Vísir - 18.08.1972, Page 3

Vísir - 18.08.1972, Page 3
Visir Föstudagur 18. ágúst 1972 3 Baháíar vilja reisa skóla, sjúkrahús og musteri í Kópavogi Skóli, sjúkrahus og musteri til dýrkunar spá- mannsins Bahái, mun hugsanlega rísa á hæðinni ofan við Fífuhvamm í Kópavogi. Þar hefur Baháí-söfnuðurinn í Reykjavík keypt fimm hektara landsvæði, og vill nú reisa þar byggingar. „Þeir skrifuðu Kópavogs- kaupstað bréf, þar sem hug- myndir þeirra umbyggingar voru lauslega orðaðar. Það er ekkert ákveðið með byggingar ennþá, enda er svæðið óskipu- lagt með öllu. Ekki vitað hvers konar byggingar verða leyfðar þarna eða hvort byggt verður yfirleitt”, sagði Bolli Kjartans- son, bæjarritari i Kópavogi, er Visir ræddi við hann i morgun. „Bygginganefnd og skipu- j lagsnefnd fjalla nú um erindi Bahái-mannanna — ég held þeir hafi helzt áhuga á að reisa þarna musteri, svo minntust þeir lika á skóla og sjúkrahús. Eiginlega þurfum við að heyra betur frá þeim hvað þeir vilja fá að byggja. Hve margar bygg- ingar og hve stórar. Annars var þeim tjáð, áður en þeir keyptu landið, sem var fyrir rúmu ári, að alls óvist væri enn með öll byggingaleyfi þarna”. Bahái spámaður verður þvi að doka ögn við eftir að musteri honum til dýrðar gnæfi á hæð- inni móti Arnarnesinu — en þol- inmæði er spámanninum eigin- leg, og hann biður eflaust ekki árangurslaust. — GG Ný skókstjarna í Bandarikjunum: „Fischer cetti aðvara sig ó mér" „Fischer ætti að vara sig á mér. Eg þekki veikleika hans, en hann veit ekki of mikið um mina”. Það er ástralski stórmeistarinn Walter Browne, sem hefur orðið. Hann keppir nú á meistaramóti Bandarikjanna og kveðst munu sigra. Browne er aðeins 23ja ára. Hann sigraði á bandariska meistaramótinu I fyrra, en Bent Larsen sigraði árin 1968 og 1970. Larsen keppir einnig nú sem gestur á þessu móti. Skákmennirnir á mótinu, sem er haldið i Atlantic City i New Jersey, leggja sig i lima til að fá leikina frá einviginu i Reykjavik, segir i AP skeyti. Þeir eru sihringjandi til New York til að frétta um leikina. „Sumir halda, að þeir geti notazt við leikina hérna”, segir fram- kvæmdastjóri bandariska mótsins. HH— Keflavíkurútvarpið vill halda kröfum Fox leyndum fyrir Fischer „Snjöll leið til þess að grœða peninga," segir séra Lombardy Chester Fox hefur nú stefnt Bobby Fischer og krafist 1,750,000 dollara eða nálægt 160 milljóna isl. kr. i skaðabætur vegna kvikmyndaréttarins. Keflavikurútvarpið sagði m.a. frá þessu i nótt og lét það fylgja meö að þetta væri algjört leyndarmál að svo stöddu og sizt af öllu mætti þetta berast Fischer til eyrna. Þá höfum við það. Bobby Fischer má alls ekki vita það að fjárkröfur hafa nú verið höfðaðar á hann. Þaö væri vist betur ef svo væri, þvi 160 mill jónir isl. eru vist ekkert smáræði og Fischer ekki mikill maður til þess að borga slikar upphæðir. „Þetta er vissulega snjöll leið til að þéna peninga, sagði séra Lombardy i morgun og hló við, þegar Visir hafði samband við hann. __ Góð sala í minjagripum Skóksambandsins: Pantaði 1000 eintök af hverjum grip M i n j agr ipasa la Skáksam- bandsins i Höllinni gengur nú mjög vel, að sögn Ásgeirs Friðjónssonar, framkvæmda- stjóra sambandsins. Kennir margra grasa i mununum, og alls konar likön og póstkort eru vinsæl meðal fólks. Þá hefur nýi peningurinn hlotið mjög góðar viðtökur almennings eins og sjá má af sölunni. Serian, sem var 800 stk., er nú uppseld, en ein- stakir peningar eru enn til sölu og hafa selzt um 1500 peningar, en ennþá hefur upplagið ekki verið ákveðið. Skáksambandinu barst nýlega pöntun frá bandarískum höndlara, segir Asgeir, þar sem hann óskaði eftir að fá keypt sem sýnishorn 1000 eintök af hverjum minjagrip sem Skáksambandið hefur til sölu. „Allt eru þetta miklir peningar, en mest gróða- vonin er að sjálfsögðu i minnis- peningnum”, sagði Asgeir. „Ef vel tekst til með sýnishornin sem við sendum til Bandaríkjamannsins má gera ráð fyrir að hann panti meira og við fáum þvi e.t.v. góðar tekjur þar vestra.” — GF Rœtt við bœndur: ## Ekki svona mikið hey síðan land byggðist" „Þetta er alveg ágætur hey- skapur, meira en dæmi eru til, að ég held”, sagði Björn Pálsson. bóndi á Löngumýri i Húnav.s. viðtali við blaðiö. „Hey held ég að verði nú ekki allt komið inn i vikulokin, en þetta er mikið heyfang og meira en vanalega.” Og þrátt fyrir votviðrasamt sumar, eru bændur hinir ánægðustu með heyskapinn. Sprettan hefur verið með af- brigðum góð, það eru þeir allir sammála um, og sumir vilja meina að svona góð hafi hún ekki verið siðan 1964. „Veðurfar hefur verið sérstak- lega gott siðastliðinn hálfan mánuð”, sagði Björn ennfremur. „Þá unnu allir sem vettlingi gátu valdið að heyskapnum, og það gengur betur eftir þvi sem vélaafl og mannskapur er meiri. Núna um helgina fór svo aftur að syrta, og það rigndi aðeins i gærdag. En þaðeruengar stórrigningar, ekki eins og i júlimánuði, sem var slæmur og mjög erfiður.” „Sprettan er miklu betri en dæmi eru til, held ég. Tún eru mjög góð, og hvergi finnst i þeim kal, svo þetta ætti að koma vel út i haust, og ég held aö þetta sé gott hey sem við fáum.” „Þetta verður alveg gifurlega mikið hey eftir sumarið, senni- lega það mesta siðan land byggðist”, sagði Þorsteinn Sigurðsson, bóndi á Vatnsleysu i Arnessýslu. „Það er að visu ekki komiðinni hús allt saman, og fer það heldur ekki allt. Heyið er ákaflega vel útlitandi, en það er ekki gott að sama skapi. Veður- far hefur heldur ekki verið svo framúrskarandi gott, rigningar eftir miðjan júni og fram i ágúst. Annars fengum við þann allra bezta þurrk, sem lengi hefur komið og stóð hann fram að helgi. En það var stuttur þurrkur, ekki nema 8-10 dagar, en það þarf meira til. Tún eru orðin það stór, til dæmis eru þau hérna 40-60 hektarar, og það tekur langan tima að slá þetta allt saman. En meðan þessi þurrkur stóð yfir, þá slógum við á nóttunni, og siðan var unniö að heyskapnum yfir daginn. Ég hef aðeins heimafólk, en þetta er jú orðin svo miki) vélavinna.” — Sláið þið túnin nokkuð aftur? „Nei, það er orðið langtum minna um það nú, en áður, þvi tún eru það stór, og háin er yfir- leitt aðeins notuð til beitar fyrir kýrnar. — Hvenær má búast við að hey verði komið inn? „Það er ómögulegt að segja hvenær allt hey verður komið inn i hlöður. Margir eru að visu búnir að fylla hlöður sinar, en þeir binda heyiö, þvi það tekur minna pláss.” ,1 það heila hefur sumar þetta verið mjög gott, mikil spretta, góð nýting á heyjum og það voraði snemma. Ætli það hafi verið svona gott siðan ’64?” Svo sagði Gisli Helgason, bóndi á Helgafelli á Egilsstöðum. „Ég held að flestir séu búnir að heyja, og hey að mestu komið i hlöður, þó ekki allt. Það er verið að biða eftir þvi að sigi i hlöðum, svo hægt sé að bæta á.” — Hafið þið verið heppnir með veður undanfarið? „Já það mundi ég segja. Nú hefur verið þurrkur siðan eftir miðjan júli, að visu rigningar á milli en ekki miklar. En það var nokkuð slæmt i júlibyrjun.” — Hafið þið mikinn mannskap? „Nei, þetta eru bara fjölskyld- urnar sem standa i þessu, og svo auðvitað vélarnar, ekki má gleyma þeim.” — Og það má fara að búast við töðugjöldum? „Já, þegar siðasta tuggan er komin á sinn stað.” —EA „Ha, ég á þjóðhótíð?" „Ha, ég á þjóölagahátið, hvaða þjóðlagahátið er nú það?” Mér finnst bara alveg hreint nóg að vera hérna á þjóðhátiðinni i Vestmannaeyj- um.” Sjálfsagt hefur hún móð- ir hennar sem heldur I höndina á henni og bróðurnum, tekið i alveg sama streng. Enda verður sennilega fátt um börn á þjóðlagahátið þeirri sem Eyjaskeggjar hyggjast halda nú um helgina i eyju skammt utan við Heimaey, sem heítir Elliöaey. Sú hátið verður nefnilega tileinkuð ungmenn- um eingöngu, en ekki þeim aldri sem börnin hér á mynd- inni eru á. Skemmtikraftar munu koma þar fram, t.d. RIó Trió, Umbi Roy, Kristin Lilliendahl og Arni Johnsen, og svo skemmtikraftar úr Eyjum. Gestir verða fluttir i bátum frá Heimaey út i eyna á laugardag, og svo heim á sunnudagskvöld. Áfengi verð- ur stranglega bannað, en þeir sem að þessari hátið standa eru félagar úr hjálparsveit skáta og stúkunni Sunnu. —EA

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.