Vísir - 16.08.1972, Qupperneq 4
4
Visir Miðvikudagur 16. ágúst 1972
Umsjón:
Edda Andrésdóttir
Sterkastur af öllum nírœðum
llann er kaliaður „litli
Samson”, en það er alls ekki hans
rctta nafn. Hann heitir fullu
nafni, Joe Greenstein, og ef hann
cr ekki lengur sterkasti maður i
heimi, er hann að minnsta kosti
sá sterkasti af öllum niræðum
mönnum i heiminum. Hann hefur
verið sagður einn af sterkustu
mönnum í heimi i næstum 70 ár.
()g hann hefur til dæmis sett mörg
met i lyftingum.
Greenstein er pólskur að upp-
runa, og enn er svo mikill kraftur
i honum, að hann beygir járn og
stál eins og ekkert sé, rekur nagla
i spýtur með þvi einu að slá með
höndinni á þá og hann gerir fleiri
kúnstir.
Útlit hans er eins og fólk imyndar
sér margar persónur i Bibliunni.
Og ekki nóg með það,hann hyggst
lifa svo lengi, sem margir hverjir
gerðu þá. Hann segist ætla að
verða 197 ára gamall.
Þegar hann var barn að aldri,
var talið að hann mundi ekki lifa
lengur en til 18 ára aldurs, vegna
mjög veikra lungna sinna. Green-
stein strauk þá að heiman, og
slóst i för með sirkus-farandflokk.
Þar kynntist hann kraftajötni,
sem tók hann upp á sina arma.
Hann kom honum upp á hollt
mataræði og hollar lifsvenjur, og
hann þakkar honum langt lif sitt.
Greenstein borðar mestmegnis
fisk, grænmeti, vatn, ávexti, egg,
og örlitið kjöt. Hann hefur verið
giftur i 72 ár, og kona hans er 88
ára gömul. Þau eiga hvorki meira
né minna en 10 börn, 20 barna-
börn og 21 barnabarnabarn.
Eitt af barnabörnum hans, 30
ára gamall lögregluþjónn segist
aldrei mundu treysta sér til þess
að takast á við hann. ,,Kraftar
hans eru svo ógurlegir, að hann
gæti myrt mann.”
i þessari stóru villu búa þau hjón Sophia Loren og Carlo Ponti, og þarna hefur Sophia einangrað
sig i þrjá mánuði og mun gera á meðan á meðgöngutimanum stendur. örin vlsar á svefnher-
bergi hennar.
SOPHIA LOREN
MÓÐIR AFTIR
Sophia Loren hefur nú
loks fengiö sína stærstu
ósk uppfyllta, hún á von á
barni aftur. Hvort barnið
svo mun fæðast á eðli-
legan hátt, veit enginn
ennþá. Hún verður að
fara sérstaklega vel með
sig, ef henni á að takast
að fæða barnið, og helzt
verður hún að liggja
sífellt í rúminu.
Þetta þurfti Sophia að gera er
hún gekk með siðasta barnið
sitt, Carlo, og meðgöngutiminn
vár henni erfiður. En þrátt fyrir
stöðugar rúmlegur og eilifa
hræðslu um að missa fóstrið,
hefur það verið hennar heitasta
ósk að eignast annað barn.
Eins og er, liggur hún rúmföst
alla daga i hinni stórglæsilegu
villu, hennar og Carlo Ponti,
rétt fyrir utan Rómaborg. Hún
verður að fara mjög gætilega,
og ekki má vera erill og þys i
kringum hana.
Sonur hennar, Carlo, er nú
orðinn fjögurra ára gamall, og
nú fær hann sennilega systkin.
Sophia varð mjög hamingju-
söm, þegar einkalæknir þeirra
hjóna Dr. Wattewille, tilkynnti
henni að hún væri vanfær, en
hamingjan breyttist þó fljótt i
kviða.
Hún fékk allt i einu miklar
blæðingar, og dr. Watteville,
sem staddur var i Frakklandi,
var þegar kallaður til hennar.
Hann tók sér einkaflugvél til
Grikklands. og sá fljótt að ótti
Sophiu, var alveg ástæðulaus,
að þessu sinni. En hún var þó
flutt á sjúkrahús Wattevilles i
Sviss, um nokkurn tima.
Hún hefur nú einangrað sig
algjörlega i einbýlishúsinu fyrir
utan Róm i þrjá mánuði, og
tekur ekki á móti nokkrum,
nema móður sinni, systur og svo
eiginmanni. Hún hefur ekki sézt
opinberlega nema einu sinni i
þessa þrjá mánuði, og það var
þegar vinur þeirra hjóna hélt
samkvæmi, i tilefni útkomu
nýrrar bókar, sem hann gaf út.
Leikrit um drottningar
móðurina og hertoga-
ynjuna af Gloucester
Merkur viðburður i brezkri
leiklist á sér nú stað i Englandi.
Æfingar á leikriti um brezku
Royal-fjölskylduna, konungsfjöl-
skylduna, hefjast nú i september.
Ekki fjallar leikritið þó um nú-
verandi valdhafa i Bretlandi,
heldur móður Elisabetar II. og
hertogaynjuna af Gloucester,
frænku hennar.
Leikritið er samið af Royce
Ryton, en þar til árið 1968, voru
sýningar á leikritum um allar lif-
andi persónur i Royal fjölskyld-
unni bannaðar af Chamberlain
lávarði.
Peter Dews, sem leikstýrði
leikritunum Vivat Regina og
Hadrian VII. mun stjórna þessu
leikriti einnig, en það hefur ekki
enn fengið nokkurt nafn. Hverjir
munu fara með hlutverk drottn-
ingarmóðurinnar og hertogaynj-
unnar ér enn ekki vitað. Tilkynnt
hefur verið um leikritið til Buck-
ingham hallar, en svar hefur ekki
borizt.
Þessi mynd var tekin við það
eina tækifæri, sem hún hefur
sézt opinberlega i þrjá
mánuði.