Vísir - 18.08.1972, Page 2

Vísir - 18.08.1972, Page 2
2 Visir Föstudagur 18. ágúst 1972 vfentsm: Hver eru „breiðu bökin"? Jóna Bjarnadóttir, afgreiðslu- stúlka: Ég geri ráð fyrir þvi að það séu þeir sem hafa mestu tekjurnar. Rifast þeir ekki lika mest sem bera hæst úr býtum? Þóroddur Jónsson, verzlunar- maður: Ætli þessi breiðu bök séu nokkuð til lengur? Skatturinn hef- ur séð fyrir þvi. Einstaklingurinn sem slikur er ekki til. Það fyrir- finnst minnsta kosti enginn auð- maður i landinu. Þórður Kristjánsson, kennari: Er það ekki ósköp einfalt. Það er átt við þá sem hafa mestar tekjurn- ar. Birna Kristjánsdóttir, skrifstofu- stúlka: Ég veit það ekki. Jú lik- lega þeir sem þéna mest og svikja mest undan skatti. Það eru auð- vitað smáheildsalarnir og þeir sem stunda einkarekstur. Jónas Jónsson.fyrrverandi kaup- maður: Það er ekki gott að segja. Þeir sem hafa hæstu launin gæti maður imyndað sér. Eyjólfur Teitsson, iðnaðarmað- ur: Ja, ég veit það eiginlega ekki. Ætli það séu ekki bara þeir sem vinna erfiðisvinnuna og þræla mest. ... við hjónin stöndum i þessu á kvöldin ...” segir Björn Ófeigs- son, einn íbúanna i Brekkugerði um lóðarvinnuna. inn kemur að vörmu spori út aftur með ritvél i hendinni. Garðarnir eru vel snyrtir og blóm i skrúða. Þess vegna stingur óhirtur grasblettur i sveigjunni á götunni i stúf við umhverfið. Þar á sennilega borgin einhverja sök á. Þar á að koma útivistarsvæði fyrir eldra fólkið, sem mun búa i sjúkraheimilinu, sem rís fyrir ofan Brekkugerðið við Grensás- veginn. Þaðan á að liggja göngu- stigur niður að útivistarsvæðinu. Á móti og fyrir aftan húsin við Brekkugerði eru miklar fram- kvæmdir i gangi. Það er hús Askenazy’s, sem er verið að byggja á tveim lóðum. Það er þegar komið vel á veg og er mikið um sig. Hins vegar er dregið fyrir alla glugga í núverandi bústað Askenazy’s og engin hreyfing á þeim bæ. Við tökum tali einn af yngri íbú- unum í Brekkugerði hana Jóhönnu Björnsdóttur, tólf ára, sem á heima i Brekkugerði 9. Henni finnst gaman að búa i Brekkugerðinu. — Það eru skemmtilegir krakk- ar og gaman að leika sér hérna. Við förum i brennubolta. Viö erum i tveim hópum, strákarnir i einum hóp og stelpurnar i öðrum hóp og hver hópurinn hefur sitt svæði. Þegar strákarnir eru á efra svæðinu þá vinna þeir...en þegar stelpurnar eru á efra svæðinu, gripum við fram i. Já, þá vinna þær. Jú og stundum eru hóparnir blandaðir. Við erum stundum i krikkett hérna og stundum drekkum við úti saman. Svo förum við i skóginn, sem við köllum Svartaskóg, hann er ekki langt i burtu. Það eru jólatré i honum. Jóhanna er ein af sex systkinum og Tommi þriggja ára er einn þeirra. Hann segir ákveð- ið, að hann heiti Tommi ekki Tómas. Hvernig geðjast þér að þvi að búa i Brekkugerðinu? — O, ágætlega, prýðilega, segir pabbinn, Björn önundarson, sem kemur aðvifandi, eftir að hafa spurt fyrst hvort við séum að frámkvæma eignakönnun —-Við erum að drifa okkur i smá ferðalag. Erum hér með ameriskan skiptinema, sem er hjá okkur. Sonur okkar er úti i Bandarikjunum og við fáum þessa ungu dömu i staðinn. — Hvenær fluttist þú i Brekku- gerðið? — ^g-var héraðslæknir úti á landi,en kom hingað 1964. Keypti húsið af tengdaföður minum, sem byggði þaö. Jú, þetta er mjög skemmtilegur staður og góður. — Eruð þiö iðin i garðinum ykk- ar? — Ekki vil ég segja það, við gripum i það endrum og eins að vinna i honum. Og fjölskyldan brunar af stað i feröalagið. -SB- Þeir eru ekki lœknislausir "r- •••íbúarnir í Brekkugerði, j fegurstu götunni í Reykjavík í ár ... „sunnudagsstemmning” f friðsælu Brekkugeröi, fegurstu götunni 1 ár. IIP •mmmn ... ósnyrt tilvonandi útivistar- svæði fyrir eldra fólkiö stingur i stúf við velhirta garðana. — Ja, hérna og ég sem var ekki búinn að klippa, segir Björn Ófeigsson heildsali, einn af ibúun- um i Brekkugerði, feg- urstu götunni i Reykja- vik, þegar Visismenn sögðu honum fréttirnar. Við fórum á stúfana til að lita á þessa fegurstu götu borgarinnar i ár, sem komst i annað sæti i fyrra og fékk þá viður- kenningu. Fyrsti maðurinn, sem við kom- um auga á var Björn, þar sem hann var staddur i garðinum fyrir framan húsið sitt Brekkugeröi 7, með garðáhöld, en i blómabeðinu hjá honum á vel hirtri lóðinni sveigðist valmúinn i blóma,, sem útlenzkir kalla „Icelandic poppy” að sögn Björns. Björn var með fyrstu ibúum við götuna, flutti þangað 1961 og kannast við flesta nágrannana frá þeim tima, þegar þeir stóðu i byggingum og leituðu til hvers annars með ýmis sameiginleg vandamálsem hrjá húsbyggjend- ur. Margir þeirra byggðu sjálfir, hreinsuðu timbur og settu garð- ana i lag. Og ekki ætti Björn að kviða læknisleysi, vel „garderaður” i bak og fyrir með nágrannann Björn önundarson lækni við hlið- ina og Ölaf Bjarnson lækni og prófessor á ská á móti. Svo er það Eykon, Eyjólfur ... erum aö drifa okkur i smáferöalag ...” Jóhanna, Tommi, skipti- neminn Susan Yoder og Björn. Konráð Jónsson, sem er beint á móti mér. En við enda götunnar lokar hús Þorvarðs Þorvarðssonar i Stjörnubiói götunni. — Svo er það einn heimsfrægur maður, sem býr við götuna, það er Askenazy, sem býr á númer 22. Mér er sagt, að þau séu i Grikk- landi þar sem þau eigi sumar- bústað. Þetta er ákaflega rólegt og gott fólk, þegar það er heima á annað borð. — Hvernig er að búa við fegurstu götuna i borginni? — Mér likar það mjög vel. Hér er friðsælt og útsýni gott. Við hváum við, sjáum ekki mikið af götunni, en þegar á efri hæðir húsanna kemur sést vist meira. Björn segir, að alltaf sé þó verið að byggja fyrir útsýni, nú siðast fyrir Snæfellsjökul, en enn- þá heldur hann útsýninu á Esjuna og suðurfjöllin og innsigl- inguna til Hafnarfjarðar. — Hefur það verið eins konar þegjandi samkomulag milli ibú- anna að taka rögg á sig i görðun- um til að fá útnefninguna^ eftir viðurkenninguna i fyrra? —Ekki segi ég það. Þetta fólk, sem margt hvert er alltaf i garð- inum hjá sér að hlúa að og lag- færa og einnig til að njóta útiver- unnar. Við hjónin stöndum til dæmis i þessu á kvöldin. Brekkugerðið er friðsælt i sól- skininu og aflokað, fáir á ferli og einhverjir myndu kalla það sunnudagsstemmingu, sem rikir þar. Nokkur börn eru samt úti að leika sér. Leigubill rennir upp að húsi Eyjólfs Konráðs og bilstjór-

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.