menn leggja áherzlu á viðræðurnar ( um vinstra samstarf og samruna flokka, en hægri menn i flokknum eru margir fullir efa- semda.Hannes Jónsson, blaðafulltrúi rikisstjórnar- innar færði nýlega i Timanum rök að slikum efa- semdum. Hann uppskar mikil vanstillingarskrif á unglingasiðu sama blaðs og flutu þar mörg orð óþvegin. Enn var svo birt grein i Timanum, þar sem vanstillingarskrifin voru kölluð „ómengaður fasismi”. í framhaldi af þessu þarf engan að undra, þótt einn forustumanna varnarliðsandstæðinga hafi nú siðast ráðizt i Þjóðviljanum að Magnúsi Torfa menntamálaráðherra, og Einari Ágústssyni utan- rikisráðherra fyrir lögbrot, meira að segja dagleg lögbrot i sambandi við útvarp varnarliðsins. Nixon með liðið eina bœjarleið Sumir bandarisku hermennirnir, sem fara frá Suður-Vietnam, fara ekki langt. Þeir bregða sér eina bæjarleið, yfir til Thailands. Þar ætlar Nixon sér hugsanlega að mynda nýja varnarlinu. Þaðan ætti að tryggja, að friðarsamningar yrðu haldnir i Vietnam, ef þeir yrðu gerðir. Þar yrði virki Bandarikja- manna i Suðaust.-Asiu. Þetta munu Thailend- ingar vist halda, og valdamenn kætast. Nærvera Bandarikja- manna styrkir þá i bar- áttunni við skæruliða kommúnista innanlands og verndar þá fyrir árás Norður-Vietnama, sem eru til alls visir. Nærvera Bandarik jamanna j veitir valdhöfum i Thailandi ekki aöeins vernd, heldur fé. Vændiskonurnar [snúa aftur. Fréttamaöur Newsweek segir, að i Takhlibæ, þar sem banda- riskir flughermenn eru aftur komnir eftir tveggja ára fjar- veru, blömgist skemmtanaiffiö að nýju. Vændiskonur hafa snúiö aft ur til bæjarins eftir fjarveru. Lögreglustjörar og herforingjar eiga, segir Newsweek, vændis- húsin i nágrenni flugvaUarins. 1 Bylting i tengslum við Washington? baö gerðist i vetur, aö lýðræöis- myndin var máð af i Thailandi. / Kittikachorn forsætisráöherra 'gerði byltingu og var áfram for- sætisráðherra. Aöferðin minnti á tið Dulles sem utanrikisráðherra Bandarikjanna. beirri spurningu mætti varpa fram, hvort bylting forsætisráöherrans væri ekki i beinum tengslum við áætlanir Nixons um að gera Thailand að virki sinu. begar vietnamiseringin hans Nixons byrjaði fyrir tveimur ár- um, var farið að fækka i liði Bandarikjamanna i Thailandi. Stöðvar voru lagðar niður, her- menn fóru heim til sin. Innrás Noröur-Vietnama i Suður-Viet- nam i vor hefur breytt þróuninni, og undanfarnar sex vikur hefur ..Velkomnir til Thailands. Sjáið þið til, ég var búinn að lofa ykkur að vera búinn að koina ykkur út úr Vletnam fyrir júli." Illlllllllll m iimam fiuglið Bandarikjamanua eflzt geysilega. Bandariskar flugvélar hafa þar stöðvar til árása á Norð- ur-Vietnam. Flugfloti Bandarikjamanna i Thailandi er talinn hafa vaxið úr 450 i 750 flugvélar og hermönnum fjölgaö úr 32 þúsundum i 49 þús- und, sem er jafn mikill fjöldi og var þar, þegar striðið i Vietnam var i hámarki. Kominúnistar undirbúa fleiri „þjóðfrelsisstrið” Skæruliðar kommúnista eru athafnasamir i Thailandi. Athafnasemi þeirra hefur styrkt kenningar um, að falli Suður- Vietnam i hendur kommúnistum, muni þeir innan skamms hefja að gagni þjóöfrelsisstrið i nálægum löndum. Brodd- ur „þjóðfrelsishreyfingar” fyrirfinnst i Burma og Malasiu. Valdhöfum i Thailandi var Nixon- SÍAMSFLÓI Kortið sýnir afstöðu rikjanna í Suðaustur-Asfu, sem fjallað er um I greininni. kenningin um Asiu áhyggjuefni. í Nixon-kenningunni mátti finna einhverjar yfirlýsingar um brott- för Bandarikjamanna frá Suö- austur-Asiu, Glöddust við tundurduflin. Valdamenn i Thailandi giödd- ust við innrásir Suður-Vietnama i Kambödiu og siðar Laos. beir hafa glaözt meira, þegar Núdm svaraði innrás Norður-Vieíaanj I S-Vietnam meö þvi að kasta traad- urduflum i mynni hafna i Nortar- Vietnam og hefja aftur loftárásir af öllu afli. Endurkoma banda- riskra hermanna er þeim frekari trygging fyrir þvi, að þaö verði ekki á næstunni, að völdum þeirra verði hnekkt. Bandariska þjóðin fyrirlitur einræðisherra. Skripaleikur Thieu forseta Suður-Vietnam i svokölluðum forsetakosningum i fyrra var einhver sá versti hnekkir, sem gera mátti stefnu Nixon i Vietnam. Bandariska- þjóðin mun vafalaust siðar for- dæma einræðisherrann i Thailandi, Kittikachorn, en sem stendur veit hún ekki, að hann er til. Árið 1962 komu hersveitir Bandarikjamanna til Thailands af ótta við, að kommúnistar frá Laos gerðu þar usla. Thanom Kittikachorn marskálkur varð eftirmaður einræðisherrans Sarit Thanarat árið eftir, er Sarit lézt. Kittikachorn lét samþykkja nýja stjórnarskrá og halda þingkosn- inganárið 1969, þar sem flokkur, senr herforingjarnir i valdastól- unum stofnuðu, fékk meirihluta á þingi. Kittikachorn hefur vafa- laust þótzt læra af basli herfor- ingja i Suður-Vietnam með stjórnarandstöðu. Völd hans voru ekki i hættu, en hann óttaðist kurr i liði sinu. bvi þótti honum betra að vera ekki með neitt lýðræðis- yfirvarp lengur. Fáir andmæltu einræði hans. Kænskulegt undanhald. Thailand er þvi i sömu súpunni og Suður-Vietnam, Kambódia og Laos. Valiö er milli einræðis til hægri og einræöis til vinstri. Og Nixon hefur hopað um hæl eins og gerist i orustum, úr Suöur- Vietnam yfir til Thailands, þar sem hann þó hefur auga með Vietnam og Laos og Kambódiuog biður færis að hindra missi þeirra, ef kjósendur heima fyrir gera honum það fært.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.