Vísir - 03.07.1972, Page 8
8
VtSIR Mánudagur 3. júli 1972
Til leigu er KÖRFUBÍLL
i sérflokki, lyftihæö 21.
metrar, ásamt áfestri
loftpressu og loftverkfær-
um, tii húsaviðgeröar og
rúöuísetningar.
Uppl. í sima 30265 og
36199.
KÓPAVOGSAPÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7
nema laugard. til kl 2
og sunnudaga kl. 1-3.
Endurnýjun
Dregið verður
miðvikudaginn 5. júlí
Shelltox
FLUGIMA
FÆLAIM
Hafið þér ónæði
af flugum?
Við kunnum ráð
við því
Á afgreiðslustöðum
okkar seljum við
SHELL flugnafæluspjaldið.
Spjaldið er sett upp og
engar flugur í því herbergi
næstu 3 mánuðina.
Spjaldið er lyktarlaust,
og fæst í tveim stærðum.
Olíufélagið Skeljungur hf
Shell
Umsjón:
Edda Andrésdóttir
Framleiðendur segja
„gamla túbu"
rannsakaða
Blý í Crest
tannkremi
rlNNi
| SIÐAIM i
Sápur, snyrtivörur, rakspíri
og yfirleitt allt þaö sem fólk nú
tii dags telur sig þarfnast til al-
mcnnrar snyrtingar viröist allt
hafa citthvert hættulegt efni að
geyma. Stöðugt koma fram nýj-
ar niðurstöður rannsókna sem
sýna að þessa vöru beri ekki að
nota sökum þessa og þessa efn-
is, sem hún hefur að gcyma.
Ein af þessum rannsóknum
sýnir að tannkrem sem heitir
Crest, og fæst i nokkrum verzl-
unum hérlendis, hefur að
geyma eitt af þessum hættulegu
efnum, en það efni er blý.
Sérfræöingar i Bandarikjun-
um rannsökuðu 18 tegundir
tannkrems, og i þrem tegundum
af þeim fannst eitthvert magn
af blýi, eða i Crest, Fresh
Breath og Worthmore.
Fyrirtækið sem framleiðir
Crest heitir Procter and
Gamble Co, en tannkremið er
þaö mest selda i Amerfku.
Blýið sem fannst segja sér-
fræðingar vera að mestu i túb-
unni og svo i tannkreminu
sjálfu. Magn blýsins i tann-
kremunum er allt að 0,125 milli-
grömm i einu grammi en þegar
fólk burstar i sér tennurnar þarf
það yfirleitt tvö grömm af
kreminu. Ef tennurnar eru þá
burstaðar þrisvar sinnum á
dag, er magn blýsins orðið 0.3 -
0.75 milligrömm.
35 ára rannsóknir við háskól-
ann i Cincinnati sýna að i dag-
legri fæðu follorðinna manna
eru á.a.g. 0.3 milligrömm af
blýi.
Tannkremið er sérstaklega
hættulegt börnum, og túburnar
einnig, þar sem þau vilja oft
stinga túbunum upp i sig eða
naga þær. Þess má svo geta að
blýeitrun veldur heilaskemmd-
um, hegðunarvandamálum og
andlegum sjúkdómum.
Túbur Crest tannkremsins
eru húðaðar með plasti, en við
rannsóknirnar kom i ljós að
þetta plast sem átti að hindra
allt blý hefur að geyma töluvert
magn af blýi sjálft.
Sérfræðingarnir segja einnig
að þeir hafi fundið 5 prósent af
hættulegu blýmagni i túbum
fimm tegunda tannkrems:
Crest, Fresh, MacLean’s, Craig
Martin og Worthmore. En að-
eins Crest Worthmore og Fresh
Breath hafa einnig aö geyma
blýmagn i dósunum, sem þau
eru lika framleidd i.
En hvað segja framleiðendur
Crest? Jú, þeir segja að á þeim
26 árum sem tannkremið hefur
verið framleitt hafi aldrei kom-
ið upp nokkurt vandamal út af
blýi i umbúðum eða kreminu
sjálfu. Þeir segja að á siðasta
ári hafi þeir hafið framleiðslu á
nýjum tannkremsumbúðum,
sem inniheldur alls ekki blý, og
þvi hafi séj-fræðingarnir aðeins
verið að rannsaka einhverja
gamla túbu! _ ea
«í(ow mmmt,!
w«on,r.
Wmsf 8rasifj,„ ^
fframsí Ho
*** TkwteMæ;
*"* 9«.» .j* j .
fy«
m 1960
^oriösrWr
Frá tannverndunarsýningunni í Arnagaröi. Skyldi eitthvert af þessum
tannkremum verða það næsta sem hefur að innihalda eitthvert af
hættulegum efnum?