Vísir - 14.07.1972, Page 13

Vísir - 14.07.1972, Page 13
Visir. Föstudagur. 14. júli 1972 *** | í DAG | í KVÖLD | í DAG | í KVÖLD | í DAG | Útvarp kl. 14,30: Síðdegissagan: „Eyrarvatns-Anna" eftir Sigurð Helgason Ingólfur Kristjónsson, rithöfundur les Ingólfur Kristjánsson, rithöf- undur hefur undanfarið veriö að lesa siðdegissögu útvarpsins „Eyrarvatns önnu” i nokkurn tima og eru nú komnir 15 lestrar af 26. Varðandi höfundinn Sigurð Helgason sagði Ingólfur, ,,að margir könnuðust við hann sem rithöfund og kennara i gamla daga en þá skrifaði Sigurður tölu- vert af sögum og ljóðum.” ,,Eyrarvatns-Anna er samfelld saga sem kom út i tveim bindum á árunum 1949 og 1957, segir Ingólfur. „Þetta er sveitasaga frá fyrri timum gæti átt við 19. öld- ina, svona að vissu leyti heiðar- býlissaga ofan úr afdalabyggð.” Söguhetjan er Anna, sem býr á Eyrarvatni og þetta eru erfiðir timar. Maður hennar veröur uti þegar hann er að sækja eld til byggða. Hún stendur þá ein eftir með börnin og hungrið sverfur að. Þá verður það, að hún er borin þeim sökum að hafa lagt sér hest til matar og auðvitað þótti það hin mesta hneisa i þá daga. Málaferli verða út af hestinum og í næstu lestrum verðum við margs visari um hvernig öllu lyktar. „Það má segja að „Eyrarvatns-Anna sé nokkurs konar aldarfarslýsing, sagði Ingólfur og i dag kl. 14,30 heldur hann áfram sögunni og er það 16. lestur. Ingólfur Kristjánsson GF Útvorp kl. 20,55: Þrjú œskuverk Beethoven samin fyrir píanó a. Jörg Demus leikur Sónötur nr. 1 í Es-dúr og nr. 2 í f-moll. b. Jörg Demus og Norman Shet leika Sónötur í D-dúr. Ludwig van Beethoven. FÖSTUDAGUR 14. júlí. 13.00 Eftir hádegið Jón B. Gunn- laugsson leikur létt lög og spjallar við hlustendur. 14.30 Siödegissagan: „Eyrar- vatns-Anna” eftir Sigurð Helgason Ingólfur Kristjánsson les (16). 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Lesin dagskrá næstu viku. 15.30 Miðdegistónleikar: Sönglög Teresa Stich Randall syngur konsertariur eftir Mozart. Werner Krenn syngur lög eftir Schubert og Schumann. 16.15 Veðurfregnir. Létt lög. 17.00 Fréttir. Tónleikar. 17 30 Ferðabókarlestur: „Frekj- an" eftir Gisla Jónsson Hrafn Gunnlaugsson les (4). 18.00 Fréttir á ensku 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Fréttaspegill. 19.45 Bókmenntagetraun. 20.00 „Sumarnætur” eftir Berlioz Régine Crespin syngur með Suisse Romande hljómsveit- inni: Ernest Ansermet stj. 20.30 Tækni og visindi— Guðm. Eggertsson prófessor og Fáll Theódórsson eðlisfræöingur sjá um þáttinn. 20.55 Þrjú æskuverk Beethovens samin fyrir pianó a. Jörg Demus leikur Sónötur nr. 1 i Es-dúr og nr. 2 i f-moll. b. Jörg Demus og Norman Shet leika Sónötur i D-dúr. 21.20 Útvarpssagan: „Hamingju- dagar” eftir Björn Blöndal Höfundur les (9). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan: „Sumarást” eftir Francoise Sagan Þórunn Sigurðardóttir leikkona les (10). 22.35 Danslög i 300 ár. Jón Grön- dal kynnir. 23.05 A tólfta timanum Létt lög úr úmsum áttum. 23.55 Fréttir i stuttu máli. Dag- skrárlok. m Nt Hrúturinn, 21. marz-20. april. Farðu gætilega i öllum kaupum i dag og verzlunarviöskiptum yfirleitt, en þó mun öllu áhættuminna að selja ef vel er frá samningum gengið. Nautið,21. april-21. mai. Þér geta boðizt ýmis tækifæri i dag, en hætt er þó við að einhver bögg- ull fygi þar skammrifi, svo vissara er að gæta vel að öllu i þvi sambandi. Tviburarnir, 22. mai-21. júni. Það bendir allt til þess að dagurinn verði prýðilegra til allra fram- kvæmda fallinn, en hins vegar þurfi talsverðrar aðgæzlu við i áætlunum. Krabbinn, 22. júni-23. júli. Þú ættir ekki að tefla á tvær hættur i peningamálunum i dag. Ekki heldur að gera neina samninga, sem snerta peningamál að einhverju leyti. Ljónið,24. júli-23. ágúst. Þetta verður að mörgu leyti harla góður dagur. Vel til þess fallinn að undirbúa framkvæmdir, athuga ýmsa mögu- leika og lita i kring um sig. Meyjan, 24. ágúst-23. sept. Þetta gerður orðið mjög notadrjúgur dagur, en ekki er liklegt að mikill hraði verði á hlutunum. Farðu gætilega i öllu, sem við kemur peningum. Vogin,24. sept.-23. okt. Góöur dagur yfirleitt. Ef til vill þarftu að vera fljótur að átta þig á hlutun- um og taka ákvarðanir, en flanaðu samt ekki að neinu. Drckinn,24. okt.-22. nóv. Það litur út fyrir að þú hafir helzt til margt i takinu eins og er. Eflaust gerðirðu réttast að fækka við þig verkefnum, i bili að minnsta kosti. Bogmaðurinn, 23. nóv.-21. des. Þú ættir að at- huga það i fyllstu alvöru, hvort ekki mundi ráö- legt fyrir þig að endurskipuleggja störf þin i þvi skyni að auka afköstin. Steingcilin, 22. des.-20. jan. Það litur út fyrir að þú þurfir að gæta þin nokkuð i samskiptum við nýjan kunningja, sér i lagi ef um einhvér peningaviðskipti er að ræða. Vatnsberinn, 21. jan.-19. febr. Gætni, eöa að minnsta kosti hófleg dirfska ætti að vera kjörorð 'i dagsins. Þú ættir að koma þér hjá að gera bind- andi samninga, eða taka mikilvægar ákvarðan- ir. Fiskarnir, 20. febr.-20. marz. Þú átt að þvi er virðist i köggi við einhvern keppinaut, sem notar ekki beinlinis opinskáar aðferðir, svo þú ættir að fara gætilega. í: -S -á -» -á -tt -á -á Styrkur til háskólanáms í Belgíu Belgiska menntamálaráðuneytið býður fram styrk handa íslendingi til náms- dvalar i Belgiu háskólaárið 1972-73. Styrkurinn er ætlaður til framhalds- náms eða rannsókna að loknu prófi frá háskóla eða listaskóla. Styrktimabilið er 10 mánuðir frá 1. október að telja og styrkfjárhæðin 6.000. belgiskir frankar á mánuði hið lægsta, auk þess sem styrkþegi fær innritunar- og prófgjöld endurgreidd. Næg kunnátta i frönsku eða hollenzku er áskilin. Umsóknum um styrk þennan skal komið til mennta- málaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 5. ágúst n.k. Með umsókn skal fylgja æviágrip, greinar- gerð um fyrirhugað nám eða rannsóknir, staðfest afrit prófskirteina, heilbrigöisvottorð og tvær vegabrcfs- ljósmyndir. Umsóknareyðublöð fást í menntamála- ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 12. júli 1972.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.