Vísir - 09.08.1972, Page 1

Vísir - 09.08.1972, Page 1
fnjj VÍSIR 62. árg. — Miövikudagur 9. ágúst — 178. tbl. Ógnar tolvan okkur? Stafar okkur mikil hætta af tölvunni? Það mundi hermaður- inn segja, sem var hafnað i úr- valshersveit, af því að tölvan sagði, að hann hefði verið af- brotamaður. En afbrotið reynd- ist hann hafa framið, þegar hann hnupiaði í búð 10 ára gam- all! Alþjóðiega lögfræðinganefnd- in varar við ógninni, sem geti stafað af tölvum og „stað- reyndabönkumVerða þar geymd og „aldrei gleymd og fyrirgefin” mistök manna ævi- langt. Geta yfirvöld „flett upp” um hegðun og feril allra ein- staklinga i framtiðinni? SJA BLS. 6 * Puðararnir með „breiðu bökin" Gamla fóikið getur vist farið að rétta úr kútnum á ný, — rikisstjórnin gafst upp fyrir gagnrýni i blöðum á það hneyksli hvernig gamla fólk- ið var leikið. En það eru margir fleiri, sem eiga skattalögunum grátt að gjalda, t.d. forsvarsmenn stórra fjölskyldna, sem leggja nótt við dag til að ná endum saman. Þeir eru i hópi „breiðu bakanna” og borga skatta eins og millar. Sjá L.EIÐARA á bls. 6. Skókfrœðingar ó hverju götuhorni Loks kom að því að hann Siggi okkar Sig. fengi stuðn- ing i lesendadálkunum okk- ar_ — það var ekki seinna vænna. „Siðustu vikurnar hafa sprottið upp sérfræð- ingar i skák á hverju götu- horni og þykjast þeir allir vita allt um skák og skáklýs- ingar”, segir lesandinn. Við visum á bls. 2 LESENDUR HAFA ORÐIÐ Real Madrid tiðið heimsfrœga sem kemur hingað — sjá íþróttir í opnu Útlendir sœkja enn meir til Islands Þvi er fleygt, að i Austur- stræti megi nú sjá fleiri út- lendinga en tslendinga. Alla vega hefur straumur ferða- manna til landsins aukizt gifurlega mikið frá i fyrra. Hátt á f'jórða ‘þúsund fleiri ferðamenn koma til landsins i júli i ár en i sama mánuði i fyrra. I fyrra komu til landsins i júli 12335 erlendir ferðamenn en sambærileg tala nú er 16128 derðamenn. Yfirleitt láta þeir er sækja okkur heim vel af landi og þjóð, og oft gengur erfiðlega að fá þá til þess að láta i ljós óánægju ef hún þá fyrir- finnst. Við röbbuðum við nokkra ferðamenn inni i Laugardal, og þeir fengust til að segja hverjir væru helztu gallar á Islandi. Þeir taka lika myndir þessir ferðamenn, en óánægja þeirra yfir verði lit- filma er mikil. Sjá bls.: 2og baksiðu Lögreglan tekur bíla af hraðaksfursmönnum — fó þó ekki fyrr en dómari hefur fjallað um mól þeirra ,,..Og þeir fá ekki bílana sína aftur, fyrr en þeir eru búnir að mæta fyrir dómara," sagði óskar ólason, yfirlögregluþjónn, um tvo bílaeigendur, sem bílarnir voru teknir af um Verzlunarmannahelgina, þegar þeir voru staðnir að því aðaka á 110 og 120 km hraða. „Það hefur alltaf verið gert ráð fyrir þvi, að lögreglan gæti tekið úr umferð bila þeirra manna, sem sýna af sér glæfralegt gáleysi i akstrinum en það hefur sjaldan komið til þessa” sagði i yfirlögregluþjónninn. En i þessum tilvikum, sem bæði áttu sér stað um eina mestu slysahelgi ársins, þá hikaði lögreglan ekki. Siðdegis á sunnudag þegar stöðugur straumur bifreiða lá hér um Suðurlandsveginn veittu lögregluþjónar eftirtekt bil skammt frá Litla-Kaffi i Svina- hrauni, og virtist ökumaðurinn leggja allt kapp á „að hreinsa hina af sér”. Hann ók fram úr hverjum bilnum á eftir öðrum og óku þó flestir á 70-80 km hraða. Lögreglumennirnir hófu eftir- för en þeir náðu ekki ökuþórnum fyrr en við Hveragerði, en þá viðurkenndi hann að hafa ekið á ca 120 km hraða, „vegna þess að hann var aðflýta sér heim til kunningja sinna heima á Selfossi.” Honum var snúið við, og billinn tekinn af honum og kyrrsettur, íbúar mótmœltu — og bœjarstjórinn ígrundar nú hvar eigi að reisa nýtt „Ungó" fyrir Keflvíkinga Ungó i Keflavik — þ.e.a.s. hús ungmennafélaganna þar suður frá, hefur hingað til verið aðal- dansstaður Keflvikinga og raunar margra fleiri á Suðurnesjum. Nú finnst ungmennafélögunum að gamla Ungó sé orðið of litið og stcndur fyrir dyrum að hefja byggingu nýs félagsheimilis. Var ákveðinn staður fyrir nýja húsið við Hringbraut, þar sem fyrir eru ibúðarhús. Væntanlegir nágrannar ung- mennafélaganna og ballgesta framtiðarinnar brugðu þá við hart og söfnuðu undirskriftum — mótmæltu með þvi staðarvalinu. Sögðu að ótækt væri að hafa skrallstað eins og Ungó inni i ibúðarhverfi, óunandi væri að búa við ónæði af ballgestum. Jóhann Einvarðsson bæjar- stjóri i Keflavik sagði Visi, að motmæli ibúanna hefðu borizt i siðustu viku, og væri hann nú að kanna málið frá báðum hliðum. „Það kann svo að fara að husið verði sett niður einhvers staðar annars staðar — eða þá að þvi verður þannig fyrir komið á lóðinni, að dragi úr hættu á ó- næði.” — En er fyrirsjáanlegt að þetta félagsheimili ungmennafélag- anna verði ballstaður? „Já, — ef það verður rekið eins og gamla félagsheimilið. Þar eru haldin böll um hverja helgi og stundum tvö. Það verður að at- huga þetta mál vel, og ég vil ekkert um niðurstöðuna segja.” - GG. Spasskí daufur í dólkinn — en nú kemur hans „betri helmingur" Spasski er frekar rólegur þessa dagana og iviö daufari i dálkinn en hans er venja. Helzta hobbiið hans er að spila tennis við aðstoðarmann sinn Nei en nú er hann reyndar búinn að fá annan andstæðing. Er sá Isak Boleslavski hinn kunni meistari og skákbókahöfundur. Boles- lavski er einnig þekktur þjálfari i Sovét og hefur þjálfað fýrrvér- andi heimsmeistara Tigran Petrosjan m.a. fyrir einvlgið við Spasski 1966. Boleslavski mun dvelja hér þar til einvigið er yfirstaðið. i dag er von á eiginkonu Spasskis, Larissu, til landsins —GF Lúxushjól, en engin öryggishjól „Pabbi, viltu kaupa hjól?” Fyrr eða síðar koma krakkarnir með þessa bón. Og þá er það ekki talið ráð- legt að ana beint i næstu reiðhjólaverzlun og kaupa fyrsta gripinn, sem pabban- um lizt vel á, — nú eða barn- inu.. Margs ber að gæta i valinu. Það eru lúxushjól I umferð I Reykjavik um þes's- ar mundir, sem eru alls ekki smiöuö með öryggi I huga. — Sjá INN-sföu á bls. 7. svo að ekki væri hætta á þvi að hann færi aftur á stúfana, meðan umferðin væri svona mikil á þjóð- vegunum. Sama dag var annar maður staðinn að þvi að aka á 110 km hraða og var honum einnig snúið við til Reykjavikur þar sem bill hans var kyrrsettur af sömu ástæðum. Lögreglumenn þekkja af reynslunni, að það hefur ekki alltaf hrifið, að taka ökuskirteinin af ökumönnum, sem gerzt hafa brotlegir. Sumir hafa freistazt til þess að aka bilum sinum samt, þrátt fyrir bráðabirgðasviptingu ökuréttindanna. En með þvi að halda bilnum þeirra eftir, er loku skotið fyrir þá freistni. Að margra mati er þetta ekki aðeins öryggisráð heldur einnig liklegt til áhrifa af fyrirbyggjandi ástæðum. Fullt eins liklegt til þess að hrifa i þá átt, að menn virði betur umferðarlög og reglur, eins og sektirnar — ef ekki öllu frekar. GP.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.