Vísir - 17.07.1972, Blaðsíða 12
«
Visir. Mánudagur. 17. júli. 1972
VERDUR AFTUR SÓL í DAG?
íslemlingar hljóta að vera
fjarska lítið trúhneígðir
A laugardagsmorgun var
ég að sniglast á Loftleiða-
hótelinu og mér fannst
liggja i loftinu, aö allt værí
búið og bara timaspursmál,
hvenær gefin yrði út til-
kynning um að Fischerog
föruneyti hyrfi úr landi. Og
þess vegna axlaði ég min
skinn, gaf skákina á bátinn
og hélt norður i land með
nesti og nýja skó. úrhellis-
rigning og vegirnir engu
líkir og í Borgarfirðinum
gafst ég upp, fékk gistingu
á Edduhótelinu í Varma-
landi. Horfandi á tvenn
maríerluhjón í stórfiskaleik
í giaðasólskini á hlaðinu í
Reykholti á sunnudags-
morgni. Þá voru þeir
Fischer og Spasský jafn
fjarri mér og bæði tungl-
ið og sólin tii samans.
Stórfrétt f
útvarpinu
Staddur i Borgarnesi um há-
degið og þá suðar flugan aftur I
kollinum á mér: Ætli þeir tefli
ekki i dag, þvi það er svo mikil
sól? Þaö er útilokaö að vera reið-
ur og móðgaður i svona mikilli
sól. Slegiö undir nára og beint til
Reykjavikur.
Horfur allt annað en góðar,
áskorandinn á förum úr landi
klukkan þrjú fimmtán, og samt
enn meira sólskin hér i borginni
en Borgarnesi og Keilir skartaöi
sinu fegursta og Flugfélagsþotan j.
sveimar yfir bæinn, strákar i fót-
bolta á flötinni, sumar alls staðar.
Sem ég bið i rólegheitum eftir
kótelettunum og sveskjugrautn-
um og klukkan ponsulitið á
fimmta timanum Þá:
STÓRFRÉTT les þulan i útvarp-
inu. Klukkan fimm verður þriðja
einvigisskákin tefld i Laugardals-
höllinni o.s.frv. Kótelettur og
sveskjugrautur látin lönd og leið
og niöri höll á fastandi maga.
B.H. Wood ritstjóri brezka skákblaösins Chess fylgist af áhuga með skákinni I gær.
Létt í spori
Þessi Singer saumavél kostar
aðeins kr. 18.669,00, en hefur
flesta kosti dýrari saumavéla
og þann kost fram yfir að hún
vegur aðeins 6 kíló og er þess
vegna mjög létt í meðförum.
Þegar þér saumið úr hinum
nýju tízkuefnum getið þér valið
úr mörgum teygjusaumum, m.
a. ,,overlock“, svo að engin
hætta er á að þráðurinn slitni
þó að togni á efninu.
Singer 438 hefur einnig: innbyggðan, sjálfvirkan hnappagata-
saum ^ tvöfalda nál, öryggishnapp (gott þar sem börn eru),
fjölbreyttan skrautsaum og marga fleiri kosti.
SÖLU- OG SÝNINGARSTAÐIR:
Liverpool, Laugavegi 18A, Domus, Laugavegi 91, Gefjun, Austurstræti,
Dráttarvélar, Hafnarstræti 23, Véladeild SlS, Ármúla 3 og Kaupfélögin um land allt.
SAMBAND ISLEN2KRA SAMVINNUFELAGA
$ Véladeild
ARMULA 3 REYKJAVIK. SIMI 38900
Tökum gamlar vélar sem greiðslu upp í nýjar
Látbragðsleikur
á stóra tjaldinu
Aður en skákin hefst þá dulitið"
bió eins og i gamla daga á stóra
tjaldinu. Aðalleikendur Lothar
Schmid og Guðmundur rektor,
Spasský i aukahlutverki. Þögul
mynd og látbragðsleikur. Mér
finnst Guðmundur bera af en
þetta er bara fyrsti þáttur. Annar
þáttur: Aðalleikendur: Heims-
meistari i skák og áskorandinn.
Þeir sitja við eldhúsborð hvor á
móti öðrum og venjulegt linóleum
skákborð á milli þeirra. Askor-
andinn hefur sig meira i frammi,
baðar út höndum, snýr sér nærri i
heilhring i fina stólnum frá
Argentinu og klukkan talsvert
yfir fimm. Þessi látbragösleikur
stendur góða stund og ekkert
vantar nema Túnglskins sónöt-
una eftir Beethoven, til að þe’tta á
tjaldinu verði alveg eins og i
gamla daga I Nýja BIo á
Akureyri, þegar maður sá
Konung konunganna tiu sinnum i
strikklotu, af þvi pabbi spilaði
undir á orgel.
Eg sit vio hliðina á brezkum
skákmeistara og skáktimarits-
stjóra, sem heitir Wood. Hann
segir, að Fischer leiki nýtizku
Benoni júgóslavneskt afbrigði.
Hvöss vörn og nokkrir sóknar-
möguleikar. Kvikmyndatöku-
menn Chester Fox sitja við borðið
hjá okkur og eru fúlir.hafa ekkert
að gera, þeirsegja mér að Cram-
er amerlski hafi kallað þá asna: og
það finnst þeim auðvitað ekki
gott.
Ættfræöi
og hrakfarir
Meðan æsilegar sviptingar ger-
ast á skákborðinu standa tveir
menn niðrf anddyri Hallarinnar
og ræða ættfræði og hrakfarir
Skaftfellinga eftir Skaftárelda.
Það eru þeir Asi i Bæ og Helgi
Sæm. Ættfeður beggja flúðu Eld-
ana og Helgi segir ferðir þeirra
likastar tunglferðum okkar daga
og allt i einu er skákin gleymd og
forfeður þessara tveggja kappa
Helga og Asa komnir ljóslifandi i
Höllina þeir ögmundur og Jón.
Það er stutt i Islendinginn þó yfir
standi einvigi aldarinnar i seil-
ingsfjarlægð. Vel á minnst meðan
ég man, þá hef ég sannfrétt, að ég
hafði rangt fyrir mér á dögunum.
Helgi Sæm. er skáksnillingur,
hann hefur nefnilega mátað
ónefndan stórmeistara með eitt-
hvað ónefnt i forgjöf og þess
vegna bið ég hann hér með afsök-
unar.
Egill rakari
segir ekki: Áfram KR
Mr. Wood skrifar fyrir Daily
Telegram og fer oft niður til að
senda skeyti. Hann sýnir mér
ýmsa möguleika á litla skákborð-
inu sinu, og ég set upp spekings-
svip og þykist skilja þetta afskap-
lega vel og segi, að þessi leikur
eða hinn leikurinn liggi alveg I
augum uppi. Allt I einu snýr sá
brezki sér að mér og segir i þess-
um sérenska spaugtóni: ,,ts-
lendingar hljóta að vera fjarska
litið trúhneigðir, þvi biskupinn á
skerminum er svo óverulegur, að'
það er varla hægt að greina
hann.” Eg segi hann hafa hitt
naglann á höfuðið.
Skákin þumlungast áfram og
sóknarþungi Fischers eykst með
hverjum leik. Eftir 20. leik kemur
Egill rakari aðvifandi og hrópar
ekki: Afram KR. en segir, að
Spasský muni gefa skákina eftir
næsta leik.
Fíllinn hefur
blakaö eyrunum
Sumir útlenzku blaðamennirnir
hafa komið sér upp islenzkum
vinkonum og áhugi þeirra fyrir
skákeinviginu virðist allur fara
dvinandi og á morgun og hinn
daginn býður rikisstjórnin þeim i
ferðalag og veizluhöld með Lunch
at Hotel Berg Westman Islands
og á þriöjudaginn verður Lunch
at Valhoell og sjálfur forsætisráð-
herra veizlustjóri og á eftir verð-
ur farið til Hvergerðis i gegnum
Sogið.
Það er svosem leikið við þessa
dáta og i öllu þessu er
blaðafulltrúi rikisins aðalmaður-
inn.
Þegar um það bil þrjátiu leikj-
um er lokið segir Helgi Sæm:
Þetta er tapað fyrir Spasský”. Þá
veit maður það og varla eftir
nokkru að biða.
Klukkan er rúmlega tiu og enn
skin sólin, hópur fólks biður við
bakdyr Hallarinnar. Flestir búast
við sigri áskorandans og hvað
verður þá i næstu skák, þegar
hann hefur hvitt. Fillinn hefur
blakað eyrunum og hvernig verð-
ur hann þegar hann stendur á fæt-
ur og tekur að sveifla rananum?
Fólk er i góðu skapi eftir sókn-
djarfan og einarðlegan leik
áskorandans gegn hörkuvörn og
drengilegri baráttu heimsmeist-
arans og hver veit nema verði
aftur sól á morgun.
b.