Vísir - 20.07.1972, Blaðsíða 6
6
Visir. Fimmtudagur. 20. júli 1972
VÍSIR
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsso»
Ititstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórrfarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Simi 86611
Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611 (5 linur)
Askriftargjald kr. 225 á mánuöi innanlands
i lausasölu kr. 15.00 einlakiö.
Blaðaprent hf.
Ratvís andstaða
Þegar viðreisnarstjórnin var við völd, var stjórn- )
arandstaðan si og æ uppi á háa séi út af stóru og \
smáu og sifellt með ábyrgðarlaus yfirboð. Þetta (
langvinna skeið hávaðasamrar og ábyrgðarlausrar /
stjórnarandstöðu hefur valdið þvi, að sumir telja, )
að svoleiðis eigi stjórnarandstaða að vera. Þeir v
hafa þvi ekki verið með á nótunum, siðan tekin var /
upp annars konar stjórnarandstaða eftir stjórnar-)
skiptin i fyrra. \
Þótt minni hávaði og meiri ábyrgð einkenni /
stjórnarandstöðu Sjálfstæðisflokksins, er það )
ekkert merki um linku eða þreytu, heldur merki um \
ný vinnubrögð, sem munu gefast betur, þegar til (
lengdar lætur. Undir forustu Jóhanns Hafstein, /
oddamanns stjórnarandstöðunnar, hefur Sjálf- )
stæðisflokkurinn ratað þann meðalveg, sem kemur (
að beztu gagni, þegar til kastanna kemur. /
Vitanlega er margt stjórnarathafna aðeins venju- \
legur embættisrekstur, sem ekki er sérstaklega (
gagnrýnisverður. Það væri óheiðarlegt af stjórnar- (
andstöðu að gagnrýna stjórnarathafnir, sem hún)
mundi sjálf framkvæma, ef hún sæti að völdum, auk \
þess sem fólk er ekki svo vitlaust, að það sjái ekki i (
gegnum það. /
í landhelgismálinu tókust sættir milli stjórnar og \
stjórnarandstöðu. Tekin var upp sameiginleg (
stefna, sem styrkti þjóðina mjög út á við, bæði /
vegna samstöðunnar og vegna efnislegra breyt- \
inga, sem urðu á stjórnarstefnunni. Stjónarand-11
staðan og einkum þó Jóhann Hafstein átti verulegan /
þátt i að ná samkomulagi um þetta mikilvæga mál. )
Hér áður fyrr hefði stjórnarandstaða ekki haft slika \
ábyrgðartilfinningu. (t
Svo hafa auðvitað fjölmargar athafnir rikis-))
stjórnarinnar verið ákaflega ámælisverðar og hafa V
sætt harðri gagnrýni. Eyðslustefnan, skattahækk-(
anirnar og verðbólgan, sem af þvi hefur leitt, hefur /
sætt harðri en efnislegri gagnrýni stjórnarandstöð-)
unnar. í þvi hefur fólgizt broddurinn af þvi aðhaldi, (
sem stjórnarandstaða þarf að veita rikisstjórn. /
Stjórnir koma og fara eftir lýðræðislegum leiðum. ()
Meðan samstaða helzt i rikisstjórn er ekki hægt að (
koma henni frá með hávaða, hversu óvinsæl sem /
hún er orðin. Núverandi stjórn verður ekki komið)
frá fyrr en i næstu kosningum. Það eru þær kosning- (
ar, sem núverandi stjórnarandstaða stefnir að. Hún (
telur, að þá muni þjóðin treysta ábyrgri stjórnar- [
andstöðu til að taka við stjórnartaumunum. \
Svo vill lika til, að núverandi stjórn er sjálfri sér /
verst. Þvi meira sem hún er látin i friði, þeim mun )
meira grefur hún undan sér i innbyrðis illdeilum. (
Hún þarf raunar enga óvini, þvi að hún er sjálf sinn (
versti óvinur. )
Stjórnarandstaðan hefur verið hörð á köflum, ((
þegar tilefni hafa verið, en hún hefur lika verið ((
ábyrg. Hún hefur forðazt vopnaglamur, þegar það ))
hefur verið tilgangslaust. Hún hefur ratað rétta \\
meðalveginn. {[
Sadat hefur
buxnaskipti
Sadat hinn egypzki hefur alltaf
vcriö leiður á rússnesku buxunum
sinum. Það var Nasser, sem
iklæddisl þessari l'lik, þegar
israelsmcnn höföu flengt hann i
striöinu 1967. Nasser reiddist
Ha ndarik ja m iinnum, sem voru
seinir til aö láta hann hafa
peninga i Aswanstifluna og auk
þess gamlir vinir israelsmanna,
vcgna allra gyðingaatkvæðanna i
Handarikjunum.
Nasser leiö sjálfum ekki of vel i
flikinni. Kvartaöi um kláöa. En
þetta varö hann aö gjalda til þess
aö Arahar hryndu ekki saman
cl'tir hinn herfilega ósigur.
israelsmenn, þótt iniklu færri
væru aö hausatölu, rcöu lögum og
lolum viö Súez. Þcir höföu lagt
undirsig stór flæmi af gönilu ara-
hísku landi, og þeir voru til þess
vísastir aö sitja þar um aldur og
ævi, eins og reyndar hefur
sanna/.t.
Ileimurinn hló að
Sadat i vetur
Þvi stofnaði Nasser hræðslu-
bandalagið viö Rússann.
Hræöslan var að visu Egyptanna
einna, sem voru milli tveggja
elda. Rússinn varð harla glaður.
Hann fékk fótfestu í Mið-Austur-
löndum l'yrsta sinni. Hann fékk
stökkbretti til að auka áhrif sin
um allan arabiska heiminn. Þetta
kostaði hundruð milljarða króna,
en var ódýrt.
Egyptinn Sadat tók við að
Nasser látnum, staðráðinn i að
hefja sjálfsvirðingu Egypta i há-
sæti. Hann og egypzka þjóðin
hel'ur siðan horft upp á, hvernig
israelsmenn hafa með fyrir-
litningu hafnað málamiðlunar-
tillögum Egypta og hvernig þeir
hal'a neglt sig niður á herteknu
svæðunum og gert þau gyöingsk.
Sadat hefur æpt og öskrað.
Hann skók brandinn um siðustu
áramót og ætlaði i strið. En
ltússar voru þar fyrir sem grjót-
veggur. Þeir voru ekki tilbúnir að
striða við israelsmenn, sem hefðu
bandariskan stuðning. Þeir voru
óviðbúnir að stofna heimsfriðnum
i hættu út af sandi við Súez. Þeir
skelltu hurðinni framan i Sadat,
og heimurinn hló að striðstil-
burðum hans.
Sadat ætlar þvi að skipta um
buxur. Hvort hann iklæðist
bandariskum kúrekabuxum eða
ekki, er ekki vitað.
Bandarikjamönnum er um og ó.
Þeir vilja auðvitað styrkja stöðu
sina við Súez. Þeir fagna þvi að
sjálfsögðu að fá þar bandamenn.
Ekki þurfa þeir að óttast, að
fsraelsmenn fleygi sér i fangið á
Rússanum. En hverjum banda-
riskum stjórnmálamanni, hversu
friðelskandi, sem hann kann að
vera inn við beinið, hrýs hugur
við þvi að styðja Araba.
Gyðingarnir mundu ekki taka þvi
með þolinmæði. Jafnvel
McGovern, svo fórnfús friðar-
sinni, var tilneyddur að heita
Israelsmönnum stuðningi Banda-
rikjamanna, einum þjóða.
Egyptar hafa aðeins
þriðjung
nauðsynlegra
flugmanna
Arabar hafa verið að færa sig i
átt til Ameriku að undanförnu. t
Jemen og Súdan hafa þeir sliðrað
sverðin i rifrildi við Bandarikja-
menn. Nimeiry Súdanforseti vill
þiggja frá Bandarikjamönnum
peninga fyrir uppbyggingu Suður-
Súdan þar sem strið var háð i nær
tuttugu ár. Þvi hyggst hann
sémja við gamla féndur sina,
Bandarikjamenn, og taka aftur
upp stjórnmálasamband.
Þessu var illa tekið af blöðum i
Egyptalandi, en nú er Sadat
kominn i sama bátinn.
1 yfirlýsingu sinni um tafar-
lausan brottflutning þeirra
sovézku hernaðarráðgjafa, sem
hafa verið stoð og stytta Egypta
IIIIIHIIIII
ffi)
Umsjón:
Haukur Helgason
„Vertu nú sæll og blessaður.”
Brottför Rússanna
getur valdið
„œvintýraárásum"
Araba á Israel, en
œtti að efla frið
til lengdar
siðan 1967, segir Sadat, að ,,vin-
átta Egypta og Sovétmanna muni
haldast, en finna verði nýjan
grundvöll fyrir vináttuna.” Sadat
er ævareiður af þvi að Rússar létu
hann ekki hafa vopn i fyrra, svo
að hann gæti stritt gegn tsrael.
Þetta tekur hann fram ómyrkur i
máli.
F'yrirskipunin á ekki að taka til
þeirra, kannski 10-15 þúsund,
sovézkra ráðgjafa, sem hafa
verið Egyptum innan handar i
iðnvæöingu.
Hins vegar tekur tilskipunin til
álika fjölda hernaðarráðgjafa.
Sadat segir, að nú skuli
Egyptar taka alla stjórn
hernaðarmannvirkja og vigvéla.
En blað i Beirut i Libanon minnir
á, að sovézki forsetinn Podgorny
hefur sagt, að Egyptar hafi
aðeins um þriðjung þeirra flug-
manna, sem þurfi til að fljúga
herþotunum, sem þeir hafa fengið
frá Rússum.
„Ég beiö og beið eftir
sva ri"
Sadat heimtaði af Bresnjev, að
hann fengi vopn til að ráðast á
tsrael, eftir að tsraelsstjórn tók
illa friöartilboði Sadats. 1 bréfi
sagðist Bresnjev ekki geta þetta.
Sadat endurtók kröfurnar, þegar
sovézki hermálaráðherrann
Grechko sótti Egypta heim i mai
siðast liðnum. Reyndar höfðu
Egyptar skömm á heimsókn
Grechkos, og sögðu, að hann væri
bara að þessu til að striða Banda-
rikjamönnum og bæta stöðu
Rússa gagnvart Nixon, þegar
hann kæmi til Moskvu.
En kröfurnar voru fluttar dauf-
um eyrum Moskvumanna. Sadat
segir: ,,Ég beið og beið eftir svari
i einn dag, i tvo daga, þrjá,
fimmtán, en ekkert kom. Þið vit-
ið, hve ein stund, eða einn dagur,
er mikilvæg i minum augum”.'
Tveggja siðna bréf barst siðan
frá Bresnjev, en Sadat segir: „Ég
sagði sovézka sendiherranum, að
ég neitaði að taka við bréfinu,
sem var aðeins afsökun á afstöðu
Sovétrikjanna.”
//í átt til bandariskrar aft-
urhaldsstefnu"
Blaðið Anwar i Libanon segir
frá þessu og að ákvörðunin um að
reka Rússana hafi verið tekin 8.
júli og forsætisráðherra Egypta,
Aziz Sidkey, hafi farið til Moskvu
i siðustu viku til að skýra frá
þessu.
Ákvörðun Sadats getur reynzt
tvieggjuð. Hann kann að langa til
að fara af stað i eitthvert ævintýri
og reyna að fara með strið á
hendur Israelsmönnum, nú þegar
Rússinn heldur ekki lengur i
spottann. En hvers er her Egypta
megnugur á þessari stundu án
Rússa? Þvi má fullyrða, að af-
leiðingin til lengdar muni verða
að gera Araba friðsamlegri.
Áhrifin á Israelsmenn, sem hafa
aldrei verið þrjózkari en nú, eru
vafasamari.
Enn er ekki fyllilega vitað,
hvernig málin þróast til dæmis
hvort eitthvað verður eftir af
rússneskum ráðunautum eða
hvort semst milli Rússa og
Egypta um einhvern stuðning frá
Moskvu. Eitt er vist, að kommún-
istar i Arabalöndunum taka
buxnaskiptum Sadats hið versta.
Kommúnistablaðið A1 Nida i
Libanon segir, að „ræða Sadats
hafi verið alvarleg stefnubreyting
i átt til bandariskrar afturhalds-
stefnu”.
Önnur blöð segja, að ákvörðun
Sadatsskilji Araba eftir „nakta”,
eins og þau komast að orði,
frammi fyrir andstæðingunum.
israelsmenn hugsa
lsraelsmenn sögðu fátt um
ákvörðun Sadats og hugsuðu sinn
gang. Þó gætti töluverðrar bjart-
sýni um framvindu málanna, en
jafnframt hræðslu viö einhver
„ævintýri” sem Sadat kynni að
finna upp á.