Vísir - 17.07.1972, Blaðsíða 1
EIGA KONUR EKKI RÉTT Á
SÁRSAUKAMINNI FÆÐINGU?
A kona, sem óskar deyfingar
viö fæöingu aö fá hana? IJm
þetta er rætt hér á landi þessa
dagana. Við ræddum viö for-
stööumenn fæðingarstofnana i
Reykjavik um þetta efni og
spurðum nokkrar konur, sem
við hittum á vegi okkar. — Sjá
bls. 2.
Börnin —
kúguðustu þegnar
þjóðfélagsins?
„Börnin eru kannski eftir
allt kúguðustu þjóðfélags-
þegnarnir. Það virðist ekki
svo fráleitt að álykta það hér
i Reykjavik a.m.k. þar sem
duttlungar strætisvagnabil-
stjóra ráða þvi hvort barn i
kerru fær að ferðast með
strætisvagni”, segir i grein
um börn og barnauppeldi I
blaðinu i dag. — Sjá INN-sið-
una á bls. 7.
★
Yilja sneið af
Landakotstúninu
Þaö er ekki tilviljun, að
Amtmannshúsið fyrir enda
Amtmannsstigs hefur verið
rifið. I sumar mun Kirkju-
stræti verða breikkað og
samningar eru hafnir um
breikkun Túngötunnar. Allt
þetta þrennt tengist sömu
framkvæmdinni, gerð hrað-
brautar frá Ægissiðu gegn-
um Vesturbæinn og Miðbæ-
inn. Samkvæmt aöalskipu-
laginu á hún aö verða tilbúin
áriö 1983. Gn stóri steinninn i
vegi hraðbrautarfram-
kvæmdarinnar er gamla
hegningarhúsið við Skóla-
vörðustig, sem umhverfis-
verndarmenn hafa vakað yf-
ir undanfarin ár.
Sjá bl. 3.
★
„Hlera öll
símtöl yfir
Atlantshaf"
„Bandariska leyniþjónust-
an hlerar öll simtöl til
Bandarikjanna og fylgist
með fundum rikisstjórna um
allan heim”. Þetta segir i
bandarisku timariti og er
borinn fyrir þvi fyrrverandi
starfsmaður leyniþjónust-
unnar, sem ekki vill láta
nafns sips getið.
SJA BLS. 5
★
Eftirhreytur
„klukkumálsins"?
Svo virðist sem dómarinn,
sem lenti i þvi fræga
„klukkumáli”, Valur_ Bene-
diktsson, verði ekki lengur i
hópi m illirikjadóma ra .
Hvort það eru eftirhreytur
þessa máls er ekki vitað með
vissu, en dómarinn var sýkn-
aöur af öllum ákærum fyrir
knattspyrnudómi. — Sjá i-
iþróttir i opnu blaðsins.
★
Símað beint
til kunningja
í London
Nú fara menn brátt að geta
simað beint til vina og kunn-
ingja i London eða New
York, — nú eða Tókió, eða
svo gott sem. Hálfsjálfvirkt
simasamband cr fyrir hendi,
þannig að stúlkurnar á tal-
sambandinu við útlönd geta
sjálfar hringt beint i þau
númer, sem beðið er um
ytra. — Sjá bls2
„Kem út nœst," sagði Fischer
Fékkst loks til að tefla 3. skókina í lokuðu herbergi
Það stóð i jcirnum, en
hafðist þó. Bobby Fischer
varð loks samþykkur að
hefja 3. einvígisskákina í
Laugardalshöllinni i gær.
En fyrst þurfti að f jarlægja
allar tökuvélar og svo var
hægtaðtefla — en ekki (á
sviðinu) frammi fyrir
áhorfendum heldur í borð-
tennissal inni af sviði
Hallarinnar uppi á loftinu.
Marshall lögfræðingur og
Cramer umboðsmaður Fischers
gátu að lokum fundið þá lausn,
sem keppendur urðu ásáttir um
að ganga að. Þeir fóru á fund
Guðmundar G. Þórarinssonar um
þrjú-leytið i gærdag og tjáöu
honum, aö Fischer myndi ekki
tefla nema hann fengi algjört
næði frá kvikmyndavélum og að
hann og Spasski tefldu inni i
lokuðu herbergi inni af sviðinu.
Féllst Spasski á þetta. Fengu þvi
aðstoðarmenn Fox fri i gær en
einungis mannlaus kvikmynda-
tökuvél var sett upp inn i her-
berginu, sem varpaði siðan mynd
af Spasski og Fischer á mynd-
varpann inn til áhorfenda.
Leikjunum var svo „smyglað” út
um dyrnar til manns sem sim-
sendi þá til þeirra sem sáu um að
færa stöðuna á sýningartjaldið.
Lothar Schmid, yfirdómari
gekk fram á sviðið skömmu áöur
en skákin hófst og sagði
áhorfendum að þetta væri aðeins
bráðabirgðalausn, en næsta skák
yrði tefld fyrir opnum tjöldum
þ.e. á sviðinu sjálfu, enda væri
ekki hægt að bjóða áhorfendum
upp á annað. Og þannig tefldu
þeir keppinautarnir Fischer og
Spasski i lokuðu herbergi fjarri
öllum skarkala með
skákdómarana Schmid og
i Guðmund Arnlaugsson eina
viðstadda, ásamtstarfsmanni,
sem sá um að leikirnir kæmust til
skila.
Þrátt fyrir ókyrrð og handapat i
fyrstu virtist Fischer kunna
ágætlega við sig i ping— pong
herberginu sem sást glöggt á
taflmennsku hans, hann hélt
andstæðingnum i heljargreipum
allan timann og undir lokin hafði
hann meira að segja orð á þvi að
tefla á sviöinu næst.
Sposskí í
spennitreyju
Sjó skókina og
stöðumyndir bls. 4
Skeytadrífa til
Fischers með áskorun
um að halda áfram
Bobby Fischer fékk mikla
hvatningu landa sinna til þess að
hefja skákina i gærdag, aö sögn
Cramers og Lombardy. Sögðu
þeir að Fischer hefði borizt heil-
mikill bunki af áskorunarbréfum
og heillaskeytum i baráttunni við
Spasskí. Hefði hýrnað yfir snill-
ingnum þegar hann sá að löndum
hans var svo umhugað um heill
hans í keppninni. Gat hann þvi
ekki lengur brugðizt trausti
Bandarlkjamanna og afréð að
halda áfram að tefla. Góðar óskir
virðast hafa fylgt honum á leiðar-
enda i skákinni i gær og nú blasir
viö fyrsti sigur hans gegn Spasski
við skákboröið. GF
Spasskí: Ekki fleiri
skákir í lokuðum sal
Fischer stormar út i bifreið sina eftir að hafa komið
andstæðing sinum i klipu i skákinni i gær — það var
fremur létt yfir kappanum eins og sjá má.
Spasski og menn hans sögðu i
morgun, að ekki kæmi til greina
annað en að tefla þær einvigis-
skákir sem eftir eru á sviðinu
frammi fyrir áhorfendum. Aö
öðrum kosti væri einvigiö farið út
um þúfur og af þeirra hálfu yrðu
ekki fleiri skákir tefldar. Við vilj-
um fá að tefla fyrir áhorfendur,
en ckki inni I lokuðu herbergi,
sögðu þcir.
GF
5 ára drengur beið bana í bílslysi í gœr
Fimm ára drengur fórst i
bílslysi i Neskaupstað i gær.
Bifreið, sem hann var farþegi i
lenti út af vegi og valt.
I bifreiöinni voru þrir bræður og
ók sá elzti, en um aödraganda
þessa óhapps var ekki vitað með
vissu i morgun, þegar blaðið fór i
prentun. Tvo eldri bræðurna
sakaði ekki, en litli drengurinn
mun hafa látizt samstundis.
Hvorugur piltanna var til
frásagnar fær, báðir miður sin
cftir óhappið, og rannsókn
slyssins þvi ólokið I morgun. —
GP
VERÐUR AFTUR 3ÓL í DAG?
Sjó grein eftir BjSrn Bjarman á bls. 12