Vísir - 16.08.1972, Síða 16
VÍSIR
MiAvikudagur 1(>. ágúst 1972
Só ekki stóran
olíubíl og ...
krass!
Stærúar oliubfll og litill fólksbill
rákust harkalega á vió gatnamót
Byggðarvegar og Þingvalla-
strætis á Akureyri i gærmorgun.
Vió áreksturinn kastaóist litli
billinn tugi metra frá horninu.
Þrátt fyrir stærð oliubilsins
hafði ökumaður fólksbilsins ekki
tekið eftir honum. Hann hafði
verið á leið suður Byggðaveg og
átti biðskyldu gagnvart oliu-
bilnum, sem ók austur Þingvalla-
stræti. Trjágróður stendur á
vesturhorni þessara gatnamóta
og skyggir á umferðina.
ökumanni oliubilsins tókst að
stöðva bilinn, en þó ekki fyrr en
um leið og áreksturinn varð.
Af loftköstunum, sem litli
billinn fór, héldu men i fyrstu, að
ökumaður hans væri stór-
slasaður, og var hann fluttur I
ofboði á sjúkrahúsið. En 15
minútum seinna var hann kominn
aftur á slysstaðinn, þar sem
meiðsli hans reyndust ekki alvar-
leg. - GP
Lélegasta
einvígi
aldarinnar?
að stytta vinnutimann, svo
meiri timi gefist til þess að ala
börnin upp”.
Svo segir Auður Þorbergs-
dóttir, fyrsti kvendómari sem
skipaður hefur verið hér á
landi. A mánudag skipaði
forseti Islands hana i embætti
borgardómara.
,,Ég veit ekki hvort þetta
kom mér á óvart. Maður
sækir um stöðuna og reiknar
bæði með þvi að fá hana og fá
hana ekki. Það er bara annað-
hvort...”
Auður hefur starfað sem
fulltrúi i 9 1/2 ár, og þegar við
inntum hana eftir þvi, hvort
starf hennar myndi breytast
eitthvað að ráði, svaraði hún
þvi til, að þetta væru ósköp
svipuð störf, en þetta væri
önnur réttarstaða og starfs-
heiti i samræmi við starf.
„Vinnutimi minn er frá 9-5,
og ég held mér muni lika
þetta starf mjög vel. En eins
og ég segi, fyrra starf mitt og
þetta er svo svipað. Þetta er
liflegt og fjölbreytilegt starf,
þaö eru til dæmis engin tvö
mál eins. — Nei, ég held ég
muni alls ekki gjalda þess að
ég er kona.”
„Annars er stutt siðan að
farið var að lita á konuna sem
fólk. Það er eiginlega ekki
fyrr en nú á þrem siðustu
árum að hún fer að hækka i
sessi, en samt vantar enn
ógurlega mikið þar á En ef við
vikjum aftur að þeirri konu
sem vinnur úti, þá finnst mér
sjálfsagt að hún geri það, ef
hún á gott með að koma
börnum sinum fyrir. Ef hún
vill vera heima þá er það allt i
lagi. En það er ákjósanlegast
að við sem vinnum fyrir
gamla fólkinu og börnunum,
fáum styttri vinnutima og þá
gefst meiri timi fyrir börnin.”
—EA
„Nýfarið að líta á
konur sem fólk"
segir nýskipaður kvendómari, Auður Þorbergsdóttir
„Mér finnst alveg sjálfsagt
að kona vinni úti, og ég fyrir
mitt á lcyti á góða móður, sem
annast börnin min meðan ég
vinn. Svo á að hætta að kalla
það starf, scm karlmennirnir
vinna fyrirvinnustarf”. Hver
fullorðin manneskja ætti að
vinna fyrir sér sjálf, en það á
Auður Þorbergsdóttir fyrsti kvendómari okkar islendinga, ásamt börnum sinum. — „á góöa móður
sem annast börnin min, meðan ég vinn”.
GÓÐAR HORFUR Á SAM-
KOMULAGI UM UNDANÞÁGUR
— segir Kjartan Mohr lögþingsmaður
14. skákin viðfangsefni
fyrir sálfrœðinga, segir
bandaríski stórmeistar
inn Isaac Kashdan
Margir þekktir skákmeistarar
liafa nú látið i Ijós undrun sina á
lélegri taflmennsku beggja
keppenda i heimsmeistaraein-
víginu. Telja sumir að sjaldan
liafi gallaðra einvigi vcrið teflt og
keppnin öll beri vott um slæmar
taugar Spasski og Kiseber.
14. skákin tók þó út yfir allan
þjófabálk, telja þeir. Bandariski
stórmeistarinn Isaac Kashdan
sem rannsakar einvigisskákirnar
i Los Angeles segir að skákin i
gær sé frekar viðfangsefni
sálfræðinga en fræðimanna um
skák. Segir hann taflmennsku
beggja einkennast af miklu
taugastriði og óskiljanlegum
mistökum. Engu sé likara en að
báðir tefli undir styrkleika og að
hvorugur þeirra sé til sóma fyrir
skáklistina i heiminum. — GF
/,Þetta er ein stærsta
sendinefnd sem viö Færey-
ingar höfum sent til viö-
ræöu viö aðrar þjóöir enda
er hérum stórmól aö ræöa"
sagöi Kjartan Mohr lög-
þingsmaður i samtali viö
Visi i morgun.
Nefndin ræddi m.a. i gær við
Lúðvik Jósefsson sjávarútvegs-
málaráðherra. „Þaö hafa allir
tekið okkur mjög vel og ég tel
góðar horfur á að samkomulag
náist sem báðir aðilar geti verið
ánægðir með,” sagði Mohr. Hann
sagði að fyrst og fremst færu
Færeyingar fram á undanþágur
fyrir linu- og snurvoðabáta sina
innan við 50 milurnar. Margir af
þeim bátum væru orðnir gamlir
og það yrði erfitt að manna þá ef
þyrfti að senda bátana á miðin við
Grænland. Hér væri um að ræða
50-70 skip sem væru frá 30 tonnum
og uppi nokkur hundruð að stærð.
,,Af þjóðartekjum okkar koma
um 90% inn fyrir fisk svo það er
auðskilið hvers vegna okkur er
það kappsmál að fá undanþágur á
miðunum við Island.
Og eins og ég sagði tel ég að við
getum verið bjartsýnir á að það
takist. Viðhöfum hvarvetna mætt
velvild og skilningi” sagði Kjart-
an Mohr. Færeyska lögþingið
kemur saman i nóvember og hefj-
ast þá umræður að nýju um hugs-
anlega útfærslu landhelginnar við
Færeyjar.
Óku slysalaust um
verzlunarmannahelgina
Kók-auglýsing
braut reglur
segir útvarpsróð og vill hœtta birtingu auglýsingar fró Kók
Nú unnvörpum í órekstrum
Mesta slysahelgi ársins (sam-
kvæmt reynslu fvrri ára) liefði
átt að vera verzlunarmanna-
belgin. Kn i þrjá daga óku menn
landshorna á milli á þjóðvegun-
uin, þar sein þúsundir voru á ferð
i bilum sinum, og sluppu frá þvi
óhappalitið.
En á þriðjudegi viku seinna
komast menn varla á milli húsa á
bilum sinum, án þess að lenda i
árekstri. — 23 árekstrar urðu i
umferðinni i Reykjavik i gær,
þegar þaö gerði smárigningar-
sudda.
Meira þurfti ekki til
„Manni er alveg óskiljanlegt,
hvernig ökumenn komast klakk-
laust mörg hundruð kilómetra
vegalengd i mikilli umferð við
ókunnugar aðstæður, til þess svo
eins að lenda i óhöppum, þegar
þeir eru komnir á heimaslóðir,
aka rétt að heiman frá sér á
vinnustað,” sagði óskar ólason,
yfirlögregluþjónn, þegar blm.
Visis færði þetta i tal viö hann
fyrir nokkru.
Siðastliðna viku hefur vart liðið
sá dagur, að ekki hafi orðið 10
árekstrar að minnsta kosti i um-
ferðinni, sem er svo sem ekkert
spánýtt fyrirbrigði. Það hefur
varla þótt tiltökumál i Reykjavik
undanfarin 3 eða 4 ár, þótt
árekstrar yrðu upp undir 20 á
dag. I hálku að vetrarlagi
hrannast upp milli 30 og 40
árekstrar á einum degi.
En akstursskilyrði i hálku og
akstursskilyrði um hásumarið
eru sitt hvað. Og slæmum
skilyrðum verður ekki um kennt
fyrr en i gær, þegar hann rigndi.
Bleyta lagðist á bilrúðurnar að
utanverðu og móða að innan-
verðu. — Það hreif.
Meiðsli á fólki urðu engin i
þessum óhöppum, nema þá eitt-
hvað litilsháttar i tveimur til-
vikum. — GP
Sjónvarpsáhorfendur hafa
cflaust tekið cftir þvi undan-
farna daga, að auglýsing frá
Kóka-kóla hefur birzt livað
eftir aiiuað. Kr þessi auglýs-
ingainynd (í0 sekúndna löng og
sýnir hóp af ungmennum
standa á itölskum fjallstindi
og syngja á ensku dýröarsöng
um kók-drykkinn.
„Nú hefur útvarpsráð bann-
að birtingu þessarar auglýs-
ingar”, sagði Ólafur Stephen-
sen hjá auglýsingastofunni
Argus. en Argus annast aug-
lýsingar fyrir Kóka-kóla hér á
landi.
„Mér finnst þetta undarlegt,
að banna auglýsinguna, þegar
hún hefur fyrir það fyrsta ver-
ið sýnd annað slagið i 10 mán-
uði. og við höfum hér skriflega
staðfestingu á auglýsinga-
samningi við Sjónvarpið, þar
sem segir að myndin skuli
sýnd enn einn mánuð”.
Njörður Njarðvik, formaður
útvarpsráðs, sagði Visi að
kók-auglýsingin bryti i bága
við reglur Sjónvarpsins um
auglýsingar. Segir i þeim
reglum, að ekki megi flytja
auglýsingar, séu þær ekki á
hreinu og góðu islenzku máli.
„Þetta er svo augljóst með
þessa auglýsingu”, sagði
Njörður, „og við förum raunar
ekki fram á að auglýsingin
sjálf sé bönnuð. Okkur er ekk-
ert illa við Kóka-kóla. Við för-
um aðeins fram á að hún verði
lagfærð. Það nægir að setja
einhvern islenzkan texta inn i
myndina. Ef mennirnir gera
það, þá er ekkert þvi til fyrir-
stöðu að birta auglýsinguna”.
— En nú hefur myndin verið
sýnd lengi — af hverju er gerð
athugasemd núna?
„Það var vakin athygli á
þessu i janúar — og þá hvarf
auglýsingin. Svo skaut hún
aftur upp kollinum rétt fyrir
sumarfri Sjónvarpsins”.
Auður óskarsdóttir, auglýs-
ingastjóri Sjónvarpsins, tjáði
Visi, að hún hefði borið þessa
mynd undir gamla útvarps-
ráðið þá er Sjónvarpið fékk
myndina. „Þeim fannst allt i
lagi að sýna myndina — en svo
fór nýja ráðið að gera athuga-
semdir, og það var fyrir sum-
arfri, sem mér var bent á að
taka auglýsinguna út. Ég bjóst
þá ekki við að auglýsingin yrði
sýnd eftir fri, og þvi hélt ég að
málið félli niður þar með og
gleymdist”.
— „Ég sé ekki að þessi kók-
auglýsing brjóti i bága við
reglur um tal. Það er ekkert
tal i myndinni, heldur söng-
ur”, sagði Ólafur Stephensen
hjá Argus — ,,nú fer maður að
beina sjónum að fleiri auglýs-
ingum t.d. islenzkum auglýs-
ingum, sem ekkert tal er við
eða texti”.
15.000 krónur kostar að fá
birta einnar minútu auglýs-
ingu, eins og Kók-auglýsing-
una umræddu i Sjónvarpi.
— GG