Vísir - 20.07.1972, Blaðsíða 8

Vísir - 20.07.1972, Blaðsíða 8
Visir. Fimmtudagur. 20. júli 1972 Visir. Fimmtudagur. 20. júli 1972 FASTIR UÐIR EINS OG VENJULEGA — 15:10 í gœrkvöldi — bandaríska liðið sœkir þó stöðugt ó íslendingar sigruðu Bandarikjamenn að venju i landsleiknum i Hafnarfirði i gærkvöldi með 20:15, i allhörðum leik. Þótt þetta hefi ver- ið öruggur sigur er þvi ekki að leyna að Banda- rikjamönnum er sifellt að vaxa ásmegin i þess- ari iþrótt og óðum að læra ýmsa þætti leiks- ins, sem nauðsynlegir eru hverju landsliði. Is- lénzka Iiðíð Iék án Geirs og ekki verður þvi neit- að, að án hans er það ó- likt svipminna en ella. Bandarikjamennirnir byrjuðu leikinn óvenju vel, skoruðu fyrsta ÍBA áfrom í Bikarnum Akurcyringar höföu nokkra yfirburði yfir llúsvikinga i gær- kvöldi i bikarkeppninni i knatt- spyrnu. Þeir unnu Völsunga með 4:2 i allfjörugum og skcmmtilcguin leik, þar sem oft brá fyrir skemmtilegum til- þrifum hjá liðunum. Það var Kári, sem hóf að skora, Eyjólfur skoraði svo 2:0, en Hreinn Elliðason skoraði svo 2:l,en þannig var staðan i hálf- leik. J«einni hálfleik skoraði Kári enn, en Magnús Jónatans- son bætti við 4:1. Hreinn Elliðason skoraði svo siðasta markið i leiknum, 4:2. Akur- eyringar halda þvi áfram i bikarkeppninni, en Völsunga þætti lýkur. markið þegar um tvær minútur voru af leik, voru fyrri til að skora fram að þremur mörkum, er Jón Hjaltalin jafnaði úr vitakasti og náði svo forystunni með sama hætti nokkru seinna, en Banda- rikjamennirnir voru mjög harðir i horn aö taka i vörninni og gáfu sig»ekkiíýrieni fulla hnefana og var tveimur þeirra visaö af leik- velli til kælirigar, öðrum að mönnum sýndist i fimm minútur, en hann kom samt inn á eftir tvær, án athugasemda! tslenzka liðið smájók forskotið, til hlés, i 10:6, með mörkum aðal- lega úr vitaköstum, enda fór flest i handaskolrim hjá gestunum. Einna helzt var það markvöröur- inn, sem stóö fyrir sinu. Einna bezti kafli' fsle'nzka fiðs- ins var fyrri hluta seinm háll- leiks, en þá var staöan um tima 15:9, með mörkum, sem skoruð voru ýmist úr langskotum eða af linu, og var Axel einna drýgstur við að skora. Þegar staðan var 16:11, taka Bandrikjamennirnir fjörkipp, eftir að markvörður þeirra hafði varið sitt fyrsta vitakast i leikn- um, en alls urðu þau fjögur áður en yfir lauk. Þeir Abrahams og Faulkner skora sitt á hvað af mikilli grimmd, en Jón Hjaltalin og Einar Magnússon, svara i sömu mynt jafnvel þótt þeir væru með einn mótherja á bakinu, eins og Jón einu sinni, sem lét sér ekki muna um að skora 18. markið, með slikan „farþega”. Bandariski markvörðurinn sýndi frábæran leik undir lokin, þótt honum tækist ekki að hindra Agúst Ogmundsson, i að skora 20. mark tslands, af linu úr horninu, en Bandarikjamennirnir tveir sem áður er getið höfðu þá bætt stöðuna úr 11 upp i 15 mörk. tslenzka liðið virtist ekki taka þennan leik mjög alvarlega og satt að segja sýndi það ekki mikil tilþrif, en virðist hins vegar i góðri æfingu og létu hart mæta hörðu. Beztir i liðinu voru þeir Axel Axelsson, með 4 mörk og Jón Hjaltalin, með 6, þar af tvö úr vitaköstum. Hjalti Einarsson, var i markinu mikinn hluta leiksins, og varöi vel. Ólafur Benediktsson, var nokkuð óheppinn, þótt hann verði vel á köflum. Þeir Bandarikjamennirnir, Faulkner og Abrahams, báru nokkuðaf i liði gestanna, en báðir eru þeir miklir keppnismenn og skyttur góðar. Bandariska liðið virðist vera að ná nokkuð góðu valdi yfir leiknum, þeir nota horn- in mjög vel, linuspil og langskot, sitt á hvað og nokkrum sinnum brá fyrir fallegum leikfléttum hjá þeim. Dómarar voru þeir Magnús V. Pétursson og Hannes Þ. Sigurðs- son og dæmdu vel. — EMM — Bandariska sóknin sækir af miklum krafti undir lok leiksins i gærkvöldi, en Gunnsteinn Skúlason tekur kröftuglega á móti banda- risku árásinni eins og sjá má. STAÐAN OG MORKIN Markhæstu leikmenn i deildinni: Eyleifur Hafsteinss. Akran 8 Ingi Björn Albertss., Val, 6 Steinar Jóhannss. Keflav., 5 Atli Þór Héðinsson, KR. 5 Tómas Pálsson, Vestm., 4 Kristinn Jörundss., Fram, 4 Teitur Þórðarson, Akran., 4 Alexander Jóhanness., Val, 3 Hinrik Þórhallss., Breiðabl. 3 Marteinn Geirsson, Fram 3 Staðan i 1. deildinni er þannig eftir jafntefli KR og Fram i gær- kvöldi: KR—Fram 2:2 (0:0) Fram 7 5 2 0 15:6 12 Akranes 7 5 0 2 15:8 10 Kefla vik 7 2 4 1 14:11 8 KR 6 3 1 2 10:8 7 Breiðablik 7 2 2 3 7:13 6 Valur 6 1 3 2 11:12 5 Vestmannae. 5 1 1 3 8:11 3 V'ikingur 7 0 1 6 0:13 1 ■ „ - . STOPPAÐIEFTIR 1400 METRANA, MISSTI AF OL- FARSEÐLI í BILI Einstök óheppni veröur þess valdandi aö hinn ungi KR-ing- ur, Friðrik Guð- mundsson, heldur ekki á Olympíufar- miðanum sínum i dag, ef svo má segja. i stórglæsi- legu 1500 metra skriðsundi i Laugar- dalslauginni i gær- kvöldi, hélt hann að hann hefði lokið sundinu eftir 1400 metrana, — var síð- an rekinn af stað aftur, en hafði tapað 3 afskaplega dýr- mætum sekúndum. Hann kom að bakkan- um á timanum 17:56,4 min., sem er 1.6 sekúnd- um lakara en lágmarkið til þátttöku i leikunum. Þessi timi er nýtt lslands- met, 19.5 sek. betra en eldra met Friðriks, sem hann setti i fyrra. Met- ið sýnir þó að hann getur áreiðanlega náð að hnekkja lágmarkinu þó siðar verði. En sannar- lega varð hinn ungi sund- maður vonsvikinn eftir á, og sama var að segja um áhorfendur og sundá- hugamenn i Laugardaln- um i gærkvöldi. 1 sama sundi bætti Friðrik metið i 800 metr- unum, millitimi var tek- inn og synti hann á 9.30.8, sem er mikil bót á met- inu. Annar varð Sigurður Ólafsson, Ægi, synti á 17.25.1 min., en Guð- mundur Gislason, Ár- manni, alls óvanur brons- verðlaunum, hlaut nú ein slik, synti á 18.45.6 min. Gunnar Kristjánsson, Á, synti á 19:31.0 i hörkubar- áttu við hinn 15 ára Axel Axelsson úr Ægi, sem bætti fyrri árangur sinn um heila minútu og fékk timann 19:32.4, sem er hreint ekki lélegt af svo ungum manni. Tveir aðrir en Friðrik urðu íslandsmeistarar i gærkvöldi. Vilborg Sverr- isdóttir úr Ægi sýndi Guð- mundu Guðmundsdóttur frá Selfossi svart á hvitu að til þess að verða Is- landsmeistari, VERÐUR að æfa. Vilborg vann 800 metra skriðsundiðá 10:51.4, sem er allmiklu lakara en Is- landsmet Lisu Ronson Pétursdóttur, Guðmunda varð önnur á 10:53.8. Salome Þórisdóttir varð svo þriðja á 10:59.9 min, — spennandi sund lengi vel. Þá varð Guðjón Guð- mundsson, Skagamaður, íslandsmeistari i 400 metra bringusundinu, synti á 5:34,9, en tókst ekki að þessu sinni að hnekkja tslandsmeti Leiknis Jónssonar, sem er 5:34.1 min., sett á meistaramótinu i fyrra. Leiknir var nú langt á eft- ir Guðjóni á 5:52.0, Guð- mundur Ólafsson, Hafn- arfirði, varð þriðji á 5:54.5. Sundmeistaramótið heldur áfram um helgina á laugardag og sunnudag, en þá fara fram allar helztu greinarnar, og má reikna með spennandi keppni, og margir munu þar reyna við Olympiu- lágmörkin, enda flestir komnir i fulla þjálfun. — JBP — heppnin núna? — Framarar höfðu heppnina með gegn KR, og fengu haldið öðru stiginuog eru enn eina taplausa liðið í 1. deild KR og Fram skiptu milli sin stigunum, þegar liðin mættust á Laugardalsvellinum i gærkvöldi, og heldur þvi Fram forystunni i 1. deildinni með 12 stig, og hefur enn ekki tapað leik. Hvort lið skoraði tvö mörk, en fleiri hefðu þau get- að orðiö, og alveg sérstaklega voru KR-ingarnir óheppnir að skora ekki fleiri mörk, þvi af nóg- um tækifærum var að taka. Fyrsta tækifæri leiksins kom á 4. minútu, þegar hinn marksækni Kristinn Jörundsson átti gott tækifæri á að ná forystu fyrir Fram. Kristinn slapp inn fyrir öftustu vörnina með boltann, en Magnús Guðmundsson, mark- vörður KR; hljóp út á móti á hár- réttum tima, og Kristinn skaut i fæturna á honum. Fimm minútum siðar kom fyrsta verulega góða marktæki- færið hjá KR, þegar Hörður Markan tók hornspyrnu frá hægri, en Björn Pétursson hitti ekki markið úr góðu skotfæri. Aðeins örfáum augnablikum sið- ar átti KR enn tækifæri á að skora, en aftur brást skotfimin. Og það átti ekki af KR að ganga. Um miðjan fyrri hálfleik- inn tókst Atla Héðinssyni að leika sig frian, lék upp undir markteig með boltann, en þegar skotið átti að riða af, hitti Atli aðeins jörð- ina, en boltinn skoppaði i mestu friðsemd i hendur Þorbergs Atla- sonar. Tveim minútum siðar tók Björn Pétursson aukaspyrnu af nokkru færi, og þrumuskot hans sleikti þverslá Fram-marksins ofan- verða. Ekki var Fram þó alveg laust við að eiga tækifæri lika, og á 30. minútu átti Marteinn Geirs- son góðan skalla að marki KR, en boltinn smaug utan með stöng. Siðasta tækifærið i fyrri hálfleik kom þremur minútum fyrir hlé, þegar Hörður Markan nikkaði boltanum yfir varnarmann KR, til Björns Péturssonar, sem var ekki seinn á sér að bruna upp að marki, þar sem hann gaf á Atla Héðinsson, sem renndi boltanum utan með stöng. Hafi óheppnin elt KR i fyrri hálfleik, fengu þeir ekki neina leiðréttingu á þvi i upphafi þess siðari, heldur fékk Fram afar „ódýrt” mark, eftir aðeins tveggja minútna leik. Gefið var fyrir KR-markið frá vinstri, og bakvörður hugðist spyrna frá, en hitti ekki boltann, sem rúllaði áfram til Kristins Jörundssonar, og skoraði örugglega af stuttu færi: 1-0. KR hóf leik á miðju, og örstuttu siðar mátti sjá Atla Héðinsson á harðahlaupum með vörn Fram á hælunum, en ekki vildi lánið enn leika við hinn sókndjarfa KR-ing, sem sendi boltann beint i fætur Þorbergs. Það var loks á 10. minútu siðari hálfleiks, sem KR uppskar árangur erfiðis sins. Vörn Fram opnaöist illilega á miðjunni, sem oftar i leiknum, og þar var fyrir Gunnar Gunnarsson, sem fékk langa sendingu utan af velli frá hægri. Þorbergur brá við hart, og hugðist bægja hættunni frá, en Gunnar lyfti þá boltanum fyrir Þorberg og i netið að baki hans, 1- 1. Fram tók enn forystuna i leikn- um á 17. minútu siðari hálfleiks, þegar Erlendur Magnússon gaf fyrir markið frá hægri, framhjá Magnúsi markverði, til Kristins Jörundssonar, sem eins og fyrri daginn var á réttum stað, og spyrnti óverjandi i autt markið. Þorbergur Atlason var sá sem Framarar geta þakkað það að ekki lentu bæði stigin KR-megin i þessum leik, þvi hann varði oft KUBA IMPERIAL ST1500 stereosamstæðan 5000krúíborguneða 10%staðgreiðshiaMáttur ÚTVARPSMAGNARl ST1500 PLÖTUSPILARI PT 2000 TVEIR HÁTALARAR 18.900 10.850 7.200 vel, og einnig tókst honum oft að gripa inni sókn KR-inganna, og bægja þar með yfirvofandi hættu frá. Þannig bjargaði hann enn á 30. minútu, þegar öll sanngirni hefði krafizt þess að KR skoraði, en Þorbergi tókst að fyrirbyggja það með frábæru úthlaupi. Honum tókst þó ekki að koma i veg fyrir að KR jafnaði á 33. minútu, enda var markið gull- fallegt, og vel að þvi unniö. Sig- urður Indriðason sendi langan bolta af 20—30 metra færi inn i vitateig Fram, og Atli Héöinsson stökk upp og skallaöi i netið úti við stöng, 2-2. Rétt undir lokin áttu svo Fram- arar tvö mjög góö tækifæri á aö skora, og krækja þar með i bæði stigin, sem hefði skapað þeim yfirburða stöðu á toppi 1. deildar, en það tókst ekki, og lauk leiknum þvi með jafntefli, 2-2. — GÞ — Magnús Guðinundsson bjargar þarna skoti frá Asgeiri Elfassyni ileiknum igærkvöldi. NESCO HF Hvar var KR

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.