Vísir - 17.07.1972, Page 20
Mánudagur. 17. júli. 1972
Heiðraður fyrir
tónlist annars
manns
Dálaglega sló út í fyrir einum
ágætum leiklistargagnrýnanda
hér i bæ á dögunum, þegar hann
greiddi atkvæoi I silfurlampaat-
kvæöagreiðslunni og greiddi Atla
Heimi Sveinssyni 50 stig fyrir tón-
list eftir Magnús A. Arnason.
Tónlistin er úr barnaleikritinu
Glókolli, sem Þjóðleikhúsið sýndi
s.l. vetur, og kom Atli Heimir þar
hvergi nærri.
Við hringdum I Magnús i morg-
un og spurðum hann hvort hann
vissi hvernig^ á þessu stæði.
,,Nei ég hef ekki hugmynd um
það. Ég hringdi strax i formann
félags leikgagnrýnenda og bað
um leiðréttingu, en hún er ókom-
in. Atli kom hvergi nærri þessu,
ég samdi og útsetti þessa tónlist.
Annars hef ég nú bara gaman af
þessu, en kann þó betur við aö
hafa þaö sem sannara reynist”,
sagði Magnús.
þs
Tíu um
hvert
einbýlishús
— fimm um
blokkaríbúðirnar,
geysiúhugi fyrir lóðum
í Stóragerðinu
Griðarleg eftirspurn er eftir
lóöunum við Stóragerði, sem
verður úthlutað innan skamms. A
fimmta hundrað umsóknir bárust
um 40 einbýlishúsalóðir þar,
þannig aö fleiri en tiu aöilar eru
um hverja lóö.
É>á bárust hundruðir umsókna
um íbúöir i þriggja hæða fjöl-
býlishúsum. Þar eiga aö verða
hundraö ibúöir og eru um þaö bil
fimm umsækjendur um hverja
ibúö.
Verktakar og húsameistarar
eru einnig áfjáöir i byggingu
tveggja 6-7 hæöa háhýsa, sem
mun einnig veröa úthlutaö, en 15
aöilar sóttu um lóöirnar, sem þau
eiga aö standa á.
Veröur þvi spenningur rikjandi,
þegar úthlutunin veröur tilkynnt.
Eftirspurn stafar af þvi að
mjög hefur fækkaö byggingarlóö-
um á borgarlandinu innan viö
Elliöaárnar og finnst sumum enn
sem þeir séu komnir i sveitina
þegar komiö er yfir Elliöaár.
— SB—
Slasaðist
við byltu á
Kambabrún
Það óhapp vildi til á Kamba-
brún seint i gærkvöldi að kona
ein, sem ætlaði að njóta útsýnis-
ins þar, datt illa og hlaut höfuðá-
verka. Lögreglan á Selfossi flutti
hana á Borgarsjúkrahúsið þar
sem gert var að meiöslum henn-
ar.
Slysið vildi til skömmu eftir
miönætti. Hjón voru á leiö til
Reykjavikur og stönzuöu á
Kambabrún og fóru út úr bilnum.
Konan var nokkuö á undan manni
sinum og skipti þaö engum togum
aö hún hrasaði rétt fyrir utan
veginn og skall á höfuðið i grjótið.
Hún missti meðvitund, en vegfar-
endur, sem áttu leið um, hlúðu að
henni þar til lögreglan kom á
vettvang. Meiðsli hennar munu
þó ekki hafa verið mjög alvarleg.
SG
MUNUM BERJAST GEGN
STÆKKUN SOGU
„Þrátt fyrir það, að
aðalfundur Stéttar-
sambandsins hafi sam-
þykkt með nokkrum
meirihluta að heimila
stækkun Sögu er þetta
alls ekki búið mál. Við
munum berjast gegn
stækkun, þar sem við
teljum engan grundvöll
fyrir henni og það sé
verið að brjóta reglur
Stéttarsambandsins”
sagði Hermóður Guð-
mundsson bóndi i Ár-
nesi i samtali við Visi i
morgun.
Aðalfundurinn samþykkti
með 25 atkvæöum gegn 15 að
heimila stækkun Sögu og áöur
hafði Búnaðarþing veitt slika
heimild fyrir sitt leyti. Hermóð-
ur sagði að útreikningar þeir,
sem lagðir hefðu veriö fram um
hagkvæmni stækkunar væru
fullir af skekkjum og einnig
væru þeir rangtúlkaöir. Her-
móður fékk, ásamt tveim öörum
bændum, viöskiptafræöing til aö
fara yfir útreikningana og
- segir Hermóður
í Árnesi
komst hann að þessari niður-
stöðu. Þá var lögfræöingur
fenginn til aö fara yfir reglur
stéttarsambandsins og gat hann
ekki fundið neinn staf i þeim
reglum sem heimilar aðalfund-
inum að veita þessa heimild, að
sögn Hermóðs. Með honum
standa fremstir i flokki þeir
Sveinn bóndi á Egilsstööum og
Skjöldur Eiriksson bóndi á
Skjöldólfsstööum.
— SG
Lögreglan hafði
varað við Ijósunum
— Orsök dauðaslyssins talinvera umferðarljósin sjólf
„Þetta er ekki fyrsti
áreksturinn, sem verður á
þessum gatnamótum vegna þess
aö menn tóku ekki eftir um-
ferðarljósunum svffandi i loftinu
langt yfir höfði þeirra,” sögðu
lögregluþjónar á Keflavikurflug-
velli.
Þaö er talin vera nánast eina
liklega skýringin á dauöaslysi,
sem varð á mótum Flugvallar-
vegar og Vesturbrautar aðfara-
nótt laugardags. 35 ára gamall
maður frá Húsavik (búsettur að
Asbraut i Kópavogi), Eirikur
Halldórsson aö nafni, fórst þar i
feikihörðum árekstri.
Fólksbill hans hrundi i rusl við
áreksturinn, eftir aö honum var
ekiö á oliubil, meö aftanivagni
sem var á leiö upp á Flugvöll.
Báöir bilarnir fóru út af veginum
og tengivagn oliubilsins valt ofan
á fólskbilinn.
ökumaður oliubilsins segist
handviss um aö grænt ljós hafi
verið á götuvitanum, á móti
honum sem á þessum eina stað á
landinu er með allt öðrum hætti
en venjulega þekkist hér úr um-
feröinni. Ljóskeriö hangir yfir
miðjum gatnamótunum neðan i
virum, sem strengdir eru hátt
uppi.
í.Margur i umferöinni hefur
flaskaö á þvi að gá ekki til lofts
eftir slikum umferðarmerkjum.
þegar hann hefur átt leiö um
gatnamótin. Til áreksturs hefur
komið áður þarna af þeim
ástæðum, og við höfum varað ein-
dregið við þessu”, segja lögreglu-
þjónar.
Það er hald manna, að Eirikur
heitinn, sem ók eftir Vestur-
braut, hafi ekki tekið eftir um-
ferðarljósunum. Slysið varð um
kl. hálf fimm um morguninn, og
Eirikur var látinn, þegar að bíl-
flakinu var komið.
Þrátt fyrir aðvaranir lögreglu-
þjónanna við þessum ljósa-
búnaði, hafa engar ráðstafanir
verið gerðar til breytinga, en um
ár er liðið siðan sá, sem þetta
skrifar, tók fyrst eftir þessari ný-
breytni i umferðarljósum á
þessum stað (og hafði þá nærri
þvi ekki tekið eftir þeim sjálfur).
—GP
BARINN TILBUINN, EN
ÞÁ FÉKKST EKKERT LEYFIÐ
„Hingað komu menn frá ferða-
málaráði og heilbrigðisráöuneyti
i haust, og kröfðust þeir þess að
ýmsar lagfæringar yrðu gerðar á
staönum tii þess að við gætum
fengiö vinveitingaleyfi. Viö geng-
um auðvitað af hörku f það, og
höfum sennilega lagt f 4«—50.000
króna kostnaö og ætlunin var að
við fengjum leyfið 15. júli, en þá
var máliö tekiö fyrir hjá sýslu-
nefnd, og þar var þetta fellt”.
Svo mæltist hótelstjóranum á
Hótel Búöum, og sagöi hann einn-
ig að ætlunin hefði veriö að hafa
sumariö i sumar sem nokkurs
konar tilraun.
„Þeir halda að við ætlum að
fara aö selja unglingunum i sveit-
inni áfengi, en auðvitað hefði
þetta aöeins verið fyrir fasta gesti
og ferðafólk, og eins og gefur að
skilja er ekki hægt að vera með
nein drykkjulæti hér á hótelinu”,,
sagði hótelstjóri ennfremur.
Hann sagði þó að þeir væru ekki
alveg úrkula vonar um að vin-
veitingaleyfi fengist næsta sum-
ar, þar sem hótelið i Stykkis-
hólmi verður sennilega komið i
gagnið þá, og ef þar verða leyfðar
vinveitingar, fái Hótel Búðir það
lika. „En það tekur þó auðvitað
sinn tima fyrir fólkið i sveitinni að
átta sig á þessu”, sagði hótel-
stjóri „og maður veröur að skilja
það lika”.
Þegar blaðið haföi tal af oddvit-
Svona var það
í höllinni í gœr
Þannig sáu áhorfendur þá Boris
Spasski og Robert Fischer i
gærkvöldi, þegar þeir háðu
þriðju einvigisskák sina i
lokuðum sal baka til i höilinni. A
hinum risamikla sjónvarps-
skermi birtúst þeir
áhorfendum.
Þessi mynd af myndinni er frá
Fox, sem varö aö láta sér nægja
að taka myndir af skerminum,
sem vitaskuld er mjög erfitt og
gerir myndirnar öllu lakari en
ella.
Þegar þcssi mynd var tekin var
Sæmundur Pálsson lögrcglu-
þjónn að færa Bobby Fischer
ávaxtasafa, en Bobby og
Sæmundur, sem er kunnur
iþróttamaður, hafa orðið hinir
mestu mátar aö undauförnu.
anum, Þráni Bjarnasyni, sagði
hann að hótelið hefði sótt um leyf-
ið i vetur, máliö hefði siðan verið
tekiö fyrir hjá sýslunefnd, en
meðmæli fengust ekki.
„Þó að kannski sé sjálfsagt að
hótel hafi vinveitingar fyrir gesti
sina, eru ýmsar ástæður fyrir þvi
að erfitt er að mæla með slfku”.
— EA