Vísir - 09.08.1972, Síða 9

Vísir - 09.08.1972, Síða 9
8 Visir ÍVliðvikudagur 9. ágúst 1972 Visir Miövikudagur 9. ágúst 1972 9 Um aldamótin þýddi orðið fótbolti í Madrid lítið annað en köll nokk- urra stráka, sem bárust inn um gluggann á veitingastaðnum ,,La Taurina" og truflaði gestina í sam- ræðum um nautaat, en þessi litla krá var mitt á nautaatssvæði borg- arinnar. Á veggjum hengu litmyndir af frægustu matadorunum, og þeir voru einnig „prýddir" nautshausum. Skeggrætt um afrek dagsins — hetj- urnar frá völlunum — mann eða naut. Og utan að barst hróp drengj- anna í hinum nýja leik — nýs keppi- nautar „þjóðaríþróttarinnar", — leik, sem hafði borizt með enskum sjómönnum eða verzlunarmönnum, fyrst til hafnarborganna, en síðan fljótlega lengra inn í landið. Og í Madrid höfðu stúdentar fyrst tekið leikinn upp á stna arma og byrjað að elta knöttinn, en margir þeirra höfðu stundað nám á Englandi. Eigandi „La Taurina" hafði af skiljanlegum ástæðum í fyrstu nokkum beyg af þessu uppátæki drengjanna og hinum nýja leik þeirra, því krá hans var byggð upp kringum nautaatið — fengið orð af því — og var samkomustaður aðdá- enda þess. Og aðsóknin minnkaði, því samræður gestanna voru truflaðar af öðrum leik. Gestirnir reyndu í fyrstu að kalla ókvæðisorð til strákanna, en það fældi þá ekki frá knettinum og því fór svo, að þeir reyndu að finna sér annan stað, þar sem þeir gátu verið í friði með sitt „at". Og þeg- ar stundir liðu fram tók eigandi líka það ráð, að leigja lítinn hluta húss síns fyrir búningsherbergi knatt- spyrnumanna. Úr því fæst aldrei skorið hvort hann gerði það af fjár- hagsástæðum eða ást á hinum nýja leik. En hvað sem því líður var þetta byrjunin á miklu ævintýri — Real Madrid Club de Fútbol, félagsins, sem átti eftir að verða bæði Evrópu- og heimsmethafi, samsteypu, sem hvergi á sinn líka. Real Madrid hefur raunverulega verið til frá 1898, en fyrstu fjögur árin byggðist tilvera þess á því, sem að framan er skráð, en 9. marz 1902 lýstu nokkrir stúdentar yfir form- legri stofnun félagsins. Orðið „Real", sem þýðir konimg- legur, var fyrst tengt félaginu 1920, sem sérstakt heiðurstákn við Alfonso konung 13. Þá var knattspyrnan við- urkennd á Spáni, og Madrid félagið fengið þýðingu. Áhangendur nauta- atsins notuðu ekki lengur ókvæðis- orð, já, og margir þeirra höfðu meira að segja snúið baki við því vegna knattspyrnunnar. Og í dag 1 - er engin spurning um það hvor greinin nýtur meiri vin- sælda á Spáni. Knattspyrnan hefur sigrað. Þar sem áður hengu myndir af hinum fræga mattador Juan Bel- montes eru nú myndir af de Stefanó, Puskas og Gentó og öðrum þeim, sem stærst hlutverk hafa leikið i sögu Real Madrid. Frá þvi Real Madrid hóf göngu sina við hlið nautaatssvæðanna hef- ur það oft flutt starfsemi sina. Fyrir mörgum árum lék Real í Velodromen í Ciudad-hverfinu. Þaðan flutti fé- lagið til hins gamla Chamartin-leik- vangs, þar sem 20 þúsund áhorfend- ur rúmuðust. Þar lék Real þangað til hinn nýi Chamartin-leikvangur var byggður — eins og turn úr jámi og stáli. Og til þess að hylla þann mann, sem gerði þá byggingu mögulega, vai' hinn nýi leikvangur skírður eftir Santiago Bernabéu, forseta Real Madrid. Leikvangurinn rúmar 125 þúsund áhorfendur, en nú er unnið að byggingu sæta kringum allan völlinn og á hann í framtíðinni að rúma 200 þúsund áhorfendur. Að vera stór er atriði, en að vera jafn- framt fagur og skemmtilegur leik- vangur er annað og meira og Esta- dio Santiago Bernabéu er vissulega einn fegursti leikvangurinn í Evrópu — ef til vill i öllum heiminum. Hann er aðeins byggður sem knattspyrnu- völlur og þess vegna án hlaupa- brauta og annars, sem skaðar heild- arsvipinn. Útsýnið frá hverju einasta áhorfendasvæði er fullkomið — jafnt ódýrra sem dýrra. Tekið var tillit til þess, þegar leikvangurinn var að- eins teikniborðs-völlur. Og svæðið kringum leikvanginn er notað til margra hluta. Ef maður fer inn á völlinn gegnum aðgangs- dyr leikmanna gengur maður fram- hjá stórum, fögrum sundlaugum með stökkpöllum og eigin bar!! Annars má geta þess að við hvem inngang leikvangsins er sérstakur barsalur i þessu mikla vínsins landi. Þrír stórir leikfimisalir eru í stöðugri notkun og þar kenna útlærðir kennarar. Þá er þar mjög fullkominn körfu- knattleiksvöllur, margir handknatt- leiksvellir. Búningsherbergin eru næstum óteljandi — öll stór og vel upplýst, þægileg og nýtízkuleg. Að- skilin frá hinum mörgu baðherbergj- um er upphituð innanhússlaug. Þá eru borðsalir, fundarsalir og lækna- stofur og þar á meðal fullkomin skurðstofa, Eftir hinum endalausu göngum komumst við að íþróttaverzl- un og lengra áfram að vinnustofum fyrir blaðamenn, útvarpsmenn og sjónvarpsmenn. Á leikdegi.vinna 800 manns á þess- um volduga leikvelli, allt frá læknum til dyravarða. Rafmagnsmenn, þjón- ar, ávaxtasalar, barþjónar, lögreglu- menn, skrifstofufólk, hreingeminga- konur og margir, margir fleiri. Að vera staddur mitt á milli þess á slík- um degi er raunverulega mikil reynsla. Maður verðúr var við ör hjartaslög leikvangsins í hreyfing- um og hljóðum, gleði eða sorg á- horfendafjöldans, þar til á því augna- bliki, að flauta dómarans hljómar í síðasta sinn í leiknum. Hér er leiksviðið fyrir liðið, sem við — eins og Spánverjarnir — virð- Fjölskyldur leikmanna Real Madrid njóta lifsins í hinum glæsilegu úti- sundlaugum. um og höldum uppá — Real Madrid. Á þessum leikvelli er hin mikla bar- átta háð, sem geymir svo margar góðar minningar. Höfuðstöðvar Real Madrid ná yfir mjög stór svæði á Plaza de la Ci- beles, stað, sem Madrid-búar halda mjög upp á. Á flestum stöðum heirhs myndi athafnasvæðið þykja yfrum nóg, en hjá Real er vandamálið mót- stætt — því félagið óskar eftir stærra athafnasvæði. Innan bygging- arinnar hefur hver deild sína sér- stöku skrifstofu, auk þess, sem stór herbergi eru fyrir framkvæmdastjórn félagsins og eigendur. , Á hverjum degi er þarna iðkaður auk knattspyrnunnar, körfuknattleik- ur, tennis, handknattleikur, blak, frjálsar íþróttir og rúlluskauta-knatt- leikur. Ótal mót eru ha'din. Að sér- hverri íþróttagrein, sem er á stefnu- skrá félagsins, er sérstaklega hlúð. Leikfimimót, júdó, borðtennis, glímu- og hnefaleikakeppni setja svip sinn á staðinn. Auk þess eru fleiri íþrótta- greinar iðkaðar svo sem lyftingar, róður, rugby, baseball, fjallgöngur, skylmingar og sund. í mörgum. þess- um greinum vinnast spánskir imeist- aratitlar, sem gera sitt til 'þess að varpa meiri ljóma á nafnið Real Madrid. Það þarf mikinn dugnað til að reka slikt stórfyrirtæki, og merki- legt að það skuli takast i einu ein- stöku félagi. Og Fiesta Alegre glitrar eins og danssalur i kóngaheimsókn, þegar maður litur yfir hina ýmsu bik- ara og minjagripi i hinum einstöku deildum félagsins. Aðgangur að Fiesta Alegre er frir fyrir hina 50 þúsund félagsmenn i Real Madrid. og þeir borga aðeins 25 peseta — um 18 krónur — á mánuði fyrir að sjá alla mótaleikina og jafnframt flesta bikar- og vináttuleiki. Og þar er einnig innifalinn aðgangur að öllum öðrum mótum félagsins. Einnig eru tvö til þrju þúsund manns, sem horfa á æfingar. og þessi tala tvöfaldast oft, þegar körfuknattleiksliðið æfir, en Real hefur átt bezta lið Spánar i þeirri iþróttagrein i mörg ár. Real Madrid tekur nú ekki á móti fleiri félagsmönnum, og ef fram- kvæmdastjórinn myndi ákveða að opna félagið aftur myndi félagatalan tvöfaldast eöa jafnvel þrefaldast. Og meðal þeirra 50 þúsund, sem nú eru i félaginu, eru þrir af rikustmmönnum Spánar. Auk þessara 50 þúsunda eru mörg þúsund, sem hafa föst áskrif- endakort yfir keppnistimabilið. Þeir borga ákveðna upphæð á hverju ári eftir þvi hve gott sæti þeir hafa. Á þessi kort fá þeir leyfi til að sjá alla deildaleiki félagsins og flesta innlenda bikarleiki. En á Evrópubikarleiki eða aðra stórleiki verða þeir, sem hafa áskrifendakort, að greiða sérstaka upphæð hverju sinni, sem er ákveðin af félagsstjórninni. En hvað sem þvi liður er sætið frátekið og þegar litið er á allt keppnistimabilið er þaö ekki svo litill peningur, sem hlutaðeigandi verður að greiða á hverju ári. Og hvað með manninn á götunni? Hve mikið getur hann greitt til að sjá knattspyrnu? A beztu deildaleikina, það er að segja milli aðalkeppinauta Real, Barcelona eða Atletico de Mad- rid, kosta dýrustu sætin um 225 peseta — eða um 200 krónur. Ef hann er ánægður með stæði á þriðju svölunum — þaö er efst uppi — sleppur hann með 10 eða 12 peseta. Engir áhorfendur i heiminum eru jafn fast hnýttir félagi sinu og þeir hjá Real Madrid. Og árangur félagsins hefur gert þá gagnrýna. Þegar Manch. Utd. kom i heimsókn 1957 til aö leika fyrri leikinn i Evrópu- bikarkeppninni voru áhorfendurnir yf- ir sig æstir frá þvi leikurinn hófst. Enginn gleymir, sem séð hefur, tug- þúsundum veifandi vasaklúta eða hvitum blómum varpað niður á völl- inn. Þetta voru rafmagnaðir áhorfend- ur. En i dag sitja áhorfendurnir kaldir i sætum sinum fyrstu minúturnar og verða ekki virkilega hitaðir upp fyrr en hetjur þeirra eru komnar tveimur til þremur mörkum yfir. Þá fyrst hljómar keppniskallið „Madridf Mad- rid, R-Ra-Ra. Þeir æpa — með villt augu og heitt blóð, æpa eftir fleiri mörkum. fleiri skotum, meiri lista- brag — og þá man enginn eftir sög- unni. sem hófst i ,,La Taurina” rétt fyrir aldamótin, sögu sem er einsdæmi meðal iþróttafélaga heims. (Lausleg endursögn úr bók um Real Madrid. — hsim). .lóhanii Eyjólfsson, sá kunni iþróttamaður, sem mcðal annars lék lengi i mcistaraflokki Vals i knattspyrnu, var mjög sigursæll á Is- laudsmótinu i golfi og sést hann hér taka á móti verðlaunum sinum frá Páli Ásgeiri Tryggvasyni, formanni Gt. —Ljósm.BB. Stöðvar Breiðablik sigurför Akraness? Keppnin i 1. deild hefst að nýju i kvöld eftir nokkuð hlé með leik Breiðabliks og Akra- ness á Melavellinum og nú er stóra spurningin. Tekst Breiða- bliki að stöðva sigurgöngu Akurncsinga i mótinu? Akurnesingar — þrátt fyrir meiðsli ýmsra kunnra leik- manna — hafa náð mjög góðum árangri i siðustu leikjum sinum og sigrað i fjórum i röð, skorað tólf mörk gegn fjórum og skotizt upp i annað sætið á eftir Fram. Breiðablik hefur unnið tvo siðustu leiki sina og þarf varla að óttast fall úr þessu, svo leik- menn liðsins verða áreiðanlega afslappaðri en meðan þeir ótt- uðust fall. Það ætti að gera leik liðsins léttari á allan hátt. En dugar það gegn Skaga- mönnum? Sagt er, að Akurnes- ingar leiki ekki eins vel á möl og grasi, en i leiknum i fyrra sýndu þeir þó vel getu sina á mölinni á Melavellinum i leiknum gegn Breiðabliki og sigruðu með 5-0. Svo virðist sem Akurnesingar hafi haft tak á Breiðabliki sið- ustu árin, en Blikarnir hafa mikinn hug á að nú verði á breyting. Næstu leikir i mótinu verða svo á laugardag. Stórleikurinn á Akranesi, sem allir bíða eftir — Akranes—Fram — verður kl. 16, og á sama tima leika IBV og IBK i Vestmannaeyjum. A mánudag leika KR og Breiða- blik á Laugardalsvelli, og Valur og Vikingur á þriðjudag. J. Charlton að kveðja i annaö skipti i sumar hefur Lceds leitaö til nágrannaliös sins i Yorkshire — Huddersficld Town — og kcypt frá þvi leik- mann lyrir stórupphæð. i gær var miðvörðurinn Ray Ellam keyptur fyrir 100 þúsund pund, en fyrr hafði Leeds keypt Trcvor Cherry fyrir söinu upp- hæð. Báðir þessir lcikmenn eru injög sterkir varnarmenn og er greinilegt að þeir eiga að koma i stað Jackie Charlton, 37 ára, sein sagði eftir þessi kaup Lecds i gær, að liann reiknaöi ckki með þvi að verða i aðalliðinu allt næsta leiktímabil. Jackie, sem var i heimsmeistaraliði Eng- lands 1966, hefur vcrið miðvörð- ur Leeds siöustu 16 árin. Siöustu tvö-þrjú árin licfur Jackie Charlton oftlega verrð boðið að gcrast framkvænrda- stjóri liða og jafnframt lcik- maður, cn hann ckki tekið þvi, þar sem Leeds hefur þurft á honum að halda. En mcð þessum kaupunr á báðum miðvörðum Huddcrs- ficld opnast inögulciki hjá Charlton að láta nú af þvi verða að taka við einhverju liði meðan hann gctur cinnig leikið með þvi. Vist er, að injög verður sólzt eftir hónum, þvi Charlton hefur lokið prófum sem knatt- spyrnuþjálfari og hefur náð árangri i þvi starfi. Hann hefur verið þjálfari i Lecds jafnframt þvi, sem hann hcfur leikið. En hvað scm þessu liður þá verður sjónarsviptir að „stóra giraffanum”, þegar hann hættir að lcika með I.ecds. Framlínan öll til sjós Það gengur ekkert of vel að manna liðin hjá ýmsum minni knatt- spyrnufélögunum úti á landi. Þannig eröll frarh- linan hjá þeim i Víkingi á ólafsvik til sjós, — og menn vona bara að þeir verði allir i landi þegar leika skal við Strandamenn í Ólafsvik um næstu helgi. Já, það er sannarlega ekki einfalt mál að halda úti knatt- spyrnuliði, þegar svo er ástatt að vera má að allir framlinu- mennirnir verði úti á ballarhafi, þegar mikilvægur leikur fer fram. Vikingar unnu nýlega héraðs- mót Snæfells- og Hnappadals- sýslu, en i þvi móti tóku þátt 4 lið. Unnu þeir 4 leiki, gerðu eitt jafntefli, og töpuðu einum, skoruðu 28 mörk gegn 8, fengu 9 stig. Vikingar gerðu jafntefli við Grundfirðinga, sem komu næstir á töflunni meö 7 stig, en töpuðu fyrir Stykkishólms- mönnum 3:4 i heimaleik, en Stykkishólmur átti engan heimavöll i keppninni, þeirra völlur þykir óhæfur með öllu til keppni. Þó náðu Hólmarar 7 stigum, en Staðarsveitungar aö- eins einu stigi. Hópferð til Madrid? t»aö er draumur allra litilla félaga að dragast gegn stórveldum knatt- spyrnunnar i Evrópu- keppni og á þvi sviði hef- ur lánið leikið við Kefl- vikinga. Nú drógust þeir gegn Real Madrid — þekktasta knattspyrnu- liöi lieims. ÍBK leikur fyrri leikinn i Mad- rid, 13. september, og miklar lik- ur eru á, að efnt verði til hópferð- ar á leikinn héðan —"Teyndar nær öruggt. Keflvikingar munu þá halda utan 10. september með lið sitt og stuðningsfólk. Fyrirhugað er, að ferðin taki tiu daga þarna i sólinni á Spáni — horft á leikinn og siðan ferðast eitthvað um. Siðari leikur liðanna verður hér i Reykjavik miðvikudaginn 27. september og þá að öllum likind- um leikið á Laugardalsvellinum. Vegna þess að þá er farið að bregða birtu má leikurinn ekki hefjast sfðar en kl. sex — jafnvel fyrr. STAÐAN í 1. DEILD Staðan fyrir leikinn i kvöld er þannig: Fram 8 5 3 0 19-10 13 Akranes 8 6 0 2 18-10 12 Keflavik 9 3 4 2 16-13 10 Breiðablik 8 3 2 3 8-13 8 KK 8 3 1 3 13-13 7 IBV 7 2 2 3 15-16 6 Valur 7 1 3 3 11-12 5 Vfkingur 9 1 1 7 2-15 3 Markhæstu leikmenn i deildinni eru: Eylcifur llafsteinsson, IA 9 Atli Þór Iléðinsson, KR 7 Steinar Jóhannsson, ÍBK 7 lngi Björn Albertsson, Val, 6 Kristinn Jörundsson, Frarn 5 Teitur Þórðarson, ÍA 5 Tómas Pálsson, iBV 5 Erlendur Magnússon, Kram 4 Marlcinn Geirsson. Kram 4 STAÐAN w 1 2. DEILD Akurey. 9810 34:8 17 FH 9720 25:8 16 Völsung. 9522 20:14 12 Þróttur 8332 16:14 9 Selfoss 9306 15:18 6 Haukar 10 2 0 8 11:21 4 Armann 7205 8:19 4 Isafjörð 7007 5:32 0 Þrír leikir vcrða i deildinni á laugardag. Völsungur- Ármanii, IBI-Þróttur, og FH- IBA, slórleikurinn efstu liða. Kári Arnason ÍBA 10 Iireinn Elliðason Völsung. 9 Sumarl. Guðbjartss. Self 9 Helgi Ragnarsson FH 8 STAÐAN í 3. DEILD A-riðill (SV-land): Víðir 10 7 2 I 36:11 16 Fylkir 9 4 3 2 20:10 11 Keynir 9 4 2 3 22:12 10 Njarðvik 8 3 14 15:17 7 Stjarnan 7 3 13 13:11 7 11rönn 7 2 0 5 11:26 4 Grindavík 8 11 6 6:36 3 H-riðill (Vcsturland): Vikingur 5 3 1 0 14:5 7 Borgf. 5 2 2 1 13:9 6 Bolvfk. 5 13 1 7:10 5 Strandam. 5 0 2 3 7: 17 2 Siðustu leikir 12. ágúst. C-riðilI (Noröurland) LOKASTADAN: Siglufjörður 6 4 0 2 14:6 8 Skagfirðingar 6 3 1 2 15:13 7 Grenivik 6 2 2 2 7:14 6 Ólalsfj. 6 1 1 4 11:14 3 O-riðill (Austurland ): Þróttur 7 7 0 0 46:5 14 Lciknir 7 4 1 2 26:17 9 KSII 5 3 0 2 9:8 6 Austri 5 1 2 2 11:15 4 Spyrnir 6 114 10:29 3 lluginn 6 0 0 6 4:32 0

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.