Vísir - 03.07.1972, Side 21

Vísir - 03.07.1972, Side 21
VÍSIR Mánudagur 3. júli 1972 21 Bláskóga' skokkið í MARK MED BROS 5 Wm - Hjjj •x F - „>%•* . Heilu fjölskyldurnar tóku þátt i hlaupinu, þó aö fjölskyldan hafi kannski ekki hlaupiö alla leiö. Hérna hlaupa nokkrir krakkar með fööur sinum siöasta spöiinn. Leitin að flugvélinni ber engon árangur Leitin af dönsku tveggja hreyfla flugvelinni hefur engan árangur boriö, en leitað hefur verið á öllu svæðinu, þar sem hugsanlegt er aö véiin hafi farið niður. Veður hefur verið afleitt og veröur haldið áfram aö leita, strax og veður batnar. i vélinni var Sveinn Pétursson, tannlæknir kona hans Kirsten og tveir synir, 8 og 5 ára. Sveinn er af islenzkum ættum, dóttursonur Sveins heitins Björnssonar, fyrrv. forseta og bróðursonur Erlendar Paturs- sonar, þingmanns i Færeyjum. Einn sonur hjónanna, sem er á öðru ári varð eftir i Danmörku. Blaðið hafði samband viö Arnór Hjálmarsson, yfirflugumferðar- stjóra i morgun og sagði hann að slysavarnasveitir á Hornafirði, Breiðdal, Eskifirði, Reyöarfirði og á fleiri stöðum, hefðu leitaö á landi i mjög slæmu veöri á að- faranótt föstudags, en leitin hefði engan árangur borið. Leitað hefur verið úr lofti á svæðinu frá Færeyjum til tslands um kl. 11 á fimmtudag, en á bæjunum Höskuldstaðaseli og Heydal i Breiðdal telur fólk sig hafa heyrt i flugvél um hádegisbilið á fimmtudag. Ekki ber þó bæjunum saman um timasetningu velar- hljóðsins, enda sagði Arnór að á þessum tima hefðu nokkrar vélar veriðá ferðinni á þessum slóðum, og þvi hæpið að treysta á að hér heföi veriö um þessa vél að ræða. Strax og veður batnar verður reynt að leita á landi, þar sem hæpið er að nokkur sé enn á lifi, hafi vélin lent i sjónum. þs Q □AG | D KVÖLD | □ □AG | Flýg og fíflast r — segir Omar Ragnarsson — Það er óhætt að orða það þannig að ég muni ferðast og fiflast i sumarfrii minu frá sjón- varpinu, svaraði Ómar Ragnarsson spurningu Visis. — Ég kem til með að ferðast tals- vert um landið i friinu. Siðasta sumar ferðaðist ég með Fram- sóknarflokknum um landið, en núna hef ég snúizt á sveif með sjálfstæðismönnum, sem ætla að endurvekja sin héraðsmót, sem iágu niðri tvö siðustu sumur. Það fara einir þrir dagar i viku hverri i að skemmta hjá þeim, en svo hef ég lika tekið að mér að skemmta viöar. Meira að segja var ég beðinn að skemmta i Sviþjóð, en það hefði raunar orðið i ágúst, og þá er sjónvarpið byrjað á nýjan leik. Ég var búinn að lofa mér annað, svo að ég get heldur ekki farið þá utanlandsferð. Og svo var það flugið. Ómar hefur atvinnumannsréttindi. — Ætli ég taki ekki að mér einstaka skottúra út á land á flugvélinni minni. Upplagður timi til að bæta nokkrum flugtimum á sig, sagði Ómar að lokum. -ÞJM. Guðjón Einarsson, fréttamaður. Já, ég er eiginlega ekkert farinn að ákveða það ennþá, ætli ég fari ekki eitthvað út á land, i ökutúr eða annað. En út fyrir lands- steinana fer ég ekki að sinni. Gott að vera kominn i fri? Jú-ú. Magnús Bjarnfreðsson, dagskrármaður. Það er ósköp litið sem ég ætla mér að gera i friinu, aðeins að slappa vel af heima hjá mér, en svo förum við örn Harðarson i myndatökur i lok mánaðarins. og svo verður kannski farið í lax- veiðar. Jú, jú, það er gott að vera kominn i fri. Andrés Indriðason, dagskrármaður: Já, ég verð að vinna fyrstu vikuna til að undirbúa starfssemina eftir friið, en siðan hef ég hugsað mér að skreppa á Laugarvatn og vera þar i viku. Nú, eftir það hef ég ekki ákveðið neitt sérstakt, nema bara smáferðir i nágrenni Reykjavikur. Mánudagur 3. júlí 15.00 Fréttir. Tilkynningar. 15.15 Miðdegistónleikar: Sin- fóniuhljómsveit Lundúna leik- ur ,,Enigma”-tilbrigðin op. 36 eftir Elgar: Pierre Monteux stjórnar. Trió di Bolzano leikur Trió i g-moll op. 15 eftir Sme- tana. 16.15 Veðurfregnir. Létt iög. 17.00 Fréttir. Tónleikar. 17.30 Saga frá Lapplandi: „Lajla” eftir A. J. Friis. Kristin Sveinbjörnsdóttir les (7). 18.00 Fréttir á ensku 18.10 Létt lög. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 DaglegtmálPáll Bjarnason menntaskólakennari flytur þáttinn. 19.35 Um daginn og veginn. Þor- steinn Pálsson stud. jur. talar. 19.55 Mánudagsiögin. 20.30 Kirkjan að starfi. Séra Lárus Halldórsson sér um þátt- inn. 21.00 Pianósónata i G-dúr op. 37 eftir Tsjaikovský. Svjatoslav Rikhter leikur. 21.30 Útvarpssagan: „Hamingjudagar” eftir Björn J. Blöndal. Höfundur les (4). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Búnaðarþátt- ur: úr heimahögum. Gisli Kristjánsson ritstjóri talar við Berg Torfason á Felli um bú- skap i Dýrafirði. 22.40 Hljómpiötusafnið. i umsjá Gunnars Guðmundssonar. 23.35 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. Á VÖR! „Þetta fór alveg stórkostlega fram, og allir þátttakendur komust i mark fyrir tilsettan tiina, með bros á vör!” segja þeir sem aðallega stóðu fyrir Bláskógahlaupinu svokallaða, i gærdag. 300 manns tóku þátt i hlaupinu, sem fram for i bezta veöri, þótt aöeins færi að vökva er leið á daginn. Yngsti þátttakandinn var átta ára gamall, Guðjón Ragnarsson, en aldursforsetinn var 74 ára Páll Hallbjörnsson, og stóðu þeir sig báðir mjög vel. Bezta afrekiö vann Jón H. Sigurðsson Biskupstungum i aldursflokknum 19-34 ára, en hann hljóp á 55,53, og hlaut að launum tvo gerðarlega bikara og gullpening. Annar i mark varð Halldór Matthiasson frá Akur- eyri, sem hljóp á 58.28 en báðir eru miklir hlauparar. Eins og áður hefur verið sagt frá hér i blaðinu, var keppt i fjórum aldursflokkum, 14-15 ára, 16-18 ára, 19-34 ára og 34 ara og eldri. 1 yngsta flokknum sigraði Agúst Þór Gunnarsson á 1. klst. 02,05, en i flokki barna yngri en 14 ára voru með bezta timann systkinin Magnús og Anna Haraldsbörn, á 1.14.23 og 1.23.22, en Anna var allra fyrst i mark af 'öllum konunum sem kepptu. „Börnin stóðu sig sérstaklega vel, og það voru þau sem teymdu fullorðna fólkið áfram, en heilu fjölskyldurnar tóku þátt i hlaupinu”, segja forráðamenn. Þeir el/.tu stóðu sig með sóma, og hann skokkar þetta auðveldlega i iþróttabúningnum. Margir hlupu alla leiðina , en þó nokkrir gengu, og þurfti þá aö ganga nokkuð hratt. Nokkur þreyta var farin að gera vart viö sig meðal keppenda er að marki dró, en allir komust og þaö langt fyrir tilsettan tima. A áfangastaö var siöan öllum komið i bað, og verölaunaafhending fór fram klukkan sjö. —EA * m ír<r ítii úú ú ú -ifA-A-írA ú irCrii -0 úit íi ☆*** trCrirCririrti{i {t ít <t <t ít <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t -6 <t <t <t ■S <t <t <t ■S <t <t <t <t <t -3 <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <i <! <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t * *• V*É Spáin gildir fyrir þriðjudaginn 4. júií. Hrúturinn, 21.marz-20.april. Allgóður dagur, ef þú aöeins gætir þess að flana ekki að neinu oe hugsa þig vandlega um áöur en þú tekur ákvarð- anir, sem einhverju máli skipta. Nautiö, 21.april-21.mai. Það litur út fyrir aö þetta geti oröiö aö einhverju leyti erfiður dagur, og ekki ósennilegt að einhverjir þér nákomnir valdi þar mestu um. Tviburarnir,22.mai-21.júni. Það getur oröiö eitt- hvað þungt i vöfum hjá þér i dag, en það lagast er á liður. Gagnstæöa kyniö getur lumað á óvæntum leik áður en lýkur. Krabbinn,22.júni-23.júli. Það er hætt viö aö ein- hver andstaöa veröi til aö draga úr fram- kvæmdakjarki þinum í dag, en þó varla nema i bili framur en vant er Ljónið, 24.júli-23.ágúst. Kunningi þinn, eöa ein- hver þér nákominn, gerir þér að öllum likindum einhvern óleik, sem þú kannt aö eiga erfitt meö aö sætta þig viö i bili. Meyjan, 24,ágúst-23.sept. Þú geröir réttast aö taka duglega til hendinni fyrrihluta dagsins, þvi að þá mun bezt ganga, en slaka siðan á þegar liður á daginn. Vogin,24.sept-23.okt. Ef þú finnur til óeölilegrar þreytu að starfsleiöa, skaltu hvila þig vel og freista aö varpa frá þér öllum áhyggjum — ef til vill i nokkra daga. Drekinn,24.okt-22.nóv. Þú skalt ekki reiöa þig á aðstoð annarra i dag, jafnvel sizt þeirra, sem þú telur þig eiga slikt inni hjá, eða þá þinna nán- ustu, heldur treysta á sjálfan þig. Bogmaðurinn,23.nóv.-21.des. Ekki er óliklegt að þú verðir einhverra hluta vegna ekki I skapi til mikilla átaka i dag. Sinntu skyldustörfum af kostgæfni og láttu það nægja. Steingeitin,22:des.-20.jan. Ekki er óliklegt að þú hafir heppnina með þér i dag, þótt það veröi ef til vill ekki á öllum sviðum. Harla góður dagur, að þvi er virðist. Vatnsberinn 21 jan.-19.febr. Það er ekki ósénnilegt' aö þér bjóöist eitthvað ánægju- legt tækifæri i dag, sem þú ættir þá ekki að láta ónotað ef aðstæöur leyfa. Fiskarnir,20.febr.-20.marz. Þér verður vist ekki til setunnar boðið i dag, allt virðist á ferð og flugi i um þing, og þó fyrst og fremst þú sjálfur — af lifi og sál.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.